Morgunblaðið - 01.05.1986, Page 61
61
ýmislegt til greina og vil ég nefna
hér tvö atriði. Með þeim tæknifram-
förum sem orðið hafa á síðustu
árum er nú mörgulegt að vakta
stór svæði í gegnum símalínur
Væri m.a. mögulegt að vakta
VR-húsið, Gimli, Breiðablik, Furu-
gerði, Langagerði, Samtök aldraðra
við Bólstaðarhlíð og ýmsa íbúa
þessa svæðis sem búa í venjulegum
íbúðum með einni vakt. Þetta væri
ekki umtalsverður kostnaður á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar en
all verulegur fyrir einstaklingana
miðað við tekjur. Má sem dæmi
nefna að vakt á vegum einkafyrir-
tækja kosta u.þ.b. 1100 kr. á mán-
uði á mann. Annað er það sem
veldur öldruðum verulegum erfíð-
leikum og útgjöldum og það er
umhirða lóða og snjómokstur og
væri veruleg bót fyrir þessa aðila
ef bæjaryfirvöld kæmu þar inn í.
Ríkið gæti komið inn í þessa mynd
m.a. með fjárframlögum til bygg-
inganna og er mun ódýrara fyrir
báða þessa aðila að aðstoða við
byggingu og rekstur slíkra húsa en
að taka að sér að byggja þau og
sjá um allan rekstur þeirra. Finnst
mér lítið atriði þó hér væri eitthvað
það gert, sem ekki er gert fyrir
aðra þjóðfélagshópa.
Ríki og bær gætu einnig auðveld-
að öldruðum íbúðaskipti með því
að kaupa eignir þeirra til útleigu
og fyrir verkamannabústaði og
hefur a.m.k. Reykjavíkurborg gert
þetta að einhverju leyti.
Enn sem komið er hef ég aðeins
nefnt tjárhagsleg vandamál við
íbúðaskipti en þeim fylgja einnig
félagsleg vandamál, engu minni.
Það er mikið átak að taka sig upp
eftir áratuga búsetu, fækka hús-
munum og flytja í ókunnugt hverfí.
Þar við bætist að fasteignamarkað-
urinn er nokkurs konar frumskógur
þar sem eitilharðir ijármálamenn
ráða ríkjum og ef fólk ekki skilur
til fullnustu kjör hans og reglur er
því hreinlega hætta búin. Eldra fólk
er flest ókunnugt verðtryggðum
lánum og því gengur illa eiris og
svo mörgum öðrum að skilja til
fullnustu hvaða greiðslubyrði það
er að taka að sér. Áhætta þessa
hóps er þó meiri en flestra annarra
þar sem tekjur þeirra eru oftast.
mun minni. Eldra fólk þarf oft mun
meiri tíma til að setja sig inn í mál
og til ákvörðunartöku. Þeir ofmeta
oft eignir sínar og sölumöguleika
þeirra og þyrftu að njóta sérstakrar
aðstoðar við fasteignasölu og -kaup.
Það er stór hluti þeirra sem ekki
ekur á eigin bílum og á því erfítt
með að komast milli bæjarhluta til
að skoða húsnæði. Mikil hagsmuna-
bót væri fyrir þetta fólk að geta
leitað til einhvers aðila, sem ekki á
hagsmuna að hæta og sem það
getur treyst til að gefa sér réttar
upplýsingar og leiðbeina við kaup
og sölu. Þyrfti viðkomandi að geta
farið með þeim til að skoða hús-
næði. Oryggisleysi eldra fólks er
oft mjög mikið og sá hraði sem
orðinn er á öllum hlutum er því oft
ofviða. Það má ætla að ýmsir leggi
árar í bát og búi áfram við ómögu-
legar aðstæður. Sérhannað húsnæði
fyrir aldraða á ekki aðeins að
tryggja umönnun og húsnæðisör-
yggi, heldur einnig félagsskap. Það
er því mál allra að gera byggingu
slíks húsnæðis kleifa. Það verða
allir aðilar að leggjast á eitt og
veita aðstoð og ef það gerist ekki
nema með því að breyta einhveijum
reglum og tryggja þessum hópi
einhver forréttindi umfram aðra
borgara, þá fínnst mér það sjálf-
sagt. Hvort ríki og bær fá stein-
steypueignarhluta í eigum þess eða
ekki finnst mér hreint aukaatriði.
Aðalatrið er að tryggja að fólk geti
séð fyrir sér sjálft eins lengi og
þess er nokkur kostur.
