Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 Ora lækkar niðursuðuvörur Niðursuðuverksmiðjan Ora hf. lækkar hluta af framleiðsluvör- um sínum um mánaðamótin um 1-6%. Lækkun þessi kemur til viðbótar lækkun fyrirtækisins 1. apríl síðastliðinn, en þá lækkuðu ýmsar vörur fyrirtækisins um allt að 8,7%. Magnús Tryggvason fram- kvæmdastjóri Ora hf. sagði að lækkunin fyrir mánuði hefði komið í kjölfar lækkunar á aðflutnings- gjöldum á grænmeti. Fyrirtækið hefði nú ákveðið að lækka vörumar meira og halda verði annarra óbreyttu þrátt fyrir kostnaðar- hækkanir að undanfömu í kjölfar hækkunar á Evrópugjaldmiðlum. Þær vörur sem nú lækka em meðal annars niðursoðnar gulrætur og grænar baunir, blandað grænmeti, rauðrófur og rauðkál. Verðlækkun á pepsi í plastflöskum SANITAS mun lækka verð á pepsi í 1,5 Iítra plastflöskum um Ispinnar lækka um 4% ÍSGERÐ Mjólkursamsölunnar í Reykjavík hefur lækkað ís- inn um 3,5-8%, eins og fram hefur komið í blaðinu. Hér á eftir fara dæmi um verðlækk- anir: íspinnar lækka úr 24 krónum í 23 kr. (4,3%), ísblóm úr 87 kr. í 82 kr. (5,7%), skafís í tveggja lítra dósum úr 244 krón- um í 228 kr. (6,6%) og pakkaís í 1 1. pökkum úr 107 kr. í 98,40 kr. (8,05%). nálægt 10% næstkomandi mánu- dag. Er þetta kynningarverð sem mun standa að minnsta kosti i 3-4 mánuði, að sögn Ragnars Birgissonar framkvæmdastjóra Sanitas. Ragnar sagði að þessi verðlækk- un hefði verið ákveðin í kjölfar fundar hjá Félagi íslenskra iðn- rekenda fyrr L vikunni þar sem menn voru eindregið hvattir til að lækka vöruverðið þar sem mögulegt væri, og helst núna um mánaðamót- in. Hann sagði að fyrirtækið vildi einnig reyna að auka söluna á pepsi í þessum umbúðum og ef það yrði raunin og ytri aðstæður breyttust ekki yrði þessi verðlækkun varan- leg. Algengt útsöluverð á pepsi í 1,5 1. plastflöskum lækkar við þetta úr 79-83 krónum flaskan í 70-75 krón- ur, eða um 8-9 krónur hver flaska. Bensínið lækkar um 2 kr. 2. maí BENSÍNIÐ lækkar um 2 krónur um mánaðamótin samkvæmt ákvörðun verðlagsráðs, úr 30 krónum í 28 kr. hver lítri, eða um 6,6%. Lækkunin kemur til framkvæmda 2. maí. Á tiltölulega skömmum tíma hefur bensínlítrinn lækkað úr 35 krónum í 28 vegna verðlækkunar á heimsmarkaðsverði olíu. Bensín- lítrinn verður eftir þessa síðustu lækkun 20% ódýrari en hann var fyrr á árinu. Morgunblaðið/Ól. K.M. Jökulfell stöðvaðist í Reykjavíkurhöfn í gær vegna verkfalls. Kaupskíp stöðvast vegna verkfalla VERKFOLL á kaupskipaflotan- um eru þegar farin að stöðva skip í höfnum hér heima. Undir- menn á skipunum, félagar í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur, hófu verkfall kl. 15 í gær og á mið- nætti í nótt lauk tveggja daga verkfalli Skipstjórafélags Reykjavíkur. Félagið hefur boð- að annað tímabundið verkfall 5.-7. maí næstkomandi. Þrjú skip Eimskipafélags íslands hafa þegar stöðvast vegna verk- fallanna — Skeiðsfoss á Akureyri, Lagarfoss í Straumsvík og Reykja- foss í Reykjavík. í næstu viku má búast við að Álafoss, Fjallfoss og Grundarfoss stöðvist einnig í ís- lenskum höfnum þegar þau skip koma frá útlöndum. Þá hefur og Sambandsskipið Jökulfell stöðvast í Reykjavík. Skipafélögin hafa gert ýmsar ráðstafanir til að draga úr áhrifum verkfallsins, m.a. með því að breyta áætlunum skipa, sem eru í sigling- um erlendis. Á morgun mun ríkissáttasemjari kanna hvort tilefni er til að boða til sáttafundar í deilunum. Skip- stjórafélagið og Sjómannafélagið semja sérstaklega við skipafélögin er auk þeirra eru öll önnur yfír- mannafélög á kaupskipaflotanum með lausa samninga — stýrimenn, vélstjórar, loftskeytamenn, brytar, matreiðslumenn og þernur. Fulltrúar allra þessara félaga sátu árangurslausan sáttafund hjá ríkissáttasemjara á þriðjudaginn. Á þessari teikningu sést hvernig Austurvöllur liti út þegar hann yrði kominn í þann búning, sem tillög- umar gera ráð fyrir. Alþingishúsið og Dómkirkjan eru fremst á teikningunni. Tillögnr um breyttan Austurvöll: Hellulagt torg snúi að Alþing- ishúsinu og Dómkirkjunni í TILLÖGUM um nýtt skipulag Kvosarinnar í Reykjavík sem arkitektamir Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson hafa gert er gert ráð fyrir gagngerum breyt- ingum á Áusturvclli. Meðal ann- ars eru hugmyndir um að hellu- leggja þann hluta vallarins sem snýr að Alþingishúsinu og Dóm- kirkjunni og mynda þannig torg. Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson nefna m.a. í greinargerð sem fylgir tillögunum að í seinni tíð hafi það tíðkast að fólk safnist saman á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið á tyllidögum eins og t.d. 17. júní, en eins og völlurinn er f dag sé það ýmsum örðugleikum háð. Höfundar telja að með því að sá hluti Austurvallar sem snýr að Alþingishúsinu og Dómkirkjunni veðri hellulagður og myndi þannig torg við þessar tvær byggingar, nýtist svæðið betur við áðumefnd tækifæri. Þá er gert ráð fyrir að sá hluti Austurvallar sem snýr að Thor- valdsensstræti, Vallarstræti og Pósthússtræti verði afgirtur með trjám og lögð áhersla á garð- og blómarækt í afmörkuðum reitum. Að sögn Dagnýjar Helgadóttur JNNLEN-T Kísilmálmvinnsla: Samningar ganga í réttaátt TVEGGJA daga fundi fulltrúa Rio Tinto Zink og samninganefndar iðnaðarráðuneytisins um Kfsil- málmvinnslu á Reyðarfirði lauk á þriðjudag. Að sögn Birgis ísleifs Gunnarssonar formanns íslensku samninganefndarinnar ganga samningamir í rétta átt. Næsti fundur verður í Bristol á Englandi 20.-21. mars næstkomandi. er hugmyndin að endurskipuleggja allan Austurvöll. Fyrir utan þennan hellulagða geira verði bætt við gangstéttum sem ganga eiga þvert á grasflatimar. Þá verði hellulagður hringur umhverfis styttuna af Jóni Sigurðssyni og þar fyrir utan verði gras á hringlaga svæði. Þá komi blómabeð og bekkir og yst verði tijágróður. Ekki er Ijóst hvemig bilaumferð verði háttað í kringum Austurvöll. Geislavamir ríkisins og landlæknir: f slendingar þurfa ekki að forðast hin Norðurlöndin GEISLAVARNIR ríkisins og landlæknir gáfu í gær út eftir- farandi fréttatilkynningu: „Eftir kjamorkuslysið í Sovét- ríkjunum hefur orðið vart aukinnar geislavirkni í mörgum löndum m.a. Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Dan- mörku. Veðurskilyrði hafa verið þannig, að geislun hefur ekki borist hingað Jhonjimbln&íó Starfsemi félag&málastofnunar í viðskiptablaði Morgun- blaðsins í dag er m.a. fjallað um konur á vinnumarkaðin- um í tilefni 1. maí og sérstak- ur blaðauki er um starf Fé- lagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar auk annars efnis, sem tileinkað er þessum hátíð- isdegi launþega. til lands. Geislavamir ríkisins fylgj- ast gaumgæfilega með gangi mála hjá systurstofnunum sínum á Norð- urlöndunum. Vegna margra fyrirspuma vilja Geislavamir ríkisins og Landlæknir taka eftirfarandi fram: 1. Ferðamenn sem koma frá Norð- urlöndunum em ekki taldir í hættu vegna áhrifa aukinnar geislavirkni og því ekki þörf á sérstökum aðgerðum eftir dvöl í þessum löndum. 2. Ferðamenn sem hyggja á ferð til þessara landa á næstunni þurfa því ekki að breyta áform- um sínum vegna slyssins. Sú tímabundna aukning á geisla- virkni sem mælst hefur er langt undir hættumörkum." Lýst eftir 63ja ára konu LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir. eftir 63 ára gamalli konu, Unni Jónsdóttur. Unnur er talin hafa yfirgefið hótel Rauða krossins við Skiphoit í Reykjavík, þar sem hún er búsett, milli klukkan 13.30 og 15.00 á þriðjudag. Ekkert hefur til hennar spurst síðan. Unnur er grannvaxin, 160 cm á hæð, með axlarsítt ljóst hár sem farið er að grána. Hún var klædd í síða vínrauða poplyn-kápu, í kjól með gulum, vínrauðum og bláum þverröndum og var í bláum reimuð- um gönguskóm úr leðri. Þeir sem kynnu að hafa orðið ferða Unnar varir eru beðnir að gera lögreglunni í Reykjavík við- vart.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.