Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986
Tveir síðhaerðustu knattspyrnumenn á Spáni. Pétur Pótursson og Mario Kempes.
Mario Kempes í einkaviðtali við Morgunblaðið
• I síðasta leiknum með Hercules var Kempes skipt útaf og hér
gengur hann til varamannaskýlisins hjá liðinu í síðasta sinn.
„Sigurinn er oft sætari þegar
hann kemur öllum á óvart"
EINS OG FRAM hefur komið á sfðum Morgunblaðsins hefur argent-
íski knattspyrnusnillingurinn, Mario Alberto Kempes, nú sagt skilið
við hina stjörnum stráðu braut sem spænska 1. deildarkeppnin er
og heldur nú á vit nýrra átaka í nýju landi, Austurríki. Kempes lék
sinn síðasta leik með Pétri Péturssyni og félögum hjá Hercules Alic-
ante á Spáni þann 26. janúar 1986. Hann mun að öllum Ifkindum Ijúka
knattspyrnuferli sfnum með liði frá Vín, Wienner Sport Club. Félaga-
skiptin munu færa Mario Kempes, sem er 31 árs, 250 þúsund dollara
í aðra hönd fyrir tveggja ára samning og eins og hann segir sjálfur:
„Á mínum aldri hafna menn ekki slfku tilboði fyrir að leika knatt-
spyrnu."
Flestir muna eftir Mario Kempes
úr heimsmeistarakeppninni í Arg-
entínu 1978. Þar var hann aðal-
stjarna heimsmeistaranna, marka-
kóngur keppninnar og auk þess
kjörinn besti leikmaðurinn. En
Kempes lagði ekki aldeilis skóna á
hilluna eftir að hafa notað þá svo
vel þar. Síðan HM 1978 hefur hann
leikið 144 leiki i 1. deildinni á Spáni,
tvívegis orðið markahæsti leik-
maðurinn og skorað samtals 116
mörk. Sum af þessum mörkum eru
hreinustu glæsimörk, hann á það
til að skora beint úr aukaspyrnum
allt frá eigin vallarhelmingi og beint
úr hornspyrnum svo eitthvað sé
nefnt.
Fréttaritari Morgunblaðsins hitti
þennan fræga íþróttasnilling á
kaffihúsi í Alicante á Spáni eitt
sunnudagskvöld íjanúarog mælist
til að fá að leggja nokkrar spurn-
ingar fyrir kappann.
„Hvað? Viðtal við mig? Um
hvað viltu tala? Markið sem ég
gerði f gærkvöldi? Jæja alveg
sjálfsagt, komdu bara á æfingu
hjá Hercules í fyrramálið og við
spjöllum saman á eftir. Hasta
manana!"
1 Fótboltabrandarar
ómuðu umtóma
v áhorfendapalla
Æfingin gekk létt fyrir sig, menn
voru mest í því að ná úr sér strengj-
unum eftir leik helgarinnar með
teygjum og skokki. Greinilega góð-
ur andi hjá strákunum og spænskir
fótboltabrandarar fengu að óma
um tóma áhorfendapalla. Menn
voru dreiföir í litlum hópum um
allan völl og í einu horninu var
Skagamaðurinn, Pétur Pétursson,
að æfa hornspyrnur. Fyrir markinu
voru tveir varnarmenn og tveir
sóknarmenn, annar þeirra Mario
Kempes.
„Sjáðu, mér líst vel á stöngina
þarna,“ kallaði Mario Kempes um
ieið og boltinn datt fyrir fætur
hans. I stöngina small knötturinn
og þeyttist síðan langleiðina að
hinu markinu, rétt eins og hjá Jóa
útherja forðum á síðustu mínútu í
vítaspyrnunni.
Eftir æfinguna brugðu leikmenn
sér í sturtu en einn af þeim fyrstu
út úr búningsklefanum var Mario.
„Fáum okkur kaffi,“ tilkynnti
knattspyrnumaðurinn og við löbb-
uðum yfir götuna, settumst á
næsta kaffihús og fengum okkur
kaffi — bleksterkt á spænska vísu.
Lék fyrst með skólaliði
íCordoba
Ég byrjaði á að spyrja Kempes
um þessa goðsögn um suðuram-
erísku guttana sem æfðu knatt-
spyrnu á ströndinni og bjuggu til
knettina sjálfir úr sokkunum sín-
um. Varstu einn af þessum
strandadrengjum?
