Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 52

Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 Tveir síðhaerðustu knattspyrnumenn á Spáni. Pétur Pótursson og Mario Kempes. Mario Kempes í einkaviðtali við Morgunblaðið • I síðasta leiknum með Hercules var Kempes skipt útaf og hér gengur hann til varamannaskýlisins hjá liðinu í síðasta sinn. „Sigurinn er oft sætari þegar hann kemur öllum á óvart" EINS OG FRAM hefur komið á sfðum Morgunblaðsins hefur argent- íski knattspyrnusnillingurinn, Mario Alberto Kempes, nú sagt skilið við hina stjörnum stráðu braut sem spænska 1. deildarkeppnin er og heldur nú á vit nýrra átaka í nýju landi, Austurríki. Kempes lék sinn síðasta leik með Pétri Péturssyni og félögum hjá Hercules Alic- ante á Spáni þann 26. janúar 1986. Hann mun að öllum Ifkindum Ijúka knattspyrnuferli sfnum með liði frá Vín, Wienner Sport Club. Félaga- skiptin munu færa Mario Kempes, sem er 31 árs, 250 þúsund dollara í aðra hönd fyrir tveggja ára samning og eins og hann segir sjálfur: „Á mínum aldri hafna menn ekki slfku tilboði fyrir að leika knatt- spyrnu." Flestir muna eftir Mario Kempes úr heimsmeistarakeppninni í Arg- entínu 1978. Þar var hann aðal- stjarna heimsmeistaranna, marka- kóngur keppninnar og auk þess kjörinn besti leikmaðurinn. En Kempes lagði ekki aldeilis skóna á hilluna eftir að hafa notað þá svo vel þar. Síðan HM 1978 hefur hann leikið 144 leiki i 1. deildinni á Spáni, tvívegis orðið markahæsti leik- maðurinn og skorað samtals 116 mörk. Sum af þessum mörkum eru hreinustu glæsimörk, hann á það til að skora beint úr aukaspyrnum allt frá eigin vallarhelmingi og beint úr hornspyrnum svo eitthvað sé nefnt. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti þennan fræga íþróttasnilling á kaffihúsi í Alicante á Spáni eitt sunnudagskvöld íjanúarog mælist til að fá að leggja nokkrar spurn- ingar fyrir kappann. „Hvað? Viðtal við mig? Um hvað viltu tala? Markið sem ég gerði f gærkvöldi? Jæja alveg sjálfsagt, komdu bara á æfingu hjá Hercules í fyrramálið og við spjöllum saman á eftir. Hasta manana!" 1 Fótboltabrandarar ómuðu umtóma v áhorfendapalla Æfingin gekk létt fyrir sig, menn voru mest í því að ná úr sér strengj- unum eftir leik helgarinnar með teygjum og skokki. Greinilega góð- ur andi hjá strákunum og spænskir fótboltabrandarar fengu að óma um tóma áhorfendapalla. Menn voru dreiföir í litlum hópum um allan völl og í einu horninu var Skagamaðurinn, Pétur Pétursson, að æfa hornspyrnur. Fyrir markinu voru tveir varnarmenn og tveir sóknarmenn, annar þeirra Mario Kempes. „Sjáðu, mér líst vel á stöngina þarna,“ kallaði Mario Kempes um ieið og boltinn datt fyrir fætur hans. I stöngina small knötturinn og þeyttist síðan langleiðina að hinu markinu, rétt eins og hjá Jóa útherja forðum á síðustu mínútu í vítaspyrnunni. Eftir æfinguna brugðu leikmenn sér í sturtu en einn af þeim fyrstu út úr búningsklefanum var Mario. „Fáum okkur kaffi,“ tilkynnti knattspyrnumaðurinn og við löbb- uðum yfir götuna, settumst á næsta kaffihús og fengum okkur kaffi — bleksterkt á spænska vísu. Lék fyrst með skólaliði íCordoba Ég byrjaði á að spyrja Kempes um þessa goðsögn um suðuram- erísku guttana sem æfðu knatt- spyrnu á ströndinni og bjuggu til knettina sjálfir úr sokkunum