Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986 23 Soffía Böðvarsdóttir, Carina Anderberg Elías Eliasson Ragnar Kjærnested Bónusinn í fiskvinnslunni bjargar mínum launamálum að nokkru leyti. Ef ég myndi einungis fá dagvinnukaup, gæti ég engan veg- inn lifað af laununum. Nú fæ ég milli 6 og 7.000 krónur fyrir vikuna með bónusnum og vegur hann yfir- leitt meira en helming á við dag- vinnutaxtann. Ég var farin að búa í leiguíbúð en þurfti að flytja aftur heim í foreldrahús þar sem endar náðu ekki saman fjárhagslega." Pétur Runólfsson, verka- maður hjá Granda hf.: „Nær væri að berjast fyrir verðlækkunum á nauðsynja- • • LL voru „Þessar nýju og breyttu leiðir kjarasamninganna koma að ósköp litlu gagni fyrir mig. Ég hef ekki það miklar tekjur að ég hafi efni á að kaupa bíl, hvað þá bensín. Ef launþegasamtök bæru hag félags- manna sinna í raun fyrir bijósti væri nær að beijast fyrir verðlækk- un á nauðsynjavöru og annarri nauðsynja þjónustu. Ég hef ekki myndað mér neina skoðun á hvort þessi nýja stefna virki, en allt má reyna þar sem annað hefur ekki dugað fram til þessa. Ég og konan mín vinnum bæði úti og miðað við dagvinnu, duga launin ekki til. Vinnudagurinn hefst hjá mér kl. 6.30 á morgnana og lýkur ekki fyrr en milli kl. 18 og 19 á kvöldin. Þetta hefst, en aðeins með vinnu, sem er meiri en góðu hófi gegnir." Soffía Böðvarsdóttir, starfs- stúlka í Kaffivagninum: „Hef ekki orðið vör við veruleg- ar breytingar frá síðustu samningum“ „Mér líst ágætlega á að reyna eitthvað nýtt í kjaramálum þar sem aðrar launastefnur hafa engan veginn gengið upp fram til þessa. Mér finnst ofboðslega dýrt og erfitt að lifa enda finn ég e.t.v. meira Margrét Jónsdóttir fyrir því núna þar sem ég er nýfarin að búa. Hinsvegar hef ég ekki orðið var við neinar verulegar breytingar frá síðustu kjarasamningum. Laun- in verða að hækka samfara þessum breyttu leiðum. Eins þarf þjónusta og vöruverð að lækka. Það er besta leiðin, að mínu mati, til að bæta kjör launafólks. Ég vann t.d. hjá ríkinu áður en ég kom hingað á Kaffivagninn og það er hreinlega ekki hægt að lifa á 21.000 krónum." Ragnar Kjærnested, verkamaður í Sundahöfn: „Nýja kjara- stefnan kemur láglaunafólki ekki að neinu gagni“ „Mér fínnst nýja kjarastefnan ekki koma láglaunafólki a neinu gagni. Það er fáránlegt að ætla að bæta hag launafólks í landinu með því að lækka tolla af bílum - þær koma venjulega ekki inn í daglegan heimilisrekstur. Nær væri að lækka verð á matvöru. Vissulega er verið að fara nýjar leiðir sem sjálfsagt er að reyna. Afkoman hjá mér er sæmileg með mikilli vinnu. Ég er með dæmigerða vísitölufjölskyldu. Kon- an mín vinnur ekki úti þar sem við teljum það ekki borga sig með tvö ung börn. Ég vinn í staðinn tvöfalda vinnu til að geta haft það sæmilegt. Beinar launahækkanir er eina ráðið sem kemur til greina, að mínu mati, og þá á móti algjör verðstöðv- un. Einnig finnst mér vel til bóta að leggja niður tekjuskattinn alveg þar sem hann kemur verst niður á láglaunafólki enda löngum þekktur undir nafninu „verkamannaskatt- ur“.“ Margrét Jónsdóttir, starfsstúlka á Lauga- borg: „Hef ekki trú á að þessar nýju leiðir breyti nokkru fyrir láglaunaf ólkið“ „Ég verð að vinna dag og nótt til að ná endum saman, en auðvitað vill maður leggja ýmislegt á sig til að geta leyft sér eitt og annað, sem ekki telst til nauðsynja. Segja má að ég hafí notið góðs af tollalækk- uninni af bílum enda nýbúin að kaupa mér nýjan bíl og ekki get ég annað en fagnað bensínlækkuninni. Sennilega koma þessar nýju kjara- leiðir sér þó ekkert sérstaklega vel fyrir láglaunafólkið og hef ég litla trú á að þessar leiðir breyti nokkru fyrir launafólk. Kaupið er mjög lélegt hér á dagheimilum borgarinnar en ég vinn aukavinnu við ræstingastörf og maðurinn minn vinnur frá kl. 7 á morgnanna til 23—24 á kvöldin sem sendiferðarbílstjóri." Árni Eiríksson, vélvirki hjá Héðni: „Nýja stefnan jákvæð ef verð- bólgan helst niðri“ „Mér finnst þessi nýja stefna í kjaramálum mjög jákvæð ef hægt er að ná niður verðbólgunni á ein- hvern hátt. Reyndar er lítil reynsla komin á þetta ennþá og ekki tíma- bært að fara að dæma um neitt. Mér finnst þessi ákvörðun laun- þegasamtaka mun skárri en verið hefur, það hefur a.m.k. ekki ennþá orðið hækkunarskriða á vörum og þjónustu nú eins og svo oft áður í kjölfar kjarasamninga. Ég vona svo sannarlega að þetta dæmi gangi upp. Mér finnst jákvætt það sem við höfum þegar orðið vitni að undanfarið, ekki síst bensínlækkun- in. Persónulega kemst ég ágætlega af á mínum launum enda einhleyp- ur. En, ég geri ráð fyrir að róðurinn yrði þungur ef ég ætti fyrir fjöl- skyldu að sjá. Reyndar hætti ég nú um mánaðarmótin hjá Héðni og fer í vörubílaakstur hjá Skógrækt ríkisins. Launin lækka 30-40% við skiptin en ég þrái orðið að komast í útivinnu." d$ reimskífur Pekk'^ pjÓN^^ FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.