Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 1. sept. Þessa dagana streyma um- sóknirnar inn á borð hinnar margfrægu útvarpsréttamefndar er virðist hafa það hlutverk helst með höndum að senda umsóknimar áfram til Pósts & síma. Hvað sem því líður þá kennir hér margra grasa, til dæmis hafa nokkrir skólar sótt um útvarpsrekstrarleyfí. Sann- arlega gleðileg tíðindi því í skólum landsins býr ómældur upplýsinga- forði er máski hefír eigi komist til skila sem skyldi vegna útvarpslaga- helsisins. Sá er hér ritar hefír bæði hér í blaði og í Vísi sáluga hreyft þeirri hugmynd að skólamir verði mynd- og hljóðvæddir í hinum víð- asta skilningi, vil ég ekki þreyta lesendur á frekara þusi um þennan draum minn er máski rætist í kjölfar nýju útvarpslaganna. En það eru ekki bara skólamir er hugsa sér til hreyfings, hverskyns félagasamtök og einstaklingar út um allt land virðast í startholunum, segiði svo að ekki sé spennandi að lifa á Is- landi þessa dagana? í það minnsta spennandi tími fyrir þann er hefír atvinnu af því að liggja yfír dag- skrá ljósvakafjölmiðlanna. Jón Óttar Einn þeirra einstaklinga er hafa sótt til útvarpsréttamefndarinnar um leyfí til ljósvakamiðlunar er dr. Jón Ottar Ragnarsson. Jón Óttar er ekkert að tvínóna við hlutina; þannig gaf hann eftirfarandi yfír- lýsingu í samtali við Þorgrím Gests- son fréttamann rásar 1 í kvöld- fréttum mánudagsins . . . við byij- um að sjónvarpa 1. september næstkomandi. Ég held að það gæti verið fróðlegt að athuga dagskrár- stefnu dr. Jóns Óttars og félaga, því mig grunar að sú stefna gefi nokkra hugmynd um þá sjónvargs- veröld er blasir senn við okkur ís- lendingum, en gefum Jóni Óttari orðið: Við munum bjóða uppá efni frá gervihnöttum ... hnettimir senda í æ ríkara mæli út brengluð boð og þannig verða menn að kaupa afnotarétt. . . Óhjákvæmilegt verð- ur að texta allt efni, enda hefír það sýnt sig á myndbandsmarkaðinum að annað gengur ekki. . . Við munum fjármagna reksturinn með afnotagjaldi og auglýsingum. ... Dramurinn er að auka sem mest og efla innlendu dagskrár- gerðina.. . Fyrst um sinn verður sent út á S-V hominu en markmiðið er að sjónvarpa til allra Iandsmanna með aðstoð Pósts og síma, .. .þá er fréttaþjónusta einnig með í myndinni. Hvernig tekst til? Það verður spennandi að sjá hversu Jóni Óttari og félögum tekst að efna fyrrgreint loforð um öfluga og alhliða sjónvarpsdagskrá. Við íslendingar nægjum nú rétt til að fylla hverfí í stórborg og vart er þess að vænta að auglýsingamark- aðurínn þenjist hér út í réttu hlut- falli við framboð sjónvarpsefnis. Því grunar mig að fyrst um sinn að minnsta kosti sæki sjónvarpsstöð þeirra dr. Jóns og félaga sína Hfs- næringu í afnotagjöld er innheimt verða í krafti einkaleyfa á gervi- hnattaefni er dreift verður um ljós- þráð. Þá má búast við því að laga- heimild sú er veitir sambýlishúsum og einstaklingum rétt á að taka á móti ótextuðu efni um gervihnött komi til með að veikja nokkuð samkeppnisaðstöðu sjónvarpsstöðv- ar á borð við þá er dr. Jón hyggst reka. Það kostar jú nokkurt fé að varðveita móðurmálið og þá er svarað þeirri stóru spumingu hvort innflutningsaðilar sjá sér nokkum hag í því að auglýsa sérstaklega sína vöm hér ef auglýsingar dynja frítt í gegnum allskonar diskakerfí slík er vafalaust munu skjóta upp kollinum á öðm hveiju húsi hér í framtíðinni. Þar sparast og dijúgur skildingur í menningarsjóðinn. Að mörgu er að hyggja, Kjartan. