Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986 49 Flakið af TF-RÁN híft um borð í Óðin. Buffborgarar frá Hrímni á Akureyri Akureyri. v sem næst uppi í landsteinum í svarta myrkri um miðjan vetur þarna í eyðisveitum Jökulfjarða. Hífingaræfingar með þyrlu frá skipi að nóttu eru eitt það vanda- samasta verk sem hugsast getur og því þarf að undirbúa verkefnin mjög vandlega, enda var það aðal- tilgangur ferðarinnar vestur að sögn. Undirbúningurinn fyrir gæsluflug- og hífinga- ræfingar Svona lýsir skipherrann fyrir sjó- rétti undirbúningi fyrir þetta vanda- sama flug. „Við tókum okkur mat- inn fyrst og síðan gerðum við svona sjá áætlun. Hún var þannig að gera æfmgarnar þama fyrst, svona um 10.30 leytið, eða hringja út til þyrluæfinga um 10.30 leytið, og að þeim loknum þá færi hún í land- helgisflugið. Við ætluðum þetta svona 2 til 2 ‘Aklukkustund og síðan ætluðu þeir að hvílast um borð og fara í Galtarvita daginn eftir“. (Með tóma eldsneytistanka, innsk.GJ) í skriflegri skýrslu skipherrans á Óðni til yfirborgardómarans dag- setta 18. nóv. 1983, segir „Fyrir- hugaðar voru hífingaræfíngar á mönnum frá skipinu", þetta ber að hafa í huga þegar framburðir skip- herrans og 2. stýrimanns eru skoð- aðir í samhengi. Framburður 2. stýrimanns er ekki beint í samræmi við framburð skipherrans. Svona lýsir stýrimað- urinn undirbúningi fyrir hífíngaræf- inguna. „Fyrir flugtakið þá ræddi ég við flugmennina, hvemig standa ætti að því í sambandi við hífínga- ræfíngu sem stóð til, aðallega hvað ætti að nota til að hífa upp eða niður. Það varð úr að valin var samanbrotin sjúkrakarfa sem er í þyrlunni, hún var skilin eftir, síðan áttu þeir að fara í loftið koma svo inn og taka hana upp og slaka henni niður og þess háttar". Karfan hefði átt að vera um borð í þyrlunni eins og alltaf, svo vírinn fyki ekki í aðalþyrlublöð eða stél- blöð þyrlunnar. Björgunarferð með þyrlu gengur þannig fyrir sig að þyrlan er kölluð að skipi þar sem maður hefur slasast, frá þyrlunni er sjúkrakarfan látin síga í vír niður á skipið hinum slasaða komið fyrir í körfunni, híft upp og flogið á næsta sjúkrahús. Karfan er í öllum tilfellum um borð í þyrlunni, bæði við æfíngar . og í raunverulegu sjúkraflugi og er látin síga frá þyrlunni og niður og ber að hafa það í huga við eftirfarandi lýsingu yfírmanna Landhelgisgæslu Islands á staðsetningu körfunnar við fyrir- hugaða hífingaræfingu. Ollum yfírmönnum varðskipsins ber saman um það að slysið hafí orðið rúmri mínútu eftir flugtak og ber að hafa það í huga þegar 2. og 3. stýrimaður halda áfram að lýsa því hvemig hífa átti sjúkra- körfuna upp og niður. 2. stýrimaður: „Eftir flugtakið þá fór ég að huga að því að útnefna tvo menn til þess að vera í hringn- um, lendingarhringnum aftur á, þar sem æfíngin átti að fara fram. Ég var með heymartólin á mér og var í sambandi við þyrluna í flugtaki, til þess að heyra hvað þeir hefðu að segja, ef ég þyrfti að spyija eitthvað, af því að ég vissi að hún var í fjarskiptasambandi við brúna ef að eitthvað þyrfti að koma á milli, þá ýtti ég heymartólunum fram á gagnaugun og fór að gefa þeim fyrirmæli um það sem .. ., þá heyrði ég í þyrlunni að hún kallar eitthvað tvennt ólíkt og eftir á að hyggja þá var þetta örugglega Mayday, Mayday, en ætli undirmeð- vitunin hafí eiginlega viljað trúa því, nema ég setti á mig heymartól- in aftur og bað strákana um að — einn ætlaði að spyija mig að ein- hveiju einmitt um það leyti sem ég set heyrnartólin á mig aftur ég bað hann að bíða aðeins og var að reyna að hlusta hvort að það kæmi eitt- hvað aftur kall. Ég beið aðeins átekta, kallaði svo upp í brúna á loftskeytamanninn og spurði hvort þeir hefðu heyrt eitthvað kall". 