„Nei, ég hafði alveg sæmilegar
aðstæður til að spila fótbolta
þegar óg var strákur, við spiluð-
um mest á litlum völlum með 5
til 6 f liði, svona svipað og er í
innanhússknattspyrnunni. Fyrsta
liðið mitt var skólalið í Cordoba
en sfðan byrjaði ég af alvöru með
Roserio Central. Eg lék á Spáni
1977 og 1978 með Valencia en
eftir HM 1978 lók ég eitt keppnis-
tfmabil með River Plate f Argent-
• Kempes er „þekktur fyrir sín þrumuskot" og hér skorar hann af 40 metra færi gegn Osasuna
fnu. Svo fór óg aftur til Valencia
og var þar til haustsins 1984, að
ég byrjaði hjá Hercules."
„Toppurinn að verða
heimsmeistari“
- Hvernig var að leika í heims-
meistarakeppninni 1978?
„Ég held að það hafi verið
toppurinn á ferli mfnum sem
íþróttamanns, að vera f heims-
meistaraliðinu. Einnig er mér
minnistætt að hafa tvívegis verið
markahæsti leikmaðurinn á Spáni
— bæði skiptin með Valencia."
- Er það nokkuð spennandi fyrir
mann sem hefur farið í gegnuni
allt þetta að spila með liði eins og
Hercules, sem berst fyrir veru
sinni í 1. deild?
„Ég neita því ekki að ég er
vanari þvf að vera f toppbarátt-
unni. En stundum verður sigurinn
enn sætari þegar hann kemur
öllum á óvart og maður leikur
með „hógværu" liði eins og
Hercules. Mór er mjög minnis-
stætt að f tveimur sfðustu leikjun-
um í deildinni í fyrra sigruðum
við Barcelona hér á heimavelli
og sfðan Real Madrid á Berna-
beau f Madrid í sfðasta leiknum.
Við urðum að vinna báða þessa
leiki til að hanga í deildinni og
það tókst, þó margir höfðu verið
búnir að spá liðinu falli.“
Ekki til nein
töfrabrögð til að
skora mörk
- Þér tókst að skora í þessum
mikilvægu leikjum?
„Þó ég hafi skorað f þessum
leikjum er það ekki fyrir nein
„trix“, það eru ekki til nein töfra-
brögð til að skora mörk. Það sem
skiptir máli er að vera með f leik-
flótturm sem heppnast vel hjá
liðinu."
- Hvað er besta markið sem þú
hefur gert?
„Mér þykir nú yfirleitt vænst
um nýjasta markið — segjum
markið sem ég gerði í gær (gegn
Osasuna skorað beint úr auka-
spyrnu af löngu færi). En það
mikilvægasta hlýtur að hafa verið
seinna markið í úrslitaleiknum f
HM 1978 gegn Hollendingum
(Argentina sigraði 2-1 og Kempes
skoraði bæði mörkin).“
Mexíkanar næstu
heimsmeistarar
- Hverjir eru sigurstranglegastir
að þínu mati i heimsmeistara-
keppninni sem fram fer í Mexíkc
íár?
„Það gæti vel orðið Mexfkó,
þeir hafa mjög gott lið og hafa
fólkið með sér. Önnur lið sem
hafa góða möguleika eru Argent-
fna, Brasilfa og ítalfa."
- Þekkir þú eitthvað til íslenskr-
arknattspyrnu?
„Já, ég sá seinni landsleikinn
við Spánverja sem fór fram i
Sevilla. Það var vel staðið að
markinu sem íslendingar gerðu.
Ég man nú ekki eftir einstökum
leikmönnum nema þá helst mark-
verðinum Bjarna Sigurðssyni. En
ég sá „Miss Mundo" (ungfrú Is-
land), í sjónvarpinu. Það er frekar
að maður muni eftir henni..."
Pétur á eftir að sýna
hvað íhonum býr
- Hvernig finnst þér Pétri Pét-
urssyni hafa gengið hér hjá Hercu-
les?
„Pétur var mjög virkur í fyrstu
leikjunum en sfðan hægði hann
verulega á sér og var tekinn út úr
byrjunarliðinu. Að undanförnu
hefur hann æft af kraftl og náð
sæti sfnu aftur í liðinu og á
næstunni spái ég þvf að hann