Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR I. MAÍ1986
53
Samtök kvenna á vinnumarkaði
leggja höfuðáherslu á að ná fram
lífvænlegum lágmarkslaunum,
þannig að mögulegt verði að berjast
gegn vinnuþrælkuninni sem við-
gengst - ekki síst í bónusvinnu
kvenna.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
fagna frumkvæði Bolvíkinga. ísinn
hefur verið brotinn. Nú er lag að
brjóta upp samningana og samstilla
alla krafta verkalýðshreyfingarinn-
ar til að ná fram 30 þúsund krónum
í lágmarkslaun fyrir allt verkafólk
— strax í dag!
Þótt framfærsluvísitalan sé föls-
uð með því að lækka tolla á bílum,
hljómflutningstækjum og mynd-
böndum, þá hækkar það ekki laun-
in. Enda einkennileg ráðstöfun í
ljósi erlendra skulda að stórauka
innflutning til einkaneyslu þeirra
sem hafa úr nógu að moða.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
líta svo á að 1. maí sé engin leið
að ganga samhliða þeim sem bera
höfuðábyrgð á síðustu kjarasamn-
ingum. Samtökin munu því efna til
sérstakra aðgerða í Reykjavík og
hvetja alla verkalýðssinna að taka
höndum saman og hafna síðustu
kjarasamningum; hafna þeirri
launastefnu sem þeir fela í sér og
hafna því aðgerðar- og sinnuleysi
sem samningarnir byggja á.
Síðustu tvö ár hafa Samtök
kvenna á vinnumarkaði efnt til sér-
stakra útifunda í Reykjavík á 1.
maí og þá fyrst og fremst vegna
ágreinings um kröfur sem Fulltrúa-
ráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík
hefur sett fram.
í ár skipta kröfur fulltrúaráðsins
engu máli. Þar hafa verkin talað.
I síðustu samningum var kraftur
verkalýðshreyfingarinnar í engu
nýttur. Hagfræðingamir sátu sam-
an upp í Garðastræti og reiknuðu
og reiknuðu þangað til komið var
notalegt meðaltal á launakúrfuna.
Með slíkum aðferðum nær verka-
fólk aldrei rétti sínum.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hvetja launafólk til að aftengja
tölvur hagfræðinganna.
Heyjum baráttuna úti á vinnu-
stöðum og sameiginlega á strætum
og torgum!
Við þurfum baráttufúsa verka-
lýðshreyfingu!
Við þurfum forystu sem er reiðu-
búin að ganga í fremstu röð þeirra
baráttuglöðustu og skipuleggja
djörfustu sóknarlotumar!
Samtök kvenna á vinnumarkaði
eggja launafólk — ekki síst konur
— að láta þetta rætast.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Þessir bílar eru tilvalin lausn á flutn-
ingaþörf flestra fyrirtækja og ein-
staklinga.
MAZDA „E" sendibílarnir hafa nú þegar sannað ágæti sitt
við alls kyns aðstæður hérlendis. Þeir eru sérlega rúmgóð-
ir, þýðir og léttir í akstri með1200—1700 kg.burðarþoliog
fást Í5 mismunandi útgáfum: Lokaðir sendibílar, sendibílar
með gluggum og sætum fyrir 6 manns, fólksflutningabílar
með sætum fyrir 9—12 manns, pallbflar með sætum fyrir
3 og pallbflar með tvöföldu húsi og sætum fyrir 6 manns.
Vélargerðir eru 2: 2.2 L dieselvél eða 2.0 L bensínvél.
Við eigum nú til afgreiðslu strax örfáa af þessum frábæru
bflum á mjög hagstæðu verði:
Lokaður bfll með bensínvél.................Kr. 556.000
Bfll með gluggum, 6 sætum, dieselvél og
vökvastýri ..................................... " 667.000
Rallbfll með 3 sætum og bensínvél........ " 532.000
Rallbfll með tvöföldu húsi, 6 sætum og
dieselvél ...................................... " 666.000
gengisskr. 21.4.86
Sýningarbíll á staðnum. Opið laugardaga frá kl. 1—5.
BILABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23 Sl'MI 6812 99
2 þættir á spólu
Þættir 51/52 koma á bensínstöðvar OLÍS á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu — Keflavík og Akureyri í dag. Einnig á útvaldar mynd-
bandaleigurá landsbyggðinni.
Dreifing á landsbyggðinni,
Tefli hf., Síðumúla 23,
simi 686250.
«**