Morgunblaðið - 01.05.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Ráðstefna um efl-
ingu atvinnulífs
á Suðurnesjum
Ráðstcfna um eflingu atvinnulífs á Suðurnesjum verður haldin í
Stapanum, Njarðvík, nk. laugardag, 3. maí, og eru þingmenn kjör-
dæmisins sérstaklega boðaðir. Fundarstjórinn, Einar S. Guðjónsson
setur ráðstefnuna kl. 13.00 og síðan flytur Karl Steinar Guðnason,
formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, ávarp.
Daníel Gestsson verkfræðingur
flytur erindi um verkefnastjómun,
Grímur Þ. Valdimarsson forstjóri
Rannsóknastofnunar Fiskiðnaðar-
ins §allar um nýtingu sjávarafla,
dr. Jón B. Bjamason ræðir um há-
skólann og atvinnulíflð og rann-
sóknir á líftækni í flskiðnaði. Þá
kemur Hjörtur Hjartar hagfræðing-
ur og fjallar almennt um iðnaðar-
mál og bæjarstjóri Njarðvíkur,
Albert Sanders, ræðir um bæjarfé-
lög á Suðumesjum.
Eftir fyrirspumir og kaffíhlé
flytur Páll Gíslason verkfræðingur
erindi um þjónustu og markaðsmál
á vegum Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins, Rögnvaldur Gíslason,
deildarstjóri hjá Iðntæknistofnun
íslands ræðir um þjónustu Iðn-
tæknistofnunar, Eiríkur Alexand-
ersson framkvæmdastjóri talar um
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum, Albert Albertsson verk-
fræðingur íjallar um Hitaveitu
Suðumesja og tengsl hennar við
atvinnulífið og síðastur á mælenda-
skrá er Gylfl Isaksson verkfræðing-
ur, sem ræðir um skipulagsmál
Suðumesja í framtíðinni, staðsetn-
ingu fyrirtækja og stóriðnaðar.
Þörungavinnslan
Rekstur Þörungavinnslunnar stöðvaður:
Nýtt „BSRB-blað“
hefur göngu sína
FYRSTA tölublað BSRB-blaðsins
er komið út og er blaðið arftaki
Ásgarðs, sem Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja hefur gefið
út i 35 ár. BSRB-blaðið er gefið
út í 17.500 eintökum og er rit-
stjóri þess Helgi Már Arthursson,
en í leiðara segir hann að ætlun
blaðstjórnar sé að „fjalla um
þjóðmál í víðasta skilningi orðs-
ins. Við ætlum ekki að einblína
á kjaramál í þrengstu merk-
ingu.“ Blaðið er 80 blaðsíður að
stærð.
Efni blaðsins er viðtal við Styrmi
Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðs-
ins, um blaðið og viðhorf þess til
þjóðmála, grein um húsnæðismál,
sem þátt í samningum, grein um
efnahagsmál og samninga og grein
um Svíþjóð eftir morðið á Olof
Palme. Þá er í BSRB-blaðinu grein,
sem ber heitið: „Fjölmiðlamálið er
strand" og litið er inn á æfingu á
Ríkarði þriðja. í blaðinu er grein,
sem ber yfirskriftina: „Þarf að
skipuleggja félög opinberra starfs-
manna upp á nýtt?“, grein um hús-
næðislán, verkalýðsbaráttu fyrir
dómstólum og loks er grein um
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar 60 ára með myndum úr
afmælishófi þess.
BSRB-blaðið er sent öllum fé-
lagsmönnum innan Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja.
Viðskiptavild og markaðsstarf fyrir-
tækisins í hættu verði ekkert að gert
— segir Kristján Þór Kristjánsson f ramkvæmdastj óri
Miðhúsum, Keykhólasveit.
KRISTJÁN Þór Kristjánsson
framkvæmdastjóri Þörunga-
vinnslunnar hefur í samráði við
formann stjórnar Þörunga-
vinnslunnar ákveðið að stöðva
rekstur hennar. „Þangvertíð átti
að hefjast nú um mánaðamótin,
en ekki verður byijað á þang-
slætti fyrr en stjórnvöld hafa
markað skýrari línur um með-
ferð og framtíð Þörungavinnsl-
unar,“ sagði Kristján í samtali
við fréttaritara Morgunblaðsins
ígær.
