Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAl 1986 Sirni 1 13 84 Guðgeir sýnir í Eyjum Veatmannaeyjum. GUÐGEIR Mattliíasson heldur sína þriðju málverkasýningu í Byggða- safni Vestmannaeyja dagana 1.—4. maí. Myndir Guðgeirs eru flestar tengdar atvinnulífi í Vestmanna- eyjum og einnig sýnir hann myndir af gömlum húsum sem eru horfin af sjónarsviðinu. Guðgeir stendur föstum fótum í þeim jarðvegi sem hann er alinn upp í og það gefur nýtt og sérstætt Iíf í myndir hans. Sýningarsalinn í Byggðasafninu velur Guðgeir með það í huga að fólk geti um leið og það skoðar myndir hans virt fyrir sér ýmis þau áhöld og tæki sem forfeður og mæður notuðu til þess að viðhalda lífi í Vestmanna- eyjum. „Þetta var misjafnlega gott líf, oftar hart og gróft á vissan hátt, en alltaf var þó mannleg hlýja og hjálp- semi fyrir hendi þegar mest á reyndi. Gleði og gáski þegar við átti og svo er með myndir mínar," segir Guðgeir Matthíasson alþýðulistamaður í Vest- mannaeyjum. Sýning Guðgeirs Matthíassonar verður opnuð kl. 14 á hátíðisdegi verkamanna 1. maí og verður síðan opin hvern dag til kl. 10 fram til 4. maí. Þettaersölusýning. — hkj. frumsýnir ítalsk-bandaríska spennumynd um blóðugabar- áttu við Mafíuna: Árás á Kolkrabbann The underworl has a law its own... Aðalhlutverk:MICHELE PLACIDO — lék aðalhlutverkið í hinum vinsæla sjónvarpsþætti „Kolkrabbinn". Leikstjóri: DAMIANO DAMIANI - leikstýrði „KOLKRABB- ANUM“. Myndin er með ensku tali. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd í sal 1 kl. 5,7,9 og 11. tók nokkum þátt í félagsskap snyrtifræðinga og fór á vegum þess félags á a.m.k. tvö fjölþjóðaþing, annað í Stokkhólmi og hitt í Róm. Einnig skrifaði hún og birti í tíma- riti greinar um starfsvið sitt og báru þær vott um greind hennar og smekkvísi eins og annað sem hún gerði. Hin látna var foreldrum sínum og systkinum einkar kær, þótt tengslin yrðu misjöfn milli hinna mörgu systkina eftir því sem árin iiðu. Nánast var sambandið milli systranna þriggja, sem bjuggu í sama húsi um áratuga skeið og hjálpuðu og studdu hvor aðra í hví- . vetna. Elsta systirin, Hólmfríður, lést haustið 1983 og nú er ein, sú yngsta, eftir í húsinu, en alls eru átta systkinanna á lífí. Einnig voru henni kær systkinabörnin, en þó einkum þau er ólust upp í húsi þeirra systra og sýndi hún það í verki með ýmsu móti. Það er stór hópur náinna ætt- menna fjögurra kynslóða, sem nú sér á bak þessari merku konu. Hinni látnu voru veittar í vöggugjöf góðar gáfur og þokkafullt útlit og lengi fram eftir ævi allgott heilsufar, hún var vel sett fjárhagslega og fékk notið gæða lífsins í ýmsum mynd- um, en þó skorti á, að fyllstu vonim- ar í lífinu rættust og hefur það e.t.v. átt þátt í því að valda henni þungum byrðum er hún mátti bera að kvöldi ævidagsins. En líklega getur enginn ráðið eigin lífsgátu og því síður annarra svo sjálfgert er, að láta hér staðar numið. En hvernig sem þessu er varið stendur eftir skýr mynd merkrar konu er lengi mun geymast í hugum ætt- ingja og annarra nánustu samferða- manna. Við minnumst hennar öll með miklum söknuði. Sigurður M. Helgason Stórbílaþvottastöð Verð á sumarþvotti er eftirfarandi: Stórir flutningabílar með aftanívagn 990 kr. Stórirflutningabílar 780 kr. Stórar rútur 780 kr. Stórir sendiferðabílar 480 kr. Minni sendiferðabílar 480 kr. Jepparogfleiri 480 kr. Ef menn vilja tjöruhreinsun eða skumm þá reiknast það aukalega. Stöðin er opin virka daga kl. 9—19. Stórbflaþvottastöðin, Höfðabakka 1, sími 688060. Anna