Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 19.02.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986 23 f Byggðastofnun lánar 30 milljónir til kaupa á Sölva Bjarnasyni: Lánsheimild veitt í ljósi atvinnuástands — segir Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar Úr vinnslusal Fóðurstöðvarinnar. Fóðurstöðin á Dalvík: Miklir mögnleik- ar í meltuvinnslu „ÉG HEF heimild til þess frá stjórn Byggðastofnunar, að Lána Ut- geðarfélagi Bílddælinga 28 milljónir og hreppnum 2 milljónir vegna kaupa á togaranum Sölva Bjarnasyni. Þessir aðilar eiga eftir að gera grein fyrir veðum og fleiri þáttum vegna lánanna og þeir eru að vinna að þvi nú. Byggðastofnun stendur þarna frammi fyrir vandamáli á BUdudal, þar sem atvinna og afkoma hefur verið byggð á útgerð þessa togara. Yrði hann seldur annað, eru fyrirsjáanleg mikil vandræði og erfiðleikar i atvinnulífi staðarins. Þá er það stjórn- ar Byggðastofnunar að meta það hvort hún vill lána svona mikla fjármuni til að viðhalda atvinnulífinu á staðnum eða leita annarra leiða tíl þess,“ sagði Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnun- ar, er hann var inntur skýringa á þessum lánveitingum. __ Dalvík 12. febrúar. Á SÍÐASTA ári hóf Fóðurstöðin á Dalvik meltuvinnslu til hliðar við fóðurgerð fyrir loðdýr. Var þetta gert m.a. til að geta haldið fullri vinnu í stöðinni þann tíma sem fóðurþörf er í lágmarki svo og þarf töluvert magn af lýsi í loðdýrafóður og notar stöðin allt að 600 1. af lýsi á dag í fóðrið sem hún framleiðir, en við meltu- vinnsluna fæst nokkurt magn af lýsi. Að sögn Símonar Ellertssonar framkvæmdastjóra hóf Fóðurstöðin á Dalvík starfsemi sína árið 1984 og er hún samvinnufélag loðdýra- bænda á Eyjafjarðarsvæðinu allt austur í Fnjóskadal. Þetta mun ein stærsta fóðurstöðin á landinu og starfa þar nú 6 manns. Selur hún fóður til tuttugu og fjögurra loð- dýrabúa en stærsti viðskiptavinur stöðvarinnar er Loðdýrabúið að Böggvisstöðum sem kaupir nálægt helmingi af fóðurframleiðslu fyrir- tækisins. Á síðastliðnu ári afgreiddi stöðin 2.400 tonn en fyrirsjáanlegt er að framleiðslan verður um 4.000 tonn á þessu ári. Sagði Símon að stæðust þær spár yrði heildarvelta fyrirtækisins nálægt 35—40 millj. króna. Ef borin er saman framleiðsla stöðvarinnar í janúar 1985 við sama mánuð 1986 hefur framleiðslan aukist um 89% milli ára. Mest af hráefni fóðurstöðvarinnar er úr- gangur frá frystihúsi ÚKE á Dalvík og í Hrísey en um það bil 70% fóðurs- ins er unnið úr fiskúrgangi. í fóðrið er svo blandað m.a. kolvetnimjöli, hænsnakjöti og selkjöti sem sótt er til Akraness og Breiðafjarðar. Allt fóður er sett saman eftir uppskrift Jóns Ámasonar fóðurfræðings. Fyrri hluta árs 1985 var gerð tilraun með meltuvinnslu hjá fyrir- tækinu. Keypt voru tæki frá Vélorku í Reykjavík til þessara hluta og önnuðust starfsmenn Fóðurstöðvar- innar uppsetningu þeirra. Uppsett má ætla að tæki þessi kosti 1,5—2 millj. króna. Þessi tilraun gaf það góð fyrirheit að nú er í ráði að auka meltuvinnslu verulega. Melta er unnin úr fiskslógi en áætlað er að hér á landi falli