Morgunblaðið - 19.02.1986, Page 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
41,tbl. 72. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 19, FEBRÚAR1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Grishin vikið úr
stj ómmálaráðinu
Moskvu, 18. febrúar. AP.
VIKTOR V. GRISHIN var rekinn úr stjóramálaráði sovézka kommún-
ista í dag og era þá aðeins þrír
Brezhnev eftir í ráðinu, sem skipað
Grishin bíður nú hnekki öðru
sinni á skömmum tíma, því 24.
desember sl. var hann settur af sem
formaður Moskvudeitdar _ sovézka
kommúnistaflokksins. Ákvörðun
um brottvikningu hans úr stjóm-
málaráðinu var tekin á fundi mið-
stjómar flokksins í dag.
Ekki hefur verið skipað í sæti
Grishins i ráðinu en Boris N. Yelts-
in, sem tók við Moskvudeildinni af
Grishin, var skipaður biðfélagi í
ráðsmenn frá valdatíma Leonids
er 11 mönnum.
dag. Biðfélagar em þá sjö, en þeir
hafa ekki atkvæðisrétt á fundum
ráðsins.
Þá var Konstantin V. Rusakov
settur af sem ritari í miðstjóm
kommúnistaflokksins. Hann sá um
tengsl miðstjómarinnar við komm-
únistaflokka í fylgiríkjum Sovétríkj-
anna. Rusakov er 76 ára og sagði
TASS að hann hefði hætt fyrir
aldurs sakir. Ekki var tilkynnt um
eftirmann hans.
Grishin hafði setið lengur í
stjómmálaráðinu en nokkur annar
ráðsmaður. Hann varð biðfélagi
1961 og fullgildur 10 ámm seinna.
Hann hefur legið undir gmn um
að vera flæktur í hneykslismál, sem
varða byggingafyrirtæki í Moskvu.
Grishin er þriðji ráðsmaðurinn, sem
vikið er frá í tíð Mikhails Gorbach-
ev. Hinir em Grigory Romanov, sem
talinn var helzti keppinautur Gor-
bachevs um flokksformennsku við
fráfall Konstantins Chemenko, og
Nikolai A. Tikhonov, sem vikið var
úr starfi forsætisráðherra í haust.
FÓRNARLÖMB EITUREFNAVOPNA
TUGIR íranskra hermanna á sjúkraböram í breiðþotu, sem flutti þá til aðhlynningar á sjúkrahúsum
í Evrópu i gær. Hermennirnir urðu fyrir eiturefnavopnum, sem írakar eru sagðir hafa gripið til
í átökum i Persaflóastríðinu síðustu daga. Hermennirnir voru fluttir á sjúkrahús í rikjum Vestur-
Evrópu. Myndin var tekin við komu þotunnar til Vínarborgar.
Yfirlýsing- frá utanríkisráðherrum EB-ríkja um íslenskan útflutning:
„Verslum ekki með
fiskveiðiréttindi“
— segir Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópubandalagsríkjanna samþykktu í
gær sameiginlegar tillögur til að leggja fram i samningaviðræðum
við aðildarríki Fríverslunarbandalags Evrópu, EFTA. I tillögunum
er m.a. yfirlýsing um að allt samkomulag um að fella niður aðflutn-
ingsgjald á vörum frá íslendingum byggist á því að aðildarríki
Evrópubandalagsins fái að veiða í íslenskri landhelgi.
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneyt-
isstjóri í viðskiptaráðuneytinu,
sagði að þessar hugmyndir hefðu
komið fram og þeim hefði verið
synjað. „Það hefur ætíð verið stefna
okkar að versla ekki með fiskveiði-
réttindi í skiptum fyrir viðskipta-
fríðindi," sagði Þórhallur: „1. júlí
settu Evrópubandalagsríki 13 pró-
sent innflutningstoll á saltfísk. Við
höfum enn ekki þurft að borga
hann vegna þess að tollkvótinn eða
tollfijáls innflutningskvóti hefur
hingað til ekki verið fylltur. En
óvíst er hvort hægt verður að fá
aukningu á tollftjálsum kvóta á
þessu ári. En innheimta á tolli
myndi ekki aðeins bitna okkur,
heldur fremur á Portúgölum, a.m.k.
á meðan eftirspumin eftir saltfiski
er meiri en framboðið. Okkur er
kunnugt um að Portúgalir ei‘u að
reyna að fá aukinn tollfrjálsan
kvóta fyrir saltfísk innan Evrópu-
bandalagsins," sagði Þórhallur.
Ráðherramir ákváðu á lokadegi
mánaðarlegs fundar síns að hefja
viðræður við EFTA í lok þessa
mánaðar.
Helsta viðfangsefni viðræðuaðila
er að ganga frá aðild Portúgala og
Spánverja að Evrópubandalaginu,
sem gekk í gildi sl. áramót.
