Morgunblaðið - 16.04.1986, Side 26

Morgunblaðið - 16.04.1986, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. APRÍL1986 Gulko-hjónin hand- tekin í fjórða sinn Campomanes vill sem minnst um málið segja Moskvu. AP. BORIS Gulko, fyrrum skákmeistari Sovétríkjanna, og eiginkona hans og systir, sem sóttu um að fá að flytjast til Ísraels árið 1979, voru handtekin í fjórða skiptið á mánudag og höfð í haldi í sjö ldukkustundir. Voru þau á leið til að mótmæla neitun yfirvalda við ítrekaðri beiðni þeirra. Gulko sagði AP-fréttastofunni í símaviðtali, að hann, eiginkona hans, Anna Akhsharumova, og systir hans, Bella, hefðu verið tekin höndum á neðanjarðarbrautarstöð nærri heimili þeirra hjóna, er þau hefðu verið á leiðinni til að mótmæla neitun yfírvalda við beiðni þeirra um brottflutning úr landi. Þau voru færð til sinnar lögreglustöðvarinnar hvert um sig, en öllum sleppt um kl. 21, um sjö klukkustundum eftir að þau voru tekin föst. Morgunblaðið hafði tal af Flor- encio Campomanes, forseta Alþjóða skáksambandsins (FIDE), og vildi hann sem minnst um málið segja. Campomanes kvaðst ekki hafa heyrt af nánast daglegum ofsókn- um á hendur Gulko-hjónunum. Hann kvaðst hafa hitt Gulko á skákmóti í Sovétríkjunum fyrir einu og hálfu til tveimur árum og þá hefði þessi fyrrum skákmeistari Sovétríkjanna verið vel á sig kom- inn. Noregur: Laxveiðar í rek- netbannaðar1989 Osló. Frá Jan Erik Laure, fréttarítara Morgunblaðsins. NORSKA ríkissljórnin hefur samþykkt að banna laxveiðar í reknet frá og með vertíðarbyijun 1989. Samþykktin þessi mun bitna á um 600 veiðiskipum, sem ekki munu fá veiðileyfi frá þeim tíma. Bhutto krefstkosninga Benazir Bhutto, sem kalla má leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Pakistan, hefur verið vel fagnað á ferð hennar um landið og krefst hún þess, að tafarlaust verði boðað til kosninga. Zia Ul-Haq, Pakistanforseti, segir hins vegar, að engar kosningar verði fyrr en 1990 og sé því Bhutto að eyða tíma sínum og landsmanna til einskis með þessum kröfum. Myndin er af stuðningsmönnum Bhuttos í borginni Lahore. Stjómin stendur sameinuð að samþykktinni, segir umhverfís- málaráðherrann, Rakel Surlien. Samkvæmt því hefur sjávarútvegs- ráðherrann, Eivind Reiten, stutt veiðibannið þrátt fyrir megna and- stöðu sérfræðinga í ráðuneyti hans og aðila í sjávarútvegi. Samþykktin er mikill sigur fyrir umhverfísvemdarráðuneytið og þá, sem eiga hagsmuna að gæta vegna stangveiði í norskum ám. Rekneta- veiðinni hefur verið kennt um að eiga höfuðsökina á stöðugt minnk- andUaxagengd. „Ég er þrumu lostinn yfír þessari samþykkt," segir Einar Hepsö, formaður samtaka útvegsmanna og sjómanna, Norges Fiskarlag. „Hún hefur í för með sér, að um 1200 atvinnutækifæri glatast í strand- héruðum landsins. í sumum landshlutum bitnar samþykktin á heilu sveitarfélögun- um, sem hafa grundvallað afkomu sína á laxveiðum í reknet, segir Hepsö. Hann lagði áherslu á, að nauðsynlegt væri að hafa stjórn á þessum veiðum, en veiðibannið bitn- aði einhliða á sjómönnum án þess að sýnt væri fram á það með líf- fræðilegum rökum, að reknetaveið- amar ættu einar sök á samdrætti laxastofnanna í ánum. Frysta allar inneign- ir Duvaliers í Sviss Bern, Sviss. AP. SVISSNESK stjómvöld tilkynntu í gær, að þau hefðu látið „frysta" alla fjármuni, sem Jean-Claude Duvalier, fyrrum forseti Haiti, kynni að eiga í Sviss. Nýja stjómin á Haiti krafðist þess, að svo yrði gert, í skeyti, sem sent var svissnesku alríkislögregl- unni í gær, að því er sagði í tilkynn- ingu dómsmálaráðuneytisins í Bem. Haiti-stjóm fór fram á, að allir bankareikningar Duvaliers í Genf, Ziirich og Lausanne yrðu frystir, sagði í tilkynningunni. Hvorki var þess getið, hvaða bankar ættu þama hlut að máli né heldur um hve mikla fjármuni væri að ræða. Héraðsstjómir hafa fengið fyrir- skipanir um að fylgja málinu eftir hver á sínum stað, sagði í tilkynn- ingunni. Rithöfundurinn Jean Genet látinn: „Hafnaði algerlega ver- öld, sem hafði hafnað mér“ — sknfaði hann um sjalfan sig 1 „Dagbok þjofs París. AP. JEAN Genet, einn umdeildasti rithöfundur Frakklands á þessari öld, lést í gær 75 ára að aldri á hóteli því í París, þar sem hann haf ði búið undanf arin ár. Banamein hans var krabbamein í hálsi. Genet var álitinn einn hæfí- leikaríkasti rithöfundur síns tíma, en þótti klúr