Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
1. MAÍ
Brynleifur Sigurjónsson
Lilja Magnúsdóttir
Anna Soff ía Sverrisdóttir
Anna Soffía Sverrisdóttir
sjúkraliði á Landspítalanum:
„Þessir síðustu
samningar al-
veg út í hött“
„Mér finnst þessir síðustu samn-
ingar vera alveg út í hött, það er
ekkert verið að hugsa um okkur
sem getum ekki lifað af laununum
okkar. Ef þessir menn, sem eru að
semja fyrir okkur, gætu hugsað sér
að lifa á þessum launum, þá myndi
ég gera það líka. Mér fínnst alveg
sjálfsagt að reyna að ráða niðurlög-
um verðbólgunnar, en þó ekki
þannig að það bitni á launþegum.
Afkoma mín er erfið, ég er ein
með tvo unglinga, er með 25 þúsund
króna grunnlaun eftir 13 ára starf.
Eg er ekki ein um að eiga erfitt,
það eru margir sjúkraliðar hér sem
eru einu fyrirvinnur heimilis síns.
Eg er að kaupa íbúð og til að ná
endum saman tek ég allar auka-
vaktir sem ég get tekið og vinn
eins og bijálæðingur. Ég er komin
í algjöran vítahring og sé ekkert út
úr þessu. Mér firinst alveg hræðilegt
að fara svona með fólk. Dóttir mín
er nú að fara út á vinnumarkaðinn
og fær 20 þúsund krónur fyrir full-
an vinnudag. Mér finnst hræðilega
illa farið með þetta unga fólk ef
það verður að strita allt sitt líf fyrir
engin laun. Ég er alveg viss um
að það eru nægir peningar til í
þessu þjóðfélagi."
Kristín Þorsteinsdóttir
Ljósm.: Emilía
Kjartan Lárusson
ívar Már Kjartansson
Brynleifur Siguijónsson
lagerverkstjóri hjá Sól hf.:
„Þessir samn-
ingar voru ekki
gerðir fyrir þá
lægst launuðu“
„Mér fmnst þessi samningar ekki
góðir og láglaunabætumar hlægi-
legar. Það sjá allir, að það er skrípa-
leikur að láta þá sem eru með
16—17 þúsund króna mánaðartekj-
ur fá 6 þúsund króna láglaunabætur
á ári. Þessir samningar vora ekki
gerðir fyrir þá lægst launuðu. Það
lifir enginn íjölskyldumaður á 20
þúsund krónum á mánuði. En þetta
hefur alltaf verið svona undanfarin
ár, þeir lægst launuðu sitja alltaf
eftir. Ég hef þó trú á að verðlag
geti haldist nokkuð stöðugt, en það
má ekki bitna á þeim lægst launuðu
þegar reynt er að vinna bug á
verðbólgunni.
Sjálfur hef ég ekki yfír neinu að
kvarta, en ég hef ekki orðið var við
neinar verðlækkanir, eingöngu
verðhækkanir, nema lækkun á
bensínverði sem er annar skrípa-
leikurinn, verðið lækkar hér um
eina til tvær krónur þegar lækkun
verður á olíuverði erlendis."
Hólmsteinn Jóhannsson
afgreiðslumaður í versl-
uninni Geysi:
„Hefði viljað fá
tollalækkanir á
öðru en bílum“
„Mér finnst þessi nýja stefna að
sumu leyti góð og að sumu leyti
slæm. Ég er t.d. ekki sáttur við
þessar tilfærslur lífeyrissjóðanna,
þeir vora ekki stofnaðir fyrir hið
opinbera og því er ég ekki sáttur
við að lífeyrissjóðimir leggi jafn
mikið í húsnæðissjóð eins og gert
er ráð fyrir í hinum nýju lögum um
húsnæðismál. Ég er hlynntur því
að reynt sé að halda verðbólgunni
í skefjum, en ég hefði viljað fá
tollalækkanir á öðru en bílum. Þeir
sem minnst mega sín hafa ekki
efni á bflum og hefði því verið eðli-
legra að lækka verð á neysluvöra
sem enginn kemst af með.
Ég held það sé hæpið að þessi
stefna vari í langan tíma, þetta
gengur meðan fískurinn er í topp-
verði og olíuverð lágt, en hvað
gerist ef það breytist?. Ég fínn ekki
nokkum mun á verðlagi, hef ekki
fundið fyrir neinum verðlækkun-
um.“