P. Helga- dóttir - Minning Fædd 9. desember 1904 Dáin 22. april 1986 Mig langar til að minnast með nokkrum orðum systur minnar, Önnu Petreu, þótt náinn sé skyld- leikinn og ég sé ekki dómbær sem skyldi, en hér er heldur ekki um sagnfræði að ræða, heldur kveðju og þakkir fyrir samfylgdina á nokk- uð langri jarðvistarreisu og upprifj- un á minningum um nokkra þætti á lífsferli hennar á þann hátt, að aðrir samferðamenn gætu fylgst með því, en hún verður á morgun, föstudag, kvödd hinstu kveðju af ættmennum og vinum við útför hennar frá Dómkirkjunni í Rvík. Hin látna, sem fullu nafni hét Anna Petrea, var fædd á Akranesi 9. desember 1904 og var 7. barn hjónanna Guðrúnar Illugadóttur frá Lambhaga í Skilmannahreppi og Helga Guðbrandssonar frá Klafa- stöðum í sama hreppi, en þau höfðu gengið í hjónaband og sett bú saman á Skaga árið 1893. Alls urðu böm þeirra hjóna 13 og komust öll til fullorðinsára. Bömin ólust öll upp í foreldrahúsum og ennfremur 2 dótturbörn svo að segja frá fæð- ingu. í þessari bammörgu bama- íjölskyldu ólst Anna heitin upp og eins og að líkum lætur var ekki auður í garði á slíku verkamanns- heimili. Bömin þurftu því snemma að hjálpa til í lífsbaráttu fjölskyld- unnar og þar á meðal Anna, sem fór þegar á bamsaldri að heiman til að vinna fyrir sér á sumrum, eins og þá var títt um böm fátækra foreldra. Haustið 1924 þegar Anna var á 20. árinu fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og batnaði nú hagur hennar smám saman, enda vom eldri bömin þá uppkomin og stóðu dyggilega í lífsbaráttunni með for- eldrum sínum. Snemma bar á því, að Önnu heitinni væri margt vel gefið og var hún vel næm og náms- fús þegar á bamsaldri. Nokkm áður en fjölskyldan fluttist suður hafði Anna verið vetrartíma í lýðskólan- um á Hvítárbakka, sem þá var undir stjóm séra Eiriks Albertssonar og hefur það án efa orðið henni hvatn- ing til frekara náms ef möguleikar opnuðust í þá átt, enda höfðu for- eldramir einlægan áhuga á að bömin kæmust eitthvað til mennta þótt aðstæður væm erfíðar. Flutn- ingur fjölskyldunnar til Reykjavíkur 1924 mun hafa stuðlað að því, að Anna heitin fór í Kennaraskólann þá um haustið og sat þar í tvo vetur með mjög góðum námsárangri, en þá var hún heitbundin Einari M. Einarssyni, stýrimanni, síðar skip- herra hjá Landhelgisgæslunni. A næstu ámm starfaði Anna aðallega við verslunarstörf hér í bæ eða þar til þau Einar gengu í hjónaband á árinu 1928 og settu saman bú á Gmndarstíg 10 hér í bæ, þar sem hún hefur átt lögheimili ætíð síðan. Var heimili hennar ætíð fallegt og höfðinglegt og bar glöggt vitni frá- bærri smekkvísi hennar og ömggu fegurðarskyni, enda bar allt, sem hún gerði eða tók sér fyrir hendur vott þessara sömu eiginleika. Anna var söngelsk og hafði góða söng- rödd og var um skeið í söngkómm. Á fyrri ámm stundaði Anna heitin enskunám í Englandi um nokkurra mánaða skeið. Eftir um 18 ára hjúskap slitu þau Anna og Einar samvistum á árinu 1946, en hjónaband þeirra var bamlaust. Anna heitin bjó áfram á sama stað og eignaðist hluta húss- ins, sem þau höfðu átt. Skömmu síðar, eða á árinu 1947, fór Anna til náms í snyrtingu í Stokkhólmi, sem lauk með fullgildu prófí í grein- inni. Er heim kom setti Anna upp snyrtistofu í húsi sínu, sem hún rak síðan við góðan orðstír óslitið þar til heilsuna þraut fyrir 6—7 ámm. Anna heitin stundaði einnig fram- haldsnám í grein sinni í París og hlaut viðurkenningu fyrir. Þá vil ég víkja að því, að Anna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.