Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 Eiginkona mín, ANNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Austurvegi 59, Selfossi, er látin. Fyrir hönd sona og annarra vandamanna. Yngvi Jónsson. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNATÓMASDÓTTIR ZOÉGA, andaðist í Borgarspítalanum 28. apríl. Jóhanna og Tómas Zoéga, börn og barnabarn. * t ANNA P. HELGADÓTTIR, Grundarstig 10, sem lést 22. april verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. maí kl. 10.30. Hjörtur B. Helgason, Tryggvi Helgason, Ásta Kolbeins, Valdis Helgadóttir, Júlía M. Helgadóttir, Sigurður M. Helgason, Dagmar Helgadóttir, Andrea Helgadóttir, Helgi Guðbergsson, t Eiginkona mín og móðir okkar, ÁSTA LIUA GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni föstudaginn 2. maí kl. 13.30. Ólafur Guðmundsson og börn. t Maðurinn minn, ÁSMUNDUR BRYNJÓLFSSON, Hólakoti, Hrunamannahreppi, verður jarðsunginn frá Hrepphólakirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hrepphólakirkju eða Sjúkrahús Suður- lands. Pálína Guðjónsdóttir, t Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, BJARNI SIGURÐSSON, Berserkseyri, sem lést 22. apríl, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 3. mai kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans vinsamlegast láti St. Fransiskusspítal- ann í Stykkishólmi njóta þess. Hreinn Bjarnason, Ásdís Halldórsdóttir, Dagbjört R. Bjarnadóttir, Pétur Einarsson, Emil Jónasson, Guðlaug Guðjónsdóttir og barnabörn. Jóhannes Júlíus- son — Minning Fæddur 5.júni 1922 Dáinn 26. apríl 1986 Vinur minn, Jóhannes Júlíusson, lést í Hrafnistu í Hafnarfirði síðast- liðinn laugardag, 26. apríl. Hann hafði átt við langvarandi heilsuleysi að stríða og þess vegna hafði hann fengið um nokkurra ára skeið að dvelja um daga að Hrafnistu en fór heim til sín að kvöldi, en síðasta árið var hann þar alfarið vegna sjúkleika síns. Jóhann fæddist á Krosseyrarvegi 4 í Hafnarfirði 5. júlí árið 1922. Foreldrar hans voru Helga Guð- mundsdóttir frá Hóli í Hafnarfirði, f. 1888 — d. 1942, og Júlíus Jóns- son, sem lifir son sinn í hárri elli, f. 1891, og er búsettur í Hvera- gerði. Bæði áttu þau Helga og Júl- íus til Hafnfirðinga að telja svo langt aftur í aldir sem heimildir ná til. Þegar Jóhannes var barn að aldri fluttu foreldrar hans að Eyrar- hrauni við Hafnarfjörð. Þau eignuð- ustu sjö börn, en hið elsta, Bjami, andaðist skömmu eftir fæðingu. Hin komust öll til fullorðinsára, en látin eru, auk Jóhannesar, þau Siguijón og Guðlaug. Eftir lifa bræðumir þrír: Stefán rithöfundur í Hafnarfirði, Karl búsettur í Reykjavík og Vilbergur fyrrverandi skólastjóri í Garðabæ. Þau Júlíus og Helga bjuggu á Eyrarhrauni fram á ári 1937 og þar sleit Jóhannes barnsskónum í hópi systkina sinna í fögru og sér- kennilegu umhverfí þar sem hraun- ið ræður ríkjum og fjaran er skammt undan. Á Eyrarhrauni er paradís fyrir böm að alast upp. Enginn leikvöllur gjörður af manna höndum, jafnast á við umhverfið kringum bæinn hvort heldur að vetri eða sumri. Þar var og er mikið fuglalíf og þar höfðu þau Helga og Júlíus í búi sínu kindur og hesta, en Júlíus var mjög hneigður fyrir skepnur og kunnur tamningamað- ur. Þetta umhverfí hafði djúp og varanlega áhrif á Johannes enda minntist hann jafnan bemskuára sinna á Eyrarhrauni með hóglátri gleði þótt stundum hafi verið þröngt í búi þessarar bammörgu fjölskyldu á krepputíð. Á milli tektar og tvítugs vann Jóhannes ýmis störf er til féllu, en aflaði sér fróðleiks og þekkingar ' með lestri góðra bóka. Árið 1944 fór hann til Akureyrar til náms í bókbandsiðn í bókbandsvinnustofu Árna Ámasonar. Var það ekki til- viljun að hann valdi sér bókband að ævistarfi því að hann undi sér hvergi betur en í návist bóka. Námi sínu lauk Jóhannes í bókbandsstofu Prentsmiðju Bjöms Jónssonar á Akureyri og brottfararpróf tók hann frá Iðnskóla Akureyrar árið 