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Örn Ingi Gíslason mynd- listarmaður á Akureyri. Dalvik Þátturinn „Hvað finnst ykkur?“ Mannlífið á Dalvík til umfjöllunar Á dagskrá út- -| K 15 varpsins er þátt- urinn „Hvað fínnst ykkur?" í umsjá Arriar Inga á Akureyri. Að þessu sinni liggur leiðin til Dalvíkur en þar ræðir Öm Ingi við þijá Dalvíkinga um mannlífið á Dalvík. Fulltrú- ar Dalvíkinga í þessu spjalli em þau Guðlaug Bjöms- dóttir, en hún á sæti í bæjarstjóm Dalvíkur og er jafnframt formaður leik- félagsins, Jón Halldórsson, íþróttakennari, fulltrúi skíðamanna, og Rögnvald- ur S. Friðbjömsson, fulltrúi atvinnulífsins. „Þetta er frekar óvenju- legur þáttur að þessu sinni," sagði Öm Ingi í stuttu spjalli. „Ég fór upp í Qa.ll og talaði þar við Dalvíkingana en þar var þá verið að halda bikarmót Islands, og þátturinn endar með útsendingu þaðan. Við bjuggum til stúdíó þama í fjailshlíðinni, höfðum aldrei gert þetta áður. Það var talsverður vindur á okkur fyrst en svo lægði og þetta varð ótrúlega gott. Að vísu gleymdum við vindhlífum á hljóðnemann en það gerði ekkert til. Við settum bara fingravettlinga í staðinn." Þáttur Amar Inga er þijátíu mínútna langir og er á dagskrá vikulega. Annar þáttur Hótel Setið um líf embættismanns ■i í kvöld er annar 25 þáttur banda- ~” ríska mynda- flokksins Hótel á dagskrá. Þættimir em byggðir á samnefndri sögu Arthurs Hailey, en eins og oft tíðk- ast í bandarískum fram- haldsmyndaflokkum em handritahöfundar margir til að auka fjölbreytti þátt- anna. Hver þáttur er sjálf- stæður að efni, atburðir spinnast frá gestum en sökum glæsileika hótelsins em þeir flestir í hópi fyrir- manna þjóðfélagsins. Að sögn Jóhönnu Þráinsdóttur þýðandanna þáttanna mega sjónvarpsáhorfendur búa sig undir viðburðaríka kvöldstund með starfsfólki hótelsins því tilræði er gert að einum gestanna sem er háttsettur embættismaður. Annar þáttur myndaflokksins Hótel er á dagskrá i kvöld en á myndinni er hótel- stjórinn og hinn ötuli hjálparmaður hans. ÚTVARP uröar Gunnarssonar. Helga Einarsdóttir les (4). Stjórn- andi: Kristín Helgadóttir. MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.16 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.16 Veöurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Undir regnbogan- um" eftir Bjarne Reuter. Ól- afur Haukur Símonarson les þýöingu sína (7). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.46 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.06 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áöur sem Sigurður G. Tómasson flytur. 10.10 Veöurfregnir. 10.26 Lesiö úr forystugreinum dagblaöanna. 10.40 Land og saga. Ragnar Ágústsson sér um þáttinn. 11.10 Noröurlandanótur. Ólaf- ur Þóröarson kynnir. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.46 Veöurfregnir. Tilkynn- irigar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Unga fólkiö og fíkniefnin. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og Bogi Arnar Finnbogason. 14.00 Miðdegissagan: „Svaö- ilför á Grænlandsjökul 1888" eftir Friðþjóf Nansen. Kjartan Ragnars þýddi. Ás- laug Ragnars les (8). 14.30 Óperettutónlist. a. Filharmoniusveitin í Vín leikur lög eftir Johann Strauss; Lorin Maazel stjórnar. b. Nicolai Gedda syngur með hljómsveitarundirleik lög úr óperettum eftir Kal- man, Offenbach, Zeller og Adam. 16.16 Hvaö finnst ykkur? umsjón: örn Ingi. (Frá Akur- eyri). 