Morgunblaðið - 16.04.1986, Blaðsíða 7
MÓRGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 16. APRÍL 1986
Útflutningur gámafisks frá Eyjum:
„Margföldum hlutínn
og útgerðin lifir af “
— segir Emil Andersen á Danska Pétri
Vestmannaeyjum, frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„HEFÐI verið haldið áfram að maður Danska
landa til fiskvinnslustöðvanna
værum við hreinlega dottnir upp
fyrir. Útflutningurinn í gámun-
um hefur bjargað útgerðinni,“
sagði Emil Andersen, útgerðar-
Lækjarbrekka
tekin til gjald-
þrotaskipta
BÚ veitingahússins Lækjarbrekku
var tekið til gjaldþrotaskipta í
Reykjavik 14. mars sl. Hefur rekst-
ur hússins verið leigður til allt að
þriggja mánaða til Kolbrúnar Jó-
hannsdóttur veitingamanns, eins
aðaleiganda Lækjarbrekku hf.
Eiríkur Tómasson hrl., sem skipað-
ur var bústjóri til bráðabirgða eftir
að hlutafélagið var tekið til gjald-
þrotaskipta, sagði að ákveðið hefði
verið að leigja reksturinn með þessum
hætti meðal annars vegna þess, að
eigandi hússins, sjálfseignarstofnunin
Minjavemd, hefði talið að leigusamn-
ingurinn væri við Kolbrúnu persónu-
lega en ekki Lækjarbrekku hf. Að
öðrum kosti hefði ekki verið fyrirsjá-
anlegt annað en að rekstrinum yrði
hætt. Væri reksturinn nú á persónu-
lega ábyrgð Kolbrúnar.
Auglýsing um gjaldþrotaskiptin
birtist í síðasta Lögbirtingablaði og
hefur verið auglýstur þriggja mánaða
innköllunarfrestur.
Péturs í Vest-
mannaeyjum, í samtali við blm.
Morgunblaðsins i gær. „Þetta er
mestmegnis koli, sem við flytjum
út. Vinnslustöðvarnar hér vilja
hann ekki og erlendis fáum við
5-6 sinnum meira fyrir hann en
hér,“ sagði Emil. „Kallarnir
margfalda hlutinn og útgerðin
lifir af. Það er ekki hægt að
banna okkur að hafa það gott
þótt áhrifin kunni að koma fram
annars staðar.“
Útflutningur á ferskum fiski héð-
an frá Eyjum hefur verið mikið til
umræðu að undanfömu, m.a. vegna
þess að fískvinnslustöðvamar hér
skortir hráefni til vinnslu og vinna
fískvinnslufólks hefur verið af
skornum skammti. Lélegur bol-
fískafli í mars hefur einnig haft sín
áhrif en afli Eyjabáta í mánuðinum
var 2000 lestum minni en í sama
mánuði í fyrra.
Útgerðarmenn og sjómenn vilja
bæta sér upp aflabrestinn með út-
flutningi og um leið skerðist hlutur
vinnslunnar. Talið er að útflutning-
ur fisks í gámum — að meðaltali
um fjórðungur landaðs afla — hafí
neikvæð áhrif á afkomu bæjarsjóðs
þótt tekjur sjómanna hafí aukist
og afkoma útgerðarinnar batnað. Á
móti hafa tekjur fískverkafólks,
einkum karla, dregist vemlega
saman. Afkoma frystihúsanna hef-
ur versnað, sérstaklega vegna þess
að betri fískurinn fer í gámana en
hinum lakari er landað til vinnslu-
stöðvanna.
Á fímmtudaginn er „gámadagur"
í Eyjum og er áætlað að þá verði
flutt. úr landi 500-600 tonn, þar af
um 280 tonn af kola. Þetta er svipað
og á síðustu vikum.
Hjónin Per Amdam og Ester Amdam í Norræna húsinu.
Fyrirlestur í Norræna húsinu:
Áhrif Bj örnstj erne^Bj örnsson á
sjálfstæðisbaráttu íslendinga
í GÆR kom Dr. phil. Per Amdam
hingað til lands ásamt konu sinni
Ester, en Amdam heldur fyrir-
lestur i kvöld i Norræna húsinu
um bréfaskriftir og samband
Jóns Sigurðssonar og Björnstj-
erne-Björnsson. Amdam hefur
um árabil unnið að rannsóknum
á ævi og störfum Bjömstjerne—
Björasson, og segir þessar bréfa-
skriftir sýna óbein áhrif Björas-
sons á sjálfstæðisbaráttu Islend-
inga. Amdam verður einnig með
dagskrá um Björasson á sunnu-
daginn í Norræna húsinu, sem
nefnist Björasson i ljóðum, litum
og tónlist, en þar verður upplest-
ur úr verkum skáldsins, sýndar
litskyggnur af því landslagi sem
varð kveikjan að ýmsum verka
hans, og leikin tónlist eftir norskt
tónskáld.
Dr. Per Amdam vinnur að stórri
handbók um líf og starf Bjömssons,
bæði sem listamanns og stjóm-
málamanns, en Bjömsson lét þjóð-
félagsmál mjög til sín taka. Hann
var með afkastamestu bréfritumm
Norðurlanda, að sögn Amdams
liggja eftir hann 30 þúsund bréf.
Amdam sagði að bréfaskipti þeirra
Jóns Sigurðssonar og Bjömssons
hefðu hafist um 1870, á tímabili
mikilla umróta í íslensku stjóm-
málalífí, og er þetta í fyrsta sinn
sem athygli er vakin á stjómmála-
áhrifum Bjömssons á íslandi, en
áhrif hans em að öðm leyti þekkt
um hin Norðurlöndin. Samband
þeirra hófst með því að Bjömsson
sendi Jóni Sigurðsyni bréf 1870,
og sagði Amdam að rannsóknir
hans hefðu beinst að því hvað á
undan hefði gengið, hvers vegna
Bjömsson hefði fengið áhuga á ís-
landi og um það fjallar hann m.a.
í fyrirlestrinum í kvöld. Hann vildi
að öðm leyti ekki gefa of miklar
upplýsingar um efni fyrirlestrarins,
hvatti fólk til að koma í Norræna
húsið og sagði efnismeðferð við
hæfí almennings en ekki örfárra
sérfræðinga.
RÝMINGARSALA
Á REGNFATNAÐI
4
dagar
Mikið únraifyrirbörn og unglinga
Miðvikudag 1 6.
fimmtudag 17.
föstudag 18.
laugardag 19.
apríl 8—1 8
apríl 8—1 8
apríl 8—1 8
apríl 9—1 6
VR leld
KHUUHitn
Ánanaustum sími 28855
4
dagar