Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 22

Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 Þétt setinn bekkurinn í Njálsbúð. „Fjölmennasti bændafundur sem ég hef setið,“ sagði einn fundarmanna. Fjölmennur fundur sunnlenskra kúabænda í Njálsbúð: Skorað á ríkissljómina að auka niðurgreiðslur á mjólk Lýst ábyrgð á hendur landbúnaðarráðherra vegna seinagangs í ákvörðun mjólkurkvóta Selfossi, 18. febrúar. UM 600 manns, bændafólk af Suðurlandi, sóttu almennan fund bænda sem Félag kúabænda á Suðurlandi gekkst fyrir í Njáls- búð V-Landeyjum í gærkvöldi. Til fundarins var boðið forystu- mönnum bændasamtakanna, þingmönnum Suðurlands, land- búnaðarráðherra og fjármála- ráðherra. Miklar umræður urðu á fundinum um mjólkurfram- leiðsluna og stjórnun framleiðsl- unnar gagnrýnd. Guðmundur Lárusson formaður Félags kúabænda hafði framsögu á fundinum. Hann sagði það kröfu bænda að stjómvöld kæmu til móts við bændur og leiðréttu yfirstand- andi verðlagsár vegna þess hversu seint fullvirðisrétturinn kom fram. Hann benti á að skerðing hlutdeild- ar sunnlenskra bænda í heildar- mjólkurframleiðslunni úr 36,2% í 35,7% næmi því að 9 meðalbú væru flutt burtu. Þeir sem til máls tóku voru sammála um það að auka þyrfti niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum til þess að ná upp sölu á þeim. Einnig voru markaðsmál rædd og bent á að nauðsynlegt væri að taka þeim málum tak svo um munaði. Mikið var rætt um þann samdrátt sem framundan væri í mjólkurfram- leiðslunni og m.a. bent á að harka- legur samdráttur nú gæti orsakað mjólkurskort í haust. Þess vegna m.a. yrði að lengja aðlögunartíma bænda að kvótanum úr sjö mánuð- um í 1 V2 ár. Fundarmenn voru sammála um það að koma þyrfti til móts við þá bændur sem illa fara út úr fram- leiðsluskerðingunni og hafa staðið í uppbyggingu. Það yrði best gert með því að auka við framleiðslu- kvóta þeirra og með skuldbreyting- um lána. Ingi Tryggvason formaður Stétt- arsambands bænda sagði að ein ástæðan fyrir því að bændur voru ekki varaðir betur við sl. haust hefði verið sú að búið var að hvetja þá til að auka mjólkurframleiðsluna yfir vetrarmánuðina og það hefði skotið skökku við að segja þeim að hætta því ioks þegar það var komið á. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagði ástæðuna fyrir því hversu seint ákvörðunin um full- virðisréttinn kæmi vera þá að það hefðu alltaf verið að berast ábend- ingar um atriði sem taka þyrfti tillit til við útreikninga. Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra sagði það áhyggjuefni hversu Morgunblaðið/Sig. Jóns. Guðmundur Lárusson í Stekkum II, formaður Félags kúabænda á Suðurlandi, flytur framsöguræðu sína. lengi hefði dregist að setja reglu- gerðina um fullvirðisréttinn. Hann sagði að ríkisvaldið þyrfti að huga að því hvort ekki væri unnt að koma í veg fyrir hækkun landbúnaðar- vara. Hann benti á að verulegu fé hefði verið varið úr ríkissjóði til búháttabreytinga og fjárhagslegrar endurskipulagningar í landbúnaði. f lok fundarins voru samþykktar eftirfarandi ályktanir: 1. „Almennur fundur bænda á Suðurlandi haldinn í Njálsbúð í V-Landeyjum 17. febrúar 1986 harmar að við skiptingu fullvirð- isréttar milli svæða fyrir verð- lagsárið 1985—1986 skuli enn vera gengið á hlut Sunnlend- inga. Fundurinn telur óréttlátt og ekki í verkahring bænda, haldur þjóðarinnar allrar að viðhalda byggð í landinu. Því skorar fundurinn á stjóm Stétt- arsambands bænda og Fram- leiðsluráð að leiðrétta þessa ranglátu skiptingu þannig að Sunnlendingar haldi sínum hlut í heildarmjólkurframleiðslunni. 