Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR 1986
er að búmarkið varð sífellt fjarlæg-
ara hinni raunverulegu framleiðslu.
Jafnhliða því sem framleiðslan er
dregin saman er unnið að því með
búháttabreytingunum að hjálpa
mönnum sem eru í hinum hefð-
bundnu búgreinum að fara í annað
og skapa þannig meira svigrúm
fyrir þá sem halda áfram í atvinnu-
greininni.
Ég vil hafa það sem mín loka-
orð,“ sagði landbúnaðarráðherra,
„að það er auðvitað æskilegt fyrir
hvern og einn bónda að geta fram-
leitt eins mikið og aðstaða hans
leyfir og á sem hagkvæmastan hátt
og það eru því vonbrigði fyrir menn
að geta ekki gert það lengur. En
versti kosturinn er þó sá að vera
að standa í að framleiða vöru sem
bóndinn fær ekkert fyrir og bak-
reikning eftirá, eins og hefði orðið
ef nýju lögin og þessi reglugerð sem_
þeim fylgir hefði ekki komið til.“ HBj
Þessar stúlkur koma fram á árshátíðinni.
Kvennaskólanemendur með árshátíð
ÁRSHÁTÍÐ Kvennaskólans verður í veitingahúsinu Kreml í kvöld, miðvikudagskvöld.
í dag klukkan 14 verða skemmtiatriði árshátíðarinnar flutt i hátíðarsal Breiðholtsskóla. Þar
verður söngur, dans, annáll og fleira.
Allir eru velkomnir á þessar skemmtanir.
Erum tilbúnir til að hafa for-
ystu um gerð vinnustaðasamnings
KJARADAGARNIR
í VÖRUMARKAÐINUM
ÞETTATILBOÐ GILDIR AÐEINS í DAG
___ MIÐVIKUD. 19. FEBR.
Ármúla 1a,sími 686117
— segir Grétar B. Kristjánsson,
varaformaður stjórnar Flugleiða
„ÞAÐ er bæði rétt og nauðsyn-
legt að koma á vinnustaðasamn-
ingi hjá Flugleiðum. Hins vegar
er það ekki auðvelt mál. Við
höfum reynt nokkrum sinnum,
en þá hefur strandað á samstöðu
verkalýðsf élaganna. En við erum
allir af vilja gerðir og erum til-
búnir til að gera enn eina tilraun
og hafa forystu um að koma á
samningaviðræðum milli við-
komandi verkalýðsfélaga, “ sagði
Grétar B. Kristjánsson, varafor-
maður stjórnar Flugleiða, þegar
Morgunblaðið spurði hann í gær
hver viðbrögð Flugleiða yrðu við
áskortm Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur um að Flugleiðir
hefðu forystu um að koma á
viðræðum milli viðkomandi stétt-
arfélaga um vinnustaðasamning
hjá fyrirtækinu.
Sigurður Helgason, stjómarfor-
maður Flugleiða, skrifaði grein í
Morgunblaðið þann 26. janúar sl.
þar sem hann vék m.a. að nauðsyn
þess að hjá stórum fyrirækjum yrði
komið á fót sameiginlegum samn-
ingum allra starfsmanna við yfir-
menn þess. I kjölfar greinar Sigurð-
ar ritaði stjóm Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur forystumönnum
Flugleiða bréf, þar sem hún kvaðst
reiðubúin til að taka þátt í samn-
ingaviðræðum um einn heildar-
kjarasamning milli Flugleiða hf. og
allra starfsstétta hjá félaginu. I
bréfi VR segir að stjómin telji eðli-
legt að Flugleiðir hafi forystu um
að koma á þessum samningavið-
ræðum.
Hjá Flugleiðum starfa milli 1.100
og 1.500 manns eftir árstíma og
eru starfsmenn í 39 stéttarfélögum.
Grétar B. Kristjánsson sagði að
skilyrðið fyrir þvi að hægt yrði að
stofna vinnustaðafélag væri að
samstaða næðist með öllum stéttar-
félögum. „Fyrri reynsla gefur hins
vegar ekki tilefni til bjartsýni í því
efni. Staðreyndin er sú að við búum
við úrelta vinnulöggjöf, og það er
mín skoðun að það sé vonlítið að
mynda slík vinnustaðafélög fyrr en
stjómmálamenn hafa tekið sig til
og gjörbreytt henni,“ sagði Grétar
B. Kristjánsson.
Kona á aldrinum
15-45?
Þú gœtir þarfnast
Oeða oo
AAqgnaB
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
KJARADAGARNIR í
VÖRUMARKAÐINUM
STK- íkassaa
ÞETTA TILBOÐ GILDIR AÐEINS í DAG
MIÐVIKUD. 19. FEBR.
Vorumarkaðurinn hf.
I Ármúla1afsími686112
• BARNAFATAVERSLUN • KERRU~ 0G VAGNAVERSLUN • LEIKFANGAVERSLUN • RÚMFATAVERSLUN • BARNAÖRYGGISBÚNAÐARVERSLUN -
■ TÆKIFÆRISFATNAÐARVERSLUN • MOTHERCARE ER Á LAUGAVEGI 13 • SÍMI 26560 -