til um 120—180 þús. tonn af fiskúrgangi sem fleygt er á sjó og í landi. Ef þessu væri breytt í lýsi og mjöl fengjust fyrir það um 350—550 millj. króna. Melta er efni sem brotn- ar niður á sama hátt og gerist í meltingarvegi dýra. Verkunin bygg- ist á því að sýru er blandað saman við ferskt sjávarfang og þannig drepnar niður óæskilegar bakteríur. Náttúrulegir efnakljúfar slógsins bijóta niður próteinsambönd efnisins í smærri einingar og efnið verður að þunnfljótandi legi. Lýsið er síðan skilið frá og búið til mjöl eða meltu- þykkni úr afganginum. Meltuþykkn- inu er síðan blandað saman við dýra- fóður. Sjálf þarf stöðin mikið lýsi og því þótti tilvalið að nýta aðstöðu fyrirtækisins til að framleiða það lýsi sem hún þyrfti til fóðurgerðarinnar. Viðræður hafa verið í gangi við Lýsi hf. í Hafnarfirði um að selja þeim allt umframlýsi og yrði settur upp -LOoHJ.iÝsisgámur á „Það var niðurstaða stjómar stofn- unarinnar að veita mér heimild til þessara lánveitinga og ég er að vinna úr henni, leita eftir veðum °g tryggingiim," sagði Guðmundur. „Við erum að endurlána erlent ijár- magn og megum illa við að tapa því. Stofnunin vill ekki fara þessa leið, hvað sem hún kostar, við viljum skoða það til fullnustu að gera þetta svona, fremur en að atvinnulíf á staðnum leggist í rúst. Samkvæmt niðurstöðu könnunar á möguleikum þessarar út.gerðar, getur hún geng- ið í góðu árferði og við hagstæð skilyrði. Fiskvinnslan á Bíldudal hefur verið vel rekin og skilað góðri framlegð.“ Telur stofnunin rétt að fyrirtæki, sem á ekkert eigið fé til útborgunar, fái að kaupa skip? „Þetta er vandamál, sem Byggðastofnun stendur frammi fyrir á mjög mörgum stöðum, þar sem sjáanlegir möguleikar til at- vinnuuppbyggingar eru mjög ein- hæfír. Þar er oft á tíðum ekkert eigið íjármagn til af ýmsum ástæð- um. Þá þarf að meta þetta hveiju sinni hvort lána skuli fé á þessa staði. Mér hefur verið veitt heimild til lánveitingarinnar að vissum skil- yrðum uppfylltum." Er Byggðastofnun með þessu að tryggj3- það, að ekki tapist útistand- andi lán, sem þegar hafa verið veitt til Bíldudals, verði atvinnubrestur á staðnum? „Nei, ég get fullyrt, að það var ekki sjónarmiðið. En mikið opinbert fé er bundið þama auk fjár einstakl- inga, sem bundið er í húsum þeirra á staðnum. Fiskveiðasjóður, Lands- bankinn og Byggðastofnun eigp þama verulegar fjárhæðir bundnar í landi. Þama em miklar eignir og þær verður að nýta. Fiskvinnslan sem slík er í dag í fullum skilum við Byggðastofnun. Hún hefur fengið mikil lán undanfarin ár, en líka greitt nokkuð vel af þeim,“ sagði Guðmundur Malmquist. Svavar Armannsson, aðstoðar- forstjóri Fiskveiðasjóðs, sagði í samtali við Morgunblaðið, að við sölu uppboðsskipanna gætti sjóður- inn fyrst og fremst hagsmuna sinna. Hann seldi skipin þeim, sem hæst byðu og gætu sýnt fram á nægileg veð fyrir lánum og greiðslugetu. Sjóðnum væri það óviðkomandi hvaðan fé til útborg- unar til dæmis væri fengið. Bændafundur í Varmahlíð: Símon Ellertsson framkvæmda- stjóri Fóðurstöðvarinnar á Dal- vík. lýsið og það þannig flutt til Lýsis hf. Mikil