Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986 Blaí5buröarfólk 1 óskast! I ^ jl KÓPAVOGUR Álfhólsvegur 65-137 (staka talan) 1 r HARVEY SKJALASKÁPAR er vönduð ensk framleiðsla á hagstæðu verði... 2 — 3 — 4 — 5 skúffu skápar. Einnig skjalabúnaður í fjöl- breyttu úrvali. (3KF&CO Síðumúla 32. SÍmÍ 38000 Norræn tónlist ________Tónlist Jón Ásgeirsson A vegum Norræna hússins hafa oft komið ágætir listamenn til ís- lands, en því miður hafa slíkar heimsóknir oftlega ekki verið vel þegnar af íslendingum, ef marka má fjölda hljómleikagesta. Líklega eru Islendingar haldnir fordómum gagnvart norrænum listamönnum, sem er samstofna því áliti er nor- rænir listamenn hafa á íslenskum. Þama er ef til vill um að ræða víta- hring, sem allir neita að sé til, en láta hann samt marka sér bás. Þetta er sem sé lýsandi dæmi um áhugaleysi norrænna listamanna á norrænni list og slær þá sá er hlífa skyldi og sýnir sig hversu lítið er að byggja á veisluvinum, og öðrum viðhlæjendum. Marianne Eklöf og Stefán Bojsten eru ágætir lista- menn og hefðu vel mátt fá fleiri áheyrendur en þijátíu og fimm sálir. Fyrri hluti efnisskrár var sænsk tónlist og þá fyrst þrír vorsöngvar eftir Miklos Maros, við japanska texta frá fyrri tíð. Það má segja að merkja megi sérkennilega fyrr- ingu nútímans í því er sænskur tónhöfundur leitar eftir samvistum við fom-japanska orðlist. Hvað sem því liður vom söngvar Marosar þýð- ir og fallega gerðir, ekki stórbrotin en elskuleg tónlist, sem listamenn- imir fluttu mjög vel. Þtjú lög eftir Stenhammar vom næst á efnis- skránni og vom þau öll mjög vel flutt. Sérstaklega var ánægjulegt að heyra Flickan kom ifrán sin álsklings möte, sem í gerð Sten- hammar er ekta ballaða. Bojsten lék einleik á píanó verk eftir Eklund og síðar tvö verk eftir Chopin, Mazurka í a-moll og Vals í e-moll. Bojsten er góður píanóleikari og hefði vel mátt eyða lengri stund með áheyrendum. Eftir Peterson- Berger söng Eklöf þijú lög og er það fyrsta, Aspákerskpolska, sér- lega skemmtilega gert lag. Eftir hlé söng Eklöf sjö söngva eftir Þorkel Sigurbjömsson við texta eftir Jón úr Vör. Eklöf söng lögin mjög glæsilega og í raun endur- skapaði þau, fyrir þá sem heyrt höfðu lögin fyrr. Síðustu lögin vom fímm söngvar eftir Montsalvatge, spánskan tónsmið, er lærði hjá Morera í Barcelona og vann Pedrel! verðlaunin 1936. Hann hefur m.a. samið ópem, er ber nafnið Babel, §óra balletta, einleikskonserta og hljómsveitarverk, kammerverk, sönglög og margvísleg píanóverk. I stíl hefur hann ekki verið við eina fjölina felldur og í þessum sönglög- um leggur hann til hliðar „seríal" vinnubrögð, en leikur sér með lag- legar og hnittnar laglínur, stundum teknar að láni úr vel þekktum dægurlögum. Söngvar Montsalvatge vom vel sungnir, enda er Marianne Eklöf góð söngkona og trúlega gefur efnisskráin henni ekki öll þau tæki- færi að sýna að fullu getu sína, en af því sem bar fyrir eyru, lætur henni jafn vel að túlka á viðkvæm- um strengjum og „dramatísk“ átök. Stefán Bojsten er feikna góður píanóleikari, sem vert væri að heyra frekar, t.d. í flutningi kammertón- listar. Þetta vom sem sagt ágætir tónleikar, sem áheyrendur góðrar tónlistar létu því miður fara fram- hjá sér að þessu sinni. Berskjaldaður sýslumaður Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Regnboginn: Max Havelaar ★ ★ ★ Leikstjóri Fons Rademakers. Aðalhlutverk Peter Faber, Sacha Builthuis, Elang Mo- hamad, Adenan Soesilaningrat, Rutger Hauer. Hollensk frá 1976.165 mín. Fons Rademakers og Paul Verhoeven em vafalítið þeir kvik- myndaleikstjórar hollenskir sem mest kveður að innan þeirra heimalands sem utan, og er sann- arlega kominn tími til að fá tæki- færi að sjá eitthvað af verkum þeirra hérlendis. Sem kunnugt er em Hollendingar miklir og snjallir kvikmyndagerðarmenn en þeir eiga við tungumálamúr að stríða líkt og mörlandinn. En nú er þekktasta verk Ra- demakers, Max Haveiaar, til sýn- is með dönskum texta. Er það mun skárri kostur en að fá eintak- ið með hljóðsettu, ensku tali. Nær hann þó aldrei nema hluta hins talaða máls. Sjálf er myndin á tveim tungumálum, heldur óárennilegum, hollensku og indó- nesísku, sem hinir hollensku leik- arar fara jafn létt með og sitt hljómmikla móðurmál. Rademakers hrífur okkur inní framandi veröld, nýlendur Hol- lendinga í Austur-Indíum um miðbik síðustu aldar. Við fylgj- umst með mislukkuðum og árang- urslausum tilraunum hins