3. stýrimaður hafði þetta að segja um atburðina. „Síðan var ég með bátsmanni að gera tilbúna sjúkra- körfuna sem átti að æfa hífingar á. Við vorum að snúa okkur að koma þessu út á dekk sem ácti að æfa að hífa þegar ljóst var að það var eitthvað að. Ég horfði á eftir þyrl- unni í smá tíma, en ekki allan tím- ann“. Þriðji stýrimaður er því bæði að horfa á eftir þyrlunnu um leið og hann er að aðstoða 2. stýrimann við að koma sjúkrakörfunni úr á dekk, en annar stýrimaður var á sama tíma að útnefna tvo menn til þess að vera í hringnum, lendingar- hringnum aftur á þar sem æfingin átti að fara fram um leið og hann var að hlusta eftir þyrlunni, þá ýtti hann heyrnartólunum fram á gagn- augun og fór að gefa þeim fyrirmæli sem stóðu og horfðu á þyrluna farast, þeim hinu sömu sem hvergi koma við sögu í sjórétti, þeim sem voru aðalvitnin í þessum flugslysi en koma ekki fram í sjórétti sem haldin var er þyrlan TF-RÁN fórst undan Höfðaströnd við Jökulfírði. Hásetarnir tveir á dekki sem báðir vildu fara með þyrlunni í hífinga- ræfíngu á mönnum, en var hafnað af flugstjóra og skipherra varð- skipsins Óðins og er það ekki í samræmi við yfirlýstan tilgang skipherrans um hífíngaræfingar á mönnum. Allur yfirlýstur tilgangur stjóm- stöðvar Landhelgisgæslu íslands fyrir Sjóréttj um síðasta flug þyrl- unnar TF-RÁN fær því ekki staðist. Það er mikill munur á því að þyrlan skuli vera að fara í hífíngar- æfíngar á mönnum við uppgefnar aðstæður eða að þyrlan og áhöfn hennar hafí orðið að yfírgefa skipið í flýti vegna fárveðurs. Það kemur skýrt fram í sjóferða- bók Óðins að veður fór versnandi frá kl. 16. Kl. 15. var ASA-3 vind- stig og hálfskýjað. Kl. 16. var vind- ur SSA-6 vindstig og skýjað. Þegar þyrlan lendir á skipinu kl. 17.41 er S-6 og skýjað eða um og yfír 30 hnúta vindur þar sem skipið var í skjóli undan Höfðaströnd. Þegar þyrlan fer í loftið kl. 22.53 þá var SSV-7 vindstig og él. Við þessar aðstæður ætluðu starfsmenn I-and- helgisgæslu fslands í hífíngaræf- ingar á mönnum og síðan í land- helgisgæsluflug á eftir. Það er komið þarna vonsku veður og ísing- arhætta fyrir þyrluna. Ekki batnaði veðrið um nóttina og langt fram á næsta dag allt til kl. 17.00. Síðasta flug þyrlunnar TF-RÁN (virkar á mig sem) algjört tilgangs- leysi, því yfirlýstur tilgangur flugs- ins er svo óraunverulegur galeiðu- þrældómur fyrir áhöfn þyrlunnar að með ólíkindum má teljast. Upp- gefín dagskrá frá yfírstjóm Land- helgisgæslu íslands hljóðaði upp á 17 klukkustunda vinnudag í vikulok fyrir þyrluna og áhöfn hennar um miðja nótt og langt fram á morgun. Það var engin flugáætlun gerð og það var engin vakt í stjómstöð Landhelgisgæslu íslands þessa nótt sem fara átti í Landhelgisgæsluflug í myrkrinu út af Vestfjörðum. Þegar þyrlan fór frá Óðni 8. nóv. 1983 þá átti hún líklega að fara á ísafjörð, þar sem hún upphaflega átti að vera. Hugsanlega var þyrlan í ómerkilegri sendiferð fyrir skip- herra Landhelgisgæslu ísiands, en þessa erindisleysu þyrfti að ranns- aka nánar. Höfundur er flugmaður og hefur starfað á Sikorsky og Bell þyrlum í Grænlandi, Malasíu ogNoregi. Hann