Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR 1986 er að búmarkið varð sífellt fjarlæg- ara hinni raunverulegu framleiðslu. Jafnhliða því sem framleiðslan er dregin saman er unnið að því með búháttabreytingunum að hjálpa mönnum sem eru í hinum hefð- bundnu búgreinum að fara í annað og skapa þannig meira svigrúm fyrir þá sem halda áfram í atvinnu- greininni. Ég vil hafa það sem mín loka- orð,“ sagði landbúnaðarráðherra, „að það er auðvitað æskilegt fyrir hvern og einn bónda að geta fram- leitt eins mikið og aðstaða hans leyfir og á sem hagkvæmastan hátt og það eru því vonbrigði fyrir menn að geta ekki gert það lengur. En versti kosturinn er þó sá að vera að standa í að framleiða vöru sem bóndinn fær ekkert fyrir og bak- reikning eftirá, eins og hefði orðið ef nýju lögin og þessi reglugerð sem_ þeim fylgir hefði ekki komið til.“ HBj Þessar stúlkur koma fram á árshátíðinni. Kvennaskólanemendur með árshátíð ÁRSHÁTÍÐ Kvennaskólans verður í veitingahúsinu Kreml í kvöld, miðvikudagskvöld. í dag klukkan 14 verða skemmtiatriði árshátíðarinnar flutt i hátíðarsal Breiðholtsskóla. Þar verður söngur, dans, annáll og fleira. Allir eru velkomnir á þessar skemmtanir. Erum tilbúnir til að hafa for- ystu um gerð vinnustaðasamnings KJARADAGARNIR í VÖRUMARKAÐINUM ÞETTATILBOÐ GILDIR AÐEINS í DAG ___ MIÐVIKUD. 19. FEBR. Ármúla 1a,sími 686117 — segir Grétar B. Kristjánsson, varaformaður stjórnar Flugleiða „ÞAÐ er bæði rétt og nauðsyn- legt að koma á vinnustaðasamn- ingi hjá Flugleiðum. Hins vegar er það ekki auðvelt mál. Við höfum reynt nokkrum sinnum, en þá hefur strandað á samstöðu verkalýðsf élaganna. En við erum allir af vilja gerðir og erum til- búnir til að gera enn eina tilraun og hafa forystu um að koma á samningaviðræðum milli við- komandi verkalýðsfélaga, “ sagði Grétar B. Kristjánsson, varafor- maður stjórnar Flugleiða, þegar Morgunblaðið spurði hann í gær hver viðbrögð Flugleiða yrðu við áskortm Verzlunarmannafélags Reykjavíkur um að Flugleiðir hefðu forystu um að koma á viðræðum milli viðkomandi stétt- arfélaga um vinnustaðasamning hjá fyrirtækinu. Sigurður Helgason, stjómarfor- maður Flugleiða, skrifaði grein í Morgunblaðið þann 26. janúar sl. þar sem hann vék m.a. að nauðsyn þess að hjá stórum fyrirækjum yrði komið á fót sameiginlegum samn- ingum allra starfsmanna við yfir- menn þess. I kjölfar greinar Sigurð- ar ritaði stjóm Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur forystumönnum Flugleiða bréf, þar sem hún kvaðst reiðubúin til að taka þátt í samn- ingaviðræðum um einn heildar- kjarasamning milli Flugleiða hf. og allra starfsstétta hjá félaginu. I bréfi VR segir að stjómin telji eðli- legt að Flugleiðir hafi forystu um að koma á þessum samningavið- ræðum. Hjá Flugleiðum starfa milli 1.100 og 1.500 manns eftir árstíma og eru starfsmenn í 39 stéttarfélögum. Grétar B. Kristjánsson sagði að skilyrðið fyrir þvi að hægt yrði að stofna vinnustaðafélag væri að samstaða næðist með öllum stéttar- félögum. „Fyrri reynsla gefur hins vegar ekki tilefni til bjartsýni í því efni. Staðreyndin er sú að við búum við úrelta vinnulöggjöf, og það er mín skoðun að það sé vonlítið að mynda slík vinnustaðafélög fyrr en stjómmálamenn hafa tekið sig til og gjörbreytt henni,“ sagði Grétar B. Kristjánsson. Kona á aldrinum 15-45? Þú gœtir þarfnast Oeða oo AAqgnaB Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777 KJARADAGARNIR í VÖRUMARKAÐINUM STK- íkassaa ÞETTA TILBOÐ GILDIR AÐEINS í DAG MIÐVIKUD. 19. FEBR. Vorumarkaðurinn hf. I Ármúla1afsími686112 • BARNAFATAVERSLUN • KERRU~ 0G VAGNAVERSLUN • LEIKFANGAVERSLUN • RÚMFATAVERSLUN • BARNAÖRYGGISBÚNAÐARVERSLUN - ■ TÆKIFÆRISFATNAÐARVERSLUN • MOTHERCARE ER Á LAUGAVEGI 13 • SÍMI 26560 -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.