Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
63
an liggur leiðin til Reykjavíkur. Þar
er hún í vist til vorsins 1918. Þá
kemur hún aftur að Hrísum til Ólafs
bróður síns sem þá er að byrja
búskap þar. 9. ágúst eignaðist hún
dóttur þá sem fyrr er nefnd. 1920
kemur Þorleifur Einarsson heim til
foreldra sinna. Hann hafði þá verið
nokkur ár vinnumaður á Hellis-
sandi. Þá endumýjast þeirra fyrri
kynni. 1921 flytja þau ásamt Ólafi
bróður Guðrúnar að Örlygsstöðum
í Helgafellssveit. Eru þar til 1926
að þau flytja að Fjarðarhomi í sömu
sveit.
Þau eignuðust sex böm, þtjá
syni og þijár dætur. Eitt þeirra,
Páll, ólst upp í Hraunsfírði, hjá
Daníel Matthíassyni bróður Guð-
rúnar og konu hans, Ingveldi Ólafs-
dóttur.
Dóttir Guðrúnar og Jóhanns
Jónssonar, Helga Ingveldur f. 9.
ágúst 1918. Maður hennar Ari
Maronsson. Hann er látinn. Dóttir
þeirra Guðrún.
Böm með Þorleifí Einarssyni:
Pálína Matthea f. 18. apríl 1922,
hennar maður Sigurður Halldórs-
son. Þau eiga þijár dætur. Jón
fæddur 1. apríl 1924, ógiftur, hefur
alltaf verið heima hjá móður sinni,
verið hennar sterka stoð alla tíma.
Páll f. 5. apríl 1926, kona hans
Ebba Þorgeirsdóttir, þau em bam-
laus. Einar f. 6. júlí 1927, kona
hans Ingibjörg Garðarsdóttir. Þau
eiga tvo syni. Karitas f. 12. septem-
ber 1929. Maður hennar William
Clemens Jr., látinn, eiga tvo syni.
Elín f. 20. júní 1934, hennar maður
Eyjólfur Ingiberg Geirsson. Þau
eignuðust sex böm, misstu eitt
þeirra.
Árið 1927 hætti ég vinnu-
mennsku. Þá flyt ég að Fjarðar-
homi í boði þeirra systkina Ólafs
og Guðrúnar, fæ þar slægjur og
aðstöðu með skepnur mínar. Þetta
var vinarbragð þeirra systkina. Þá
sem fyrr reyndist Guðrún mér góð
systir. Hjá þeim átti ég heimili í
fjögur ár. Þá vom elstu böm Guð-
rúnar ung. Kynni mín við þessi
böm hafa aldrei rofnað. Þau hafa
verið mér jafn viðmótshlý og mín
eigin böm. Égget fullyrt að Guðrún
hafí átt mikið bamalán. Öll em
böm hennar dugleg og sæmdarfólk.
Móður sinni hafa þau reynst eins
góð og böm geta best gerst. Ég
vil ekki gera upp hvers hlutur er
mestur. Jón hefur alltaf verið hjá
henni. Helga eins og áður er sagt
heima að fáum ámm fráskildum.
Hin em í nábýli við hana í Keflavík
og Reykjavík, Karitas ein er í fjar-
lægð. Hún á heima í Bandaríkjun-
um.
Guðrún hefur verið umvafín
umhyggju þeirra og kærleika. Sama
má segja um tengdabömin.
Þegar mest hefur bjátað á hjá
mér hefur þessi fjölskylda veitt mér
kærleiksríka hjálp og huggun.
Nú þegar ég skrifa þessar línur
em á borðinu hjá mér tvær myndir
sem Guðrúnu vom mjög kærar.
Minningin um gömlu konuna Guð-
ríði Jónasdóttur var henni alla ævi
hjartkær. Þessi gamla kona kenndi
henni að lesa. Hún var hennar besti
kennari. Hin myndin er af syni
Guðríðar, Jóhanni Gunnari Sigurðs-
syni skáldi.
Þessa vísu kvað Guðríður til
hennar:
Það er mín ósk og þar með spá
þrautaleystfrágrandi
aðþigfáiaftursjá
ódáins á landi
1945 flytur tjölskyldan, þ.e.a.s.