starfaði einnig um skeið í rannsóknardeild Skattsjórans í Reykjavik. HRIMNIR sf., kjötiðnaðarfyrir- tæki á Akureyri, kynnti blaða- mönnum á dögunum nýjung á íslenskum matvælamarkaði: buffborgara. I fréttatilkynningu frá Hrímni segir m.a.: „Hrímnis-buffborgarar eru einungis framleiddir úr úrvals hráefni. Um tveir þriðju hlutar buffborgarans eru fyrsta flokks nautakjöt, UN 1 (ungnautakjöt 1. flokkur) auk grísakjöts og gæða- próteins en á það má minna að lyftinga- og vaxtarræktarmönnum þykir mikilvægt að hafa sem mest af próteini í fæðu sinni. Hrímnis- buffborgarar em því holl fæða.“ Buffborgaramir verða seldir í umbúðum sem innihalda fjögur stykki og reiknuðu forráðamenn Hrímnis með því að pakkinn yrði seldur á 120-140 krónur út úr búð. Þess má geta að hver borgari er um 100 grömm eða nokkuð stærri en venjulegur hamborgari. Eigendur Hrímnis sf. em Guð- mundur Kr. Guðmundsson og Jakob Haraldsson kjötiðnaðarmeistarar. Starfsmenn fyrirtækisins nú em sex talsins. Heildverslun Valdimars Baldvinssonar á Akureyri dreifir NORRÆN vika var sett á Amts- bókasafninu á Akureyri á sunnu- daginn að viðstöddum boðsgest- um. Það var Knut Odergaard, forstjóri Norræna hússins, sem setti vikuna. í safninu hangir uppi sýningamar “Þjóðsagnamyndir Ásgrims Jóns- sonar" og “Tónlist á íslandi" og kynnti Hrafnhildur Schram, for- stöðumaður Ásgrimssafns, myndir Ásgrims. Við opnunina kynntu Páll vömnni Norðanlands en samningar standa yfir við dreifíngaraðila í Reykjavík. Fiskiðn Morgunblaðið hefur borizt eftir- farandi frá Fiskiðn: „Föstudag- inn 17. apríl sl. hélt Fiskiðn ráð- stefnu sem bar yfirskriftina - framtíð íslensks fiskiðnaðar. Meðal fyrirlesara var Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðv- ar Hraðfrystihúsanna. Erindi hans var birt í Morgunblaðinu þ. 18. apríl og í fyrirsögn þess kom fram að hinn almenni fisk- iðnaður stæði fyrir ráðstefnu þessari. Hið rétta er að Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins hélt ráð- stefnu þessa. Fiskiðn er fagfélag fískiðnaðar- ins sem hefur þau markmið, að stuðla að bættum námsskilyrðum félagsmanna sinna, stuðla að um- bótum í fískiðnaði og sameina þá menn sem geta orðið félagar, það em t.d. matsmenn fískiðnaðar- menn, físktæknar, starfandi verk- stjórar í fískiðnaði með eins árs starfsreynslu.“ H. Jónsson og Garðar Jakobsson einnig sitt atriði á vikunni: Tón- mannlif í Suður-Þingeyjarsýslu á 19. og 20. öl. Þeir skemmtu svo aftur í Dynheimum um kvöldið. Eitthvað verður um að vera í Dyn-' heimum þriðjudags-, miðvikudags- og fímmtudagskvöld. Á föstudag og laugardag verða síðan kvik- myndasýningar i Borgarbiói og á sunnudag lýkur vikunni með kvöld- vöku i Dynheimum. Fritt er á öll atriði Norrænu vikunnar. Selfoss: Kennslulokum fagnað Selfossi: Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands fögnuðu síðasta kennsludegi sínum við skólann með uppákomu í skólanum og klæddust við það tækifæri hin- um skringilegustu búningu, rauðum og svörtum. Fóru þeir með söng og bístri um kennslu- húsnæði skólans og barst leikur þeirra um allan bæ og voru nemendurnir áberandi á götun- um þennan dag, 25. apríl sl. Að loknu sprelli og gaman- málum taka við alvarlegri málefni, prófin og svo skóli lífsins. Meðfylgjandi myndir eru tekn- ar af hópnum á tröppum gamla kaupfélagsins á Selfossi. Sig Jóns. Norræn vika á Akureyri Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.