Morgunblaðið - 27.02.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR1986
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
33
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö.
Sameinast um
skynsamleg markmið
Samningaviðræðum fulltrúa
Alþýðusambands íslands
(ASÍ) og Vinnuveitendasam-
bands íslands (VSÍ) lauk síð-
degis í gær með samkomulagi,
sem markar þáttaskil þegar litið
er til þróunar launa og verðlags
hér á landi undanfarin ár. í
fyrsta lagi hefur það legið ljóst
fýrir, að það er ætlun ríkisstjóm-
arinnar að halda meðalgengi
krónunnar sem stöðugustu.
Samningsaðilar hafa lýst því
yfir, að þeir vilji virða þetta
markmið. í öðru lagi einsetja
samningsaðilar sér að lækka
verðbólgu verulega. í þriðja lagi
hefur ríkisstjómin samþykkt, að
ríkissjóður og ríkisfyrirtæki taki
á sig verulegar byrðar til að
samningamir stuðli að sam-
drætti í verðbólgu. í §órða lagi
hefur verið samið um framgang
ýmissa réttindamála, svo sem
um lífeyrisrétt, húsnæðismál,
uppsagnarrétt fiskvinnslufólks,
rétt til_ launa í veikindum og
fleira. í fímmta lagi hefur verið
samið um það, að einskonar
gerðardómur fylgist með þróun
verðlags, en með honum er
komið til móts við kröfuna um
verðtryggingu launa.
Fyrsti fundur samningsaðila
að þessu sinni var haldinn 15.
janúar síðastliðinn. Þeir hafa
því setið nákvæmlega sex vikur
! á fundum, með hléum að vísu,
en undanfamar nætur hafa orðið
■ samningamönnunum langar.
i Athyglisvert er, að nú gerist það
enn einu sinni, að ASI og VSÍ
‘ semja án þess að deilunni sé vís-
að til sáttasemjara ríkisins.
Deiluaðilar sneru sér hins vegar
‘ til ríkisstjómarinnar, sem sendi
þeim orðsendingu hinn 11. febr-
úar síðastliðinn og lýsti þeirri
skoðun sinni, að almenn verð-
hækkun frá janúar 1986 til
janúar 1987 gæti orðið innan
við 9%, enda yrðu ekki verulegar
i breytingar til hins verra á við-
1 skiptakjörum eða öðmm ytri
aðstæðum þjóðarbúskaparins.
Ríkisstjómin lýsti því sem for-
sendu þess, að verðbólga færi
niður, að meðalgengi yrði haldið
sem stöðugustu og þeirri stefnu
yrði fylgt eftir með ýtrasta
aðhaldi f fjármálum, peninga-
málum og erlendum lántökum
auk þess yrði almennt “samið
um hóflegar launabreytingar í
áföngum", eins og það var orðað.
Deiluaðilar hafa sætt sig við
í þau meginmarkmið, sem koma
fram í þessari stefnumnótun rík-
Íisstjómarinnar. Hins vegar lýstu
þeir strax áhyggjum sínum yfír
atriðum í plaggi stjómarinnar,
svo sem óljósum loforðum um
búvörverð. Reyndi mest á það
undir lok samninga í fyrrinótt,
hvemig á þessu atriði yrði gripið.
En fulitrúar ASI og VSÍ hafa
jafnframt viljað ganga lengra
en ríkisstjómin, þeir hafa samið
um, að verðbólga verði 7% en
ekki 9% eins og ríkisstjómin taldi
framkvæmanlegt. Að samningar
skuli nást um slíkt í okkar verð-
bólguhijáða efnahagslífi er
merkilegt og raunar sögulegt.
Er vonandi, að sú bjartsýni, sem
hlýtur að ráða hjá höfundum
þessara lofsverðu markmiða,
eigi við rök að styðjast.
Þorstéinn Pálsson, fjármála-
ráðherra, komst þannig að orði
í áramótagrein hér í blaðinu:
„Ríkisvaldið hefur fyrir sitt leyti
reynt að draga úr opinberum
umsvifum í því skyni að auka
olnbogaiými atvinnulífsins.
