Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ 1986
29
Réltur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í Hávamálum segir; Hjarðir (bú-
peningur) vita hvenær halda skuli
heim af grasi, en óvitur maður
þekkir aldrei sitt magamá).
Fiskur er víðast felldur undir
megrunarfæði, því er í dag bætt við
gómsætri sítrónusósu sem „viðbiti".
Vamir:
1. Hreinlæti, inikið og gott hrein-
læti.
2. Stöðug og góð kæligeymsla
matvæla.
Sóðaskapur eða
vanþekking?
Við kjötborð einnar matvöruversl-
unar borgarinnar bauð ung stúlka
mér aðstoð. Þegar hún gerði sig lík-
lega til að handfjatla kjötið með
hendi sem skreytt var þremur sára-
plástrum hætti ég við kaupin og
hefí ekki keypt þar kjötmeti síðan.
Lúða með
sítrónusósu
800 gr lúðusteikur,
1 msk. sítrónusafi,
salt og pipar,
3 eggjarauður,
3 msk. sítrónusafi,
50 gr smjörlíki,
2 dl. vatn,
V2 ten. kjúklingakraftur,
graslaukur eða
2 msk. söxuð púrra.
1. Fiskstykkin eru hreinsuð og þerr-
uð vel. 1 msk. sítrónusafi er settur
yfir fískinn svo og salt og pipar.
Fiskurinn er síðan bakaður í ofni eða
soðinn í litlu vatni. í ofni sýðst hann
í eigin safa og verður mjög bragð-
mikill. Fiskurinn er settur í smurt
mót eða álpappír og bakaður við
225°C í u.þ.b. 20 mín.
2. Sósan: Smjörlíkið er brætt og
sett til hliðar. Eggjarauðumar eru
látnar í skál (í gegnum sigti til að
fjarlægja himnur). Þær eru hrærðar
vel út með 3 msk. af sítrónusafa og
lítið eitt af rifnum sítrónuberki.
Vatni er bætt út í ásamt kjúklinga-
krafti, salti og pipar. Sósuefnið er
sett í pott yfir meðalhita og þeytt
stöðugt í á meðan það er að hitna.
Því næst er heitu smjörlíki eða
smjöri bætt út í smátt og smátt og
stöðugt hrært í á meðan. Potturinn
síðan tekinn af hellunni. Að síðustu
er fínt sneiddur graslaukur eða púrra
bætt út í sósuna og salt ef þarf.
3. Fiskurinn er settur á fat, örlítið
af sósunni er sett yfír fískinn. Hann
er síðan borinn fram með sósunni
og soðnum kartöflum.
Verð á hráefni
Lúða 800 gr
sítróna
smjörlíki
3egg
kr. 192,00
kr. 9,50
kr. 8,70
kr. 16,00
kr. 226,20
Staphylococcus-gerlar geta
auðveldlega valdið matareitrunum.
Þeir finnast oft í koki, munni og
nefi og á höndum manna. Getur
hann því auðveldlega borist í mat-
væli við handfjötlun. Hættan er
mest ef matvæli eru meðhöndluð af
fólki með hósta, eða með sár og
ígerðir á höndum.
Þessir gerlar fjölga sér í matvæl-
um við hitastig frá 7°C—45°C og
verði gerlafjöldinn nægjanlega mikill
getur hann valdið matareitrun.
Venjuleg suða drepur gerlana, en
eitrið eyðileggst ekki. Upphitun
matvæla nægir því ekki til að koma
í veg fyrir matareitrun.
Algengustu matvæli hér á landi
sem orsaka eitranir, eru soðnar
kjötafurðir eins og soðin skinka
(álegg) svo og upphitaður matur.
Einnig búðingar, kökur, mjólkur-
afurðir og lítið súrar sósur.
Séu búðingar, salöt með kjöti eða
kjúklingum, kartöflur eða egg
geymd við of lágt hitastig og Stap-
hylococcus-gerlar eru til staðar, geta
þeir fjölgað sér og framleitt nægjan-
legt eitur til að valda matareitrun.
(Veitið athygli ónógri kælingu
við geymslu eggja og áleggs í
mörgum verslunum borgarinnar).
Einkenni eitrunar koma fram
1—6 klst. eftir neyslu. Koma þau
fram í ógleði, uppköstum, niður-
gangi og miklum magaverk. Hjá
flestum eru þau horfin eftir 1—2
daga.
B.M. Vallá kynnir Blómasteina - nýtt kerfi gangstéttar-
hellna, hleðslusteina og kantsteina sem býður upp á
nýjar og spennandi lausnir.
O
O
0
0
Hellur
Við bjóðum tvær gerðir af hellum í Blómasteinskerfinu:
ílanga og sexkantaða. Vegna lögunar sinnar og þykktar
henta hellurnar sérstaklega vel þar sem álag er mikið, s.s.
í innkeyrslur, bílastæði og iðnaðargólf. Að sjálfsögðu eru
þær kjömar f gangstíga og alla aðra venjulega notkun.
Hleðslusteinar
Meö tveimur stærðum af hleðslusteinum er hægur vandi
að búa til blómaker, tröppur, tjamir og ýmsar aðrar
hleðslur, og nota síðan hellur með sams konar mynstri í
hellulögnina. Tvo hleðsiusteina er einnig hægt að líma
saman með steinlími og auka þannig enn á fjölbreytnina.
Kantsteinar
Með notkun kantsteinsins er auðvelt að leggja scxköntuðu
hellumar með öðrum hellutegundum.
Við söluskrifstofu okkar að Breiðhöfða 3 höfum við
komið upp sýningaraðstöðu fyrir framleiðslu okkar.
Par getur þú séð Blómasteinskerfið í notkun svo og
flestar aðrar gerðir af hellum og skrautsteinum sem
við framleiðum.
Söluskrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-18, og á
laugardögum frá kl. 9-15, þar getur þú einnig fengið
litprentaðan bækling með ýmsum hugmyndum um
notkun skrautsteina og hellna.
STEINAVERKSMIÐJA
Söluskrifstofa
Sýningarsvæði
Breiðhöfða 3
Sími (91) 68 50 06
B.M.VALLÁ'