Kristján sagði að á síðastliðnu
sumri hefði ríkisstjómin og Alþingi
markað ákveðna stefnu í málefnum
Þömngavinnslunnar og um áfram-
haldandi rekstur hennar. „En við
ráðherraskiptin í haust kom upp sú
staða að sá sem tók við iðnaðar-
ráðuneytinu hefði ekki áhuga á að
framfylgja stefnu fyrirrennara síns
og hefur látið reka á reiðanum í
málefnum Þömngavinnslunnar og
íbúa byggðariagsins við innanverð-
an Breiðafjörð," sagði Kristján.
„Með dyggum stuðningi formanns
Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráð-
herra, og þrátt fyrir yfirlýsta stefnu
ríkisstjómarinnar og heimildar-
ákvæði í lögum landsins sem sam-
þykkt var á Alþingi síðastliðið vor,
hafa þeir ákveðið að krefjast gjald-
þrotameðferðar á Þömngavinnsl-
unni hf. Þetta þýðir samkvæmt
upplýsingum ráðuneytisstjóra og
skrifstofustjóra fjármálaráðuneyt-
isins, að þess er krafíst af stjóm
fyrirtækisins að hún lýsi fyrirtækið
gjaldþrota, með þeim afleiðingum
sem það kann að hafa fyrir lánar-
drottna fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri og ýmsir
stjómarmenn fyrirtækisins hafa á
undanfömum vikum og mánuðum
reynt af fremsta megni að skýra
málefni Þömngavinnslunnar fyrir
forsætisráðherra og samgönguráð-
herra, sem jafnframt em þingmenn
byggðarlagsins, og hafa mætt
skilningi og stuðningi, en jafnframt
engum árangri. Stjóm Þömnga-
vinnslunnar lýsti því yfír við fyrr-
verandi iðnaðarráðherra á haust-
mánuðum 1984, en iðnaðarráðherra
hefur forræði Þömngavinnslunnar,
að við óbreyttan rekstur væri ekki
hægt að búa. Fyrrverandi iðnaðar-
ráðherra, Sverrir Hermannsson, tók
á málinu með festu og markaði
stefnu, sem allir sættu sig við og
unnu að hvar í flokki sem þeir stóðu.
Ekki er að efa að ef Sverrir hefði
haft tíma hefði hann lokið málinu
með sóma.
Á gmndvelli orða Sverris, yfír-
lýstrar stefnu ríkisstjómarinnar og
samþykktar Alþingis, hélt stjóm
Þömngavinnslunnar áfram rekstri
fyrirtækisins, þess fullviss að eng-
inn aðili skyldi vera svikinn af við-
skiptum við Þömngavinnsluna.
Skuldunautar fyrirtækisins hafa
einnig haldið uppi lánaviðskipum
við Þömngavinnsluna í góðri trú.
Nú blasir við, eins og áður segir,
að fyrirtækið verði tekið til gjald-
þrotaskipta, ef marka má orð ráðu-
neytisstjóra fjármálaráðuneytisins,
og þar með eyðilagt allt sem ekki
var þegar búið að eyðileggja með
aðgerðaleysi Alberts Guðmunds-
sonar iðnaðarráðherra og Þorsteins
Pálssonar fjármálaráðherra. Inn-
lend og erlend viðskiptavild fyrir-
tækisins, ásamt áralöngu markaðs-
starfi, er í mikilii hættu ef ekki
verður tekið á málinu af ábyrgð og
alvöm,“ Kristján Þór Kristjánsson
í lokin. .
Sveinn
Landsþing Slysavarnaf élagsins
21. LANDSÞING Slysavamafé-
lags ísiands hefst á morgun,
föstudaginn 2. maí, með þátttöku
um 200 fulltrúa frá slysavarna-
deildum og björgunarsveitum um
allt land. Þingið verður sett
klukkan 15.00 í félagsheimili
Seltjarnamess, að aflokinni guðs-
þjónustu í safnaðarheimili Sel-
tjarnarneskirkju.