Þetta er mikilvæg pólitísk
stefnumörkun, en hún kallar enn
frekar á ábyrgð þeirra, sem að
kjarasamningum standa.“
Samningsaðilar, sem nú hafa
unnið sitt verk, telja, að þeir
hafi ekki brotið gegn þeirri
meginstefnu, að ríkisvaldið dragi
úr umsvifum sínum, og þeir hafa
gert tillögur um meiri opinberan
samdrátt en ríkisstjómin boðaði
11. febrúar. Ekki er líklegt, að
ríkisstjómin snúist gegn þessum
tillögum, en ákvörðun um fram-
kvæmd þeirra hlýtur að lokum
að vera hjá Alþingi.
Hér og nú verður ekki rætt
um einstök atriði nýgerðra
samninga. Á meðan blekið er
tæplega þomað í undirskriftun-
um er of snemmt að ræða sér-
greind atriði. Starfshættir samn-
ingamanna bentu allan tímann
til þess, að þeim væri full alvara
í því að fara inn á nýjar brautir,
hverfa frá verðbólguleiðinni.
Þeir vom á einu máli um að
semja um kaupmátt en ekki
verðbólgukrónur í launaumslag-
ið.
Þegar rætt var um tillögur
ríkisstjómarinnar hér á þessum
stað 13. febrúar var komist
þannig að orði, að við hefðum
dæmin fyrir okkur, þar sem
stjómvöld sætu uppi með loforð
sín en óraunhæfar tölur í kjara-
samningum. Allir þjóðhollir
menn hljóta að vona, að svo sé
ekki að þessu sinni. Það er tími
til þess kominn, að framvinda
efnahagsmála verði í samræmi
við óskir þeirra, sem standa að
ákvörðunum um þau. Ytri að-
stæður lofa góðu um afkomu
þjóðarbúsins. Það verður von-
andi ekki unnt að skella skuld-
inni á þær, ef illa fer. Geti þeir,
sem nú þurfa að vinna að fram-
gangi kjarasamninganna, ráðið
mestu um þróun efnahagslífsins
næstu mánuði er von til þess,
að menn verði meira samstiga
en áður; þeir hafa að minnsta
kosti sama markmið.
Samkomulag launþega
og atvinnurekenda
HÉR FER á eftir í heild kjara-
samningur Alþýðusambands ís-
lands, Vinnuveitendasambands
Islands og Vinnumálasambands
samvinnufélaganna, sem undir-
ritaður var i húsakynnum VSÍ
kl. rúmlega 19 í gærkvöldi:
Kjarasamningnr
mijli
Alþýðusambands íslands vegna fé-
laga, er beina aðild eiga að sam-
bandinu, og ennfremur vegna eftir-
greindra landssambanda þess og
einstakra aðildarfélaga þeirra: Iðn-
nemasambands Íslands, Verka-
mannasambands íslands, Málm- og
skipasmiðasambands íslands,
Landssambands iðnverkafólks,
Sambands byggingamanna, Raf-
iðnaðarsambands Islands, Lands-
sambands íslenskra verslunar-
manna og Landssambands vörubif-
reiðastjóra annars vegar
°g
Vinnuveitendasambands íslands,
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna, Meistarasambands bygg-
ingamanna og Reykjavíkurborgar
hins vegar.
1. grein
Ailir kjarasamningar aðila fram-
lengjast til 31. desember 1986 með
þeim breytingum, sem í samningi
þessum greinir.
2. grein
Við gildistöku samnings þessa
hækka allir kauptaxtar, grunntölur
afkastahvetjandi launakerfa og
aðrar samningsbundnar greiðslur
um 5%.
Á samningstímabilinu hækka
ofangreind laun sem hér segir:
l.júníl986 um 2,5%
1. sept. 1986 um 3,0%
l.des. 1986 um2,5%
3. grein
Til aðlögunar að nýju launakerfi
skal tvívegis á samningstímabilinu
greiða sérstakar launabætur.
Launabætumar ákvarðast af
meðaltali heildartekna, fyrir starf
hjá hlutaðeigandi vinnuveitanda
næstliðna tvo mánuði fyrir 1. apríl
og 1. júní, en greiðast 15. dag sömu
mánaða, eða næsta vikulegan út-
borgunardag.
Ef hluti umræddra tímabila er
unninn reiknast greiðsla hlutfalls-
lega og ef um hlutastarf er að ræða
reiknast greiðslan hlutfallslega
miðað við fast starfshlutfall af 40
stunda vinnuviku.
greitt iðgjald af samkvæmt gildandi
reglum. Með sama hætti skal at-
vinnurekandi greiða 1,5%.
