Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 25

Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 25 Margaret Thatcher: „Ef menn vilja slag þá komi þeir bara“ London, 18. febrúar. AP. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gærkvöldi, að hún ætlaði ekki að sitja með hendur í skauti ef reynt yrði að bola henni burt sem leiðtog-a íhaldsflokksins. Kvaðst hún mundu berjast gegn slíkum atlögum af öllu afli. Nokkur óánægja hefur verið með forystu Thatchers að undanförnu og ekki síst vegna hræringanna í kringum Westland-málið. „Ef menn vilja slag þá komi þeir bara. Ég mun taka á móti vegna þess, að ég og stjórnin höfum tekist á við mál, sem engin önnur stjórn hefur þorað að koma nálægt," sagði Thatcher í gær í sjónvarpsviðtali í BBC, breska rík- isútvarpinu. Thatcher lét einu sinni svo um mælt, að það erfiðasta, sem nokk- ur stjómmálamaður gerði, væri „að láta af völdum með virðuleg- um hætti" og þegar hún var minnt á það, svaraði hún því til, að hún væri „enn á uppleið og ég ætla mér að halda á brattann lengi enn.“ Thatcher sagði, að afsögn tveggja ráðherra í síðasta mánuði hefði verið sorgleg en að West- land-málið hefði ekki valdið neinu kreppuástandi innan stjómarinn- ar og íhaldsflokksins eins og margir vildu þó halda. Kvað hún það aldrei hafa hvarflað að sér að láta af embætti og sagðist ekki hafa neinar áhyggjur af skoðanakönnunum, sem sýndu lít- ið fylgi íhaldsflokksins. Við slíku mætti stjórnarflokkar alltaf búast á miðju kjörtímabili. AP/Símamynd Thatcher ásamt Mitterrand, Frakklandsforseta, þegar samningur- inn um jarðgöng undir Ermarsund var undirritaður. Thatcher lagði áherslu á, að stjórnarstefnunni yrði haldið til streitu þrátt fyrir atvinnuleysið og ótta sumra íhaldsmanna við ósigur í næstu kosningum. Sagði hún stjóm sína hafa valdið straumhvörfum í Bretlandi og að árangurinn myndi koma í ljós. „Hver man ekki ástandið þegar við tókum við ... verkalýðsfélögin höfðu í raun og vem tekið völdin. Það, sem einkenndi breskt þjóðlíf, var uppgjafartónninn en á því hefur orðið breyting," sagði Thatcher. Filippseyjar: Gjaldmiðillinn fellur og hlutabréf lækka í verði blöðin í Manila en þau em einnig ar. Andstæðingar Marcosar hafa í eigu vina og vandamanna Marcos- áður hvatt fólk til þess sama með Argentínumenn í Bretlandi: Erindislaus kynnisferð London, 18. febrúar. AP. Manila, Filippseyjum, 18. febrúar. AP. GENGI filippíska pesósins féll í dag um rúm 10% og er það rakið til óvissunnar, sem nú er á Filippseyjum i kjölfar forseta- kosninganna. Valdamikiil banda- maður Marcosar forseta, var í dag ákærður ásamt öðrum um að hafa myrt sjö stjórnarand- stæðinga árið 1984. Nokkrir efnahagsráðgjafar Marcosar hafa á síðustu dögum sagt af sér embætti. Corazon Aquino, forsetafram- bjóðandi stjómarandstöðunnar, hvatti til þess á sunnudag, að almenningur hætti að skipta við sjö banka og nokkur fyrirtæki, sem væra í eigu vina og vandamanna Marcosar, og hafa margir hlýtt því kalli. Verðbréf þessara fyrir- tækja lækkuðu mjög í verði í dag og í bönkunum hefur verið stríður straumur fólks, sem tekið hefur út peninga sína. Vegna þeirrar efna- hagslegu óvissu, sem nú ríkir, lækkaði í dag gengi pesósins um 10,3% og hefur það ekki lækkað meira á einum degi í 15 ár. Aquino skoraði einnig á fólk að hætta að kaupa fimm helstu dag- FJÓRIR argentískir þingmenn eru nú staddir í Bretlandi þar sem þeir hafa átt viðræður við breska starfsbræður sina. Ekki er þó búist við þvi að sinni, að eðlileg samskipti komist á með þjóðunum. Argentískir þingmenn hafa ekki komið til Bretlands síðan þjóðimar börðust um Falklandseyjar árið 1982 og í fjögur ár hefur ekkert stjómmálasamband verið með ríkj- unum. Vom bundnar nokkrar vonir við komu Argentínumannanna en þær dofnuðu heldur þegar þeir kváðust ekki ætla að ræða við breska ráðherra. Bresk stjómvöld höfðu áður tekið það skýrt fram, að þau væra ekki til viðtals um Falklandseyjar eða yfírráðin þar. Haft er eftir einum argentíska þingmanninum, að þeir hafi búist við, að bresk stjómvöld vildu greiða fyrir bættum samskiptum ríkjanna með því að ræða við þá án nokkurra skilyrða, en þar sem því væri ekki að heilsa gæti ekkert orðið af