Morgunblaðið - 01.05.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Islenskar
kartöf lur duga
fram eftir júní
í UPPHAFI þessarar viku voru
hátt í 2.000 tonn af kartöflum
í söluhæfu ástandi til í landinu.
Miðað við eðlilega neyslu duga
þessar kartöflur landsmönnum
fram eftir júnímánuði. I ágúst
má búast við að nýjar íslenskar
kartöflur komi á markaðinn.
Bilið verður brúað með inn-
flutningi kartaflna.
Agnar Guðnason yfírmatsmaður
garðávaxta segir að í Þykkvabæn-
um séu nú til rúm 1.600 tonn af
kartöflum, þar af 700 tonn af binté-
og premier-kartöflum. Lítið er til í
öðrum héruðum, 10 tonn í Fljóts-
hlíð, 10-15 tonn í uppsveitum Ar-
nessýslu, 60-70 tonn í Homafirði
og um 100 tonn í Eyjafírði.
Agnar sagði að kartöflumar
væm almennt í mjög góðu ástandi,
betra en yfírleitt áður. Þakkaði
hann það góðum geymslum sem
bændur hafa komið sér upp. Hring-
rot væri þó vandamál víða á Suður-
landi, og mikið af kartöflum hefði
eyðilagst af þeim sökum.
Listaverk
afhjúpað
í Keflavík
í DAG verður afhjúpað í
Keflavík listaverkið Mána-
hesturinn eftir Erling Jóns-
son. Listaverkið er staðsett
að vestanverðu við norður-
enda Hringbrautar
Tómas Tómasson forseti
bæjarstjómar flytur ávarp og
listamaðurinn afhjúpar verkið.
Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Keflavík leikur nokkur lög við
athöfnina.
1. maí hátíðahöldin
FYRSTI maí, hátiðisdagur
verkafólks, verður haldinn með
hefðbundnu sniði víðast hvar á
landinu. Hér fara á eftir dag-
skrár dagsins, þar sem Morgun-
blaðið fékk upplýsingar.
Reykjavík
Fyrsta maí nefnd Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, Iðn-
nemasamband íslands og Samtök
kvenna á vinnumarkaðinum gang-
ast fyrir dagskrá í Reykjavík, safn-
ast verður saman kl. 13.30 á
Hlemmi og gengið þaðan kl. 14
niður á Lækjartorg.
Utifundur verður á vegum Full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna,
BSRB og INSÍ á Lækjartorgi kl
14.30, ræðumenn verða Aðalheiður
Bjamfreðsdóttir af hálfu ASÍ og
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir af
hálfu BSRB. Ávarp flytur Linda
Ósk Sigurðardóttir og fundarstjóri
verður Ragna Bergmann, Verka-
kvennafélaginu Framsókn. Lúðra-
sveit verkalýðsins flytur lög milli
ræða.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
efna til fundar á Hallærisplaninu.
Margrét Pála Ólafsdóttir frá Sam-
tökunum flytur ræðu, þá verður
flutt ávarp, Unnur Sigursteinsdóttir
frá verkakvennafélaginu Framsókn
flytur ávarp og kveðja er flutt frá
konum á Bolungarvík. Nýjustu
samningasöngvamir verða sungnir,
fundarstjóri er Bjamfríður Leós-
dóttir, Akranesi. Samtökin efna til
fagnaðar í Félagsstofnun stúdenta
frákl. 21—1.
Hafnarfj örður
1. maí hátíðahöld Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna og Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar hefjast
með því að safnast verður saman
við Hvaleyri hf. Kl. 14 verðurgeng-
ið um Reykjavíkurveg, Hverfisgötu
að Lækjarskóla. Útifundur hefst kl.
15, Grétar Þorleifsson formaður
Fulltrúaráðsins flytur ávarp en
hann er jafnframt fundarstjóri.
Ávörp flytja Guðríður Elíasdóttir
varaforseti ASÍ, Óskar Vigfússon
formaður Sjómannasambands Is-
lands og Sigþrúður Ingimundar-
dóttir formaður Hjúkmnarfélags
íslands. Hljómsveitin Hálft í hvoru
skemmtir og Lúðrasveit Hafnar-
ijarðar leikur undir stjóm Hans
Ploder Franssonar.