Hinn 1. janúar 1988 aukast
framangreindar iðgjaldagreiðslur
þannig, að starfsmaður greiðir 2%
og atvinnurekandi 3%, og frá 1.
janúar 1989 greiðir starfsmaður 3%
og atvinnurekandi 4,5%.
Frá 1. janúar 1990 greiðir starfs-
maður 4% iðgjald til lífeyrissjóðs
af öllum launum og atvinnurekandi
með sama hætti 6%.
Að öðru leyti vísast til yfirlýsing-
ar ASÍ og VSÍ og VMS um lífeyris-
mál á fylgiskjali 2.
5. grein
Samningsaðilar eru sammála um,
að hefja nú þegar undirbúning að
uppbyggingu nýs launaflokkakerfis
er komi til framkvæmda við gildis-
töku næstu samninga, eða fyrr ef
samkomulag verður um. Samnings-
aðilar munu skipa sérstaka nefnd,
sem hefji nú þegar störf og móti
tillögur um hið nýja launaflokka-
kerfi. Tillögur nefndarinnar liggi
fyrir í síðasta lagi hinn 1. október
nk.
Markmið hins nýja launakerfís
skal vera:
1. Að færa kauptaxta að greiddu
kaupi.
2. Að auka hlut fastra launa í
heildartelgum.
3. Að stuðla að auknu jafnvægi á
vinnumarkaði og leiðréttingu
milli starfshópa og starfsstétta
meðal annars vegna launaskriðs,
sem valdið hefur misgengi.
Nefndin skal vinna út frá þeirri
meginreglu, að sama hlutfallslega
bil sé milli launaflokka og starfsald-
ursþrepa og að þetta bil sé um 3%.
Áðilar eru sammála um að fela
Kjararannsóknamefnd að gera sér-
staka launakönnun til undirbúnings
upptöku hins nýja launakerfis. Skal
könnunin unnin í nánu samstarfi
við sérsambönd og/eða félög við-
komandi samtaka, sem tilnefni
menn til að vinna með nefndinni
eftir því sem ástæða er til.
Könnun þessi skal ná til sem
flestra starfshópa um allt land og
taka til beggja kynja í hverri starfs-
grein og sýna í sem gleggstu ljósi
skiptingu launa milli hinna ýmsu
launaþátta. Niðurstöður könnunar-
innar skulu liggja fyrir eigi síðar
en 1. ágústnk.
Vinnuveitendasamband íslands
og Vinnumálasamband samvinnu-
félaganna munu á grundvelli laga
og samþykkta samtakanna beita
Launabætur ákvarðast þannig:
Meðaltal heildartekna á Launabæturkr.:
mánuði
1. febrúar — 31. mars og
1. apríl — 31. maí
Greiðsludagar:
Allt að kr. 25.000 á mánuði 3.000
25.000—30.000 ámánuði 2.000
30.000—35.000 á mánuði 1.500
15.4. og 15.6.
15.4. og 15.6
15.4. og 15.6
Til heildartekna teljast allar
greiðslur, sem eru endurgjald fyrir
vinnuframlag, hvort heldur það er
ákvarðað á tíma- eða afkastagrund-
velli.
4. grein
Iðgjöld til lífeyrissjóða reiknast
skv. gildandi reglum, þ.e.a.s. al-
mennt af dagvinnulaunum og
vaktavinnulaunum.
Frá 1. janúar 1987 aukast ið-
gjaldagreiðslur til lífeyrissjóða
þannig.að til viðbótar núgildandi
iðgjaldi skal starfsmaður greiða 1%
af yfirvinnu, ákvæðisvinnu, bónus
eða öðrum launum, sem ekki er
sér fyrir því, að fyrirtæki innan
þeirra vébanda láti umbeðnar upp-
lýsingar í té, vegna starfsemi Kjara-
rannsóknamefndar.
6. grein
Samningsaðilar setji þegar niður
nefnd, er hafi það hlutverk að gera
tillögur um nýja skipan launa-
greiðslna í veikinda- og slysatilvik-
um. Nefndin hraði störfum og skili
tillögum til stjóma aðila fyrir 1.
júní nk.
í nýjum reglum skal kveðið á um:
1. Aukna tryggingarvemd laun-
þega, sem verða fyrir langvinn-
um forföllum frá vinnu vegna
slysa í og utan vinnutíma eða
vegna veikinda.