1947. Jóhannes vann áfram um skeið við bókband hjá Bimi Jónssyni, en stofnaði svo eigin bókbandsstofu, ásamt tveimur félögum sínum, en nyrðra undi hann ekki þótt hann eignaðist þar marga góða félaga og flutti suður í Fjörðinn sinn og hóf að vinna við bókband í Prent- smiðju Hafnarfjarðar. Við iðn sína vann Jóhannes meðan heilsa og kraftar leyfðu. Hann starfaði í Fé- lagsbókbandinu og Hólabókbandi í t Eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR EINARSSON, Kjarrmóum 35, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Olga Guðrún Snorradóttir, Einar Snorri Einarsson, Davið Arnar Einarsson, Birkir Snær Einarsson. Bróðir minn, t FLOSI FINNSSON, Faxastig 7, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum laugardag- inn 3. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda. Steina M. Finnsdóttir. t Móðir mín, amma okkar og langamma, ELÍN SIGURBERGSDÓTTIR, Dynskógum 18, Hveragerði, sem lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 25. apríl, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 3. maíkl. 14.00. Lilja Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN THEODÓRSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 10.30. Lydía Guðjónsdóttir, Rúnar Guðjónsson, Birna Valgeirsdóttir, Jóhann Guðjónsson, Elisabet Bjarnadóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Helgi Þ. Sigurðsson, Kjartan Guðjónsson, Bára Samúelsdóttir og barnabörn. t Eiginkona min, móðir okkar og tengdamóðir, KRISTJANA SVEINBJARNADÓTTIR, Álfhólsvegi 145, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 2. maí kl. 15.00. Jóhann Ó.A. Ágústsson, Viktoría Jóhannsdóttir, Órn Sævar Eyjólfsson, Hulda Dóra Jóhannsdóttir, Sigurður Jóhannsson. t Útför MAGNÚSAR VILHJÁLMSSONAR, bifreiðastjóra, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður Rauðarársti'g 5, sem lést 22. apríl sl., verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 2. maikl. 13.30. Hreiðar S. Albertsson. Keykjavík og síðast í Sveinabók- bandinu. Jóhannes var vandvirkur í starfi sínu svo sem bækur þær er hann meðhöndlaði bera vott um. Hann bar virðingu fyrir iðn sinni og þegar bókband hætti að vera í raun það handverk sem það var á námsárum hans og vélar urðu alls ráðandi við verkið fannst honum, eins og fleiri bókagerðarmönnum á hans reki, að um afturför í frágangi og vand- virkni væri að ræða. Ég kynntist Jóhannesi Júlíussyni á Akureyrarárum hans. Mér eru minnisstæð fyrstu kynni okkar. Ég hitti hann í hópi nokkurra ungra manna og vakti hann strax athygli mína. Þá voru miklar umræður um þjóðfélagsmál og alþjóðamál og Jóhannes hafði á þeim ákveðnar skoðanir. Þótt hann væri allnokkru eldri tók hann mig gildan og við- ræðuhæfan og er skemmst frá því að segja að maðurinn var í senn skemmtilegur viðræðu, vel að sér og greindur. Eftir að ég fluttist til Hafnar- Qarðar hittumst við Jóhannes alltaf öðru hveiju og þótti okkur gott að spjalla saman. Hann eignaðist íbúð á Hringbraut 54 og þangað leit ég stundum til hans. Hann var barn- laus og ókvæntur alla tíð en það háði honum ekki við móttökur vina sinna. Jóhannes varð fyrir þeirri ógæfu að missa heilsuna fyrir meira en áratug. Það varð honum þungbær raun því að sjúkdómurinn var þess eðlis að hann átti mjög erfitt með að tjá sig og fátt getur verið verra fyrir félagslyndan mann af hans gerð. Hann eignaðist aðra og hent- ugri íbúð á Miðvangi 41 og bjó þar síðustu árin þar til hann fluttist alfarið í Hrafnistu fyrir rúmu ári. Ég þakka honum kynnin. Hann var hógvært ljúfmenni sem gott er að minnast. Fari hann vel. Guð blessi minningu hans. Jóhannes verður jarðsettur á morgun, föstudag, kl. 10.30 árdegis frá kirkjugarðskapellunni í Hafnar- firði. Snorri Jónsson Jarðarfarar- skreytingar Kistuskrcytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin IGróðrarstöð við Hagkaup, simi 82895.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.