Morgunblaðið - 19.02.1986, Page 55

Morgunblaðið - 19.02.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986 55 Morgunblaðið/Árni Sæberg • Jóhannes Magnússon reynir körfuskot í leiknum í gærkvöldi. Fáir áhorfendur komu í íþróttahús Selia- skóla eins og sjá má. Valsmenn unnu íslenska landsliðið valið: Hafa leikið alls 1549 landsleiki Níu af sextán manna landsliðshópi íslands fyrir HM i Sviss, sem valinn var í gær, hafa leikið fleiri en eitt hundrað landsleik). Samtals hefur iiðið leikið 1549 landsleiki, eða 96,8 landsleiki á hvern leikmann að meðaltali. Það er að sjálfsögðu feiknarleg leik- reynsla, ekki síst þegar tillit er tekið til þess að meðalaldur liðsins er aðeins 26,4 ár. Landsliðshópurinn: Einar Þorvarðarson 28 ára handknattleiksmaður, 110 landsleikir. Kristján Sigmundsson 28 ára fjármálastjóri, 121 landsleikur. Ellert Vigfússon 28 ára lögreglumaður, 5 landsleikir. Þorgils Ottar Mathiesen 23 ára nemi 103, landsleikir. Atli Hiimarsson 26 ára handknattleiksmaður, 70 landsleikir. Bjarni Guðmundsson 29 ára handknattleiksmaður, 177 landsleikir. Steinar Birgisson 30 ára lögreglumaður, 75 landsleikir. Sigurður Gunnarsson 26 ára handknattleiksmaður, 86 landsleikir. Alfreð Gislason 26 ára handknattleiksmaður, 86 landsleikir. Páll Ólafsson 25 ára handknattleiksmaður, 112 landsleikir. Guðmundur Guðmundsson 25 ára kerfisfræðingur, 106 landsleikir. Kristján Arason 24 ára handknattleiksmaður, 118 landsleikir. Þorbjörn Jensson 32 ára rafvirki, 151 landsleikur. Jakob Sigurðsson 21 árs afgreiðslumaður, 64 landsleikir. Geir Sveinsson 22 ára nemi, 32 landsleikir. Þorbergur Aðalsteinsson 29 ára þjálfari, 136 landsleikir. Þeir leikmenn sem leika með erlendum félagsliðum og hér eru kallaðir handknattleiksmenn vinna flestir önnur störf að hluta. Geysileg vonbrigði — sagði Júlíus Jónasson „Það eru auðvitað geysileg von- brigði að hafa ekki verið valinn“, sagði Júlíus Jónasson, eftir tii- kynningu liðsins. „Ég verð bara að halda áfram að æfa og æfa. Vonandi kemur röðin að mér einhverntíma. Það þýðir ekkert að gefast upp þótt svona hafi farið að þessu sinni,“ sagði Júl- íus, en hann mun taka aftur til við vinnu sína sem málari eftir nokkuð hló. Njarðvíkingar samt áfram í bikarnum Óeðlilegt ef maður væri ekki dálítið svekktur — segir Brynjar Kvaran EFTIR 10 mfnútna leik og feiknar- lega baráttu Valsmanna ( síðari leik þeirra gegn UMFN f undanúr- Liverpool vann York LIVERPOOL komst áfram í bikar- keppninni ensku með þvf að vinna York f sfðari leik liðanna. Jafnt var að venjulegum leiktíma liðnum, 1:1, en í framlengingunni skoruðu þeir Molby og Dalglish fyrir heimamenn. Wark skoraði fyrsta mark Liv- erpool en Canham jafnaði fyrir York en leikmenn þess þóttu standa sig mjög vel í þessum leik. slitum bikarsins hafði myndast þónokkur spenna um heildarút- komu leikjanna tveggja. Þá var staðan 24—9 og 19 stiga sigur Njarðvfkinga f fyrri leiknum virtist varla ætla að duga. En leikurinn jafnaðist þegar á leið og þrátt fyrir sex stiga sigur Vals varð strax um miðjan sfðari hálfleik Ijóst að UMFN lóki í úrslitaleikn- um, ekki Valur. Valur Ingimundarson var eins og vant er skæðastur Njarðvíkinga og í fyrri hluta síðari hálfleiks þegar Valsmenn reyndu hvað þeir gátu til að stinga andstæðingana af og vinna stórsigur setti hann nokkrar þriggja stiga körfur niöur í röð og slíkt er ekki hægt aö keppa við - þá dugar ekki að skora tvö stig í hverri sókn. Sturla Örlygsson Vals- maður, og fyrrum leikmaður Njarð- víkurliðsins, byrjaði vel, skoraði 10 stig á fyrstu mínútunum og gætti Vals Ingimundar vel. En hann fékk fljótt þrjár villur og beitti sér lítið eftir það. Tómas Holton, Torfi og Kristján áttu góðan leik með Val, en Valur Ingimundarson var yfir- burðamaður