I þessu tilliti skal höfð hliðsjón
af greiðsluréttindum opinberrra
starfsmanna og kannað hvort
og með hvaða hætti launþegar
geti flutt veikindaréttindi milli
vinnuveitenda.
2. Greiðslurétt vegna óhjákvæmi-
legra fjarvista foreldra frá vinnu
vegna veikiiida ungra bama.
3. Slysatryggingar. Athuga skal
sérstaklega fjárhæðir trygginga
með tilliti til tjóns slasaðra og
heildartryggingarvemdar.
Á samningstímabilinu skal sér-
stök launanefnd, skipuð tveimur
fulltrúum ASÍ og tveimur fulltrúum
VSÍ/VMS, fylgjast með breytingum
verðlags og kaupmáttar svo og þró-
un efnahagsmála.
Launanefndin skal sérstaklega
fylgjast með þróun framfærsluvísi-
tölu og meta ástæður til launa-
hækkana, fari verðlagshækkanir
fram úr viðmiðunarmörkum skv.
forsendum samningsins.
í störfum sínum skal nefndin líta
til þróunar kaupmáttar á því tíma-
bili sem liðið er af samningi þessum,
samvinnufélaganna, Meistarasam-
bands byggingamanna og einstakra
aðildarfélaga Alþýðusambands ís-
lands sem berist í síðasta lagi 12.
mars 1986. Að fenginni staðfest-
ingu gildir samningurinn frá 26.
febrúar 1986. Heimilt er samtökum
vinnuveitenda að beina tilkynningu
um samþykki til Alþýðusambands
Islands.
Samningur þessi gildir til 31.
desember 1986 og fellur þá úr gildi
án sérstakrar uppsagnar.
Reykjavík, 26. febrúar 1986.
ríkisins. Þeir, sem veitt er lána-
fyrirgreiðsla með þessum hætti,
skulu eiga rétt á húsnæðisaf-
slætti X kr. í Y ár talið frá
byggingar- eða kauptíma í stað
vaxtafrádráttar, ef þeir kjósa
það frekar.
Ráðgjafarþjónusta húsnæðis-
stofnunar verði efld verulega,
tímabundið, þannig að af-
greiðslu allra umsókna verði
lokið innan 2ja mánaða. Ríkis-
stjómin beiti sér fyrir því, að
húsbyggjendum og kaupendum
verði gefinn kostur á lengingu
lánstíma í bönkum og sparisjóð-
um þannig að lánstími verði
a.m.k. 10 ár.
2. Byggingarsjóður ríkisins
Lögum um Byggingarsjóð ríkis-
ins verði breytt þannig að lán-
veitingar úr Byggingarsjóði rík-
isins verði bundnar því, að lífeyr-
issjóður umsækjanda hafi gert
samkomulag við sjóðinn um
skuldabréfakaup. Stefnt sé að
því að lögin taki gildi 1. septem-
ber 1986.
2.1. Lán til þeirra, sem eru að
byggja eða kaupa nýja íbúð í
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Tekizt íhendur að samningum loknum
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ takast í hendur þegar samkomulagið var í
höfn í gær. Með fylgjast Björn Björnsson hagfræðingur ASÍ og
Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar. Þeir Ásmund-
ur og Magnús hafa borið hitann og þungann í samningum undan-
farinna ára en þetta eru síðustu samningar þeirra félaga, í bili
a.m.k., þvi Magnús tekur innan skamms við starfi framkvæmda-
stjóra Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda.
4. Skyldutryggingu atvinnurek-
enda, svo tryggt verði að laun-
þegi fái jafnan notið launaréttar
í slysa- og sjúkdómsforfollum.
Foreldri skal heimilt að veija
samtals 7 vinnudögum á hveiju tólf
mánaða tímabili til aðhlynningar
sjúkum bömum sínum undir 13 ára
aldri, verði annarri umönnun ekki
komið við, og halda dagvinnulaun-
um sínum, svo og vaktaálagi þar
sem það á við.
Samningsákvæði þetta gildir til
bráðabirgða, þar til nýir samningar
verða gerðir.
7. grein
Samningur þessi er gerður á
grundvelli neðangreindra forsenda:
1. Yfirlýsingar ríkisstjómar um
skattalækkanir, niðurfærslu
verðlags, aðhald í verðlagsmál-
um og eflingu samkeppnisstöðu
útflutnings- og samkeppnisiðn-
aðar.
2. Fyrirliggjandi áætlana um horf-
ur í efnahagsmálum.
