Morgunblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
39
Skýjamyndanir yfir Chernobyl
Þessar myndir voru teknar úr gervihnetti og sýna skýjamyndanir yfir Chernobyl sl. laugardag.
Myndin til vinstri var tekin árla morguns en hin um hádegisbil. Örin á myndunum bendir á kjarn-
orkuverið. Á þessum tíma blésu suðvestlægir vindar en nú hafa þeir snúist vestur og er geislunar
farið að gæta meira í Austur-Evrópu og einnig í Austurríki og Sviss.
Suður-Afríka:
Búist við að millj-
ónir blökkumanna
taki sér frí 1. maí
Jóhannesarborg, Suður-Afríku. AP.
FYRSTI maí er ekki opinber frí-
dagur í Suður-Afríku, en engu
að síður er búist við að milljónir
blökkumanna taki sér frí úr
vinnu og skóla í dag til þess að
halda upp á alþjóðlegan hátíðis-
dag verkalýðsins.
Baráttan fyrir því að dagurinn
verði almennur frídagur nýtur
óskoraðs stuðnings þeirra samtaka
blökkumanna, sem betjast á móti
aðskilnaðarstefnunni. Það verður
því prófsteinn á styrkleika þessara
samtaka, hveijar undirtektimar
verða.
Lögregla landsins hefur mikinn
viðbúnað og hótar því, að þeir, sem
reyni að hræða blökkumenn frá
vinnu, verði „beittir hörðu“.
Skipuleggjendur aðgerðanna
hafa valið að einkunnarorðum
dagsins „Hundrað ára arðrán" til
þess að leggja áherslu á, að í dag
er 100 ára afmæli frídags verka-
lýðsins og enn fremur aldarafmæli
Jóhannesarborgar og gullnámsins
þar.
„Svartir verkamenn eiga þennan
frídag skilið," sagði James Motlatsi,
forseti landssambands blakkra
námaverkamanna. „Þeir hafa strit-
að allar götur frá árinu 1886 og
eru enn fátækir."
Landssambandið hefur uppi ýms-
ar kröfur, sem það leggur áherslu
á að fá framgengt, svo sem að 1.
maí verði almennur frídagur, vinnu-
vikan verði 40 stundir, allt verka-
fólk fái eftirlaun og pólitískum
föngum verði sleppt.
Flest námafélög hafa reynt að
koma í veg fyrir, að verkamenn
leggi niður vinnu, en þar em nokkr-
ar undantekningar.
Noregur:
Eðlilegast að mið-
flokkarnir stjórni
— segir Gro Harlem Brundtland
Osló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins.
„ÞAÐ verður að mynda þá ríkis-
stjórn, sem komið getur í veg
fyrir, að keðjuverkandi stjórnar-
kreppur taki við hér í Noregi,“
sagði Gro Harlem Brundtland í
gær, nokkrum klukkustundum
eftir að hún hafði tekið þátt í
að fella ríkisstjórn borgaraflokk-
anna. Hún vildi ekki samþykkja,
að sjálfsagt væri, að hún tæki
við forsætisráðherraembættinu.
Gro Harlem Brundtland sagði á
fundi með fréttamönnum, að eðli-
legast væri, að miðjuflokkamir, þ.e.
Miðflokkurinn og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn, tækju nú við og mynd-
uðu stjórn, þar sem borgaralegur
meirihluti væri í Stórþinginu.
Hún lét jafnframt í það skína,
að hún væri reiðubúin til að veita
nýrri ríkisstjórn forystu, ef aðrar
lausnir fyndust ekki.
„Eg er þreyttur og gramur,"
sagði Káre Willoch aðfaranótt mið-
vikudagsins, þegar hann hafði sagt
GENGI
GJALDMIÐLA
London. AP.
Bandaríkjadollar lækkaði
heldur á Evrópumarkaði
seinni hluta gærdagsins, er
ný gögn birtust um slaklegan
hagvöxt í Bandarikjunum.
Gullverð hækkaði.
Dollaragengið var á flökti
lengst af og styrktist heldur,
en fréttimar frá Bandaríkjun-
um þrýstu dollaranum niður á
við frá því sem hann var hæstur
um miðjan daginn.
Gengi dollarans var þannig
háttað, er gjaldeyrismarkaðir
lokuðu, að hann kostaði 2,1670
vestur-þýsk mörk (2,1685),
1,8205 svissneska franka
(1,8155), 6,9175 franska
franka (6,9075), 1.489,50 ít-
alskar lírur (1.488,00), 1,3785
kanadíska dollara (1,38125) og
168,10 japönskjen (167,35).
Breska pundið kostaði
1,5515 dollara (1,5523).
Gull hækkaði í Evrópu og
kostaði í London 346,00 dollara
únsan (345,00).
Gro Harlem Brundtland
af sér. „En ég er ekki niðurbrotinn".
Hann kvaðst mundu gefa nýrri
stjórn Verkamannaflokksins vinnu-
frið, ef hún yrði mynduð. „Við emm
reiðubúnir til málamiðlunar," sagði
hann. „Og við munum láta málefnin
ráða ferðinni í stjórnarandstöðu,
ekki greiða atkvæði á móti stjóm-
inni aðeins til að valda vandræð-
um.“
Japan:
Sneypuleg-
fjallganga
Tókýó.AP.
YOSHITARI Suzuki dvaldi 38
daga á Fuji-fjalli í Japan með
ekkert sér til viðurværis nema
snjó og lifði það af. Eigandi
fjallakofa bjargaði honum á
þriðjudag.
Suzuki lagði í hann upp fjallið
20. mars. Vegna mikils fannfergis
neyddist hann til að leita sér skjóls
í vöruskemmu í 1.900 m. hæð. Þar
Iagðist hann fyrir og vafði sig
ábreiðum. Borðaði hann snjó þar
til hann fannst. í vöruskemmunni
var hvorki kynding, matur, né elds-
neyti.
Suzuki var færður í læknishend-
ur og liggur nú á sjúkrahúsi. Ástand
hans er ekki alvarlegt.
Vmnmgar
strax
rsta flokki
Vinningur til íbúðarkaupa á l.OOO. 000 kr.
6 vinningar til bílakaupa á 200. OOO kr. hver.
120 utanlandsferðir á 40. OOO kr. hver.
120 húsbúnaðarvinningar á 10.000 kr. hver og
353 húsbúnaðarvinningar á 5. OOO kr. hver.
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða
og flokksmiða stendur yfir.
Mánaðarverð miða kr. 200, ársmiða kr. 2.400.
Dregið verður i 1. flokki 7. mai.
Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld
___HAPPDKÆTTI________
Dvalarheimilis aldradra sjómanna