Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAI1986
41
Pressens Bild/Símamynd
Sænska konungsfjölskyldan, Silvia og Karl Gústaf ásamt börnum
sínum þremur. Þau eru Karl Filip prins, Madeleine prinsessa og
Victory prinsessa.
Karl Gústaf Svíakonungnr fertugur:
Þriggja daga hátíða-
höld vegna afmælisins
Stokkhólmi. AP.
KARL GÚSTAF XIV Svíakonungur varð fertugur í gær, síðasta
dag aprílmánaðar. Kóngafólk víðs vegar úr Evrópu kom til að
samfagna honum á þessum tímamótum, en auk þess heilsuðu
upp á hann þúsundir landsmanna hans og einn órangútan-api
austan frá Singapore.
Margt konungsborins fólks og
ættingja Karls Gústafs er nú
samankomið í Stokkhólmi vegna
afmælisins, en hátíðahöldin
standa í þijá daga. Verður m.a.
sjónvarpað að hluta frá afmælis-
veislunni og einnig frá dansleik,
sem haldinn var á Drottningar-
hólmi í nótt, aðfaranótt Valborg-
armessu. Meðal gestanna verða
t.d. Balvin, Belgíukonungur, og
drottning hans, Fabiola; Jóhann
Karl, Spánarkonungur, og Soffía,
drottning hans; Júlíana, fyrrum
Hollandsdrottning og maður
hennar, Bemharður prins; Mar-
grét, drottning Dana, og Henrik
prins; Albert, prins af Mónakó og
þýskur frændi konungs, Friedrich
Josias prins af Sachen-Coburg.
Þá er ótalinn sænski aðallinn og
frammámenn í sænsku þjóðlífi.
Karl Bretaprins og Díana gátu
ekki komið vegna opinberrar
heimsóknar í Kanada.
Þúsundir Svía söfnuðust í
gærmorgun við konungshöllina í
Stokkhólmi til að hylla konung
sinn, en mesta athygli vakti þó
þegar órangútan-api frá Singap-
ore bar Karli Gústaf kveðju stjórn-
valda austur þar á mjög hoff-
mannlegan hátt.
Bandaríkjaforseti í Indónesíu:
Ræðir við utanrík-
isráðherra Suðaust-
ur-Asíubandalagsins
Bali, Indónesíu. AP.
RONALD Reagan Bandarikja-
forseti, sem staddur er í Bali í
Indónesiu, situr í dag fund með
æðstu embættismönnum aðalvið-
skiptalanda Bandarikjanna i
Suðaustur-Asíu. Ekki er búist
við, að hann muni vekja máls á
brottrekstri áströlsku blaða-
mannanna, sem indónesisk
stjórnvöld ömuðust við vegna
greinaskrifa þeirra um Suharto
Indónesiuforseta og fjölskyldu
hans.
Bandaríski sendiherrann í Indó-
nesíu, Paul Wolfowitz, afhenti indó-
nesískum embættismönnum yfirlýs-
ingu, þar sem látnar voru í ljós
áhyggjur út af brottrekstri blaða-
mannanna.
Bandarískir embættismenn
sögðu enn fremur, að Reagan
mundi ekki heldur vekja máls á
öðrum mannréttindamálefnum eins
og því, sem kallað hefur verið í
Indónesíu „dularfullu morðin" á
meintum glæpamönnum, eða
stjórnmálakúguninni á Austur-
Timor.
í dag situr Reagan fund með
utanríkisráðherrum Suðaustur-
Asíubandalagsins. Aðildarríki þess,
auk Indónesíu, eru Filippseyjar,
Thailand, Singapore, Brunei og
Malaysía.
I gær sagði Salvador Laurel,
varaforseti Filippseyja, að Reagan
forseta gæfíst kostur á að kveða
upp úr um það á fundi þeirra í
dag, hvort hann styddi enn þá
Ferdinand Marcos, fyrrum forseta
Filippseyja, eins-og sumir af and-
stæðingum nýju stjórnarinnar þar
héldu fram. „A morgun ætti ég að
geta fengið þetta á hreint,“ sagði
Laurel á fundi með fréttamönnum.
RAINBOW
NAVICATJOi
m
r
Beinar siglingar milli Njarðvikur og Norfolk með M.v. .RAINBOW HOPE'
Flytjum stykkja-. palla- og gámavöru, fvrstiuöru og frystigáma
Umboðsmenn okkar eru
t to;
Cunnar Guðjónsson sf
Hafnarstræti 5
PO Box 290
121 Reytjavik
simi 29200 Telex 2014
Mendian Ship Agency. inc
201 E Citv Hall Ave. Suite 501
Norfolk Va 25510
USA
Simi (8041-625-5612
Telex 710-881-1256
Áætlun: Lestunardagar
NJARÐVÍK — NORFOLK
29. apríl
9. maí 19. maí
29. maí 8. júní
(jfc Rainbow
Navigationjnc.
20%
VERÐLÆKKUN
ÁKÖKUM
Frá 1. maí tekur gildi nýr verðlisti,
engin verðhækkun, en 20% lækkun
á flestum vörum.
BAKARIIÐ KRINGLAN
Dalshrauni 13.
Sími 53744.
Beykisófasettin frá VIÐJU eru stílhrein, vönduð
og með endingargóðum ullaráklæðum.
9 “"aráklædi
UTB°*<su
HUSGAGNAVERSLUNIN
Þar sem
góðu kaupin
gerast
Smiðjuvegi 2 Kopavogi
simi 44444