Guðrún, Ölafur bróðir hennar og
öll böm Guðrúnar nema Páll, til
Keflavíkur. Hefur heimilið verið hér
lengst á Hafnargötu 75. Það var
orðið of þröngt um þau í afskekkta
dalnum, afkomumöguleikar ófull-
nægjandi. Oft hefur hugur þeirra
leitað heim á æskustöðvamar. Þær
em mörgum kærasti bletturinn á
jörðinni. Þó fjarlægðin væri orðin
meiri milli heimila okkar vomm við
jafn nálæg hvort öðm. Guðrún
hefur verið elskuð og virt af öllum
sínum afkomendum. Henni var það
ómælanleg gleði að eiga mynd af
fímm ættliðum sem ég tel hér á
eftir. Allir vildu vera í návist henn-
ar. Hún átti ótæmandi kærleikssjóð,
allir vildu auðsýna henni ást. Fimm
ættliðin Guðrún Matthíasdóttir
fædd 6. október 1893, Helga Jó-
hannsdóttir fædd 9. ágúst 1918,
Guðrún Aradóttir fædd 17. septem-
ber 1945, Hólmfríður Helga Þórs-
dóttir fædd 1. október 1967, Guð-
rún Þóra Benediktsdóttir fædd 23.
desember 1983.
Nú að leiðarlokum þakka ég
Guðrúnu systur minni allar sam-
vemstundimar, alla hennar ást og
tryggð, alla þá greiða sem hún
gerði mér. Ég hugsa með þakklæti
til Ólafs bróður hcnnar fyrir hans
vináttu og góðvild, Þau vom bæði
falslausar sálir. Nú með nýbyijuðu
sumri koma mér í huga orð skálds-
ins:
„Guð allur heimur eins í lágu og háu
eropinbókumþiger fræðir mig.
Hvert eitt blað á blómi jarðar smáu
er blað sem margt er skrifað á um þig.
Nú em blómin sem hafa legið í
dvala í vetrardrómanum að vakna
til nýs lífs. Útspmngið blóm er
upprisa lífsins, almættishöndin er
sterk. Þetta er fyrirheit um okkar,
eigin upprisu og eilíft líf. Jesús
sagði: Ég lifí og þér munuð lifa. í
þeirri trú kveð ég mína kæm fóstur-
systur í Jesú nafni. Öllum bömum
hennar, afkomendum, ættingjum
og vinum votta ég einlæga samúð
mína.
Ágúst Lárusson
OPIÐ HÚS
1. maí
Frambjóðendur Framsóknarflokksins
við borgarstjórnarkosningarnar hafa
opið hús 1. maí að Hótel Hofi kl. 15.30-
18.00.
Kaffiveitingar verða í boði
frambjóðenda.
Avörp flytja:
Sigrún Magnúsdóttir og
Alfred Þorsteinsson.
Vísnasöngkonan
Bergþóra Árnadóttir
skemmtir.
Allir velkomnir
Frambjóðendur.
0GÍUR0CARD
ADST0MR
HENDIÞIG ÓHAPP ERLENDIS
Wið starfrækjum neyðarsíma hér heima, einkum fyrirþá sem tala
ekkert erlent tungumál. Meginmálið er þó að wið höfum tryggt
Eurocard korthöfum þjónustu hins alþjóðlega aðstoðarfyrirtækis
<3E5A, hendi þá alwarlegt óhapp á ferð erlendis. Allir korthafar fá
sérstakt spjald með neyðarnúmerum sem gilda hwarwetna í
heiminum.
Með einu símtali geta þeir beðið um:
nauðsynlegar upplýsingar um uiðbrögð við óvæntum uanda, t.d. tapl ferðaskHríkja.
© Ókeypls flutnlng s/asaðs korthafa á sjúkrahús.
FJárhagsaðstoð, t.d. vegna óvæntrar sjúkrahúslegu.
Lögfræðlaðstoð, verði skyndllega þörf á henni.
Ókeypls farseðla helm, í stað seðla sem óglldast, t.d. vegna slyss.
Ókeypis heimsókn að heiman, sé korthafl óvænt lagður inn á spítala erlendls
í lOdaga eða lengur.
Auk þessa geta Eurocard korthafar notið 5lysaábyrgðar ferða-
langa. Bætur geta numið allt að U5D 100.000, samkwæmt
skilmálum þar um.
Aðgangur að allri þessari þjónustu er ókeypis, sértu Eurocard
korthafi. Þú getur fræðst nánar um hana af upplýsinga-
bæklingnum: „Hendi þig slys erlendis". Hann fæst hjá okkur, í
Útwegsbankanum, Verzlunarbankanum og Sparisjóði wélstjóra.
Kreditkort hf. Ármúla 28