í bókum sínum, sem fjölluðu einkum um lífemi vændis- kvenna, melludólga, þjófa og homma. Hann þótti feta dyggilega í fótspor manna eins og Marquis de Sade, Lautreamont og Georges Bataille. Veröldin sem hann skap- aði í bókum sfnum var hörð og miskunarlaus. Genet var hommi og dæmdur glæpamaður. Sumar bestu bækur sínar skrifaði hann meðan hann sat í fangelsi og má þar á meðal nefna bækumar „Blómafrúin okkar" og „Kraftaverk rósanna". Franski tilvistarheimspekingurinn og rithöfundurinn Jean-Paui Sar- tre skrifaði mikla bók, tileinkaða verkum, snilligáfu og siðrænum vangaveltum Genet, sem hann nefndi „Heilagur Genet". „Með því að sýkja okkur með sínu böli, frelsar Genet sig undan því. Með sérhverri bók nær hann betur valdi á þeim illa anda sem heltekur hann,“ skrifaði Sartre meðal annars. Jean Genet fæddist í París árið 1910. Móðir hans yfírgaf hann strax eftir fæðinguna og hann var uppfóstraður hjá sveitafjölskyldu í Mið-Frakklandi. 10 ára gamall varð hann fyrir lífsreynslu, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á hvaða stefnu líf hans tók, að mati Sartre, er hann var ásakaður saklaus um þjófnað.- Hann ákvað að gerast þjóftir og var eftir þetta stóran hluta unglingsáranna á uppeldisheimilum fyrir unglinga. 21 árs gamall gekk hann í Utlend- ingahereveitina, en gerðist lið- hlaupi eftir fáeina daga og hafði á brott með sér nokkuð af eigum liðsforingja herdeildarinnar. „Yfírgefínn af Ijölskyldu minni Jean Genet. fannst mér eðlilegt að gera illt verra með því að leita eftir ást karlmanna og hefha mín á þeim með gripdeildum ... Þannig hafnaði ég algerlega veröld sem hafði hafnað mér,“ skrifaði hann meðal annare í „Dagbók þjófs“, sem kom út 1949. Sartre sagði að það hefði verið fangelsið sem gerði Genet að rit- höfundi. Sagan segir að er hann sat í fangelsi á árum síðari heims- styijaldarinnar, hafí hann fyrir mistök verið settur í klefa með mönnum sem biðu dóms. Genet varð þeim að aðhlátursefni. Einn þeirra orti ljóð og Genet fullyrti að hann gæti ekki síður ort. Til að sanna mál sitt orti hann „Dauðavöku", langt ljóð í minn- ingu samfanga, sem bíður dauð- ans. Árið 1948 var Genet dæmdur til lífstíðarfangelsis, en með að- stoð frammámanna í frönsku menningarlífí, einkum Sartre, Jean Coucteau og Andre Gide, tókst að fá hann náðaðan. Genet gerði sér hins vegar aldrei neinar grillur um ástæðumar fyrir skrif- um sínum. Hann sagði eitt sinn í viðtali að eina ástæðan fyrir skáldverkum sínum, hefði verið löngunin til að losna úr fangeisi. Genet skrifaði skáldsögur, leik- rit og ljóð. Áuk framangreindra verka má nefna: „Þjónustustúlk- umar" 1946, „Svalimar" 1956, „Blökkumennimir" 1958 ogfleiri. Ákvörðun stjómarinnar er byggð á lögum, „sem gera alríkislögregl- unni kleift að gæta lagalegra hags- muna erlendra ríkja samkvæmt sér- stakri beiðni frá þeim þar að lút- andi“. Fyrir þremur vikum fyrirskipuðu svissnesk stjómvöld, að allt eignir Ferdinand E. Marcosar, fyrrum foreeta Filippseyja, í Sviss skyldu frystar „í varúðarskyni". Fyrir þeirri ákvörðun er ekkert fordæmi í Sviss og var hún harðlega gagn- rýnd af talsmönnum svissneskra bankamála. Töldu þeir, að þessi stjómvaldsaðgerð skaðaði þann orðstír, sem Sviss hefði aflað sér með strangri bankaleynd. Hríðarbylur batt enda á vorblíðuna Chicago. AP. ENDIR varð bundinn á vorblíð- una að sinni í norðurhluta Banda- ríkjanna á mánudag, er hríðar- bylur brast á með mikilli ofan- komu og hvassviðri. Sums staðar mældist 35 sm jafnfallinn snjór með meira frosti en áður hefur þekkzt svo seint í april og vind- hraðinn varð allt að 100 km á klukkustund. Óttazt er, að fimm manns hafi týnt lífi i flugslysi, sem rakið er beint til ó veðursins. „Hér geysar hríðarbylur með svo lélegu skyggni, að ekki sér handa skil,“ var í fyrradag haft eftir Steve Oakes, lögreglustjóra í Brown County í Suður-Dakota. í Williston í Norður-Dakota var ofankoman 35 sm á sunnudag og fannfergið var jafnvel enn meira á mánudag. Víða urðu miklar truflanir á samgöngum og rafmagnslaust varð sums staðar. Util fímm manna flugvél hrapaði í grennd við Norfolk í Nebraska, rétt eftir að hún hafði tekið sig á loft á mánudag. Veðrið spillti mjög fyrir leit og björgunaraðgerðum, en óttazt var, að allir fímm, sem með vélinni voru, hefðu farizt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.