við- ræðum. litlum árangri en nú virðast eigend- ur blaðanna hafa miklar áhyggjur. í einu þessara biaða, stærsta blaði í landinu, birtist í dag forsíðuleiðari þar sem því var haldið fram, að blaðið hefði gætt fyllsta hlutleysis í kosningabaráttunni og birt jafnt efni frá stjóm sem stjómarand- stöðu. Arturo Pacificador, þingmaður og varaformaður Nýju þjóðarhreyf- ingarinnar, flokks Marcosar for- seta, var í dag ásamt sex öðram mönnum opinberlega ákærður um að hafa myrt sjö stjómarandstæð- inga árið 1984. Pacificador er einnig bendlaður við morðið á Evelio Javier, sem árið 1984 bauð sig fram gegn Pacificador, en hann var skotinn til bana í síðustu viku. Nokkrir kaupsýslumenn, sem verið hafa ráðgjafar Marcosar í efnahagsmálum, hafa sagt af sér síðustu daga og er það fullyrt í filippískum fjármálatíðindum, dag- blaði, sem eingöngu fjallar um efnahagsmál, að ástæðan sér óán- ægja með framkvæmd kosning- anna. Afganistan: Obreyttir borgarar deyja í loftárásum Sovétmanna Islamabad, 18. febrúar. AP. UM 200 óbreyttir borgarar dóu eða særðust í hörðum loftárásum Sovétmanna í nágrenni bæjarins Herat í Vestur-Afganistan, sam- kvæmt upplýsingum frá vestræn- um sendiráðsstarfsmönnum. Þrátt fyrir loftárásirnar tókst afgönskum skæruliðum að hand- taka 170 stjórnarhermenn á svæðinu. Seinnihluta janúarmánaðar gerðu Sovétmenn einnig harðar loftárásir á Herat og er mikill hluti bæjarins í rúst eftir þær að sögn sendiráðsstarfsmannanna, auk þess sem þær kostuðu einnig líf margra óbreyttra borgara. Loftárásirnar koma í kjölfar árása skæraliða á svæðinu. í einni þeirra felldu þeir 90 hermenn, flesta afganska, en einnig nokkra sovéska. Herat er nálægt landamæram Afganistan og íran. Sendiráðsstarfsmennirnir sögðu einnig að í Jagatu í Ghazni-héraðinu suðaustur af Kabúl, hefðu um 100 óbreyttir borgarar fallið og særst í loftárásum 20. janúar síðastliðinn. í loftárásinni tóku þátt 64 þyrlur, auk flugvéla og tókst skæraliðum að skjóta niður fjórar þyrlur og tvær flugvélar. * Oveður geysar í Banda- ríkjunum Los Angeles, 18. febrúar. AP. MIKIÐ óveður heijar nú á vest- urhluta Bandaríkjanna. Mestu rigningar í þrjá áratugi hafa neytt mörg hundruð manns til að flýja heimili sin og hávaðarok hefur hleypt af stað aurskriðum, sem hafa rutt niður hús og lagst yfir þjóðvegi og járnbrautar- teina. Mest hefur tjónið verið í Nevadafylki. Vindhraðinn í verstu hryðjunum er um 160 km á klst. og hafa sex manns farist síðan óveðrið hófst fyrir viku og þriggja er saknað. Búist er við því að veðrið gangi niður síðdegis í dag og björgunar- sveitum gefist ráðrúm til að flytja fólk brott áður en aftur skeliur á stormur, sem spáð hefur verið í lok vikunnar. Varðmenn úr pappa Bonn, 18. febrúar. AP. YFIRVÖLD í Austur-Þýska- landi hafa sett upp varðmenn úr pappaspjöldum á landa- mærunum við Vestur-Þýska- land. í pappaspjöldin eru skomar útlinur hermanna og á þetta að koma i veg fyrir að Austur-Þjóðveijar reyni að flýja til Vestur-Þýska- lands, að því er fram kemur i ársskýrslu vestur-þýska inn- anrikisráðuneytisins. í skýrslunni, sem var gefín út í dag, segir að pappavörðunum sé stillt upp nærri varðtumum við hin eiginlegu landamæri ríkj- anna, en dijúgan spöl innan þeirra marka þess svæðis, sem Austur-Þjóðveijum er meinaður aðgangur að. Japan: Sprungfur í fimm 747- breiðþotum Tókýó, 18. febrúar. AP. SPRUNGUR hafa fundist á afmörkuðum svæðum á fram- hluta fimm Boeing 747SR-breið- þotum japanska flugfélagsins JAL. Japanska ferðamálaráðu- neytið hefur fyrirskipað skoðun á innri grind nokkurra þota. Sprangumar fundust í skoðun, sem fram fór frá september til janúar, og gerð var eftir að 747- breiðþota hrapaði 12. ágúst með þeim afleiðingum að 520 menn fór- ust. Aðeins fjórir lifðu slysið af. „Ég vil leggja áherslu á það að engin sprangnanna hefur hættu í för með sér,“ sagði Geoffrey Tudor, talsmaður JAL. „Þó verð ég að viðurkenna að svo margar sprangur í öllum vélunum fimm séu dálítið óvenjulegar." Að meðaítali fundust sprangur á 83 afmörkuðum svæðum á hverri þotu. 70 prósent sprangnanna vora milli fremsta hluta vélanna og fremstu dyra. Flestar vora um 2,5 sm. ■ ■■ ' ERLENT‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.