16.45 Tilkynningar. Tónleikar. 18.00 Fréttir. Dagskrá. 18.16 Veðurfregnir. 16.20 Síödegistónleikar. Tón- list eftir Johann Sebastian Bach. a. Fantasía og fúga í g-moll. Nicolas Kynaston leikur á orgel. 17.00 Barnaútvarpiö. Meðal efnis: „Stína" eftir Babbis Friis Baastad í þýðingu Sig- 19.00 Stundinokkar Endursýndur þáttur frá 16. febrúar. 19.30 Aftanstund Barnaþáttur meö innlendu og erlendu efni. Söguhorniö — Karlinn í tunglinu, sögukafli eftir Ern- est Young. Guöjón Guð- jónsson þýddi. Sögumaður Brynhildur Ingvarsdóttir. Myndir: Svanhildur Stefáns- dóttir. Sögur snáksins meö fjaörahaminn, spænskur teiknimyndaflokkur, og Feröir Gúllivers, þýskur brúðumyndaflokkur. Sögu- maöur Guörún Gísladóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttirog veöur 17.40 Úr atvinnulifinu -Sjávar- útvegur og fiskvinnsla. Umsjón: Gísli Jón Kristjáns- son. 18.00 Á markaði. Fréttaskýr- ingaþáttur um viöskipti, efnahag og atvinnurekstur í umsjá Bjarna Sigtryggsson- ar. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Málræktarþáttur. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.60 Eftir fréttir. Bernharöur Guðmundsson flytur þátt- inn. Miðvikudagur 19.febrúar 1986 20.35 Hirömenn rokkkóngsins (Rock 'n’ Roll Disciples) Bandarísk heimildarmynd sem sýnir hversu sterk ítök Elvis Presley á enn í hugum nokkurra tryggra aödáenda. Myndin hlaut ýmis verölaun áriö 1985. Þýöandi Veturliöi Guðnason. 21.15 Á líöandi stundu Þáttur meö blönduöu efni. Bein útsending úr sjón- varpssal eöa þaöan sem atburöir liöandi stundar eru aö gerast ásamt ýmsum I innskotsatriöum. Umsjónar- 20.00 Hálftíminn. Elin Kristins- dóttir kynnir popptónlist. 20.30 Iþróttir. Umsjón: Samú- el Örn Erlingsson. 20.60 Hljómplöturabb Þor- steins Hannessonar. 21.30 „Þaö var nú þá“, smá- saga úr samnefndri bók eftir Elías Mar. Höfundur les. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.16 Veöurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma (21). 22.30 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður P. Njarövik. 23.10 Á óperusviöinu. Leifur Þórarinsson kynnir óperu- tónlist. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. menn Ómar Ragnarsson, Agnes Bragadóttir og Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Stjórn útsendingar og upp- töku: Tage Ammendrup og Óli örn Andreassen. 22.15 Hótel 2. Undir fölsku flaggi Bandarískur myndaflokkur í 22 þáttum. Áöalhlutverk: James Brolin, Connie Sellecca og Anne Baxter. Tilræöismaöur situr um líf embættismanns frá Israel sem gistir á hótelinu. Þang- að leitar einnig einstæö móöir til aö afla sér fjár. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 23.15 Fréttir í dagskrárlok MIÐVIKUDAGUR 19.febrúar 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Kristján Sigur- jónsson. 12.00 Hlé.. 14.00 Eftirtvö Stjórnandi: Jón Axel Ólafs- son. 16.00 Núerlag Gömul og ný úrvalslög aö hætti hússins. Stjórnandi: GunnarSalvarsson. 16.00 Dægurflugur Leopold Sveinsson kynnir nýjustu dægurlögin. 17.00 Þræöir Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagöar í þrjár mínútur kl. 11.00, 15.00 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVÖRP AKUREYRI 17.03—18.00 Svæöisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. REYKJAVÍK 17.03—18.30 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJÓNVARP u&t ~a^\.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.