3. ' Að hækkun framfærsluvísitölu
verði innan eftirtalinna marka:
Frá l.janúartil 1. maí: 2,5%
Frá 1. janúartil 1. ágúst: 4,4%
Frá 1. janúartil 1. nóv.: 6,1%
og jafnframt meta áhrif breytinga
á efnahagslegum forsendum s.s.
viðskiptakjömm og þjóðarfram-
leiðslu.
Telji launanefnd tilefni til sér-
stakrar launahækkunar skal
ákvörðun hennar liggja fyrir 25.
dag útreikningsmánaðar og koma
til framkvæmda frá og með 1.
næsta mánaðar.
Nefndin skal leita samkomulags
um ákvarðanir sínar, en verði
ágreiningur um úrskurð skulu full-
trúar annars aðila deila með sér
oddaatkvæði til skiptis. í fyrsta sinn
er til ágreinings kemur um ákvörð-
un deila fulltrúar ASÍ oddaatkvæði
sem gengur til fulltrúa VSÍ/VMS
verði ágreiningur um síðari ákvörð-
un.
8. grein
Samningi þessum fylgir sam-
komulag samningsaðila um hús-
næðismál, fylgiskjal 1, um lífeyris-
mál, fylgiskjal 2, og launatafia
kjarasamnings ASÍ og VSÍ sem
gildir frá gildistöku samnings, fylgi-
slgal 3.
9. grein
Samningur þessi öðlast gildi við
staðfestingu Vinnuveitendasam-
bands íslands, Vinnumálasambands
Húsnæðismál
ASÍ, VSÍ og VMS eru sammála
um að eitt brýnasta úrlausnarefni
kjarasamninganna sé að leita leiða
til úrlausnar á þeim greiðsluvanda
húsbyggjenda, sem nú eiga í erfið-
leikum, og jafnframt að fínna var-
anlega lausn á Qármögnunarvanda
þeirra, sem eru að eignast sína
fyrstu íbúð.
Samkomulag er milli aðila um
eftirfarandi aðgerðir í þessum efn-
um:
1. Aðgerðir til lausnar á
greiðsluerfiðleikum þeirra,
sem byggðu eða keyptu hús-
næði á árunum 1980 og síðar.
Nú þegar verði varið 300 millj.
kr. til viðbótar þeim 200 millj.
kr., sem fyrir stuttu var ákveðið
að veija til þeirra, sem eiga í
greiðsluerfiðleikum. Þessum 500
millj. kr. verði varið, samkvæmt
nánari reglum, sem stjóm Hús-
næðisstofnunar setur, til við-
bótarlána til þeirra, sem hófu
byggingarframkvæmdir eða
keyptu húsnæði á árinu 1980
eða síðar og eiga í greiðsluerfið-
leikum eða hafa ekki getað lokið
framkvæmdum. Lán þessi verði
með sama lánstfma og almennt
er á lánum hjá Byggingarsjóði
fyrsta sinn verði sem hér segir
m.v. samninga um skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóða í eftirfarandi
hlutfalli af ráðstöfunarfé sjóð-
anna að vali hvers lífeyrissjóðs.
Mutf.ráðgtljár
Lánsfj.h. kr/íbúð m.v.
verðlag i febr. 1986
20%
30%
40%
50%
55%
700.000
1.100.000
1.500.000
1.900.000
2.100.000
Lán til þeirra, sem eru að kaupa
eldri fbúð í fyrsta sinn verði 70%
af framangreindum tölum. Lánstími
verði 40 ár og vextir aldrei hærri
en 3,5%. Lán samkvæmt þessum
tölulið hafí forgang fram yfir lán
samkvæmt lið 2.2. hér á eftir. Ef
um tvo einstaklinga er að ræða, sem
eru að bygga eða kaupa saman íbúð
skal taka meðaltal þeirrar hlutfalls-
tölu, sem gilda fyrir viðkomandi
sjóði.
Dæmi: Sjóður A 30% og B 50%
meðaltal 40%,
2. 2. Áfram verði lánað til þeirra,
sem áður hafa átt íbúðir. Lán
þessi skulu þó vera vfkjandi fyrir
lánum samkvæmt lið 2.1. Til
viðmiðunar verði að lán séu um
70% af láni samkvæmt lið 2.1.
Ef um notað húsnæði er að ræða
verði miðað við'samanlagt nýtt
lán og áhvílandi lán frá Bygg-
ingarsjóði rfkisins.