blá- eyga, réttlæissinnaða sýslumanns Hollandskonungs, Max Havelaar, að bæta kjör innfæddra. Draga úr spillingu kaupmannastéttarinnar og höfðingjanna, af báðum kyn- þáttum. En slíkar umbætur sam- ræmast ekki gróðabralli valdhafa og höfðingja og þar sem Havelaar vill ekki dansa með er honum umsvifalaust varpað útí ystu myrkur. Sagan af Max Havelaar er sí- gild og á ætíð rétt á að vera rifjuð upp þar sem óréttlætið verður sjálfsagt til eilífðamóns í hlað- varpanum hjá okkur. Af ofan- greindum ástæðum fer þó nokkuð af textanum framhjá áhorfendum, (nema svo ólílega vilji til að þeir séu fúlbífærir á hinar óáræðilegu þjóðtungur), og tapast að sjálf- sögðu við það eitthvað af kryddi textans en rauði þráðurinn er skýr og sterkur. Hinn aðsópsmikli og formfasti leikstjóri Rademakers virðist ekki ýkja hrifínn af klippiborðinu, myndin þokast áfram, stundum af óguðlegum silagangi. Kvik- myndatakan er harla venjuleg og hefði að skaðlausu mátt draga úr notkun zoomlinsunnar. Hinsvegar er leikurinn afbragð og vel skipað í hlutverkin. Kærkomin tilbreyt- ing líkt og flestar aðrar „mánu- dagsmyndir". Húsmeistarasýning Myndlist Bragi Ásgeirsson í Ásmundarsal hefur undan- farið staðið yfír sérstæð sýning nokkurra arkitekta frá Bandaríkj- unum, Sviss og Portúgal. Sýning þessi byggist á því hvemig nálg- ast eigi húsgerðarlist með að- ferðum rökhyggju og hélt einn af forsvarsmönnum sýningarinnar einmitt fyrirlestur um þessi atriði á sýningunni. Sá er hér ritar hefur skoðað íjölmargar sýningar húsa- gerðarlistar um dagana, austan hafs sem vestan, en hann minnist þess ekki að hafa rekist inn á jafn útspekúleraða og hugmynda- fræðilega sýningu. Minnir sýning- in um ýmislegt á hugmyndafræði- lega list frekar en sýningu á arkitektúr og um margt er býsna erfítt að botna í úfærslu teikning- anna. Hér þarf víst mikia reglu- stikufagmenn til. Hins vegar em hugmyndir húsameistaranna svo sem þær hafa verið kynntar af Rudy Hunziker mjög áhugaverðar varðandi tengsl náttúm og sögu viðkomandi þjóða við útlitsgerð húsa og mannvirkja. Einnig er það hárrétt hjá honum að það yrði til bóta að koma hér á fót skóla fyrir húsameistara t.d. undirbúnings- skóla er veitti undirbúnings- menntun fyrir frekara nám er- lendis. Þetta snýst um að fínna sér „sjálfsímynd". Það er nefnilega alltof algengt að húsa- meistarar, sem koma sprenglærð- ir erlendis frá, driti hér um allar jarðir húsum, sem em í engum tengslum við íslenzka náttúm og sögu en hins vegar í ríkum tengsl- um við viðhorf úr gjörólíku er- lendu umhverfí. Hér er um þarfa ábendingu að ræða því að þannig er það einnig um myndlist, sem skortir sjálfs- ímynd samkvæmt eðli og stað- háttum á hveijum stað — en byggir á alþjóðlegum fræðikenn- ingum og formúlum og þá ósjald- an niðursoðnu samsulli listkaupa- héðna og óvandaðra listsagn- fræðinga. Það er einnig athyglisvert, að Rudy Hunziker heldur því fram, að eftir að módemistar líkt og Gropius og le Corbusier féllu frá, séu varla nokkrir eftir — engir hafi komið í staðinn. Það er reynt að búa til nýjan stíl en það sé vonlaust. Hann segir einnig að besta iausnin fyrir nútíðina sé að nýta sér fortíðina til þess að búa í haginn fyrir framtíðina. Hér er ég honum fullkomlega sammála enda er þessi tilbúni módemismi nútímans mjög farinn að fara í taugamar á mörgum því að hann er um margt sprottinn af gerviþörfum. Það er og hárrétt, að almenn- ingur þurfí að láta sig húsagerðar- list meira varða og hér þyrfti að koma að meiri upplýsingastreymi í skólum. Þakka ber Arkitektafélaginu fyrir að hafa boðið Rudy Hunziker hingað og honum fyrir fróðlegar og ómyrkar yfírlýsingar í viðtölum um íslenzka húsagerðarlist. Eink- um þessa setningu: „Hér ægir saman áhrifum frá Evrópskum og amerískum borgum þar sem maður býst við að sjá áhrif svo tilkomumikils landslags sem hér er að finna, auk þess sem saga ykkar er mjög sterk og ætti því að geta haft áhrif á byggingarlistina. En það er algjör óþarfi að flytja inn hrá evrópsk og bandarisk áhrif til að koma Reykjavík á heim- skortið — ísiand hefur nefni- lega dálítið umfram bæði Evr- ópu og Bandaríkin ... Þessu hefur verið haldið fram í áratugi af ýmsum innlendum arkitektum en þeir hafa talað fyrir daufum eyrum. En á útlendinga hlusta íslendingar svo sem séu þeir yfímáttúrulegar verur — og hér hafa þeir það. Þetta nákvæm- lega sama á við um myndlistina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.