Morgunblaðið - 19.02.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986
Fjölmenni var mikið á fundinum og var staðið þar sem pláss var að hafa. Fremst á myndinni sést
Höskuldur á Hofsstöðum í Borgarfirði, hin aldurhnigna kempa.
Seldu mér
Fræðslunefnd Fáks héld fund
sl. fímmtudag sem bar heitið
„Seldu mér gæðing". Fjallaði fund-
urinn eins og nafnið ber með sér
um kaup og sölu á hestum.
Skúli Kristjónsson, bóndi í
Svignaskarði í Borgarfírði, flutti
inngangserindi og síðan flutti Flosi
Ólafsson leikari „minni" gæðings.
Eftir það hófust pallborðsumræður
um efnið og voru þátttakendur
Skúli, Flosi, Guðni Kristinsson,
hreppstjóri í Skarði á Landi, og
Sigurjón Jónasson í Syðra-Skörðu-
gili í Skagafírði.
Eftir kaffíhlé voru raunveruleg
hestakaup sett á svið þar sem Flosi
með aðstoð Auðar Samúelsdóttur
reyndi að kaupa ódýrt óséðan
„gæðing" af þeim Guðna og Sigur-
jóni. Sátu Flosi og Auður uppi með
þrjá „gæðinga" fyrir hundrað þús-
und krónur undir lokin og litlu
munaði að þau töpuðu hesthúsi.
Að síðustu var svo litskyggnu- mundsson stjómaði. Um þrjú
sýning frá Fjórðungs- og Evrópu- hundruð manns sóttu fundinn og
meistaramótum sem Sigurður Sig- þótti hann takast mjög vel.
Morgunblaðið/G.V.K.
„Brokkar hann á hægri framfót, töltir á þeim vinstri og skeiðar
með báðum afturlöppunum"? Flosi spyr Guðna i Skarði um helstu
kosti gæðingsins. Við hlið Flosa er Auður Samúelsdóttir, þá Dúddi
í Skörðugili, síðan Guðni í Skarði, Skúli í Svignaskarði og Hákon
Jóhannsson, formaður fræðsludeildar Fáks.
Morgunblaðið/Steinar Garöarsson
Ólafur J. Þormóðsson og Guð-
björg A. Jónsdóttir sýna lögun
landsins „Liberí“.
Samfélag undir sjávarmáli „Bermuda“. Frá vinstri: Sveinn, Arnar,
Guðríður, Katrín, Svava og Hafdís.
COSPER
Dýralæknir hér? Nei, hann á heima á sjöttu hæð.
Unnið
að mótun
mannfélags
F .yrir nokkru stóð yfír all sér-
stæð sýning hjá Samvinnu-
skólanum. Hefðbundin kennsla var
lögð niður um hríð og nemendur
látnir vinna að svokölluðu sam-
þættingarverkefni, þar sem þeir
unnu að mótun mannfélagsins.
Nemendur völdu sér land á hnettin-
um til umfjöllunar en, hlutverk
kennara var að móta ytri aðstæður.
Eftir að hafa unnið að verkefninu
í viku var gögnum safnað saman
til sýningar. Heiðursgestur sýning-
arinnar var frú Vigdís Finnboga-
dóttir sem einnig sat þorrablót
nemanna auk Varmalandsmeyja.
Eftir þorrablótið var haldin kvöld-
vaka og að lokum lék hljómsveit
Samvinnuskólans fyrir dansi fram
á nótt.
47^
Ritstj óraskipti
á Iþróttablaðinu
RITSTJÓRASKIPTI hafa orðið
hjá íþróttablaðinu íþróttir og
útilif. Steinar J. Lúðvíksson, sem
annast hefur ritstjórn blaðsins
undanfarin 10 ár, hefur látið af
störfum og við tekið Þorgrímur
Þráinsson.
Þorgrímur er 27 ára. Hann er
fæddur og uppalinn í Reykjavík en
fluttist til Ólafsvíkur 1970 og átti
þar heima til ársins 1979. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1980 og stundaði
frönskunám í Sorbonne-háskólan-
um í París 1983-1984. Hann hóf
störf sem blaðamaður hjá Fijálsu
framtaki í ársbyijun 1985.
Þorgrímur er kunnur íþróttamað-
ur, hann hefur leikið með knatt-
spymuliði Vals og á að baki 13
landsleiki.
Þorgrímur Þráinsson ritstjóri
IZUMI
STÝRILIÐAR
Allar stærðir fyrir allar
spennur. Festingar fyrir
DIN skinnur.
Gott verö.
= HÉÐINN =
VÉLAVÉRZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-hJÓNUSTA
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaóur
fyrírspil o.fl!
STEYPIBAÐ
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtursíðan
steypibaðsins vel og lengi.
= HEÐINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260
ESAB
Rafsuóutæki
vír og
fylgihlutir
Nánast allttil
rafsuöu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæöum
og góöri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2,
SlMI 24260
ESAB