Þetta erindi leysir engin vanda-
mál en ég vona að það geti verið
innlegg í gagnlegar umræður og
hugsanlega vakið einhveijar nýjar
hugmyndir, sem gætu orðið öldruð-
um að gagni.
Höfundur er starfsmaður Flug-
leiða og formaður bygginganefnd-
ar húss aldraðra félagsmanna VR.
Erindiþetta var flutt á ráðstefnu
um stöðu ogframtíð húsnæðis- og
byggingamála á Akureyri.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1986
Jazz-rokk
Björn Thoroddsen og félagar á Borginni
Björn Thoroddsen gítarleikari og félagar hans halda tónleika á Hótel
Borg á laugardaginn kl. 15. Leikur hljómsveitin sambland af jazzi og rokki.
Hljómsveitina skipa, auk Bjöms, sem er lengst til vinstri á myndinni, þeir
Jóhann Ásmundsson bassaleikari, Steingrimur Óli Sigurðsson trommuleikari
og Þórir Baldursson hljómborðsleikari. Þessi hljómsveit verður fulltrúi íslands
á mikilli jazzhátíð í Kongsberg í Noregi í júlí í sumar.
Akranes:
Ragriar Lár meö sýningu
RAGNAR Lár myndlistarmað-
ur á Akureyri opnar málverka-
sýningu í Bókhlöðunni á Akra-
nesi fimmtudaginn 1. maí.
Á sýningunni eru 37 málverk
unnin í olíu, gvass, kol og krít.
Flestar myndimar eru frá þessu
ári og því síðasta, en elstu mynd-
imar eru frá 1983. Auk þess verða
á sýningunni fmmmyndirnar
fímm af „Kynlegum kvistum",
sem Ragnar gaf út sáldþrykktar
í 200 tölusettum og árituðum
eintökum.
Ragnar Lár nam á sínum tíma
við Handíða- og myndlistaskólann
í Reykjavík og um árabil vann
hann undir handleiðslu Gunnars
Gunnarssonar listmálara. Ragnar
hélt sína fyrstu einkasýningu árið
1956 í Ásmundarsal við Freyju-
götu, en síðan hefur hann haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt
í nokkmm samsýningum. Síðast-
liðin fímm ár hefur Ragnar helgað
sig fijálsri myndsköpun eingöngu.
Á þeim tíma hefur hann sýnt tví-
vegis í Reykjavík, þrívegis á
Akureyri, á Húsavík og Blönduósi.
Sýningin á Akranesi er fímmta
einkasýning Ragnars þar. Sýning-
in í Bókhlöðunni er opin daglega
frá kl. 15:00 til 22:00 fram til
sunnudatrsins 4. maí.
AKar fetðimar eru aó seíjast upp/
Brottfarir eru 11. júní, 2. júlí, 23. júlí og
13. ágúst.
Uppselt er f júníferðina — biölisti, 2. júlí
eru 10 sæti laus, 23. júlí eru 17 sæti
laus og 13. ágúst eru 16 laus sæti.
Mikilvægt er því að hafa samband og
bóka ferð sem allra fyrst. Senn verður
uppselt í allar ferðir.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
umboðsmenn um land ^illt.
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Simi (91) 26900
GOTT FÖLK / SÍA
NÚ kemst M Ijötstyktm
sólaríerb tíl Cap d'Agde
fýrir óvenju hagstætt verð
í júlí getur fjölskyldan t.d. ferðast til Cap
d’Agde og búið þar í vellystingum í þrjár
vikur fyrir aðeins kr. 27.225,- á mann.
Verðið miðast við hjón með tvö börn
(2-11 ára). Aukavika kostar aðeins
3.000,- krónur. Innifalið er flugfar.
akstur milli flugvallar og gististaðar úti,
gisting í glæsilegu íbúðahóteli og
íslensk fararstjóm.
I Cap d’Agde
eru endalausar
vatnsrenni-
brautirogöldu-
sundlaugarfyr-
ir bömin að
busla í.
afslappandi dag á ströndmm er
tilvalið að bregða sór á veitingahús og
borða lygilega ódýran veislumat.
5 umarleyfisstaðurinn Cap d'Agde á
Miðjarðarhafsströnd Frakklands er
sannkölluðsólarparadís. Úrval gerirallri
fjölskyldunni kleift að komast þangað
fýrir viðráðanlegt verð með því að bjóða
mjög ríflegan barnaafslátt: 10-75%
afslátt af fullorðinsverði.