Morgunblaðið - 19.02.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR 1986
39
Brotist inn í KÁ í Hveragerði:
Rey ðarfj örður;
Útför Hjalta
Gunnarssonar
Reyðarfirði, 17. febrúar.
LAUGARDAGINN 15. febrúar
var kvaddur í Reyðarfjarðar-
kirkju Hjalti Gunnarsson út-
gerðarmaður. Hann lést 9. febrú-
ar í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Neskaupstað eftir stutta legu.
Mikill fjöldi var við jarðarförina.
Var kirkjan troðfull af fólki og varð
að koma sjónvarpi fyrir í kaffistofu
vegagerðarinnar og var sjónvarpað
þangað frá athöfninni í kirkjunni.
Þar var einnig yfirfullt af fólki.
Erfídrykkja var í félagsheimilinu
eftirjarðarför.
Hefur plássið okkar misst mikið
við fráfall Hjalta. Gréta
Margrét Óskarsdóttir, leikstjóri, leiðbeinir leikendum Leikfélags
Dalvíkur, f.v. Margrét, Helga Matthíasdóttir, Sigurbjörn Hjörleifsson
og Arni Björnsson.
Leikritið „ Jói“
æft á Dalvík
Dalvík, 12. febrúar.
UM ÞESSAR mundir standa yfir æfingar á leikritinu „Jóa“ hjá
Leikfélagi Dalvíkur. Leikritð er eftir Kjartan Ragnarsson og hefur
einungis verið sýnt áður hjá Leikfélagi Reykjavikur.
Áætlað er að frumsýna verkið í
byijun mars en æfingar hófust um
20. janúar. Leikstjóri er Margrét
Óskarsdóttir og titilhlutverkið er í
höndum Alberts Ágústssonar. Leik-
endur eru 7 talsins en alls taka um
15—20 manns þátt í sýningunni.
Leikrit Kjartans fjallar um
þroskaheftan dreng og fjölskyldu
hans og var það samið í tilefni af
ári fatlaðra og frumsýnt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur árið 1983. Flest-
ir foreldrar bera kvíðboga fyrir
framtíð þroskaheftra bama sinna
þegar þeirra nýtur ekki lengur við.
I leikritinu er fjallað um álagið og
togstreituna sem skapast hjá að-
standendum þroskahefts pilts þegar
foreldrar hans falla frá og geta
ekki annast hann lengur.
Starfsemi Leikfélags Dalvíkur
hefur verið í nokkurri lægð að
undanfömu en félagið hefur ekki
sett upp leikverk síðan 1984 er það
setti upp leikrit Jónasar Ámasonar
„Þið munið hann Jömnd". Leik-
félagið hefu'r áður tekið verk eftir
Kjartan Ragnarsson til sýninga en
það var „Saumastofan" sem sýnd
varárið 1981.
Formaður Leikfélags Dalvíkur er
Guðlaug Bjömsdóttir.
Fréttaritarar
Þj ófavarnarkerfið
kom að góðu gagni -
Hveraferði, 16. febrúar.
í NOTT var brotist inn í útibú
Kaupfélags Árnesinga i Hvera-
gerði. Þjófavarnarkerfi er í hús-
inu og fór það í gang. Lögreglan
í Árnessýslu brá skjótt við og
náði hinum óboðnu gestum.
Það var kl. 4.30 að Gunnar úti-
bússtjóri Kaupfélagsins vaknaði við
hringingu þjófabjöllunnar. Brá
hann skjótt við og gerði lögreglunni
viðvart. Kom hún fljótt á staðinn
og fann þjófana inni á lóð bama-
skólans, en þeir höfðu ætlað að
fela sig bak við íþróttahúsið. Ekki
tókst þó betur til en svo að bíllinn
sat fastur, en nýlega rigndi mikið
og er því blautt yfirferðar þama.
Kom í ljós að kappamir, sem vom
þrír, reyndust vera á bíl sem þeir
höfðu stolið í Reykjavík.
Þeir höfðu bakkað bílnum að
aðalvömhurð verslunarinnar og
brotið upp aðra minni hurð á bak-
hlið hússins. Ekki urðu meiri
skemmdir á húsinu og engu tókst
þeim að stela.
Sagði Gunnar að þetta þjófavam-
arkerfi hefði sannað ágæti sitt, en
það var sett upp vegna margra
óskemmtilegra heimsókna að næt-
urþeli á undanfömum ámm. Síðast
var brotist inn hjá þeim í febrúar
í fyrra og miklu stolið og hefur það
innbrot ekki verið upplýst enn,
hefðu aðferðir í þetta sinn minnt
mjög á það tilfelli en ekki hægt að
fullyrða hvort hér væm sömu menn
á ferð.
Fyrirtæki hér í Hveragerði em
sífellt fleiri að koma sér upp þjófa-
vamarkerfi og aðrir láta vakta
fyrirtæki sín og virðist ekki vanþörf
á.
Sigrún
Geðhjálp með
fyrirlestur
Geðhjálp heldur fyrirlestur um
skyldur lækna og rétt sjúklinga
fimmtudaginn 20. febrúar nk. a' .
Guðjón Magnússon, aðstoðarland-
Jæknir, flytur erindið sem hefst kl.
20.30 á geðdeild Landspítalans, í
kennslustofu á 3. hæð. Fyrirspumir,
umræður og kaffí verða eftir fyrir-
lesturinn. Allír em velkomnir.