eftirspum er eftir meltu á ári hjá Fóðurstöðinni. Tilvalið er að gefa skepnum þetta þar sem kílóið í hverri fóðureiningu kostar aðeins 9 kr. en kílóið í hverri fóðureiningu af innfluttu fóðri kostar 21. kr. Því er ekki að furða þó bændur hafi nokkurn áhuga á þessu fóðri. Þá má og benda á að aukið fískeldi hérlendis kallar á meiri fóðumotkun. Fréttaritarar Slælega staðið að sölu dilkakjöts innanlands Varmahlíð, 18. febrúar ALMENNUR bændafundur var haldinn í Varmahlíð i gærkvöldi að tilhlutan Landssamtaka sauð- fjárbænda. Frummælendur voru Jóhannes Kristjánsson bóndi á Höfðabrekku, formaður samtak- anna, og dr. Sigurgeir Þorgeirs- son sauðfjárræktarráðunautur og rannsóknarmaður á RALA. Jóhannes ræddi einkum um markaðsmál og sölutilraunir þær sem gerðar hafa verið með dilkakjöt ww * Oldrunarfræðafélag Islands: Ráðstefna um stofnana- þjónustu fyrir aldraða ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAG íslands gengst fyrir ráðstefnu i Domus Medica á föstudaginn um stofnanaþjónustu fyrir aldraða á Stór- Reykjavíkursvæðinu árið 1985. Markmið ráðstefnunnar er að fá fram heildaryfirsýn yfir þessa þjónustu eins og hún er í dag og líta fram á veginn, eins og segir í fréttabréfi frá Öldrunarfræðafélaginu. Ráðstefna þessi er einkum ætluð sen borgarlæknir. Erindi flytja þeir Gísli Sigurbjömsson forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Rafn Sigurðsson forstjóri Hrafnistu í Laugarási, Pétur Sigurðsson for- stjóri Hrafnistu í Hafnarfírði, Bragi Guðmundsson yfirlæknir Sólvangs í Hafnarfírði, Guðsteinn Þengilsson yfírlæknir Sunnuhlíðar í Kópavogi, Sveinn R. Ragnarsson, félagsmála- stjóri á Droplaugarstöðum, Gunnar Sigurðsson yfírlæknir á Öldruna- rdeild Borgarspítalans og Þór Halldórsson yfírlæknir á Öldruna- rdeild Landspítalans. Eftir kaffihlé verða almennar umræður með þátttöku pallborðs. Umræðum stýrir Guðjón Magnús- son aðstoðarlandlæknir. Við pall- borð sitja Gunnhildur Sigurðardótt- ir hjúkrunarforstjóri, Páll Sigurðs- son ráðuneytisstjóri, Pétur Sigurðs- son forstjóri, Þór Halldórsson yfír- læknir og Þórir Guðbergsson deild- arstjóri. Ráðstefnunni lýkur klukk- an 17.00. Miðað er við 140 þátttakendur og skal þátttaka tilkynnt á skrif- stofu Landla^knjfi f| .. á Bandaríkjamarkað, sem því miður hafa ekki skilað árangri enn sem komið er. Taldi Jóhannes einkum þar um að kenna tímaskorti en taldi ekki útilokað að þessi markaður ynnist síðar, og gæfí þá viðunandi verð fyrir kjötið. Þá ræddi hann einnig um stöðu þá sem blasir við vegna fyrirsjáanlegs samdráttar og minnkandi neyslu á kindakjöti hér innanlands. Sigurgeir fór í sinni framsögu yfír hugmyndir að nýju kjötmati og kvað mikla nauðsyn að taka upp mikla verðfellingu á feita kjötinu þar sem neytendur vildu ekki þessa vöru og þess vegna þyrftu framleið- endur að bregðast við því sjónar- miði. Húsfyllir var á fundinum, um eða yfír 200 manns, og margar ræður fluttar og engar ályktanir gerðar. Það kom einkum fram í máli bænda sem til máls tóku að þeir teldu að slælega hefði verið staðið að auglýs- inga- og sölustarfsemi á dilkakjöti