Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 28
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 28 Bænadagurinn á sunnudag: Friður sem heimurinn hvorki megnar að gefa né burtu taka Hinn árlegi bænadagur þjóð- kirkjunnar er á sunnudaginn 4. maí. Bænarefnið er að þessu sinni tengt friðarári Sameinuðu þjóð- anna. Biskup íslands hefur skrifað prestum og söfnuðum landsins vegna bænadagsins og fer bréf hans hér á eftir: Hinn almenni bænadagur, 5. s.e. páska er sunnudaginn 4. maí nk. Með ákvörðun Sameinuðu þjóðanna hefur heimsbyggðin helgað þetta ár friði á jörð. Sú einsetning var eigi að ófyrirsynju, því að heiminum er nú meir friðar vant en nokkru sinni áður. Styijaldir, skæruhemaður og hryðjuverkastarfsemi hijáir mann- kynið. Þó er augljóst, að við eigum engra annarra kosta völ en að tryggja friðsamlega sambúð þjóð- anna. Að hyggja á hefndir er versta leiðin til þess að leiðrétta ranglætið. Öryggi og friður er dýpsta þörfín, sem maðurinn fær fullnægt í krist- inni trú. „Því að hann (þ.e. Jesús Kristur) er vor friður." (Ef. 2:14.) í Kristi og ríki hans, sem ekki er af þessum heimi, er að finna hinn eina sanna frið. Því hefi ég valið deginum bænarefnið, að biðja um þann frið, sem heimurinn megn- ar hvorki að gefa né burtu taka. Öllum hugsandi mönnum ætti að vera orðið það ljóst, að stríð eða vald getur ekki leyst mannkynið frá þeim hörmungum, sem það hefur ratað í. Friðarbænin líður eins og andvarp frá bijóstum milljón- anna um víða veröld. Orðið friður er dregið af sömu rót og sögnin að frjá, — þ.e. að elska, og í þeirri merkingu kemur lausnarorðið til hins hijáða heims. Friður er líf í kærleika, þar sem eigingimi, hatur og reiði drottnar ekki lengur í hjart- anu. Friður Jesú þýðir ekki það að firra manninn erfíðleikum, heldur að takast jákvætt á við þá með kærleiksríku hugarfari. Sá friður er ekki uppgjöf eða sátt við of- beldið, mannlega niðurlægingu og neyð. Hann er ekki kyrrstaða heldur barátta, ekki sjálfsánægja heldur sjálfsfóm, ekki þýlund við heiminn heldur andstaða gegn því illa í hvaða mynd sem það birtist. Kristur er sjálfur gjöf þessa frið- ar er hann segir: „Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist." (Jóh. 14:27.) Trúin er persónulegt samband einstaklings- ins við Krist til þess að öðlast þennan frið. Eins og heiminum er nú hætt, er þeim mun meiri ástæða til að sameinast í bæn um þann frið, sem heimurinn er hvorki fær um að gefa né burtu taka. Tækifærin, sem ■gæðanna vegna! iHgmpí!gm% Dala- og Öðalspylsurnar eru tilvalinn kostur í hversdagsmatinn . \ • ódýrar og matseldin er barnaleikur! gefast til þeirrar bænariðju, em hveijum manni dýrmæt. I almennri umfjöllun vandamála heimsins örlar lítið og sjaldan á þeim hugsjónum mannúðar og mildi, sem einar geta gert okkar gömlu jörð að varanleg- um samastað hamingju og friðar. Gemm bænadaginn að vakningu friðar með hvatningu postulans í huga: „Látið frið Krists ríkja í hjört- um yðar.