Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
33
Stríðið hefur breytt miklu?
„Stríðið breytti öllu. Þá gátu allir
fenpð vinnu og skyndilega var til
nóg af peningum. Við höfðum ekki
nema gott eitt af hemum að segja.
Hann var í nábýli við okkur, en
aldrei kom til neinna árekstra né
óþæginda."
Eftir stríðið hélt Einar áfram
búskap í hálfan annan áratug. Þau
hjónin höfðu nokkuð umleikis og
heyjuðu m.a. jörð upp í Kjós. Um
1960 tók borgin jörðina undir bygg-
ingarlóðir og þau hættu búskap.
Nú er þétt byggð í kringum Lækjar-
hvamm og af bænum sést hvorki
tangur né tetur. Glöggir greina þó
litla þúfu þar sem jafnað var yfir
tóftimar. Berta, kona Einars, lést
fyrir 18 árum. Hann býr nú í blokk
við Skipholt, sem stendur í „tún-
fætinum" ágamla Lækjarhvammi.
A ung-mennafélaginu
mikið að þakka
Einar hóf fljótt störf að félags-
málum. Listinn yfír þau stjómar-
og nefndarstörf sem hann hefur
gegnt er orðinn æði langur. Taldist
blaðamanni til að Einar hafi setið
í einum 18 stjómum um dagana.
Hann varð formaður UMFA 1920,
formaður Jarðræktarfélags Reykja-
víkur 1943 og hefur síðan gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
bændahreyfinguna. Sitt fyrsta Bún-
aðarþing sat Einar árið 1942 og
sótti þau næstu 36 árin. Pólitík
lætur hann sig litlu varða, en var
þó varamaður í borgarstjóm kjör-
tímabilið 1942—’46.
„Eg hef aldrei skipt mér mikið
af pólitík. Ef nokkuð er hallast ég
á hægri vænginn. Það byijaði eigin-
lega sem kergja í mér þegar ég var
til sjós. Þá hafði maður gaman af
því að vera í andstöðu, eins og oft
síðar. Flestir sjómenn á þeim ámm
voru vinstri sinnaðir, jafnaðarmenn.
Þannig hertist maður upp í það að
vera íhald. Félagsmálaáhuga fékk
ég fljótt, og einhverveginn hefur
þetta tollað við mig síðan. Ég á
ungmennafélaginu mikið að þakka.
Þar kynntist maður jafnöldmm sín-
um og lærði gildi samvinnunnar."
Þú hefur ekki látið til þín taka
í verkalýðsmálum?
„Nei, ég hef ekkert gert af því.
Bændahreyfíngin er minn vettvang-
ur.“
Eins og áður segir hefur Einar
nú tekið þá ákvörðun að setjast í
helgan stein. Seinna á árinu er von
á heilmikilli bók um ævi hans og
störf. Hæverskur segir hann að sér
þyki mikið fyrir sér haft.
„Þetta er löng ævi, en ósköp
venjuleg. ..“
I dag dvelst Einar hjá dóttur sinni
á Selfossi og tekur á móti gestum.
Golfklúbburinn Keilir
ogB, Magnússon (Kays)
auglýsa fyrsta golfmótið á suðvesturhorninu.
KAYS — OPIÐ GOLFMÓT
verður haldið laugardaginn 3. maíá Hvaleyrarvelli.
Ræst verður út frá kl. 08.30.
Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur með/án forgjafar.
Stórglæsileg aukaverðlaun verða fyrir að vera næst holu á
eftirtöldum brautum.
6. braut: Fulltgolfsett ásamt poka
ogkerru.
11. braut: Fullt golfsett.
16. braut: Golfpoki.
17. braut: Golfkerra.
Æfingadagur fyrir mótið verður
föstudaginn 2. maí. Skrásetning
og upplýsingar verða í skálanum,
sími 53360.
Kappleikjanefnd
RM B. MAGNUSSON
Wmmu VI HÓLSHRAUNI 2 - Sl'MI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
hann sér samt tíma til að sinna ótal
trúnaðarstörfum í þágu bænda-
stéttarinnar, ungmennahreyfíngar-
innar og annarra. Skýringarinnar
er líkast til að leita í hæfileikanum
til að umgangast fólk, fá það á sitt
band og að vinna fyrir sig. Það
hafa sagt mér menn, sem hafa
unnið með Einari að erfíðum samn-
ingamálum t.d. í Sexmannanefnd-
inni, að oft hafi hann átt hvað
mestan þátt í því að leysa erfíða
hnúta. Þetta er sagt að öðrum
ólöstuðum.
Sagt er að létt lund hafi mikið
að segja fyrir starfsþrek manna.
Kímnigáfu hefur Einar góða og
einkar er mér hugleikinn allskonar
galsi sem Einar átti til að hafa í
frammi gagnvart hjúum sínum á
Bæ og í Lækjarhvammi, án þess
að um illkvittni væri að ræða. Einar
átti það einnig til að láta ýmsa
kviðlinga fjúka við hin og þessi
tækifæri án þess að sérstaklega
dýrt væri kveðið. Var þá gjaman
verið að glettast við einhvem í góðu.
Kunn er sagan af Grikkjanum
sem bauð Rómveijanum að snæða
með sér. Þótti Rómverjanum matur-
inn bragðlaus og lítt kryddaður. Þá
varð Grikkjanum að orði: „Vinna
og hlaup, hungur og þorsti er það
krydd sem Grikkir nota í mat sinn.“
Þetta er sjálfsagt einnig það
krydd, sem gerir mönnum kleift að
skila sjötíu ára starfsævi eftir tví-
tugt, fyrst áratug til sjós, fjörutíu
ámm við búskap og loks tuttugu
ámm við almenn skrifstofustörf.
Kristjón Kolbeins
ÆVINTÝRAHEIMUR THAILANDS:
Allt
sem þér hefur dottið í hug
fyrir verð sem þér hefur
aldrei dottið í hug.
<
co
£
^\^egna sérstakra samninga SAS og
Flugleiða er þér nú gert kleift að
kynnast ótrúlegum ævintýraheimi
Thailands í heila 17 daga fyrir enn
ótrúlegra verð; 52.249,— krónur per
mann í tveggja manna herbergi. Og
það er ekki eftir neinu að bíða;
brottfarir eru alla þriðjudaga a.m.k.
út maí. í september byrjar svo gaman-
ið aftur.
Aukavika
fyrir kr. 3.698,-
Gist er í 4 nætur í Bangkok og 10
nætur á óviðjafnanlegri Pattaya strönd-
inni. Þar er dvalið á fyrsta flokks hóteli
og aukavika kostar aðeins 3.698,—
krónur. Það er frábært verð fyrir allar
þær vellystingar sem í boði eru.
'Einnig er hægt að gista á lúxushóteli
og verðið hækkar þá aðeins um litlar
5.994,- krónur. íburðurinn á þessum
hótelum er engu líkur.
Aukavika í Singapore
fyrir 9.828,- krónur.
Þú getur líka farið í sérferð til Singa-
pore. Þar er gist á enn einu lúxushótel-
inu og til að kóróna allt er þar boðið
uppá 3ja daga skipsferð til Indónesíu
og ógleymanlega siglingu með einka-
snekkju.
Allar nánari upplýsingar um þetta ein-
staka ævintýri eru veittar á næstu ferða-
skrifstofu ogsöluskrifstofum Flugleiða.
FLUGLEIÐIR
S4S