Morgunblaðið - 26.01.1986, Page 64
V^terkurog
^3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
S1ADFESTIÁNSTRAUST
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
J* ■
a morgun
ALÞINGI kemur saman á ný
eftir jólahlé á morgnn mánu-
dag, kl. 14.00.
Að sögn Friðriks Ólafssonar
skrifstofustjóra Alþingis verður
á morgun m.a. tilkynnt um
breytingar, sem orðið hafa á
ríkisstjóminni með mannaskipt-
um í embætti utanríkisráðherra.
Á þriðjudag verður fundur í
sameinuðu þingi og á miðviku-
dag hefjast deildarfundir.
Alþingi
kemur saman
Ríkisstjómin:
500 milljónir
til fiskvinnslu
Seðlabankinn endurgreiðir 70 milljónir
af vaxtagreiðslum af afurðalánum
NÚ ERU í undirbúningi svör ríkisstjómarinnar við óskum og spurn-
ingum fiskvinnslunnar um aðgerðir henni til úrbóta. Meðai þess, sem
ákveðið hefur verið, er að veija um 500 milljónum króna til aðstoðar
fiskvinnslunni og Seðlabankinn hefur fallizt á að endurgreiða henni
70 milljónir af greiddum vöxtum afurðalána. Ríkisstjómin mun
væntanlega ganga frá'þessu máli á þriðjudag.
Seðlabankinn hefur fallizt á að
endurgreiða fiskvinnslunni 70 millj-
ónir króna vegna leiðréttingar á
vöxtum á afurðalánum, en endur-
skoðun þessara vaxtagreiðslna hefur
staðið jifir um tíma. I tiliögum fisk-
vinnslunnar frá 10. desember síðast-
liðnum um brýnustu úrbætur til leið-
réttingar á vanda hennar, er talið
að gengistap fiskvinnslunnar vegna
misgengis dollars og SDR við vaxta-
greiðslur nemi 300 til 400 milljónum
króna.
Áætlað er að áðumefndum 500
milljónum króna verði varið til að-
stoðar fiskvinnslunni, meðal annars
til að auðvelda aukningu eigin Qár
fyrirtækja innan hennar. Þá er einn-
ig gert ráð fyrir fjármagni til að
efla tæknivæðingu og að útflutn-
ingsfyrirtækjum verði heimilað að
kaupa nauðsynlegustu tæki á kaup-
leigusamningum, sem gæti flýtt
fyrir þeirri tæknivæðingu, sem
vonazt er eftir. Ekki er endanlega
frágengið með hvaða hætti þessa
fjár verður aflað, en líklegt er að
það verði með millifærslum innan
sjóðakerfís sjávarútvegsins.
Fiskvinnslan hefur einnig óskað
eftir skipan opinberrar nefndar til
athugunar á gengisskráningu, en
Seðlabankanum hefur verið falin sú
endurskoðun. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur fiskvinnslan
sjálf hafið þessa athugun.
Kaffi:
Enn verðhækkun og
skortur fyrirsjáanlegur
VERÐ á kaffi hefur hækkað um
30-60% að undanfömu og fer
hækkunin eftir tegundum. Fyrir-
sjáanleg er enn meiri verð-
hækkun á kaffi.
„Kaffi sem nú er verið að selja
í búðum er keypt fyrir mörgum
mánuðum og í stað þess að breyta
verði við hveija sendingu er verð á
kaffisendingum jafnað. Mikil hækk-
un hefur orðið á kaffiverði síðan
kaffið sem nú er verið að selja var
keypt" sagði Ólafur Ó. Johnson
forstjóri Ó. Johnson og Kaaber í
samtali við Morgunblaðið. „Þessi
hækkun stafar af því að töluvert
af kaffiuppskerunni í Brasilíu eyði-
lagðist vegna þurrka. Uppskeran
sem eyðilagðist hefði ekki komið á
markað fyrr en í sumar, en af því
að menn vita af þessu tjóni hækkar
verðið strax, m.a. vegna spákaup-
mennsku. Ekki er hægt að tala um
að skortur sé á kaffí í dag, en hann
er fyrirsjáanlegur" sagði Ölafur Ó.
Johnson.
