Morgunblaðið - 16.04.1986, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. APRÍL1986
fclk f
fréttum
Gordon Lee
á gönguskíðum
AMMAN
63ÁRAAMMA
MEISTARIÁSAMT
BARNABARNISÍNU
Geri aðrir
betur
Thomas Jensen, 15 ára ungl-
ingur, vissi hvað hann söng
þegar hann bað 63 ára gamla ömmu
sína að spila með sér í tvíliðaleik í
badminton í meistarakeppni Bad-
mintonklúbbsins í Kolding í Dan-
mörku. Þau unnu, enda er amman,
Inger Kjærgaard, enginn viðvan-
ingur. Hún hefur stundað þessa
íþrótt í 50 ár, leikið í landsliðinu
og unnið margskonar titla innan
lands og utan þ.á m. orðið Dan-
merkurmeistari þrisvar sinnum í
einliðaleik kvenna. Síðasta stóra
titilinn vann hún árið 1967, er hún
varð Jótlandsmeistari. Þá bað
klúbburinn í Kolding hana um að
keppa og hún sló til þótt ekki væri
hún í góðri þjálfun. Inger æfði af
kappi fyrir keppnina, stundaði líka
leikfími og hlaup og vann. Hún
segir að sér hafi fundist það dálítið
fyndið hvað mikið var skrifað um
það í blöðin þá, að hún væri orðin
45 ára gömul, en þó þetta góð
ennþá! Hún er nú formaður Bad-
mintonklúbbsins í Kolding, spiiar
sjálf og æfír yngstu hópana eftir
hádegi. Fyrir hádegi kennir hún í
listiðnað arskóla, en hún er útlærð-
ur klæðskeri. Ljóst er að það fara
ekki allir í fötin hennar Inger.
Spánarprins skorar körfu.
Norsk stúlka keppir
fyrir Dani í
söngvakeppninni
Stoltir foreldrar; Lillian og Einar Haavik með
Lise og syninum Knúti.
Llise Haavik, 24 ára gömul
norsk stúlka, verður ein
þeirra er keppa fyrir hönd Dan-
merkur í söngvakeppni sjónvarps-
stöðva er haldin verður 3. maí
næstkomandi í Bergen. Eigin-
maður Lise, John Hatting, er
einnig í liði Dana og samdi hann
bajði keppnislag og Ijóð „Du er
fuld af lagn“. Lise er frá Narvik
í Norður-Noregi og fyrir skömmu
kom hún þangað í heimsókn. Var
henni vel fagnað af íbúunum og
borgarstjórinn, Roald Sandvoll,
bauð til móttöku á besta hóteii
bæjarins. Lise var heiðursgestur
og veitti viðtöku sérstakri viður-
kenningu frá bæjarfélaginu. Hún
fór frá Narvik fyrir 4 árum og
þá hefur sjálfsagt engan dreymt
um það, að næst þegar hún kæmi
til bæjarins yrði slíkt tilstand í
sambandi við komu hennar. Borg-
arstjórinn sagði í ræðu sinni, að
Lise væri ekki fyrsti Narvik-búinn
sem gerði garðinn frægan, en
örugglega sá yngsti.
Kristtn kann best við sig um borð
í seglbátum.
Lise hlustar af athygli á borgarstjórann. Á hinni myndarlegu
köku voru tveir fánar, norskur og danskur.
Eiginhandaráritanirnar
er Lisa þurfti að
gefa voru margar.
Flestir knattspymuunnendur á
íslandi vita að Gordon Lee hóf
að þjálfa meistaraflokk KR í knatt-
spymu á siðasta ári og að hann er
aftur með liðið í ár. Gordon var á
ámm áður atvinnumaður í knatt-
spymu á Englandi en sneri sér síðan
að þálfun og var m.a. þjálfari
Everton áður en hann tók við
KR-liðinu.
Gordon líkar vel á íslandi og
gerir sér far um að kynnast bæði
landi og þjóð. Hann reynir að aðlag-
ast breyttum aðstæðum sem best
hann getur og er óðum að taka upp
íslenska siði og venjur. Gordon er
bindindismaður á vín og tóbak, lifír
heilbrigðu lífi og fer ekki á
skemmtistaði.
Gordon hefur varla séð snjó svo
heitið geti fyrr en hér á íslandi.
Og síst skildi hann í því að sumir
leikmannanna gátu ekki mætt á
æfíngar á dögunum af því að þeir
voru á skíðum eða höfðu meiðst lítil-
lega í brekkunum. Þá hafði Gordon
aldrei séð skíði. Kimmi (Jóakim
Snæbjömsson), allra verka maður
hjá Knattspymudeild KR, og Guð-
bjöm Jónsson, húsvörður, sáu að
við svo búið mátti ekki standa leng-
ur og fengu Gordon til að reyna
gönguskíði Kimma á sléttum
Morgunblaðið/Guðbjöm Jónsson
Fyrstu sporin að verða að veru-
leika. Gordon Lee kominn á skíð-
in og tilbúinn að leggja af stað.
Kimmi styður við skíðin svo
Gordon renni ekki aftur á bak.
KR-vellinum. „Er það ekki það sem
allir gera á íslandi," sagði Gordon
og var til í slaginn. Þeir sýndu
honum hvemig ætti að ganga á
I