Aðgangur er ókeypis.
JC Vík:
Fundur Evrópufor-
seta JC á Islandi
FUNDUR Evrópuforseta JC var haldinn á Hótel Loftleiðum helgina
6.-9. febrúar. Fundinn skipulagði JC Vík, eina JC-félagið á íslandi,
sem eingöngu er skipað konum, og mun þetta vera i fyrsta skipti
sem fundur Evrópuforseta JC er skipulagður af konum eingöngu.
Fundinn sóttu fulltrúar frá 18
Evrópulöndum, tveir fulltrúar frá
Alþjóðastjóm JC og tveir frá Japan,
sem komu og kynntu næsta heims-
þing JC-hreyfingarinnar sem haldið
verður í Nagoya í Japan.
Aðalmál fundarins var tillögur í
12 liðum sem miða allar að því að
styrkja Samband Evrópuforseta og
afla því aukinna áhrifa innan al-
þjóðahreyfingarinnar. Þá var kynnt
Heimshlaup umhverfis jörðina og
er ætlunin að hlaupa með ólympíu-
eldinn frá Ólympíuleikunum í Los
Angeles í tilefiii alþjóðlegs friðarárs
1986 og mun hlaupið enda við
aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna
að kvöldi nýársdags 1986. Á fund-
inum var kynnt framboð Ama Þ.
Ámasonar, JC Reykjavík, til emb-
ættis alþjóðlegs varaheimsforseta.
Landsforseti JC íslandi þetta
starfsár er Grétar D. Pálsson, JC
Stykkishólmi.
(Úr fréttatílkynningu)
Frá vinstri: Harald Kueseth, Danmörku, Mike Mander Bretlandi,
fundarstjóri, Marc Bayers Belgíu, fundarritari og Irena Schegk
Þýskalandi, aðstoðarforseti alþjóðasamtaka JC í ræðustól.
*
Isbergið málað
Morjjunblaðið/Bjarni
Slippfélagið í Reykjavík festi nýlega kaup á
nýjum körfubíl til nota við málningarvinnu og
viðhald skipa. Slippfélagið á nú þrjá slíka bíla
og að sögn stjórnenda félagsins er að þeim
mikill hægðarauki. Á meðfylgjandi mynd er
verið að nota nýjasta bílinn við málningu á flutn-
ingaskipinu ísbergi.
Lionsmenn
safna fyrir
sjúkrarúmum
Sauðárkróki 17.febrúar
LIONSKLÚBBUR Sauðár-
króks hefur hrundið af stað
fjársöfnun til kaupa á sér-
hönnuðum sjúkrarúmum og
fylgibúnaði fyrir dvalar-
heimili aldraðra, sem verið
hefur ú byggingu hér und-
anfarin ár og brátt verður
tekið í noktun. Um er að
ræða 25 rúm, sem samtals
kosta um tvær milljónir
króna án tolla og aðflutn-
ingsgjalda.
Söfnunin mun standa yfir
til loka þessa mánaðar. Leitað
er liðsinnis hjá fyrirtækjum á
Sauðarákróki og í Varmahlíð
og einnig er þess vænzt að
einstaklingar í bæ og sýslu láti
sinn hlut ekki eftir liggja.
Bygging dvalarheimilsins er
sameiginlegt átak allra Skag-
fírðinga og brýn þörf er á að
það komist í gangið hið allra
fyrsta. Lionsfélagar á Sauðar-
króki hafa verið ötulir við að
safna fé til styktar líknar- og
menningar starfsemi hér.
Kári
Vestmannaeyjar:
Dagatali Kiwanis
dreift í skipin
Vestmaimaeyjum, ll. febrúar.
ANNAÐ árið hefur Kiwanisklúbburinn Helgafell í Vestmannaeyjum
látið útbúa vandað dagatal sem dreift hefur verið ókeypis um borð
í öll skip íslenska flotans. Dagatali þessu er ætlað það hlutverk að
minna skipstjórnarmenn á tilkynningarskyldu íslenskra skipa en auk
þeirrar þörfu áminningar eru á dagatalinu ýmsar þarflegar upplýs-
ingar um slysavarna- og björgunarmál. Dagatalið er skreytt fjölmörg-
um fallegum litmyndum.
Kiwanismenn í Eyjum réðust í
þessa útgáfu í fyrsta sinn í fyrravet-
ur og var þessu ágæta framtaki
þeirra vel tekið af sjómönnum. Vilja
margir meina að dregið hafi úr
trassaskap að sinna tilkynningar-
skyldunni í fyrra hvort sem það er
svo dagatölum Kiwanismanna að
JANÚAR 1986
12 3 4
5 6 7 S 9 10 11
12 13 14 1$ 16 17 16
1« 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31
þakka eður ei.
Útgáfa dagatalsins er fjármögn-
uð með auglýsingum frá ýmsum
fyrirtækjum og er ágóða varið til
slysavarnamála. Á síðasta ári
styrkti Kiwanisklúbburinn Helga-
fell félaga í Björgunarfélagi Vest-
mannaeyja til þess að sækja nám-
V" I siinitetfírfin I
skeið í Skotlandi.
Þeim útgerðarmönnum skipa
sem einhverra orsaka vegna hefur
ekki borist dagatalið í hendur er
bent á að hafa samband við ein-
hvern félaga í Kiwanisklúbbnum
Helgafelli og verður það þá þegar
sent þeim um hæl. -hkj.