2.3. Lánaafgreiðslu skal breytt
þannig, að einstaklingum verði
gefíð lánsnúmer og fái þeir ná-
kvæmar upplýsingar um það
hvenær þeir geta vænst þess að
fá lánið útborgað. Lánið skal
síðan borgað út á fyrirfram
ákveðnum tíma enda hafi nýtt
húsnæði náð X byggingarstigi
og síðari greiðsla eða greiðslur
X mánuðum síðar og/eða þegar
húsnæðið hefur náð Z bygging-
arstigi, þegar um nýbyggingu
er að ræða. Innan 2 mánaða
skulu lánsumsækjendur hafa
fengið bindandi loforð um af-
greiðslutíma lánsins og lánsfjár-
hæð enda fylgi hún verðlags-
breytingum frá þeim tíma, sem
loforðið er gefið á.
2.4. Áður en gerður er lánssamn-
ingur samkvæmt lið 2.3. skal
gengið úr skugga um með
greiðsluáætlunum að umsækj-
andi geti fært sönnur á að eigna-
og tekjustaða hans sé slík, að
hann geti lagt fram eigið fé til
nýbyggingar eða kaupa og stað-
ið undir m.v. núverandi aðstæð-
ur ásamt lánafyrirgreiðslu.
3. Afgreiðsla iána til þeirra, sem
nú eiga óafgreiddar lánsura-
sóknir hjá Byggingarsjóði rík-
isins.
Þeir, sem eiga óafgreiddar láns-
umsóknir hjá Byggingarsjóði
ríkisins, þegar breytingamar
taka gildi, skulu eiga kost á láni,
sem miðist við, að þær væm
afgreiddar samkvæmt nýju kerfi
sbr. lið 2 á þeim hlutum Iánsins,
sem verða óafgreiddir eftir gildi-
stöku nýrra reglna.
4. Byggingarsjóður verkamanna
Fé Byggingarsjóðs verkamanna
verði aukið um 200 millj. á árinu.
1986. Lánsfé Byggingarsjóðs
verkamanna verði síðan aukið
m.v. fast verðlag. Lánshlutfall á
lánum til 42 ára hækki nú þegar
úr 80% í 85%. Veitt verði lán til
allt að 2ja ára til þeirra, sem
eiga í erfiðleikum með 15% út-
borgun.
Stjómir verkamannabústaða
skulu eftir því sem kostur er og
hagkvæmt þykir kaupa íbúðir á
fijálsum markaði. Þær íbúðir
sem em keyptar á þann hátt
skulu endumýjaðar miðað við
eðlilegar kröfur á hveijum tíma
áður en þær em afhentar við-
komandi kaupanda. Ennfremur
skal gæta ítmstu hagkvæmni
við byggingu íbúða m.a. með
útboðum.
5. Leiguhúsnæði
Húsnæðisstofnun ríkisins verði
falið að framkvæma könnun á
þörf fyrir leiguhúsnæði hér á
landi. Skal þeirri könnun hraðað
eins og kostur er þannig að
hægt sé við gerð fjárhagsáætl-
ana fyrir árið 1987 að veita fjár-
magni til byggingar leiguhús-
næðis í ljósi þeirrar þarfar, sem
er fyrir byggingu slíks húsnæðis
hér á landi.
6. Lánveitingar lífeyrissjóða til
húsnæðismála
6.1. Stefnt verði að því að lífeyris-
sjóðir veiji tilteknu hlutfalli af
ráðstöfunarfé sínu til kaupa á
skuldabréfum af ríkissjóði, sem
renni óskipt til Byggingarsjóðs
ríkisins og Byggingarsjóðs
verkamanna. Bréf þessi skulu
vera verðtryggð og boðin með
ekki lakari kjömm en ríkissjóður
býður almennt á fjármagns-
markaði hveiju sinni.
6.2. Skilyrði fyrir lánveitingu frá
Byggingarsjóði ríkisins skal
framvegis vera að viðkomandi
hafi greitt í a.m.k. 2 ár með
fullnægjandi hætti til lífeyris-
sjóðs enda hafí lántaki ekki verið
við nám, sé öryrki eða af öðmm
gildum ástæðum ekki verið á
vinnumarkaði. Ef um slflct er að
ræða skal lán vera m.v. lán
samkvæmt 20% af ráðstöfunarfé
lífeyrissjóðs.
