Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 10 ára:
Gefa listaverk til vist- og dvalarheimila
— „viljum styrkja unga listamenn“ segir Júlíus Sólnes formaður samtakanna
Samtök sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu eru 10 ára
um þessar mundir. Af því til-
efni gáfu samtökin 17 listaverk
í gær til vist- og dvalarheimila
á höfuðborgarsvæðinu. Enn-
fremur veittu samtökin viður-
kenningu til ungra listamanna
sem afhent var Nýlistasafninu
til varðveislu. Þá var í gær
veitt árleg viðurkenning sam-
takanna fyrir merkt framlag
til umhverfismála og hlaut
Vegagerð ríkisins hana í ár
fyrir frágang Reykjanesbraut-
ar og umhverfis hennar. Einnig
hlutu Ferðafélag Islands, Uti-
vist og Náttúruverndarsamtök
suð-vesturlands viðurkenning-
ar - styttur eftir Hallstein Sig-
urðsson - fyrir framlag til nátt-
tirukynningar svæðisins með
skipulögðum ferðum.
Gestur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri skipulagsdeildar höfuðborg-
arsvæðisins, sagði í samtali við
blaðamann að samtökin hefðu
haldið sýningar á listaverkum
ungra og efnilegra listamanna
undanfarin ár í húsakynnum sín-
um og kynntu hvem þeirra í riti
um skipulagsmál sem gefin eru út
nokkrum sinnum á ári. Síðan
hefðu samtökin keypt eitt lista-
verk af hveijum þeirra fyrir aug-
lýsingatekjur af ritinu og væru
nú listaverkin orðin alls 17 talsins
í eigu samtakanna.
Júlíus Sólnes, formaður stjórn-
ar samtakanna sagði við afhend-
ingu verkanna að markmið sam-
takanna væri alls ekki listaverka-
söfnun, en þó fyndist sjálfsagt að
styðja við bakið á ungum og
efnilegum listamönnum. „Þetta
er ákaflega fyrirhafnalítið fyrir
okkur, en öllum til ánægju og ég
hvet aðrar slíkar stofnanir að fara
að okkar dæmi til að styðja við
bakið á listamönnunum. Þeir eru
jú hluti af okkar menningarlega
umhverfí og við þurfum að styðja
þá. Nú á 10 ára afmæli samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu þótti okkur tilhlýðilegt að gefa
safnið til vist- og dvalarheimila
þar sem ijármagn þar er e.t.v.
ekki til staðar fyrir kaup á lista-
verkum," sagði Júlíus.
Þau heimili sem fengu lista-
verkin til eignar eru: Vistheimili
barna Dalbraut 12, Neyðarat-
hvarf unglinga Tjarnargötu 35,
Neyðarathvarf unglinga Kópa-
vogsbraut 17, Uppeldis- og með-
ferðarheimili Reykjavíkur Sól-
heimum 7, Sambýlið Sólheimum
17, Fjölskylduheimilið Akurgerði
20, Fjölskylduheimilið Búðargerði
9, Fjölskyiduheimilið Reynilundi
4, Sambýlið Vallargerði 26, Vist-
heimilið Skólagerði 6, Sambýlið
Klettahrauni 17, Kópavogshæli,
Mæðraheimilið Sólvallagötu 10 og
Kvennaathvarfið.
Listaverkin eru eftir: Ómar
Skúlason, Örn Þorsteinsson,
Helga Þorgils Friðjónsson, Sigr-
únu Eldjárn, Sigurð Örlygsson,
Magnús Tómasson, Þórð Hall,
Gunnar Örn, Þorbjörgu Höskulds-
dóttur, Einar Hákonarson, Björgu
Þorsteinsdóttur, Þórð Ben Sveins-
son, Magnús Kjartansson, Guð-
berg Auðunsson, Hallstein Sig-
urðsson, Rúrí og Steinunni Þórar-
insdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Júlíus Sólnes, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, afhenti listaverkin. Að baki
honum stendur Gestur Ólafsson, framkvæmdastjóri skipulagsdeildar höfuðborgarsvæðisins.
Háskólakennsla á Akureyri 1987:
„Við höfum brotið reyk-
víska háskólamúrinn“
— sagði Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra á fundi á Akureyri
Akureyri.
„ÞAR MEÐ er háskóli á Akureyri
ekki lengur orð. Akvörðunin er
tekin. Við þurfum ekki lengur
að kveinka okkur yfir umræðum
um þessi mál,“ sagði Halldór
Blöndal, alþingismaður og for-
maður nefndar um nám á há-
skólastigi á Akureyri, á almenn-
um stjórnmálafundi hjá Sjálf-
stæðisfélögunum á Akureyri í
fyrrakvöld er hann greindi frá
þeirri ákvörðun Sverris Her-
mannssonar, menntamálaráð-
herra, að veita leyfi til þess að
kennsla á háskólastigi hæfist hér
í bænum haustið 1987 og Morg-
unblaðið greindi frá í gær.
