Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 27
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986
27
-1
„Guð minn góður,
Tolya er frjáls“
— sagði móðir Shcharanskys er
henni bárust gleðitíðindin
„Tolya er frjáls, Guð minn góður, Tolya er fijáls!“ sagði Ida
P. Milgrom, móðir andófsmannsins Anatolis B. Shcharansky,
og grét af gleði, er henni bárust þau tíðindi í sl. viku, að sonur
hennar hefði verið látinn laus.
Ida P. Milgrom, sem er 77 ára
að aldri, hefur nú í níu ár sam-
fleytt barist fyrir frelsi sonar síns
og m.a. gengið á milli stjómar-
skrifstofa af öllum stigum sovéska
kerfísins. Hún hefur staðið úti í
kuldanum fyrir utan Chistopol-
fangelsið í Tatar-lýðveldinu og
krafíst þess að fá að ræða við
fangelsisstjórann. Hún hefur ferð-
ast þúsundir mflna til þess að ná
fundi sonar síns og þjáðst mánuð-
um saman, er hún frétti ekkert
af honum.
Hún hafnaði tilboðum um að
flytjast af landi brott; kvaðst ekki
fara, meðan Anatoli væri enn í
fangelsi. Eldri sonur hennar,
Leonid, hefur staðið við hlið henn-
ar, leitast við að komast að hinu
sanna um líðan Anatolis, krafíst
samfunda við hann, kvartað yfír
meðferðinni á honum og marg-
ítrekað reynt að fá hann leystan
úr haldi. Þá hafa þau mæðginin
unnið að því í sameiningu, að
heimurinn fengi að fylgjast með
líðan fangans.
Sá orðrómur hefur gengið oftar
en einu sinni á þessum níu árum,
að til stæði að Iáta Anatoli
Shcharansky lausan, en móðir
hans hefur æviniega varast að
gera sér of miklar vonir. A þriðju-
daginn í síðustu viku reyndi hún
einnig að halda ró sinni, meðan
hún beið frétta af syni sínum.
Mæðginin Ida og Leonid voru
heima hjá Qölskylduvini í Moskvu.
Vestrænn blaðamaður hringdi og
talaði við Leonid. Hann kallaði til
móður sinnar, sem sat inni í stofu.
Hún var búin að halda aftur af
sér í níu ár, en nú gat hún ekki
meir og brast í ekkagrát. Og hún
hefur átt erfítt, þegar hún hefur
talað við fréttamenn eða tekið við
fagnaðaróskum vina og velunnara
í síma.
„Er þetta ekki ótrúlegt?" sagði
hún. „Er þetta ekki ótrúlegt?
Tolya er frjáls. Hann getur andað,
hann er frjáls. Getur þetta verið
satt?"
Hún hefur reynt að koma orð-
um að því, hvemig henni er innan-
bijósts: „Ég trúði því alltaf, að
hann yrði látinn laus, en ég óttað-
ist, að ég fengi ekki að lifa það,“
sagði hún. „Þetta var hræðileg
martröð. Ég barðist af öllu afli. Ég
trúði þessu ekki, fyrr en ég heyrði,
að hann væri komin út á brúna.
Ég var hrædd við að trúa því, ég
var hrædd við, að eitthvað gerðist,
sem kæmi í veg fyrir þetta."
Að sögn Leonids sendi hún
Reagan og Gorbachev þakkar-
skeyti seinna um kvöldið: „Kærar
þakkir fyrir góðviljann og fyrir-
höfnina.við að fá son minn, Ana-
toli Shcharansky, leystan úr
haldi."
Þau mæðginin kváðust ekkert
vita um, hveijar horfur væru á
því, að þau fengju brottfararleyfí.
Vestur-þýskt tfmarit hefur sagt
frá því, að hún fái að flytjast til
sonar síns í Israel, en hún segist
hvergi fara, nema Leonid fái að
koma með ásamt konu og tveimur
sonum.
Leonid sagði, að þau mundu
leggja inn beiðni þar að lútandi á
miðvikudag í síðustu viku. „Nú
er ég róleg," sagði Ida P. Milgrom,
„Anatoli er á leið heim, hann er
með eiginkonu sinni, og nú vona
ég aðeins, að hann nái fullri
heilsu."
(Bygrgt á New York Times)
Ida P. Milgrom, móðir Shcharanskys, ræðir við fréttamenn i
Moskvu ísíðustu viku.
Flotaæfingar á Miðjarðarhafi
Þessi mynd er tekin, er Bandarikjamenn stóðu fyrir umfangsmiklum flotaæfingum á Miðjarðarhafi.
Flugvélar þeirra mættu nokkrum sinnum líbýskum herþotum á æfingaflugi sinu, en ekkert bar til tið-
inda. Hér lendir F-14 Tomcat-herþota á flugbraut flugmóðurskipsins Saratoga.
BODY FORMING
Ný snyrtilína fyrir líkamann frá
TBiodroqa
Body Forming byggir upp, styrkir, mýkir og veitir afslöppun.
Body Forming snyrtilínan samanstendur af:
Dekraðu við sjálfa þig og veittu þér Body | Vinsamlegast sendið mór í póstkröfu Biodroga Body Forming sett á til-
Formlng-tilboðssettið frá Biodroga strax boðsverði kr. 760.00...........stk.
ídag.
<St
Nafn:
fella
Heimili:
Bankastræti 3, . Pós,nr; staður:
sími 13635. 1
Póstsendum. i Tilboðið gildir til 15. marz 1986
1) Nuddkrem
fyrir appelsínuhúð og þurra
bletti.
Skrúbbkrem
til að mýkja stíflaöa fitukirtla,
fílapensla og hreinsa upp dauð-
ar húðfrumur.
Styrkingarkúr
fyrir bringu, brjóst og háls.
4) Sápa
fljótandi í sturtu eða í afslapp-
andi karbað.