7. Húsnæðisafsláttur
Frá og með árinu 1986 verður
þeim, sem kaupa eða byggja í
fyrsta sinn veittur húsnæðisaf-
sláttur X kr. á ári í 10 ár m.v.
núgildandi verðlag. Afsláttur
þessi miðist við hvem einstakl-
ing og dragist frá sköttum og
getur verið útborganlegur. Jafn-
frarnt verði þak á afslætti í nú-
verandi mynd 200.000 kr. Þeir
sem byggðu 1985 eða fyrr geta
valið um það hvort þeir fylgja
núgildandi reglum eða nýjum
reglum enda verði þeirri ákvörð-
un ekki breytt eftir að hún hefur
verið tekin.
8. Útfærsla hugmynda
Samningsaðilar em sammála
því að starfshópur aðila útfæri
þær tillögur, sem gerð hefur
verið grein fyrir hér að framan
í samráði við stjómvöld. Skal
slíkur starfshópur m.a. hafa það
hlutverk að útbúa fmmvarp til
laga vegna þessa máls.
Reykjavík, 26. febrúar 1986.
Yfirlýsing
Alþýðusámbands íslands, Vinnu-
veitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna
um lífeyrismál
Samningsaðilar hafa kynnt sér
tillögur 8-manna lífeyrisnefndar
ASÍ, FFSÍ, VSÍ og VMS um megin-
efni löggjafar um starfsemi lífeyris-
sjóða og lýsa fyllsta stuðningi við
þau meginmarkmið;
— að sett verði löggjöf um starf-
semi lífeyrissjóða, sem feli í sér
að komið verði á fót heildstæðu
lífeyriskerfí, sem taki með sam-
ræmdum hætti til allra starfandi
manna og allra lífeyrissjóða,
— að lífeyriskerfið byggi á fullri
sjóðssöfnun og grundvallist á
þeim sjóðum, sem nú eru starf-
andi,
— að lífeyrisiðgjöld og skuldbind-
ingar standist á,
— að lífeyrissjóðir greiði elli- og
örorkulífeyri svo og maka- og
bamalífeyri til viðbótar gmnnlíf-
eyri almannatrygginga,
— að lífeyrisréttindi og lífeyrir frá
lífeyrissjóðum verði verðtryggð-
ur miðað við lánskjaravísitölu,
— að kveðið verði á um lágmark
réttinda og iðgjalda og að miðað
verði við 70 ára ellilífeyrisaldur
með möguleikum á frestun eða
fiýtingu á töku ellilífeyris án
þess þó, að það hafi áhrif á út-
gjöld sjóðanna,
— að settar verði ákveðnar reglur
um starfsemi, meðferð fíár-
muna, bókhald og reikningsskil
lífeyrissjóða og reglubundið eft-
irlit með starfsemi þeirra, í því
skyni að skapa sem mesta festu
í starfsemi þeirra og öryggi um
þá fjármuni, sem sjóðimir
ávaxta fyrir sjóðfélaga.
Samningsaðilar hafa kynnt sér
tillögur nefridarinnar um samspil
iðgjalda og réttinda og lýsa stuðn-
ingi við meginefni tillagnanna um
það efni.
Ljóst er, að enn er ólokið vinnu
við ýmsa þætti frumvarpsins og
annað þarfnast nánari athugunar,
einkum það er varðar samspil nýs
lífeyriskerfis og þess sem nú er búið
við. Þá er ljóst að fjalla þarf um
tengsl lífeyris úr lífeyrissjóðum og
almannatryggingum svo og vanda
einstakra sjóða, sem ekki fá. að
fullu staðið við skuldbindingar með
eignum. Um þessa þætti þarf að
fjalla sérstaklega í samvinnu aðila
vinnumarkaðarins og stjómvalda.
Með vísan til ofanritaðs beina
samtökin því til lífeyrisnefndarinnar
að hún vinni hið fyrsta endanlegar
tillögur að löggjöf um starfsemi líf-
eyrissjóða og leggi fyrir stjómir
samtakanna til endanlegrar af-
greiðslu af þeirra hálfu.
Þess er vænst, að afgreiðslu
málsins verði lokið fyrir 1. apríl nk.
og að stjómvöld greiði götu þess,
þannig að löggjöf um starfsemi líf-
eyrissjóða geti tekið gildi 1. janúar
1987.
Reykjavík, 26. febrúar 1986.