Akranes
Safnast verður saman í kröfu-
göngu við hús verkalýðsfélaganna
að Kirkjubraut kl. 14. Gengið verð-
ur að Bíóhöllinni, en þar fer fram
hátíðarfundur. Lúðrasveit Akraness
leikur. Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Verkamannasambands
íslands flytur aðalræðu dagsins, en
auk þess verður vísnasöngur og
ávörp flutt frá stéttarfélögunum á
Akranesi.
Akureyri
Dagskráin hefst með hátíðar-
messu í Akureyrarkirkju kl. 11,
prestur er séra Þórhallur Höskulds-
son. Organisti Jakob Tryggvason.
Kirkjukór Akureyrar syngur. Safn-
ast verður saman við alþýðuhúsið
Skipagötu 14 og gengið kl. 13.30
suður Skipagötu, norður göngu-
götu, upp Brekkugötu, niður Odd-
eyrargötu, suður Geislagötu, yfir
Ráðhústorg og að Alþýðuhúsi. Úti-
fundur við Alþýðuhúsið verður kl.
14., þar flytur Ármann Helgason
formaður 1. maí nefndarinnar ávarp
verkalýðsfélaganna, og Þóra
Hjaltadóttir formaður AM flytur
aðalræðu dagsins. Fleiri ávörp
verða flutt, en að loknum útifundi
verður fjölskylduskemmtun og
kaffisala á fjórðu hæð Alþýðuhúss-
ins. Þar koma fram m.a. Samkór
Hliðarbæjar, LMA og Jökull Guð-
mundsson.
Bolungarvík
Kvikmyndasýning verður á veg-
um verkalýðsfélagsins í Félags-
heimilinu kl. 13 og er öllum boðinn
ókeypis aðgangur. Kaffísamsæti
hefst kl. 15 og er bæjarbúum sem
eru 67 ára og eldri sérstaklega
boðið. Tónleikar verða í Félags-
heimilinu um kvöldið, Sigrid Kalmar
og Sigurður Bjömsson syngja við
undirleik Agnesar Löve.
Borgarnes
Hátíðardagskráin hefst kl. 13.30
á Hótel Borgamesi. Lúðrasveit
Borgamess jeikur, stjómandi Bjöm
Leifsson. Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ flytur ræðu og Álafos-
skórinn syngur undir stjóm Páls
Helgasonar. Hljómsveit harmoniku-
unnenda á Vesturlandi leikur og
Stjúpsystur skemmta. Þá verða
flutt ávörp fulltrúa stéttarfélag-
anna, Ema María Olafsdóttir frá
Verkalýðsfélagi Borgarness og Þór-
arinn Pálmi Jónsson frá Verslunar-
mannafélagi Borgamess flytja
ávörp. Kl. 14 er börnum boðið á
kvikmyndasýningu í Samkomuhús-
inu.
Eskifjörður
Dagskráin hefst kl. 15. Snorri
Konráðsson starfsmaður Menning-
ar- og fræðslusambands alþýðu
flytur hátíðarræðu. Auk þess verður
söngur, upplestur og fleira. Þrír
félagar í verkalýðshreyfingunni
verða sæmdir gullmerkjum. Að
lokinni dagskrá verður öllum bæjar-
búum boðið í kaffi.
Eyrarbakki
Kaffísala verður í tilefni dagsins
og ágóða varið til byggingar elli-
heimilisins. Sýning verður á vinnu
nemenda barnaskólans.
Húsavík
Kvikmyndasýningar verða fyrir
böm kl. 14 og 16. Hátíðardagskrá
verður sett í Félagsheimilinu kl. 14
af Helga Bjarnasyni formanni
Verkalýðsfélags Húsavíkur. Hátíð-
arræðu flytur Kristín Hjálmars-
dóttir formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks á Akureyri. Húsavíkur-
kórinn syngur í fyrsta sinn. Leik-
félag Húsavíkur flytur stutta leik-
þætti. Baldur og Baldvin Baldvins-
synir syngja tvísöng við undirleik
Ulriks Olasonar. Jóhannes Einarson
flytur gamanmál og kaffísala verð-
ur á vegum Leikfélags Húsavíkur
Fulltrúi Eimskips um gagnrýni í viðtali við verðlagsstjóra:
Meðalflutningsgjald lækkað
—1000 milljónir frá ’82
um 500
FRÁ árinu 1982 hefur meðalflutn-
ingsgjald á hvert tonn hjá Eim-
skipafélagi íslands lækkað um
500-1000 milljónir króna, að þvi er
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri hjá Eimskip, sagði í samtali
við blm. Morgunblaðsins í gær.