Aðildarríki EFTA em Noregur,
Sviþjóð, Finnland, Austurríki, Sviss
og Island.
Norðmenn vilja setja aflamark á
þau aðildarríki Evrópubandalags-
ins, sem veiða við Svalbarða, en
Spánverjar, sem hafa stærsta veiði-
flotann innan bandalagsins, segjast
munu virða slíkt mark að vettugi.
Grishin
Lissabon:
Sprengl við
bandaríska
sendiráðið
Lissabon, 18. febrúar. AP.
SPRENGJA sprakk í bifreið
starfsmanns bandariska
sendiráðsins í Lissabon i
kvöld en tjón varð hvorki á
mönnum né mannvirkjum.
Maðurinn var nýkominn til
sendiráðsins er sprengjan
sprakk. Hennar varð vart við
venjulega leit eftir að bifreiðinni
var lagt fyrir utan aðalhlið
sendiráðslóðarinnar og tókst
því að forða nærstöddum úr
hættu.
Óvægin átök á
Faw-skasranum
^ Nikósfu, 18. febrúar. AP.
ÍRANIR OG ÍRAKAR fullyrtu að þeir hefðu hrundið sókn hvors
annars á Faw-skaganum i Suðaustur-írak i óvægnum og liarðskeytt-
um bardögum í nótt og morgun. Hundrað hermenn hefðu fallið og
tugir skriðdreka verið eyðilagðir. Báðir stríðsaðilar sögðu harða
bardaga hafa verið háða i allan dag.
íranir kváðust halda áfram sókn
sinni frá olíuborginni A1 Faw, sem
þeir náðu fyrir helgi, og stefna
norður á við til Basra, næststærstu
borgar íraks, og til vesturs í átt til
írösku flotastöðvarinnar Umm
Qasr, sem er við landamæri íraks
og Kuwait.
íranir sögðu traka aðeins einu
sinni blásið til gagnsóknar í nótt
og hefði hún verið brotin á bak
aftur.
Hin opinbera fréttastofa íraks
skýrði með öðrum hætti frá átökun-
um. Hún sagði írana tvisvar hafa
reynt að leggja til atlögu, en báðum
sóknum hefði verið hrundið. íraskar
hersveitir hefðu haldið gagnsókn
sinni áfram og íransher hefði hörf-
að og væri nú kominn í sjálfheldu,
þar sem ekkeft nema dauðinn biði
hermannanna. Kváðust írakar hafa
fellt 1.200 íranska hermenn í nótt
og morgun og tekið enn fleiri til
fanga.
Þar sem vestrænir fréttamenn
fá ekki að koma nálægt átakasvæð-
unum hefur reynst erfítt að stað-
festa gildi fullyrðinga stríðsaðilja.
Þó virðist sem Iranir hafí undirtökin
á Faw-skaganum. Öryggisráðið
kom saman til fundar um styijöld-
ina að kröfu fjölmargra arabaríkja
og íraka. Fulltrúi íran sótti ekki
fundinn þar sem Öryggisráðið hefur
ekki orðið við þeirri kröfu írana að
fordæma íraka fyrir notkun efna-
vopna í Persaflóastríðinu. íranir
saka íraka um notkun efnavopna
og hafa tugir iranska hermanna,
sem orðið hafa fyrir barðinu á
vopnum af þessu tagi, verið fluttir
til Evrópu síðustu daga til aðhlynn-
ingar.
Israelar halda því fram að íranir
hafi flutt á annan tug herdeilda,
sem undirbúi áhlaup á stöðvar íraka
meðfram þjóðveginum frá Persaflóa
til Bagdað, að átakalínunni.
ísraeli
myrtur í
Líbanon?
Týrus, Líbanon, 18. febrúar. AP.
ÖFGAFENGNIR shítar kváð-
ust hafa tekið af lífi miðaldra
ísraela, Elie Hallak, sem þeir
rændu fyrir tveimur árum í
Beirút, í hefndarskyni við
aðgerðir ísraelshers í suður-
hluta Líbanon í dag.
Israelar fóru með herlið inn
í suðurhluta Líbanon í leit að
tveimur hermönnum, sem rænt
var. Ofsafengnir shítar, sem
eiga í útistöðum við ísraela syðst
í Líbanon, hótuðu að taka annan
hermanninn af lífí ef herinn
hyrfí ekki fyrir kl. 21 að staðar-
tíma. Skömmu seinna kváðust
önnur shítasamtök hafa tekið
Hallak af lífi. Sögðu þau hann
hafa verið háttsettann í ísra-
elsku leyniþjónustunni, Mossad.
Ógerlegt var að staðreyna sann-
leiksgildi yfírlýsingarinnar, en
reynist hún á rökum reist verður
atburðurinn sízt til að draga úr
víðsjám í Líbanon.
Sjá „ísraelar fylkja liði í
leit að tveimur hermönn-
um“ á bls. 24.