Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRUAR 1986
35
I raðauglýsingar — raðauglýsingar — raóauglýsingar
óskast keypt
Mötuneyti
Skáli fyrir mötuneyti 30-40 manna óskast til
kaups eða leigu. Upplýsingar í síma 685955.
húsnæöi í boöi
Suðurlandsbraut
Til leigu er tæplega 200 fm skrifstofuhús-
næði á 2. hæð í vel staðsettu húsi við Suður-
landsbraut. Lofthæð 3,7 m. Næg bílastæði.
Lyshafendur leggi inn bréf þar um á augld.
Mbl. fyrir 1. mars merkt: „S — 0239“.
Verslunarhúsnæði
112fm og 125 fm
Til leigu er í austurborginni á góðum stað í
mjög vönduðu nýju húsi skrifstofuhúsnæði,
sem verður afhent í eftirfarandi ástandi og
með eftirfarandi skilmálum:
1. Húsið er nýtt og hannað sem verslunar-
og skrifstofuhús.
2. Sameigninniverðurmjögvönduð.
3. Lóðin er hönnuð af landslagsarkitekt og
verður fullfrágengin með nægum bíla-
stæðum og gróðri.
4. Húsnæðið verður afhent strax, tilbúið
undirmálningu.
5. Leigutaki byrjar að greiða leigu 1. maí
1986.
6. Enginfyrirframgreiðslaáleigu.
Mögulegt er að skipta ofangreindu húsnæði
ítværeiningar.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða vegna
tvenns. í fyrsta lagi er frágangur allur sér-
staklega vandaður. I öðru lagi er húsið hannað
sem verslunar- og skrifstofuhús, en ekki iðn-
aðarhús, sem síðar hefur verið breytt í versl-
unarhús með þeim göllum, sem því fylgja.
Sala getur komið til greina.
Upplýsingar um ofangreint húsnæði verða
veittar í síma 31965 milli kl. 9 og 12 fyrir
hádegi næstu daga.
Skrifstofuhúsnæði
135 fm
Til leigu er í austurborginni á góðum stað í
mjög vönduðu nýju húsi skrifstofuhúsnæði,
sem verður afhent í eftirfarandi ástandi og
með eftirfarandi skilmálum:
1. Húsið er nýtt og hannað sem skrifstofu-
hús.
2. Sameign inni verður mjög vönduð.
3. Lóðin er hönnuð af landslagsarkitekt og
verður fullfrágengin með nægum bíla-
stæðum og gróðri.
4. Húsnæðið verður afhent innréttað að
hluta utan um þarfir hvers leigutaka,
þ.e. fullfrágenginn gangur inni á hæð
með salernum, fullfrágengið stigahús
og hólfað af fyrir þarfir hvers.
5. Leigutaki fær húsnæðið afhent 28. fe-
brúar 1986.
6. Leigutaki byrjar að greiða leigu 1. maí
1986.
7. Engin fyrirframgreiðsla á leigu.
Mögulegt er að skipta ofangreindu húsnæði
ítværeiningar.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða vegna
tvenns. í fyrsta lagi er frágangur allur sér-
staklega vandaður. í öðru lagi er húsið
hannað sem skrifstofuhús, en ekki iðnaðar-
hús, sem síðar hefur verið breytt í skrifstofu-
hús með þeim göllum, sem þvífylgja.
Upplýsingar um ofangreint húsnæði verða
veittar í síma 31965 milli kl. 9 og 12 fyrir
hádegi næstu daga.
Félagsfundur
verður haldinn í húsi félagsins fimmtudaginn
20. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá:
Staða samninganna,
atvinnumál,
önnurmál. Stjórnin.
Fundur um tölvuteiknikerfi
(CAD)
Á vegum Tæknifræðingafélags íslands verð-
ur haldinn kynningarfundur um tölvuteikni-
kerfi (CAD) að Hótel Esju kl. 20.00 stundvís-
lega þann 19. febrúar 1986.