Það er kennsla í iðnrekstrarfræð-
um sem Sverrir hefur gefið leyfi
fyrir. Að sögn Halldórs hefur
kennsla í iðnrekstrarfræðum verið
mjög vinsæl í Tækniskólanum í
Reykjavík. Það sé hagnýtt nám
fyrir t.d. þá sem reka smáfyrirtæki.
Námið er viðskiptafræðilegs eðlis
og tengist einnig iðnbrautum.
Sverrir kom „færandi
hendi“ á fundinn
Alþingismennirnir Bjöm Dag-
bjartsson og Halldór fluttu fram-
söguerindi á fundinum í fyrrakvöld
og menntamálaráðherra kom þang-'
að sem sérstakur gestur. Og hann
kom þangað „færandi hendi“ eins
og Halldór sagði: hann færði Bern-
harð Haraldssyni, skólameistara
Verkmenntaskóians, bréf þar sem
leyfið var gefið og Halldór tilkynnti
það. Fundarmenn sýndu hrifningu
sína á ákvörðun ráðherra með miklu
lófataki, en Sverrir var hógværðin
uppmáluð er hann sté í pontu. Hann
sagði þó: „Öllum þykir hólið gott
og mér líka,“ en bætti svo við: „Það
hefði enginn getað orðið svo aumur
menntamáiaráðherra sem settist i
stólinn er ég gerði það að hann
hefði ekki tekið þessa ákvörðun.
Við höfum nú brotið reykvíska há-
skólamúrinn og það er sjálfsagður
hlutur. Mér finnst það með ólíkind-
um að árið 1986 skuli enn vera til
menn sem stingi við fótum þegar
rætt er um háskólakennsiu á Akur-
eyri.“ Sverrir sagðist myndi taka
fyrir hjúkrunarfræðinám á háskóla-
stigi aiveg á næstunni og var bjart-
sýnn á að kennsla í því gæti hafist
fljótt hér í bænum.
Nóg af fólki til kennslu
Lagður var fram á fundinum
langur listi, sem háskólanefndin á
Akureyri undir forystu Tómasar
Inga Olrich hefur tekið saman, um
fólk sem hefur réttindi til að vinna
að kennslu á háskólastigi í hinum
ýmsu greinum og hefur sýnt því
verkefni áhuga þannig að ekki
skortir kennaraaflið.
Halldór Blöndal upplýsti á fund-
inum að hann hefði rætt við for-
ráðamenn Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna, Félags íslenskra
iðnrekenda og SÍS um að þeir tækju
þátt í kennslu í matvælafræðum á
háskólastigi á Akureyri og hefðu
þeir tekið erindinu vel. Hefur hann
nú ritað þessum aðilum bréf vegna
þessa og má búast við að fljótlega
verði ljóst hvort af náminu verði í
samvinnu við þessa aðila eður ei.
Mjólkín í
leikskólana
STJÓRN Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík hefur ákveðið að lána
öllum leikskólum á höfuðborgar-
svæðinu og nágrenni sem það
vilja kælikistur. Er það gert í
þeim tilgangi að börnin geti átt
kost á kaldri mjólk í leikskólun-
um.
Oddur Helgason sölustjóri Mjólk-
ursamsölunnar sagði að börnin ættu
ekki kost á kaldri mjólk í leikskólun-
um og tækju þá frekar aðra drykki
með að heiman frá sér. Starfsmenn
Samsölunnar hefðu hins vegar orðið
varir við mikinn áhuga hjá því hjá
leikskólunum að fá þessa aðstöðu,
ekki síst undanfarnar vikur í þeim
umræðum sem verið hafa um mjólk-
ina.
A þessu svæði eru um 40 leik-
skólar með um 4.000 börnum.
Nokkur fyrirtæki
hafa lækkað vörur
segir Olafur Davíðsson
framkvæmdastjóri iðnrekenda
„VIÐ höfum fyrst og fremst
lagt á það áherslu að fyrirtækin
héldu sinum verðum óbreyttum
og að kjarasamningarnir gæfu
ekki tilefni til verðhækkana en
menn reyndu þó að lækka verð-
in eftir því sem tilefni gæfust.
Það held ég líka að menn hafi
gert,“ sagði Ólafur Davíðsson
framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra iðnrekenda þegar leit-
að var álits hans á þeim ummæl-
um Georgs Ólafssonar verð-
lagsstjóra að tregðu hefði gætt
hjá ýmsum fyrirtækjum að
lækka framleiðsluvörumar.