„Þessi lækkun hefur verið möguleg
vegna margháttaðra breytinga og
hagræðingar í rekstri félagsins og
enn er haldið áfram á þeirri braut
að lækka kostnað með það fyrir
augum að geta lækkað flutnings-
gjöldin enn meira,“ sagði Þórður.
„Hins vegar höfum við líklega
lækkað flutningsgjöld of hratt því
þrátt fyrir verulega kostnaðar-
lækkun hefur fyrirtækið verið
rekið með halla undanfarin ár.“
Morgunblaðið leitaði til Þórðar í
framhaldi af viðtali við Georg Ólafs-
son verðlagsstjóra, sem birtist í blað-
inu í gær. Þar kemur m.a. fram, að
ýmsir inn- og útflytjenda telja að
flutningsgjöld hafí hækkað eða skipa-
félögin sýni aukna hörku í verðlagn-
ingu eftir að Hafskip hætti rekstri.
Þórður Sverrisson sagði að sér kæmi
þetta mjög á óvart. „Við hjá Eimskip
höfum ekki fengið kvörtun frá verð-
lagsstjóra né heldur öðrum og finnst
þetta einkennileg vinnubrögð verð-
Iagsstjóra að koma umkvörtunum,
sem snerta okkur hjá Eimskip, á
framfæri með þessum hætti í blaða-
viðtali," sagði hann.
Þórður sagði ennfremur að verð-
lagsstjóri hafi ávallt haft aðgang að
öllum upplýsingum varðandi flutn-
ingsgjöld, rekstrarafkomu, rekstrar-
áætlanir og annað, sem snerti verð-
lagningu hjá Eimskipafélaginu.
„Vel má vera,“ sagði Þórður Sverr-
isson, „að eitthvað af okkar flutnings-
gjöldum hafi breyst vegna misgengis
erlendrar myntar á undanfömum
vikum vegna þess að öll flutningsgjöld
eru reiknuð í erlendri mynt. Einnig
kemur til greina að flutningsgjöld
einhverra okkar viðskiptamanna hafi
ekki lækkað eins mikið og þeir óska
en slíkt er ekki óeðlilegt í viðskiptum."
Vikuverð á matarmiðum í Skúlatúni:
Samkomulag um 10% hækkun fyrir
atbeina starfsmannafélagsins
í FORSÍÐUFRÉTT Þjóðviljans sl. laugardag sagði meðal
annars: „Matarmiðar í mötuneyti borgarinnar við Skúlatún
hafa verið hækkaðir um allt að 80%. í frétt Morgunblaðs-
ins um þetta mál sl. þriðjudag er það haft eftir Haraldi
Hannessyni, formanni Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, að það sé rangt hjá Þjóðviljanum, að matarverð í
mötuneyti borgarinnar hafi hækkað allt að 80%, hækkunin
hafi numið 84% en að athuguðu máli hafi verið ákveðið,
að hún yrði ekki nema 10% og gildi sú hækkun aðeins um
eina máltíð vikunnar.
Þjóðviljinn birti enn forsíðufrétt
um þetta mál í gær. Þar er það
haft eftir Haraldi Hannessyni, að
það sé rangt eftir sér haft í Morg-
unblaðinu um laugardagsfrétt
Þjóðviijans, hún hafí verið hárrétt.
I forystugrein segir Þjóðviljinn um
þetta mál í gær, að Morgunblaðið
hafí „gleymt æru sinni" í þessu
máli vegna væntanlegra borgar-
stjómarkosninga og hafi farið
„með fleipur, ef þaó kynni að verða
til þess að dylja almenning þess
vinnulags sem stundað er af Sjálf-
stæðisflokknum í Reykjav(k“.