Á dagskrá þingsins verður meðal
annars tii umræðu starfsáætlun fé-
lagsins næstu tvö árin, auk hefð-
bundinna þingstarfa. Hannes Haf-
stein framkvæmdastjóri Slysavama-
félagsins sagði að öryggismál sjó-
manna myndu einnig verða ofarlega
á baugi, og þá sérstaklega slysa-
vamaskóli sjómanna. Hannes sagði
að fljótlega kæmi að því að gamla
varðskipið Þór yrði tekið í notkun
sem æfíngaskip fyrir skólann.
Bændur heiðraðir fyrir bestu nautin:
Gegnir 79018 besta
nautið í sínum árgangi
BÚNAÐARFÉLAG íslands hef-
ur ákveðið að heiðra áriega
þann bónda sem lagt hefur
Nautastöð búnaðarfélagsins til
besta nautið af hverjum ár-
gangi. Afhending fyrstu heið-
ursviðurkenningarinnar fór
fram nýlega er þeim bræðmm
Karli og Oskari Þorgrímsson-
um á Efri-Gegnishólum í Gaul-
veijabæjarhreppi var afhent
verðlaun fyrir nautið Gegnir
79018, en það var að mati
kynbótanef ndar Búnaðarfélags
íslands í nautgriparækt besta
nautið sem borið var árið 1979.
íslenskir bændur hafa um ára-
tuga skeið stundað öflugt ræktun-
arstarf í nautgriparækt. Gmnd-
völlur ræktunarstarfsins er
skýrsluhald á vegum nautgripa-
ræktarfélaganna. Árið 1985 héldu
um 900 bændur afurðaskýrslur
um kýr sínar og fengust á þann
hátt upplýsingar um afurðir ein-
Karl Þorgrímsson með verð-
launin fyrir Gegni 79018.
stakra kúa, fyrir um 60% af öllum
kúm í landinu á síðastliðnu ári.
Búnaðarfélagið rekur nauta-
stöð á Hvanneyri. Sæði úr nautum
þar er notað um allt land. Árlega
em tekin þar í notkun um 20
naut sem em á hveijum tíma valin
undan bestu kúm landsins. Úr
hverju nauti em frystir til geymslu
um 7.000 sæðisskammtar. Þegar
þeirri söfnun er lokið em nautin
felld og em þau þá flest rúmlega
tveggja ára gömul. Fljótlega em
notaðir 1.200-1.500 sæðis-
skammtar úr hveiju nauti. Að
nokkram áram liðnum koma
dætur nautanna inn í mjólkur-
framleiðsluna. Fást þá upplýsing-
ar um afurðahæfni þeirra úr
skýrslum nautgriparæktarfélag-
anna. Upplýsinga um ýmsa aðra
eiginleika kúnna er aflað með
skoðun á þeim. Þegar þessar
upplýsingar allar hafa fengist þá
er mögulegt að fella traustan
afkvæmadóm um nautin sem
byggður er á reynslu af dætram
LjÓ8mynd/Freyr J J.
Bræðrunum á Efri-Gegnishólum voru afhent verðlaun sín á
aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands i Árnesi 28. apríl síðast-
liðinn. Diðrik Jóhannsson framkvæmdastjóri Nautastöðvar Búnað-
arfélagsins afhenti Karli Þorgrimssyni verðlaunin. Vinstra megin
við Driðrik á myndinni er Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri en
hægra megin við Karl eru Jón Viðar Jónmundsson nautgriparækt-
arráðunautur og Hjalti Gestsson ráðunautur á Selfossi.
þeirra. Þau naut sem þannig
hljóta bestan afkvæmadóm eru
þátekin til áframhaldandi notkun-
ar. í ársbyijun 1986 vora þannig
fyrir hendi upplýsingar til að
afkvæmadæma þau naut sem
borin vora árið 1979.
Gegnir 79018 var borinn 26.
júlí 1979 á búi þeirra Karls og
Óskars Þorgrímssona á Efri-
Gegnishólum í Gaulveijabæjar-
hreppi í Amessýslu. Faðir Gegnis
var Toppur 71019 frá Kastala-
brekku í Ásahreppi, en móðir
hans, Mús 108, var mikill afurða-
gripur með frábæra endingu. Mús
var felld í janúar 1986 og hafði
þá mjólkað um 65 þúsund kfló
mjólkur á nær 12 áram. Mús var
dæmd besta kýrin í Ámessýslu á
héraðssýningum á kúm árið 1983.
Gegnirvar felldur30. júní 1981.