Ólafur sagði að mikil óvissa
hefði ríkt um það í upphafí hvaða
tilefni gæfust til verðlækkana á
vörum og væri svo enn. Hann
sagði að ýmis fyrirtæki hefðu nýtt
sér möguleika til verðlækkana og
átti von á að fleiri gerðu það á
næstunni. Það réðist þó af ýmsum
ytri aðstæðum, svo sem þróun
gengismála og verðþróun á hrá-
efnum. Hann sagði að menn væru
varkárari en ella að taka þá
áhættu sem fylgdi verðiækkunum
vegna óvissunar í gengismálun-
um. Einnig virtist sem lækkun á
þeim hráefnum sem unnin væru
úr olíu skiluðu sér seinna en búist
var við og drægi það úr möguleik-
um manna til að lækka vörurnar.
bOð
FAlTEIGnflfAlA
VITflJTIG IJ,
Jimi 26090
26065.
BOLLAGATA. 2ja herb. íb. 45
fm. Samþ. V. 1300 þús.
SÓLVALLAGATA. Einstakl-
ingsíb. 30 fm. V. 950 þús.
EYJABAKKI. 2ja herb. íb. 65 fm.
Sérþvh. á hæðinni. V. 1750 þ.
BRÆÐRABORGARST. 2ja-3ja
herb. ih. 75 fm. V. 1850-1900 þ.
RAUÐARÁRSTÍGUR. 2ja herb.
íb. 65 fm. Góð íb. V. 1550 þús.
GAUKSHÓLAR. 2ja herb. íb. 60
fm. Sérþvottah. á hæðinni. V.
1650 þús.
FRAKKASTÍGUR. 2ja herb. íb.
55 fm + bilskýli. V. 1850-1900 þ.
FURUGRUND. 3ja herb. íb. 100
fm. Vinkilsvalir. Fallegt úts. V.
2,3 millj.
NJÁLSGATA. 3ja herb. íb. 60
fm. V. 1650 þús.
ORRAHÓLAR. 3ja herb. falleg
íb. 90 fm. Suðursv. Fallegt úts.
HRAUNBÆR. 3ja herb. falleg
íb. 90 fm. Sérþvottah. V. 2,2 m.
DIGRANESVEGUR. 4ra herb.
íb. 120 fm. Bílskr. V. 2,8 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR. 5 herb. íb.
140 fm. Fráb. úts. V. 3150 þús.
SKÓLAGERÐI. 4ra herb. íb. 80
fm. 50 fm bílsk. V. 2,5 millj.
DALSEL. 4ra herb. íb. 115 fm.
Fallegar innr. Bílskýli. V. 2,7 m.
HÁALEITISBR. 4ra herb. 100
fm + bílsk. V. 2,7 m.
BERGSTAÐASTRÆTI. 4ra-5
herb. íb. 130 fm. Fráb. úts.
Hentar einnig fyrir skrifst.
SUÐURGATA HAFN. 4ra-5
herb. íb. á 1. hæð, 160 fm auk
bílsk. Hornlóð. Suðursv.
FRAMNESV. 3ja herb. íb. Tilb.
u. trév. í nýbygg. Uppl. á skrifst.
HRÍSATEIGUR. 4ra herb. íb. 85
fm.V. 1850 þ.
MARÍUBAKKI. 4ra herb. falleg
íb. 100 fm. Suðursv. V. 2450 þ.
BRÆÐRATUNGA KÓP. 150 fm
raðh. 60 fm bílsk. V. 3850 þús.
KJARRMÓAR GB. 150 fm raðh.
25 fm bílsk. Úts.V.3850 þ.
YRSUFELL. 160 fm raðh. +
bílsk. V. 3750 þús.
LANGHOLTSV. Raðh. á þrem-
ur hæðum 250 fm í nýbyggingu.
Verð 3850 þús. Til afh. strax.
KALDASEL. Raðh. á 3 hæðum
310 fm. 30 fm bilsk. Uppl. á
skrifst.
BARRHOLT MOS. Einbýlish.
150 fm á einni hæð. Stór bílsk.
Glæsil. innr. Verð 4,5 millj.
ARNARHRAUN HAFN. 230 fm
einbýlish. Bílsk.r. Verð4,8 m.
GRETTISGATA. Einbýlish. 130
fm. Góðar innr. Parket. Eignar-
lóð. Verð 2950. Laust.
HÓFGERÐI. 140 fm einbýlish.
40 fm bílsk. Falleg lóð. V. 4,5 m.
HLÍÐARHVAMMUR. Einbýlish.
125 f m. 30 f m bílsk. V. 4,1 m.
KÖGURSEL. Glæsil. einbýlish.
240 fm. Glæsil. innr. Hús í sér-
flokki. V. 4,8 millj.
Skoðum og verðmetum
samdægurs.
Fjöldi annarra eigna á skrá I
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson.
HEIMASÍMI: 77410.