“ (Kól. 3:15.) Pétur Sigurgeirsson Benóný Ásgrímsson í einu af fyrstu flugferðum nýju gæsluþyrl- unnar TF-GRO. Landhelgisgæslan: Nýja þyrlan í æfingaflugi HIN nýja þyrla Landhelgis- gæslunnar, TF-GRO, fór í sitt fyrsta flug hér á landi á sumar- daginn fyrsta. Fyrstu vikurnar fara í að þjálfa fjóra flugmenn Landhelgisgæslunnar i með- ferð hennar. Reiknað er með að því ljúki í mánuðinum og þyrlan fari þá í vinnu fyrir Landhelgisgæsluna. Benóný Asgrímsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, var fyrstu dagana að æfa sig á þyrl- unni og mun hann síðan þjálfa þijá aðra flugmenn gæslunnar í stjóm þyrlunnar. Síðan fara þeir á varðskip og æfa sig þar á þyrl- unni. Þessum æfingum á að ljúka í mánuðinum og síðan er gert ráð fyrir að þyrlan fari í sitt fyrsta verkefni. Benóný sagði í samtali við Morgunblaðið að þyrlan hefði reynst vel og kvaðst hann vera mjög ánægður með hana. Bo.ízani reretoj jTrento GARDAVATN iBergamo Padova Til Verona Vicenza I um 'h klst. akstur. Mantova Til Padova um 1 klst. akstj Til Feneyja um 1 'h klst.A \ Til Florenz um 4 klsti^J Floren; i/A\(l[D)i«mTO] BEINT SUMARIBUÐIRNAR okkar viö hiö undurfagra GARDAVATN á ÍTALÍU eru í algjörum sérflokki og staösetning þeirra í bænum DESENZANO á besta staö við suðurenda vatns- ins skapa óteljandi skemmtilega möguleika. VERÐ FRA KR. 28.200.— 3 VIKUR Ef þú vilt mikla og stórkostlega náttúrufegurð í skjóli ítölsku Alpanna og útsýni út yfir stærsta og fegursta stööuvatn Ítalíu, kyrrð og ró og alveg örugga sólardaga, þá er þetta staöurinn fyrir þig. Boðið er upp á skoðunarferðir, t.d. til VERONA, skoðun listaverka FLORENS- BORGAR og FENEYJA eða ferð til INNSBRUCK í AUSTURRÍKI og svo mætti lengi telja. Möguleikarnir eru of margir til þess að telja þá upp hér. Fyrir þá sem vilja líf o_g fjör, er allt mögulegt til skemmtunar á næsta leiti svo sem CANEVA-vatnsleikvölluririn og GARDALAND einn stærsti skemmtigarður ÍTALÍU ( sannkölluðum DISNEY-land TÍVOLÍ stfl, einnig SAFARI-garður með villtum dýrum o.m.m.fl. Öll aðstaða til sunds, sólbaða og seglbrettasiglinga er hin ákjósanlegasta. Góðir og ódýrir veitingastaðir eru á hverju strái og að sjálfsögðu diskótek. / GARDAVATNSFERÐIR OKKAR HEFJAST: 10. júní l.júlí 22. júlí 12.ágúst vikur 3 vikur vikur 3 vikur Milano DESENZANO Til Milano um 114 klst akstur Til Genova um 3 klst •74-: Af þeim mörgu fallegu stöðum sem ÍTALÍA hefur upp á að bjóða er GARDAVATN ( algjörum sérflokki. Þetta stærsta og fegursta vatn ÍTALÍU, 370 km 2 er meira en fjórum sinnum stærra en Þingvaliavatn. Öllum verður ógleymanleg skemmtisigling með við- komu á fjölda staða meðfram ströndinni eða stórkostleg bílferð eftir hinni víð- frægu GARDESANA útsýnishring- braut sem opnuð var 1931 umhverfis vatniö. Þess má geta að GARDAVATN hefur orðið íslenskum skáldum yrkis- efni, eins og Jóhanni Sigurjónssyni og Gísla Ásmundssyni. - KONUNGLEGAR FERÐIR A GJAFVERÐI — BERIÐ SAMAN OKKAR VERÐ OG ANNARRA ÞESSAR MYNDIR TALA SÍNU MÁLI. sumar bjóðum við dvöl á nýjum stað í bænum DESENZANO í ennþá skemmti- legri íbúðum en áöur. Unnendur sumar- húsa norðar í Evrópu kunna sannarlega að meta aðstöðuna hér (þessum íbúöum sem viö höfum valið. TEfenr SÍMI 297 40 OG 6217401 ^[jpTerra LAUGAVEGI 28 101 RE STAÐFESTINGARGJALD MA^AÐ SJALFSOGÐU GREIÐA MEÐ VISA EÐA EURO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.