Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986 7 Fjórir starfsmenn Hagvangs hf.taka við rekstrinum FJÓRIR elstu starfsmenn Hagvangs hf. hafa keypt rekstur fyrir- tækisins frá og með 1. mars. Nýju eigendurnir eru Gunnar Maack, Reynir Kristinsson, Katrin Oladóttir og Þórir Þorvarðar- son. Gunnar Maack hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri frá og með 1. mars. Þeir Gunnar og Reynir áttu áður hlut í fyrirtækinu. Morgunblaðið/Júlíus Nýir eigendur Hagvangs hf. Sitjandi eru Katrín Óladóttir og Gunnar Maack og fyrir aftan þau standa Þórir Þorvarðarson og Reynir Kristjánsson. Fyrirtækið Hagvangur hf. var stofnað árið 1971 af 25 aðilum sem hver um sig átti lítinn hlut. Síðan bættust fleiri hluthafar við og voru orðnir rúmlega 30. í lok síðastliðins árs hófust umræður um breytingar á eignaskiptingu, sérstaklega aukna eignaraðild starfsfólks, í kjölfar þess að Ólaf- ur Öm Haraldsson framkvæmda- stjóri sagði upp starfi sínu. Eftir þær umræður var ákveðið að þessir starfsmenn keyptu rekstur fyrirtækisins. Nýju eigendumir munu leigja húsnæði Hagvangs við Grensásveg sem verður áfram í eigu fyrri hluthafa. Að sögn nýju eigendanna styrk- ir reynsla starfsfólksins fyrirtæk- ið. Því hljóti það að vera hagur þess og styrkur að starfsfólk eigi hlut í því. Til greina kemur að fleiri starfsmenn eignist hlut í Hagvangi hf. í framtíðinni. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir eigna- raðild annarra en starfsmanna fyrirtækisins. Eigendum, sem hætta að starfa í fyrirtækinu, verður gert skylt að selja sinn hlut. Engar breytingar em fyrir- hugaðar á rekstri Hagvangs hf. Það mun áfram annast rekstrar- og stjómunarráðgjöf, sölu- og markaðsráðgjöf, auk ráðningar- þjónustu, bókhaldsþjónustu og gerð skoðana- og markaðskann- anna. Njarðvík; Smyglaður bjór í fiski- kössum TOLLVERÐIR úr Keflavík og Reykjavík lögðu hald á smygl- varning um borð í togaranum Guðmundi Einarssyni frá Hnífs- dal við komu skipsins til Njarð- víkur aðfaranótt miðvikudags- ins. Við leit um borð í togaranum fundust 59 kassar af áfengum bjór, sem voru faldir í fiskikössum í lest- inni. Ennfremur fundust tvö mynd- bandstæki falin í brú skipsins. Nokkrir skipverja hafa játað aðild sína að smyglinu. Tollverðir hafa að undanfömu leitað sérstaklega í fískiskipum, sem komið hafa úr söluferðum frá Bretlandi og Þýskalandi. Talsvert hefur fundist af smyglvamingi við þessa leit. Guðmundur Hauksson Haf narfj örður: Guðmundur Hauksson ráðinn spari- sjóðsstjóri STJÓRN Sparisjóðs Hafnar- fjarðar hefur ráðið Guðmund Hauksson, viðskiptafræðing, Háahvammi 1, Hafnarfirði, í starf sparisjóðsstjóra. Er hér um að ræða aðra sparisjóðsstjóra- stöðuna af tveimur, hinni gegnir Þór Gunnarsson. Guðmundur lauk verslunarprófí frá Verslunarskóla íslands árið 1968 og stúdentsprófí frá sama skóla árið 1970, en nam utan skóla til stúdentsprófs og starfaði þessi tvö ár hjá Sölufélagi garðyrkju- manna við skrifstofustörf. Prófí frá viðskiptadeild Háskóla íslands lauk Guðmundur í janúar 1976. Fyrri störf Guðmundar hjá Seltj- amameshreppi: Frá 1971 til 1. sept. 1973, sem aðalbókari. Sveit- arstjóri Vatnsleysustrandarhrepps fram til 1. september 1976. Frá 1. sept. 1976 til 31. des. 1981 skrifstofustjóri Málningarvöru- verksmiðjunnar Hörpu hf. í Reykjavík, hafði á hendi skrif- stofustjóm fyrirtækisins, fjármál og sölu og markaðsmál. 1. janúar 1982 hóf Guðmundur störf hjá Amarflugi hf. Fyrst sem forstöðu- maður Hagdeildar og ári síðar sem fjármálastjóri og staðgengill fram- kvæmdastjóra. INNLENT )t A TÆKNILEG ÆVINTYRI GERAST ENN Þriöji ættliöurinn í Honda Civic Hatchback-línunni byggir á margra ára reynslu — en er samt byltingarkenndur í tækninýjungum. Bíll, sem aörir bílaframleiöendur munu líkja eftir. Hann er sann- arlega frábrugöinn öörum. Bíll, sem hlotiö hefur lof bílasérfræöinga, margföld verölaun fyrir formfeg urö, góöa aksturseiginleika og sparneytni. BILL, SEM VEKUR ÓSKIPTA ATHYGLÍ. Tæknilegar upplýsingar Vél: 4 cyl. OHC-12 ventla þverstæð Sprengirými: 1350 cc. Hestöfl: 71 DIN. Gírar: 5 eða sjálfskipt. Viðbragð: 10,8 sek./100 km 1,31. LxBxH: 3,81x1,635x1,34 m. Hæð undir 1. punkt: 16,5 sm. Verð frá kr. 461.000 door Hatchback HONDAA'tSLANOf, VATNAGOROUM 24, SIMAR 38772 — 39460.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.