í gær sendi Haraldur Hannes-
son Morgunblaðinu skriflega
greinargerð vegna þessa máls og
birtist hún hér á eftir í heild. Þar
kemur fram, að meðaltalshækkun
á matarverði í mötuneytinu í
Skúlatúni var ákveðin 32% á viku
en að athuguðu máli var ákveðið,
að meðaltalsverðið hækkaði um
10% og er þá miðað við hækkun
á einni máltíð í viku hverri.
Þegar Morgunblaðið bar skrif
Þjóðviljans undir Harald Hannes-
son sagðist hann hafa sagt við
blaðamann Þjóðviljans: „Það er
ansi langsótt, að þetta hafí verið
80% hækkun á matarverði, það
stenst ekki, þar sem þetta var
aðeins einn dagur. Ef þú lest
Morgunblaðið þá kemstu að hinu
sanna. Hið eina sem er villandi
hjá Morgunblaðinu er fyrirsögnin
á fréttinni. Hækkunin nam að
meðaltali 32% en var lækkuð í 10%
eftir afskipti starfsmannafélags-
ins.“ Samkvæmt þeirri ákvörðun,
sem nú hefur verið afturkölluð,
átti sem sé að hækka eina máltíð
í viku um 80%.
Fyrirsögn Morgunblaðsins, sem
Haraldur vísar til var þannig:
„Mötuneyti borgarinnar við Skúla-
tún: „Hækkunin nam 10 prósent-
um en ekki 80,“ segir Haraldur
Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar."
Hér birtist greinargerð Haralds
Hannessonar, sem Morgunblaðinu
barst í gær:
„Enn um mötuneyti i Skúla-
túni.
Vegna frétta, en þó aðallega
vegna fyrirsagna í Morgunblaðinu
og Þjóðviljanum undanfama daga,
óska ég að fá eftirfarandi birt.
Þegar ég fékk vitneskju um
hækkun á matarverði í mötuneyt-
inu í Skúlatúni, fór ég þegar á
fund skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings þar og óskaði skýringa.
Skrifstofustjórinn tók því mjög
vel og skýrði mér frá því að rekst-
urinn hefði gengið mjög illa að
undanfömu og því hafi verið farið
út í nýtt kerfí, sem byggðist á
sölu á miðum, þar sem hver eining
kostaði kr. 60.-.
Eftir þessa breytingu yrði hægt
að fá súpu og brauðsneið með
smjöri fyrir kr. 60.- alla daga.
Fjóra daga vikunnar væri „al-
mennur" matur seldur á tvær
einingar 2x60 eða kr. 120.-
Einu sinni í viku væri „betri"
matur seldur á þijár einingar 3x60
eða kr. 180.-
Að sögn skrifstofustjórans var
haft samráð við fulltrúa starfs-
fólks á staðnum og vom þeir
sammála þessari aðgerð til að
rétta af hallann, en síðan yrði
málið endurskoðað að nýju. Allur
matur kostaði áður kr. 100.- á dag
eða kr. 500.- á viku. Að supunni
og brauðinu slepptu má setja upp
einfalt reikningsdæmi um hver
raunvemleg hækkun var.
Eldra fyrirkomulag, þ.e. 5x100
eða kr. 500.- á viku.
Nýrra fyrirkomulag, þ.e. 4x120
eða kr. 480,- + 1x180 eða alls kr.
660.- á viku.
Mismunur hækkun kr. 660.-----
kr. 500,- eða kr. 160 eða 32%.
Ég taldi hinsvegar ekki ástæðu
til að una slíkri hækkun án frekari
athugunar og því varð samkomu-
lag um eftirfarandi, á meðan slík
athugun færi fram:
4x100 eða kr. 400,- + 1x150
eða alls kr. 550,- á viku.
Mismunur er því 550 — 500 eða
kr. 50.- á viku eða 10%.
Allur stuðningur við okkar verð-
lagseftirlit er vel þeginn, en þarf
að vera vel fram settur ef hann á
að nýtast.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna,
Haraldur Hannesson.“