hér innanlands en vafalaust mætti auka neyslu aftur með úrbótum á því sviði. Þá komu einnig fram hugmyndir um að sauðfjárbændur gætu diýgt tekjur sínar með ýmsu móti, til dæmis stórbættri meðferð og nýtingu á ull. Ýmislegt fleira bar á góma, þar á meðal kom fram gagnrýni á mikinn milliliðakostnað í sölukerfí landbúnaðarvara yfír höfuð. — P.D. fyrir sveitarstjómir, starfsfólk í öldrunarþjónustu og þjónustu- nefndir aldraðra. í tengslum við hana verður sýning á húsbúnaði og sjúkravörum fyrir hjúkranarstofn- anir. Ráðstefnan hefst með ávarpi Ragnhildar Helgadóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra klukkan 10, föstudaginn, 21. febrúar. Síðan mun Ársæll Jónsson formaður Öldr- unarfræðafélags íslands setja ráð- stefnuna. Bjöm Önundarson trygg- ingayfírlæknir flytur erindi um hver greiðir fyrir stofnanaþjónustu aldr- aðra, Þórir Ólafsson frá daggjalda- nefnd talar um ákvörðun daggjalda og Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkranarforstjóri talar um fram- kvæmd laga um málefni aldraðra. Þá fjallar Vilborg Ingólfsdóttir hjúkranarfræðingur um biðlista fyrir langvistun. Fundarstjóri fyrir hádegi verður Sigurveig H. Sigurð- ardóttir yfírfélagsráðgjafí. Eftir matarhlé verður fjallað um þjónustu, mannafla og samstarf. G. John- Tvö fiskeldis- frumvörp lögð fram á næstunni FISKELDISNEFND hefur lokið gerð tveggja áfangaskýrslna og skilað tillögum að tveimur frumvörpum til ríkisstjómarinnar. Ríkis- stjórnin hefur samþykkt bæði fmmvörpin og er nú verið að undir- búa flutning þeirra á alþingi. Búist er við að menntamálaráðherra flytji fmmvarp um Rannsóknadeild fisksjúkdóma í febrúar og í kjölfar þess fylgi fmmvarp um breytingu á veðlögum. Ofangreint kemur fram í Eldis- verði eiginfjármagn eldisfyrirtækis. fréttum, fréttabréfí Landssam- bands fískeldis- og hafbeitarstöðva. Einnig kemur fram að fram til þessa hefur verið útilokað fyrir fískeldis- fyrirtæki að veðsetja framleiðslu sína, en nú hillir undir lausn þess vandamáls. Fiskeldisnefndin hefur rætt þessi mál á fundum með full- trúum banka og tryggingafélags. Þær hugmyndir eru einkum uppi að meta verðmæti eða veðhæfni físksins mánaðarlega út frá vaxtar- forsendum sem koma fram í trygg- ingaskírteini. Nefndin hefur einnig rætt við banka um lánafyrirgreiðslu til fiskeldisfyrirtækja. Hugmynd er um að bankar láni 75% sem eins- ^Jconarstofm og rekstrarlán, en 2^%^ Rekstrarlán greiðist mánaðarlega til eldisfyrirtækis eftir verðmætum fisksins á hveijum tíma þangað til eldisstöðin fer að skila hagnaði. Fiskeldisnefndin hefur fjallað um eignaraðild útlendinga að fískeldis- stöðvum. Ákveðin sjónarmið hafa komið fram í nefndinni en þau era ófrágengin að því er fram kemur í Eldisfréttum. Þessi sjónarmið era: 1) Erlendur samstarfsaðili afli er- lends láns í hlutfalli við eignaraðild. 2) Islenskir samstarfsaðilar samein- ist í eitt félag og félagið sé í sam- vinnu við erlenda aðila. Þetta er gert til þess að erlendi aðilinn geti ekki keypt upp einstaka hluthafa -Qgþannig eignast meirihluta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.