Vetrarvertíðin lítt gjöful enn
MorgunblaÆð/RAX
Vetrarvertíð er nú hafín fyrir nokkru, en hefur ekki verið gjöful til þessa. Hafberg GK landaði 6,7 lestum,
mest ufsa, í Grindavík á föstudag og þykir mönnum það fremur rýr afli eftir tveggja nátta lögn. Vigtar-
menn í Grindavík sögðu bátana vera með á bilinu 7 til 12 lestir í róðri eftir tvær nætur og væri það
mest verðlítill ufsi. Nánast ekkert væri af hinum hefðbundna vertíðarþorski, aðeins eitt og eitt kvikindi.
Þorsteinn Pálsson um Þróunarfélagið eftir „þrýsting** forsætisráðherra:
Klofið vegna flokks-
pólitískra hagsmuna
Hætta á að ráðherravaldi verði beitt varðandi einstök verkefni félagsins
„EFTIR að stjómskipulegu ráðherravaldi hefur veríð beitt varðandi
ráðningu forstjóra verður ekki annað séð, en hætta sé á, að því
geti einnig veríð beitt til þess að hlutast til um einstakar ákvarðanir
stjómarinnar er lúta að þeim verkefnum í atvinnumálum, sem félag-
inu er ætlað að sinna," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, í samtali við blm. Morgunblaðsins um þann klofning, sem
upp er kominn í stjóm Þróunarfélags íslands hf.
Eins og fram hefur komið sögðu
tveir stjómarmenn, Davið Sch.
Thorsteinsson og Hörður Sigur-
gestsson, af sér á föstudag vegna
þess, sem þeir kalla þrýsting frá
forsætisráðherra um ráðningu
framkvæmdastjóra félagsins. Alls-
endis er óvíst hvort varamenn þeirra
Davíðs og Harðar í stjóminni,
Gunnar Ragnars og Bjöm Þórhalls-
son, taka sæti sín þar eftir klofning-
inn á föstudag. Hvorugur sagðist í
gær hafa gert upp hug sinn til þess.
Þorsteinn Pálsson kvaðst „harma
að félagið skuli hafa verið klofið
vegna flokkspólitfskra hagsmuna.
Meirihlutinn sýnist hafa metið meir
að tengja kommisarakerfí gömlu
Framkvæmdastofnunar við Þróun-
arfélagið en að ná samstöðu," sagði
hann. „Það hefur frá öndverðu verið
ágreiningur milli sjálfstæðismanna
og framsóknar í þessum eftium.
Framsókn vill flokkspólitíska stjóm
á fjármagnsmarkaðnum. Ákvörð-
unin um stofnun Þróunarfélagsins
sem hlutafélags stefndi í þveröfuga
átt. Framsókn vildi hafa þessa
starfsemi í sérstökum sjóði undir
pólitískri stjóm. Því höfnuðum við.“
Þorsteinn minnti á, að hann hefði
Iýst því yfir, „bæði fyrir og eftir
stofnun Þróunarfélagsins, að ég
myndi engin afskipti hafa af ráðn-
ingu forstjóra - því máli ætti stjóm
hlutafélagsins að ráða án pólitísks
þiýstings. Þegar formaður Þróun-
arfélagsins tjáði mér að forsætis-
ráðherra krefðist þess, að ráða hver
yrði forstjóri ítrekaði ég að sú af-
staða mín væri óbreytt, að taka
ekki afstöðu til einstakra manna,
sem til álita kæmu, hvorki með
einum né á móti öðmm. En það
gengi hins vegar þvert á tilganginn
með stofnun hlutafélags, að sá ráð-
herra, sem félagið heyrir stjóm-
skipulega undir, ætti að ráða úrslit-
um í þessu efni.“
Fjármálaráðherra kvaðst vilja
minna á i þessu sambandi, að ríkið
væri minnihlutaaðili í félaginu. „Um
þessar mundir era ríkissjóður og
ýmsir aðrir opinberir sjóðir að taka
á sig mikil áföll sem skipta hundr-
uðum milljóna króna og að tals-
verðu leyti má rekja til pólitískrar
flármagnsfyrirgreiðslu frá fyrri tfð.
Skattgreiðendur borga brúsann,"
sagði hann. „í þessum efnum vilja
sjálfstæðismenn fara aðrar leiðir
en framsókn. Mín skoðun er sú, að
stjómarmönnum í Þróunarfélaginu
hafi fyrst og fremst borið skylda
til að halda félaginu saman í sam-
ræmi við tilgang þess en ekki taka
pólitískum tilmælum."