Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986 21 1.MAÍ ívar Már Kjartansson verkamaður í byggingar- iðnaði: „Frekar hlynnt- ur þessum samningum“ „Ég er frekar hlynntur þessum samningum, sjálfur fékk ég auka- kauphækkun hjá vinnuveitanda mínum, mér fannst ég eiga skilið að fá hærra kaup, bað um launa- hækkun og fékk hana þó taxtinn hafi lítið sem ekkert hækkað. Ég hef trú á að það takist að halda verðbólgunni í skefjum. Sjálfur hef ég það frekar gott, er með 35 þús- und krónur á mánuði, fékk mér ársfrí í menntaskólanum og ætla að taka upp þráðinn þar aftur næsta haust." Lilja Magnúsdóttir á saumastofu VIR: „Það er lítil bót í þessu“ „Mér finnst hafa tekist frekar lélega til með þessa samninga. Það er lítil bót í þessu. Fastakaupið hefur ekki hækkað nema um tæpar 1.000 krónur á mánuði og það sjá allir að það munar lítið sem ekkert um það. Það er auðvitað gott ef hægt er að draga úr verðbólgunni, en ég held það sé gert á kostnað launþega. Mér finnst afkoma mín erfið í dag, það þyrfti að hækka lágmarkslaun upp í 30 þúsund ef maður ætti að geta snúið sér við. Vörumar hafa líka hækkað bæði undan og eftir að samningar voru gerðir." Anna Lára Þorsteinsdótt- ir vinnur á skiptiborði Landspítalans: „Hef ekki orðið vör við verð- lækkanir nema á bensíni“ „Þessir samningar eru alveg út í hött, það er ekki hægt að lifa á laununum nema tveir vinni fyrir heimili. Mér finnst þó alveg sjálf- sagt að reyna að halda verðbólgunni í skeflum og ef hægt er að trúa þeim Þorsteini Pálssyni og Stein- grími Hermannssyni ætti að vera hægt að ná verðbólgunni niður og ég treysti þeim alveg til þess. En mér finnst dýrara að versla nú en áður, hef ekki orðið vör við verð- lækkanir nema á bensíni. Afkoma mín í dag er mjög slæm og vinnuað- staðan héma fyrir neðan allar hell- ur.“ Kjartan Lárusson bílstjóri hjáBSÍ: „Þessi stefna til bóta fyrir þjóð- félagið“ „Mér finnst hafa tekist vel til í síðustu samningum, en þó er ég ekki ánægður með þau laun sem Anna Lára Þorsteinsdóttir Hólmsteinn Jóhannsson Morgunbiaðið/Emilía bílstjórar hafa. Þessi stefna er til bóta fyrir þjóðfélagið og fólkið í landinu og ég fagna því að reynt sé að tryggja kaupmátt og minnka verðbólguna. Ég vona að þessi stefna gangi þegar til lengri tíma er litið, en get engu spáð um það. Við verðum að sjá til hvernig fram- vindan verður. Sjálfur hef ég verið að byggja frá 1979—80 og held að skuldabyrðin minnki með þessum nýju samningum. Þetta rúllar einhvem veginn hjá manni, en mér finnst ég ekki hafa orðið var við neinar verðlækkanir. Mér fannst það vera röng ákvörðun að lækka tollaverð á bílum um leið og þungaskattur er hækkaður á dieselbílum og fólk þar með hvatt til að kaupa sér nýjan bíl í stað þess að ferðast með almennings- farartækjum." Kristín Þorsteinsdóttir afgreiðslustúlka í ísbúð: „Finnst þetta miða í rétta átt“ „Mér líst bara vel á þessa samn- inga og fínnst þetta miða í rétta átt. Ég hef trú á þessari nýju stefnu og held að hún geti gengið. Þetta er miklu raunsærra en að hækka launin og hækka svo allt verðlag, það verður bara vítahringur. Ég er yfirborguð héma og ef ég væri að leita mér að vinnu myndi ég frekar sækja um hjá einkafyrirtækjum, frekar en að fá vinnu hjá ríki og bæ. Ég hef unnið hér frá því í vor er ég lauk stúdentsprófí, ætla að taka mér ársfrí úr skólanum áður en ég held áfram, en ég ætla að fara í félagsfræði í háskólanum í haust." RM LífeJS- sjóði verzlunarmanna Þessi auglýsing er birt til þess að kynna sjóðfélög- um Lífeyrissjóðs verzlunarmanna áhrif nýsam- þykktra laga um Húsnæðisstofnun ríkisins á láns- rétt þeirra hjá sjóðnum og Húsnæðisstofnun. Stjórn sjóðsins hefur tekið þá ákvörðun að veija 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins til kaupa á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar frá I.janúar 1987. Þessi ráðstöf- un mun tryggja sjóðfélögum hæsta mögulega lánsrétt hjá Húsnæðisstofnun frá og með næstu áramótum. Vakin er athygli á að ekki er unnt að tryggja jafnháan lánsrétt á tímabilinu 1. september 1986 til 31. des- ember 1986, eins og frá 1. janúar 1987, en frá þeim tíma er fullur lánsréttur tryggður. Því bendir stjórn sjóðsins væntanlegum lántakendum, sem hyggjast fá hámarkslán, á að fresta lántöku fram yfir nk. áramót. Til þess að tryggja sjóðfélögum hámarkslánsrétt hjá Húsnæðisstofnun var ekki hjá því komist að endur- skoða lánareglur sjóðsins. Eftirfarandi lánareglur munu því gilda frá og með 1. maí 1986: 1. Lánsupphæðkr. 150.000. 2. Lánstími 3—5 ár að vali lántakanda. 3. Tveir gjalddagar pr. ár. LÁNTÖKUSKILYRÐI: 4. Þriggja ára greiðslur til lífeyrissjóðs. 5. Fimm ár liðin frá síðustu lántöku. 6. Ekki um lánsrétt að ræða hjá Húsnæðisstofnun. Þeir aðilar sem lagt hafa inn lánbeiðni hjá Lífeyris- sjóði verzlunarmanna fyrir 1. maí 1986 fá hana afgreidda samkvæmt eldri lánareglum óski þeir þess. Upplýsingar og aðstoð við þá sjóðfélaga sem hyggja á lántöku hjá Húsnæðisstofnun verða veittar á skrif- stofu sjóðsins á 4. hæðíHúsi verzlunarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.