Morgunblaðið - 16.04.1986, Side 23

Morgunblaðið - 16.04.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL1986 23 Sjálfstæðismenn Blönduósi: Jón Signrðsson í efsta sætinu Blönduósi: Á fjölmennum fundi sjálfstæðis- manna á Blönduósi á mánudags- kvöld var tillaga uppstillingar- nefndar um framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í komandi sveit- arstjórnarkosningu samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Listinn er þannig skipaður: 1. Jón Sigurðsson ráðunautur, 2. Sigríður Friðriksdóttir formaður Verkalýðs- félags A-Hún. 3. Ragnheiður Þor- steinsdóttir verzlunarmaður, 4. Baldur Valgeirsson framkvæmda- stjóri, 5. Sigurður Eymundsson rafveitustjóri, 6. Þuríður Her- mannsdóttir skrifstofumaður, 7. Óskar Húnfjörð framkvæmdastjóri, 8. Guðmundur Guðmundsson sjó- maður, 9. Guðmundur Þ. Sveinsson verkamaður, 10. Hjörleifur Júlíus- son húsasmiður, 11. Gunnar Sig. Sigurðsson verkstjóri, 12. Ole Aadnegard bifreiðastjóri, 13 Kristín Jóhannesdóttir verkamaður, 14. Jón Isberg sýslumaður. Sjálfstæðismenn eiga nú tvo full- trúa í sveitarstjóm: Sigurð Ey- mundsson og Sigríði Friðriksdóttur. Sigurður, sem skipaði efsta sætið við síðustu kosningar gaf ekki kost á sér í það áfram. Frambjóðendur sjálfstæðis- manna til sýslunefndar er Valur Snorrason rafvirki og Kristófer Sverrisson mjólkurfræðingur. J.Sig. „Við vorum reiknað- ir út úr myndinni“ — segir formaður atvinnumálanefndar Akureyrar og einn forráðamanna Oddeyrar hf. um útreikn- ing á tilboðum í raðsmiðaskipin Akureyri. „Ég er ósáttur við þessar niður- stöður. Þegar skipin voru boðin út var ljóst að við vorum vel inni í myndinni. Við vildum semja strax en það tafðist af einhveij- um ástæðum að gengið var til samninga og þetta endaði með því að við vorum reiknaðir út úr myndinni,“ sagði Jón Sigurðar- son, formaður atvinnumála- nefndar Akureyrar og einn af forráðamönnum útgerðarfyrir- tækisins Oddeyrar hf.. í samtali við Morgunblaðið í gær — í fram- haldi af ákvörðun um hvert raðsmíðaskipin tvö sem í smíðum eru í Slippstöðinni yrðu seld. Oddeyri hf. var fyrst og fremst stofnað með það í huga að kaupa annað raðsmíðakipið úr Slippstöð- inni — til að afla hráefnis fyrir REYKINGAHAPPDRÆTTIÐ íórnor heilsunni ef þú spilar með.og þeir óheppnu hliófa vinniti Reykingahappdrættið í 12.000 eintökum til skólafólks TÓBAKSVARNANEFND hefur sambandi við tóbaksnotkun. Um sent öllum nemendum í 7., 8. og 12000 veggspjöld voru send í alla 9. bekk grunnskóla landsins vegg- skóla landsins til dreifingar, en í spjald sem ber heitið Reykinga- hvem skóla fóru gögn til þess að happdrættið, en Sigmund teiknari kynna málið í hvetjum einasta hefur myndskreytt textann, sem bekk þessara árganga. fjallar um ýmsa áhættuþætti í niðursuðuverksmiðju K. Jónsson og Co. hf. á Akureyri. Akureyrarbær, K. Jónsson og Co. hf. og Samheiji hf. eiga bróðurpartinn í Oddeyri hf. Slippstöðvarskipin tvö verða seld á Blönduós og Kópasker. Þess má geta að samvinna verður um rekst- ur skipsins sem fer á Kópasker milli heimamanna og aðila á Sval- barðseyri. Samstarfíð er hugsað þannig að skipið leggi upp á Kópa- skeri en áhöfnin verði að mestu leyti frá Svalbarðseyri. Jón Sigurðarson sagði um út- reikning tilboðanna: „Það sem mér gremst mest er að það líður og bíður eftir að við gerum tilboð. Það líður allt of langur tími þangað til niður- staða fæst. Við hefðum getað boðið öðruvísi ef aðrar efnahagsforsendur hefðu verið í landinu en voru þegar tilboðið vargert." Hluti sýningargesta við opnunina. Sýning ljós- myndara Hvíta hússins Á föstudaginn var opnuð sýn- ing á verðlaunaljósmyndum sam- taka er nefnast samtök fréttaljós- myndara Hvíta hússins. Innan samtakanna eru nú rúmlega 300 ljósmyndarar. Að sýningunni standa Ljósmyndasafnið og Menningarstofnun Bandarflq- anna. Sýningin er á Kjarvalsstöð- um og verður opin til 27. aprfl. Aðgangur er ókeypis. Frá opnun sýningarinnar, Nich- olas Ruwe, sendiherra Banda- ríkjanna, flytur ávarp. Ein af verðlaunamyndunum, það var Ijósmyndarinn Don Rypka sem tók þessa mynd af Reagan forseta. Lngerhillur oq rekkar Kœrar þakkir til vina og vandamanna fyrir heimsóknir, gjafir, blóm og skeyti í tilefni 80 ára afmœlis okkar 4. janúar og 11. apríl. LifiÖheil. Sigurbjörg og Þorbrandur, Mávahlíö 5. Eigum á lager og útvegum meö stuttum fyprvara allar gerðir at vörurekkum og lagerkerfum. Veitum fúslega allar nánari BILDSHÖFDA 16 SIML6724 44 VJterkurog k-J hagkvæmur auglýsingamiðill! SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Stofnfundur hverfafélags í Grafarvogi Stofnfundur hverfafélags sjálfstæðismanna í Grafarvogi verður haldinn í sjálfstæðis- húsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, miðviku- daginn 16. apríl nk. kl. 20.30. DAGSKRÁ: 1. Stofnun hverfafélags í Grafarvogi. 2. Lög félagsins samþykkt. 3. Kjörstjórnar. 4. Ræða Davíðs Oddssonar borgarstjóra. íbúar Grafarvogs eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í stofnun félagsins. Fulltrúaráð sjálfstæðis- fólaganna í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.