Á fundinum verður rakin lauslega þróun
tölvuteiknikerfa og einnig munu aðilar frá
fyrirtækjum sem bjóða slíkan búnað hér á
landi kýnna hann.
Félagar eru beðnir að tilkynna mætingu ef
hægt er.
Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm
leyfir' Stjórn T.F.Í.
Norrænir
starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar veita á námsár-
inu 1986-87 nokkra styrki handa íslendingum
til náms við fræðslustofnanir í þessum lönd-
um. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til fram-
haldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða
menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskól-
um eða framhaldsskólum iðnskólakennara,
svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem
ekki er unnt að afla á íslandi. — Fjárhæð
styrks í Danmörku er 15.000 d.kr., í Finnlandi
13.600 mörk, í Noregi 16.800 n.kr. og í Sví-
þjóð 9.800 s.kr. miðað við styrk til heils skóla-
árs. — Umsóknir skulu berast menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík,
fyrir 1. aprfl nk. Nánari upplýsingar og
umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
14. febrúar 1986.
Um rannsóknastyrki frá
J.E. Fogarty International
Research Foundation
J.E. Fogarty—stofnunin í Bandaríkjunum býð-
ur fram styrki handa erlendum vísindamönn-
um til rannsóknastarfa við vísindastofnanir
í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir
fram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði
læknisfræði eða skyldra greina (biomedical
science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaða
eða 1 árs á skólaárinu 1987-88.
Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu
þurfa umsækjendur að leggja fram rann-
sóknaáætlun í samráði við stofnun þá í
Bandaríkjunum sem þeir hyggjast starfa við.
Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir
Atli Dagbjartsson, læknir, barnadeildar
Landspítalans (s. 91-29000). — Umsóknir
þurfa að hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15.
júní nk.
Menn tamálaráðuneytið,
14. febrúar 1986.
Verkmannabústaðir í Kópavogi
Umsóknir
Stjórn verkamannabústaða í Kópavogi óskar
eftir umsóknum um íbúðir sem koma til út-
hlutunar á árinu 1986. Hér er um að ræða
nýjar íbúðir á Suðurhlíðasvæði og eldri íbúðir
sem koma til endursölu. Sérstök athygli er
vakin á að eldri umsóknir falla úr gildi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Bæjar-
skrifstofu Kópavogs, Fannborg 2, 4. hæð.
Umsóknum skal skilað á sama stað eigi síðar
en 28. febrúar 1986.
Auglýsing um styrki
og lán til þýðinga á
erlendum bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð
nr. 638/1982 um þýðingarsjóð, er hlutverk
sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá
til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á
íslensku máli. Greiðslur skulu útgefendur
nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera
þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er
kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000
eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi al-
mennum gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagurséákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1986
nemur 2.664.000 krónum.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr
sjóðnum fást í menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu
umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 15.
mars nk.
Reykjavík, 14. febrúar 1986.
Stjórn þýðingarsjóðs.
(Jtboð
Byggung Reykjavík óskar eftir tilboðum í frá-
gang utan- og innanhúss á tveimur fokheld-
um fjölbýlishúsum með samtals 56 íbúðum
við Víkurás í Reykjavík.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjónust-
unni sf., Lágmúla 5, Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 18. febrúar 1986 gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þann 4.
marsnk. kl. 11.00.
ty ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd byggingadeildar borgarverkfræðings
óskar eftir tilboðum í ýmsa þætti viðgerða
og viðhalds á eldri hluta sundlauga Reykjavík-
urí Laugardal.
Verkið felst í viðgerðum og viðhaldi á hluta
sundlauga, sem saman stendur af stúku og
byggingahlutum hennar. Helstu verkþættir
eru: Háþrýstiþvottur, múrviðgerðir, endur-
steypa, sprunguviðgerðir og sílanböðun
utanhúss.
Útboðsgögn eru afhent á skifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudag-
inn 11. mars nk. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800