sín- um. Varstu einn af þessum strandadrengjum? „Nei, ég hafði alveg sæmilegar aðstæður til að spila fótbolta þegar óg var strákur, við spiluð- um mest á litlum völlum með 5 til 6 f liði, svona svipað og er í innanhússknattspyrnunni. Fyrsta liðið mitt var skólalið í Cordoba en sfðan byrjaði ég af alvöru með Roserio Central. Eg lék á Spáni 1977 og 1978 með Valencia en eftir HM 1978 lók ég eitt keppnis- tfmabil með River Plate f Argent- • Kempes er „þekktur fyrir sín þrumuskot" og hér skorar hann af 40 metra færi gegn Osasuna fnu. Svo fór óg aftur til Valencia og var þar til haustsins 1984, að ég byrjaði hjá Hercules." „Toppurinn að verða heimsmeistari“ - Hvernig var að leika í heims- meistarakeppninni 1978? „Ég held að það hafi verið toppurinn á ferli mfnum sem íþróttamanns, að vera f heims- meistaraliðinu. Einnig er mér minnistætt að hafa tvívegis verið markahæsti leikmaðurinn á Spáni — bæði skiptin með Valencia." - Er það nokkuð spennandi fyrir mann sem hefur farið í gegnuni allt þetta að spila með liði eins og Hercules, sem berst fyrir veru sinni í 1. deild? „Ég neita því ekki að ég er vanari þvf að vera f toppbarátt- unni. En stundum verður sigurinn enn sætari þegar hann kemur öllum á óvart og maður leikur með „hógværu" liði eins og Hercules. Mór er mjög minnis- stætt að f tveimur sfðustu leikjun- um í deildinni í fyrra sigruðum við Barcelona hér á heimavelli og sfðan Real Madrid á Berna- beau f Madrid í sfðasta leiknum. Við urðum að vinna báða þessa leiki til að hanga í deildinni og það tókst, þó margir höfðu verið búnir að spá liðinu falli.“ Ekki til nein töfrabrögð til að skora mörk - Þér tókst að skora í þessum mikilvægu leikjum? „Þó ég hafi skorað f þessum leikjum er það ekki fyrir nein „trix“, það eru ekki til nein töfra- brögð til að skora mörk. Það sem skiptir máli er að vera með f leik- flótturm sem heppnast vel hjá liðinu." - Hvað er besta markið sem þú hefur gert? „Mér þykir nú yfirleitt vænst um nýjasta markið — segjum markið sem ég gerði í gær (gegn Osasuna skorað beint úr auka- spyrnu af löngu færi). En það mikilvægasta hlýtur að hafa verið seinna markið í úrslitaleiknum f HM 1978 gegn Hollendingum (Argentina sigraði 2-1 og Kempes skoraði bæði mörkin).“ Mexíkanar næstu heimsmeistarar - Hverjir eru sigurstranglegastir að þínu mati i heimsmeistara- keppninni sem fram fer í Mexíkc íár? „Það gæti vel orðið Mexfkó, þeir hafa mjög gott lið og hafa fólkið með sér. Önnur lið sem hafa góða möguleika eru Argent- fna, Brasilfa og ítalfa." - Þekkir þú eitthvað til íslenskr- arknattspyrnu? „Já, ég sá seinni landsleikinn við Spánverja sem fór fram i Sevilla. Það var vel staðið að markinu sem íslendingar gerðu. Ég man nú ekki eftir einstökum leikmönnum nema þá helst mark- verðinum Bjarna Sigurðssyni. En ég sá „Miss Mundo" (ungfrú Is- land), í sjónvarpinu. Það er frekar að maður muni eftir henni..." Pétur á eftir að sýna hvað íhonum býr - Hvernig finnst þér Pétri Pét- urssyni hafa gengið hér hjá Hercu- les? „Pétur var mjög virkur í fyrstu leikjunum en sfðan hægði hann verulega á sér og var tekinn út úr byrjunarliðinu. Að undanförnu hefur hann æft af kraftl og náð sæti sfnu aftur í liðinu og á næstunni spái ég þvf að hann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.