Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
23
Af írskum Maríuvini
Bækur
Torfi Ólafsson
Frank Duff: Founder of the
Legion of Mary
eftir séra Robert Bradshaw
Montfort Publications 1985
Á síðastliðnu ári gaf útgáfufélag
Monfort-presta í New York út bók-
ina Frank Duff eftir séra Róbert
Bradshaw, sóknarprest við Maríu-
kirkju í Breiðholti. Þetta er því bók
um írskan mann, samin af írskum
manni sem er sóknarprestur á ís-
iandi og gefín út í Bandaríkjunum.
En hver var svo þessi Frank Duff
og hvers vegna er sóknarprestur á
íslandi að skrifa um hann?
Frank Duff fæddist í Dublin
1889. Þegar hann var kringum þrí-
tugt las hann bók um „hina sönnu
hollustu við Maríu mey“ eftir de
Montfort, þann sem regla Montfort-
presta er kennd við, sú er hafði
alllengi á hendi trúboð kaþólsku
kirkjunnar hér á landi. Frank
hreifst mjög af þessari bók og
haustið 1921 stofnaði hann Maríu-
legíónina, félagsskap til útbreiðslu
trúarinnar og helgunar meðlima
hennar. Þeir áttu að líta á Maríu
mey sem leiðtoga sinn og lúta for-
ystu hennar. Þeir áttu ekki að láta
við það eitt sitja að iðka trú sína
og sýna gott fordæmi, heldur áttu
þeir að boða hana á virkan hátt,
með því t.d. að gefa sig á tal við
fólk á fömum vegi og heimsækja
það á heimili þess. Höfuðatriðið var
þó helgun félaganna.
Félagsskapur þessi breiddist all-
mjög út. Menn hefur alltaf greint
á um það, hvort rétt sé að beita
svo beinum aðferðum við trúboð
enda eru heimsóknir ókunnra
manna ekki alltaf vel þegnar, sér-
staklega þegar þeir reyna að telja
heimamönnum hughvarf á einhvem
hátt. En hvað sem því líður verður
því ekki á móti mælt að margt
ágætis fólk hefur starfað í röðum
Legíónarinnar og unnið þrekvirki í
þvf að bjarga fólki frá ógæfu f lífínu
og leiða það til heilbrigðs lífemis,
svo og til kirkjunnar. Um góðan
tilgang þess held ég að enginn efíst.
Á fyrstu ámm Legíónarinnar átti
postuleg leikmannastarfsemi ekki
upp á pallborðið innan kirkjunnar.
Biskupar og prestar voru leiðtogar
og fræðarar fólksins á hinum and-
lega vettvangi en fólkið átti að
hlusta og hlýða, enda var þá ekki
kominn til sögunnar sá skortur á
prestum sem við þekkjum of vel
nú á dögum. Frank Duff var því
brautryðjandi á þessum vettvangi
og starfaði í þeim anda sem II
Vatíkanþingið lagði síðar áhersiu á,
sem sé að leikmenn skyldu líka
leggja hönd á plóginn í útbreiðslu
og öllu starfí kirkjunnar.
í franska tímaritinu Unité chréti-
enne er þess getið að Frank Duff
hafí einnig verið forystumaður í
samkirkjulegri starfsemi, því hann
hafi á fjórða áratug þessarar aldar
stofnað samtök sem hann kenndi
við Mercier kardínála. Innan þeirra
samtaka hittust mánaðarlega til
funda kaþólskir menn, mótmælend-
ur frá ýmsum trúarstefnum og
gyðingar, bæði lærðir menn og leik-
ir, og ræddust við. Félagsskap
þessum óx brátt fískur um hrygg
en kirkjulegum yfírvöldum leist
ekki betur á þessa viðleitni en það
að þau leystu samtökin upp eftir
nokkra hríð. Á þessu sviði var Frank
Duff því á undan samtíð sinni.
Hann lést 7. nóvember 1980.
Séra Róbert Bradshaw var per-
sónulegur vinur Franks Duff enda
ber bókin þess glögg merki hversu
ágætan mann séra Róbert telur -
Frank hafa verið. Ritdómari banda-
ríska tímaritsins The Wanderer
segir bókina skrifaða á einföldu
máli, líkt og höfundurinn hafi ætlað
hana bömum, en það sé ekki illa
til fundið því að einfaldleiki Franks
Duff hafí einmitt verið einn þáttur-
inn í ágæti hans. Bókin er 267
blaðsíður, skreytt nokkrum mynd-
um.
Landamæri Luxemborgar liggja að
Þýskalandi, Frakklandi og Beigíu.
Vegakerfi þessara landa skila þér
auðveldlega á áfangastað.
FLUG TIL LUXEMBORGAR
KOSTAR FRÁ KR. 13.350 OG
BÍLALEIGUBÍLL í VIKU AÐEINS
KR. 61001*
Flug og bill er vinsæll ferðamáti, ódýr og þægilegur. Þegar hugur þinn
ræður ferðinni, hraðanum og stefnunni, spillir ekkert ánægjunni. Þú ert
besti fararstjórinn.
Fimm morgna í viku hverri hefur Flugleiðaþota sig á loft og flýgur til
Luxemborgar. Evrópustrætó okkar flytur þig á þremur tímum til
Findel-flugvallar, þar sem vegir liggja til allra átta. Þú átt skemmtilegt frí
í vændum!
Vegakort og gott skap eru nauðsynlegustu hjálpargögnin á þjóðvegum
Evrópu. Svo kemur kvölin: Valið stendur um fjórar áttir, fjölmörg lönd,
óteljandi bæi og borgir sem vert er að skoða. Leitaðu ekki langt yfir
skammt, best er að fara sér hægt, gefa sér tíma - til þess að kynnast
landi og þjóð.
Ef þú vilt skoða heiminn og skilja hann betur er aðeins eitt til ráða.
Kynntu þér tilboð Flugleiða um flug og bíl. Frelsið er dýrmætt.
Við bjóðum þér bestu bílaleiguverð í Evrópu!
* Verð mlðað við PEX fargjald eftir 1. aprll 1986, og bllaleigubll I B fiokki.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur
Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500.
Upplýsingasími: 25100
FLUGLEIDIR