á vellinum. ísak Tóm- asson, Jóhannes Kristbjörnsson og Kristinn Einarsson voru einnig áberandi í þessum ágætlega spil- aða leik. Stig Valt: Tómas Holton 14, Sturla ör- lygsson 12, Kristján Ágústsson 11, Torfi Magnússon 11, Leifur Gústafsson 10, Einar Óiafsson 8, Jóhannes Magnússon 6, Jón Steingrimsson 4. Stlg UMFN: Valur Ingimundarson 31, Jó- hannes Kristbjörnsson 8, Árni Lárusson 8, isak Tómasson 8, Hreiðar Hreióarsson 3, Ellert Magnússon 2, Helgi Rafnsson 2, Ingimar Jónsson 2. -GA. „í sjálfu sór er maður auðvitað dálítið svekktur, annað væri óeðlilegt miðað við alla þá vinnu og tíma sem farið hefur f undir- búninginn," sagði Brynjar Kvaran handknattleiksmarkvörður er við ræddum við hann f gær. Brynjar kom sterklega til greina sem markvörður f landsliðið en var ekkf valinn. „Ég átti satt best að segja frekar von á því að verða valinn því ég hefði leiki með síðustu vikurnar en svona gengur þetta." „Þetta setur dálítið strik í reikn- inginn hjá mér því ég og konan höfum áhuga á að fara utan og læra meira. Ég hafði hugsað mér að nýta þessa ferð, ef ég yrði valinn, til að forvitnast um hvar best væri að samræma handbolt- ann og námið," sagði Brynjar. Morgunblaðið/RAX Arnarflug styrkir HSÍ ARNARFLUG hf. hefur ákveðið að styðja við bakið á landsliði ís- lands f handknattleik með þvf að flytja leikmenn og fylgdarlið á heimsmeistarakeppnina f Svíss án endurgjalds. Má áætla að þessi stuðningur jafngildi um hálfri mílljón króna. Á myndinni afhendir Magnús Oddsson markaðsstjóri Arnarflugs Jóni Hjaltalfn Magnús- syni formanni HSÍ farmiðana. Stenzel hefur áhuga á að þjálfa á íslandi Fré Jóhanni Inga Gunnarssyni, fráttarítara f VLADO Stenzel handknattleiks- þjálfarinn heimsþekkti sagði f blaðaviðtali hór f gær að framtfð- arsýn sín væri að gera eitthvað stórfenglegt f þriðja sinn. Það sem kappinn átti við var að gera eitthvert landslið að heims- eða ólympíumeisturum en hann gerði V-Þjóðverja að heimsmeisturum árið 1978 og Júgóslava að ólymp- íumeisturum árið 1972. „Ég vildi helst þjálfa einhvers- staðar þar sem þýska er töluð en ég hef einnig mikinn áhuga á að þjálfa íslenska landsliðið og það sænska. Þar eru góð lið á ferðinni og ég er sannfærður um aö ég get náð góðum árangri með þau. Fer Sepp til Real Madrid? Real Madrid hefur mikinn áhuga á að fá Sepp Piontek sem þjálfara en gallinn er bara sá að Sepp er samningsbundinn danska lands- liðinu fram yfir Evrópukeppnina 1988. „Real Madrid hefur alltaf verið draumaliðið rnitt," sagði Sepp Piontek í gær og greinilegt á honum að hann hefði ekkert á móti því að fara til Spánar. Danska sambandið brást skjótt við þessum fréttum og í gær sögöu þeir að ef Madrid hefði mjög mik- inn áhuga á að fá Piontek væri það vel til umræðu en það myndi kosta félagið 1,4 milljónir marka. Ef af þessu verður þá er það í fyrsta sinn sem knattspyrnuþjálfari er keyptur á milli félaga — hvað þá frá landsliði. Voeller skorinn upp Rudi Voeler flaug á þriöjudags- morguninn til Belgíu þar sem hann gekkst undir uppskurð. Læknir hans er prófessor Marten sem meðal annars hefur haft þá Ivan Lendl, John McEnroe, Preben Elkjær Larsen og Morten Olsen í meðferð hjá sér. Hann er einn virtasti íþróttalæknir í heiminum í dag. Hann sagði eftir aðgerðina á Voeler að hann gæti byrjað að keppa aftur eftir 6—8 vikur og því er Ijóst að hann leikur ekki meira með Werder Bremen á þessu keppnistímabili og svo gæti farið að hann léki ekki með V-Þjóðverj- um í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó. Þetta er mjög slæmt fyrir Voeler því hann hafði gert sér vonir um að ef hann stæði sig vel í Mexíkó þá fengi hann tilboð frá Ítalíu en þar langar hann til að leika næstu árin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.