2. Fundurinn átelur harðlega þann seinagang sem var við ákvarð- anatöku á fullvirðisrétti mjólkur- framleiðenda á yfirstandandi verðlagsári, sem barst bændum ekki fyrr en fimm mánuðir voru liðnir af verðlagsárinu. Fundurinn minnir á samþykkt framkvæmdastjómar Félags kúabænda á Suðurlandi frá 5. des. 1985 til hæstvirts land- búnaðarráðherra, þar sem lýst er áhyggjum vegna óvissu bænda um fullvirðisrétt sinn. Af þessum sökum lýsir fund- urinn ábyrgð á hendur land- búnaðarráðherra vegna þess ástands sem skapast hefur og krefst fjárhagsaðstoðar til að milda áhrif skerðingarinnar. 3. Fundurinn skorar á ríkisstjóm íslands að auka nú þegar niður- greiðslur á mjólkurvömm og öðmm nautgripaafurðum og með því freista þess að auka neyslu þessara vara sem leysti vanda mjólkurframleiðenda að hluta en jafnframt stórbæta hag neytenda og hugsanlega greiða fyrir samningum á vinnumark- aði sem nú standa yfir.“ Á fundinum ríkti mikill einhugur og einn fundarmanna sagði þetta vera stærsta bændafund sem hann hefði setið. Hann benti á að menn yrðu að vera samtaka við að taka á vandanum og það hefðu Sunn- lendingar áður verið. Sig. Jóns. María Hauksdóttir í Geirakoti: Eitt mjólk- urglas á dag eyðir offram- leiðslunni Lagt til að bændakonur stormi til höfuðborgar- innar til að vekja athygli á hollustu mjólkurinnar Selfossi, 18. febrúar. „AUKIN mjólkurneysla um eitt mjólkurglas á dag, *A lítra á hvern Is- lending, mundi duga til að eyða allri umfram- framleiðslu sl. árs,“ sagði María Hauksdóttir frá Geirakoti í Sandvíkur- hreppi á fundi Félags kúabænda á Suðurlandi í Njálsbúð í gær. María færði Félagi kúa- bænda að gjöf teikningar eftir Ruth Magnúsdóttur frá Sólvangi í Flóa. Teikningar þessar eru í möppu og hafa verið notaðar á leikskólum á Selfossi en þar tóku fóstrur það upp að gefa bömum mjólk að drekka og auka hollustu fæðis þeirra. Teikn- ingamar em vel til þess falln- ar að böm liti þær og vinni með, í tengslum við fræðslu um hollustu mjólkur. María lagði til að bænda- konur tækju sig til og storm- uðu til höfuðborgarinnar og vektu athygli á hollustu mjólkurinnar umfram aðra drykki og gæfu börnum á dagvistarstofnunum mjólk að drekka. Mjólkin þyrfti að koma í stað sykurvatns og svaladrykkja sem mikið væri að böm drykkju með á þessum um bitanum sínum stofnunum. Margrét Guðmundsdóttir sagði að pakka þyrfti mjólk í litlar femur svo hún yrði aðgengileg á sama hátt og svaladrykkir. Hún sagði allt of mikið um að böm drykkju svala og safagutl í stað mjólkur. Hún sagði þetta alvarlegt mál því sumir þessir drykkir væru blandaðir vökva sem pressaður væri úr appelsínuberki, sem spraut- aður hefði verið erlendis með eiturefnum. Aðrir fundarmenn tóku undir tillögur kvennanna um að auka mjólkumeyslu með öllum ráðum og fögnðu frum- kvæði því sem fram kom á dagvistarstofnunum á Sel- fossi, slíkt mætti verða víðar. Sig. Jóns. Jón Helgason landbúnaðarráðherra: Viðhorf sbreyting ef leyfa á verslun með kvóta „ÞAÐ HEFÐI i för með sér tölu- verða viðhorfsbreytingu frá því sem var í tillögum Stéttarsam- bandsins og reglugerðinni þar sem gert er ráð fyrir milligöngu Framleiðnisjóðs við búháttabreyt- ingar,“ sagði Jón Helgason land- búnaðarráðherra þegar leitað var álits hans á hugmyndum Jóhann- esar Torfasonar um að veita bændum takmarkað leyfi til að versla með úthlutaðan fram- leiðslurétt. Egill Jónsson alþingismaður sagð- ist hinsvegar vera sammála þessari hugmynd Jóhannesar. Hann sagði að grundvallarhugsunin á bak við héraðabúmarkið væri sú að menn gætu skipulagt framleiðsluna og ekki væri æskilegt að njörva fram- leiðslurétt einstakra jarða of mikið niður. Möguleikar ættu að vera á að færa framleiðslurétt á milli manna innan svæðanna og gæti það gerst á ýmsan hátt, til dæmis með því að menn skiptu á framleiðslurétti í kindakjöti og mjólk, eða versluðu með hann á annað hátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.