Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 52
M0RGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 Blönduós: Hjálparsveit skáta 20 ára BlöiuluósL HJÁLPARSVEIT skáta á Blönduósi var með opið hús á sumardaginn fyrsta í tilefni af því að sveitin er 20 ára. Margir gestir litu inn hjá hjálparsveit- armönnum þennan dag til að samfagna þeim og skoða hin giæsilegu húsakynni og tækja- kost sem hjálparsveitin hefur yfir að ráða. Núna er í eigu hjálparsveitar- innar einn öflugur fjallabíll og snjósleði. Hjálparsveit skáta á Blönduósi bárust nokkrar gjafír á afmælisdaginn. Lionsklúbbur Blönduóss færði sveitinni Loran C miðiunartæki og veitti formaður hjálparsveitarinnar Sigrún Zoph- oníasdóttir tækinu viðtöku. A Blönduósi er starfandi önnur björgunarsveit er Blanda nefnist og er hún einnig tvítug um þessar mundir. Báðar þessar björgunar- sveitir eru til húsa í sama húsinu og var unnið í sameiningu að uppbyggingu þess. Jón.Sig 1. maíávarp Samtaka kvenna á vinnumarkaði Á 1. maí í ár er fátt sem gleður konur á vinnumarkaði. í skjóli ríkis- stjómarinnar hefur óbilgimi at- vinnurekenda margeflst. Skemmst er að minnast fyrirlitlegrar fram- komu eigenda Granda hf. í garð starfsfólks og þá sérstaklega físk- vinnslukvenna. Það er til skammar að stjórnvöld í Reykjavík skuli nota almannafé til slíkra árása á verka- fólk. Það er nöturleg staðreynd að fijálshyggjuliði íhaldsins skuli hafa tekist að sljóvga samkennd og samstöðu verkafólks svo mjög sem raun ber vitni. Ekki þykir lengur tiltökumál að hver bjargi sér og loki augum fyrir neyð annarra. Stjómvöld hafa í raun afskrifað hluta þjóðfélagsþegnanna, en láta félagsmálastofnunum eftir að sjá um að þeir verst settu skrimti. Hungurdauði þykir smán fyrir samfélagið, en félagslegri neyð er hægt að leyna. Best gengur að leyna neyð gamalmenna, enda sú kynslóð ekki alin upp við að bera vandamálin á torg. Um tvö þúsund ellilífeyris- þegar em á biðlistum eftir húsnæði. Samtök kvenna á vinnumarkaði kreijast tafarlausra úrlausna og benda í því skyni á 60 milljónimar sem dekurböm íhaldsins létu Reykjavíkurborg gefa sér í skiptum fyrir nokkrar þúfur uppi í sveit. Á heilbrigðisstofnunum er starfs- fólki haldið í lágmarki, vinnuálag aukið þannig að það bitnar á sjúkl- ingum. í sparnaðarskyni þykir hæfa að fækka legudögum sængur- kvenna æ meira og síðasta vetur neitaði Tryggingastofnun ríkisins að greiða til Leitarstöðvar Krabba- meinsfélagsins, þannig að nú eru konur á algengustu launatöxtum um 7 klukkustundir að vinna fyrir einni krabbameinsskoðun. Á dagvistarheimilum lengjast biðlistar og fjárframlög minnka á meðan vinnutími foreldra lengist. Þótt Samtök kvenna á vinnu- markaði hafi ekki skipt sér af al- þjóðamálum hljóta þau að gera svo þegar skipulega er stefnt að því að gjöreyða tilvistarmöguleikum mannkyns. Samtökin fordæma harðlega loftárásir Bandaríkja- stjómar á Líbýu. Það er skelfilegt að slíkir vitfirringar skuli hafa á valdi sínu geigvænlegustu vítisvélar heims. Samtök kvenna á vinnumarkaði telja að með síðustu kjarasamning- um hafí forysta heildarsamtaka verkafólks í raun gengist inn á launastefnu stjómvalda og atvinnu- rekenda. Kjarasamningamir auka enn þann geigvænlega tekjumun sem orðinn er í landinu. í samningaviðræðunum var ekki einu sinni lögð fram krafa um að ná til baka þeim launahluta sem ríkisstjómin rændi á vordögum valdaferils síns. Ekki var heldur krafíst tryggra dýrtíðarbóta, heldur tekið undir söng atvinnurekenda um verðbólguvísitölu og launafólki vísað í tröllfaðm ráðherranna til tryggingar laununum. Samtök kvenna á vinnumarkaði fordæma slíkt athæfí af hendi for- ystu launafólks. Einnig fordæma Samtök kvenna á vinnumarkaði að enn skuli farandverkafólk gjörsam- lega réttlaust varðandi atvinnuör- yggi- I árslok verða lægstu taxtar enn undir 20 þúsund krónum á mánuði. Það er ábyrgðarlaust að semja um laun sem engin leið er að lifa af. Frá afnedingu Lorans C miðunartækisins á afmælisdaginn. Það er Sigmar hægri frá Lionsklúbbi Blönduóss sem afhendir stjóminni tækið. Morgunbladid/Jón Sig Jónsson lengst til Heimilisprýði. ™ með silfurharðgljáa Hinn heimsþekkti þýski stálborðbúnaöur, margar gerðir, fagurlega hannaöur og unninn, er sannkölluð framtíðareign. 18/8 stál póleraó með harðgljáa. Smaragd 30 stk. í gjafakassa kr. 6.075.- Barock 30 stk. í gjafakassa kr. 7.290.- Kanada 30 stk. í gjafakassa kr. 6.075.- Alaska RAMMAGERÐIN KRISTALL& POSTULÍN 30 Stk. í gjafakassa kr. 6.075.- HAFNARSTRÆTI19 Sími 11081 Sendum í póstkröfu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.