Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
é þeir tokv at honum bbkosafnssKÍrtdríih
þegar þár Komust ab þu\ aÁ haw er loökíasafnari •“
áster...
... að týna berin
saman.
TM Reg. U.S. Pat. Off,—all rights reserved
c1985 Los Angeles Times Syndicate
Ég geri aðeins það sem þú
hefur aldrei haft kjark til
að gera, pabbi!
410
Þú sækir sölustjóralaunin.
Þarft ekki að koma aftur.
Höfum við ekki selt einn
einasta sportbíl í allan
vetur!
HÖGNI HREKKVÍSI
Svar við fyrirspurn
til JC-hreyfingarinnar
í Morgunblaðinu 22. apríl sl. spyr
Birna G. Bjamfreðsdóttir hvort
JC-hreyfingin hafi tekið greiðslur
fyrir að skipuleggja fjársöfnun
Krabbameinsfélagsins.
Framkvæmdastjóri söfnunarinn-
ar Ami Gunnarsson leitaði til
JC-hreyfingarinnar 13. janúar sl.
eftir ábendingu frá Kvenfélagssam-
bandinu. Nokkmm dögum síðar þ.e.
18. jan. var framkvæmdastjómar-
fundur JC-hreyfingarinnar, þar
mættu fulltrúar allra aðildarfélaga
JC. Skemmst er frá því að segja
að á þessum fundi var einróma
samþykkt að taka þátt í fjársöfnun
Krabbameinsfélagsins.
Hlutverk okkar var að skipu-
leggja söfnunina um allt land, jafnt
dreifbýli sem þéttbýli.
Til að tryggja sem bestan árang-
ur söfnunarinnar var m.a. sett á
laggimar nefnd sem í áttu sæti sjö
aðilar víðs vegar að af landinu.
Formaður þessarar nefndar var
tengiliður nefndarinnar við Krabba-
meinsfélagið og bar ábyrgð á skipu-
lagi og söfnun á sínu svæði, þ.e.
a) Gullbringu og Kjósasýslu, b)
Reykjavík, c) Vesturlandi og Vest-
fjörðum, d) Norðurlandi, e) Austur-
landi og f) Suðurlandi.
Þá emm við komin að kjama
málsins, þ.e. ástæðu þeirrar hálf-
kveðnu vísu („heyrst hefur . . .“)
sem Bima vitnar til í fyrirspum
sinni.
Ljóst var að kostnaður nefndar-
manna yrði allvemlegur vegna
þessa verkefnis. Bauðst því Krabba-
meinsfélagið til að greiða þessum
einstaklingum beinan útlagðan
kostnað, s.s. vegna síma, sending-
arkostnað, vinnutaps o.s.frv. Benda
má t.d. á að sú sem sá um Vestur-
land og Vestfírði var með um sjötíu
tengiliði (staði) á sínum snæmm.
Fyrirspurn til
f JC-lircyf ingarinnar'
Rima G. Bjamleifsdóttir
hringdi:
Ýmis félög, s.s. nekkjarfflög,
lúðrasveitir o.fl. afla fjr með þvf
að taka að sér verkefni ýmiss konar.
Til að mynda bera sjálfboðaliðar út
almanök og ferðatilboð.
Heyrst hefur að JC-hreyfingin
hafi tekið að sér að stipuleggja fjár-
söfnun fyrir Krabbameinsfélag ís-
lands. í sjáifu sér er ekkert at-
hugavi rt við það nema hvað JC
hefur leitað til kvenfélaga og ann-
arra sjálflmðaliða til að annast
söfnunina.
F.g beini þeirri fyrirspum til for-
ystumanna JC-hreyfíngarinnar,
hvort rétt sé að þeir taki greiðslu
fyrir að skipuleggja söfnunina cn
fái svo sjálfboðaliða til að vinna
verkið. Þarft er að sannleikurinn
komi fram þvf mikið er um þetta
rætt meðal kvenna f kvenfélögum
og annarra.
Allir aðrir JC-félagar sem þátt
tóku, unnu að söfnun framlaga eða
skipulagningu í sínum byggða-
kjömum sem sjálfboðaliðar við hlið
ijölda annarra einstaklinga úr ljölda
annarra félaga, þ. á m. kvenfélaga.
011 lögðum við hönd á plóginn til
að vinna að þörfu verki og til að
láta gott af störfúm okkar leiða.
Verk okkar flestra var stund úr
degi, en ekki má gleymast að þau
sem skipulögðu verkið hafa unnið
að þessu meira og minna í þijá
mánuði og er þó starfí þeirra ekki
lokið enn. Enginn þeirra sem þátt
tók hefur mér vitanlega talið það
eftir sér að leggja málinu lið.
Árangur söfnunarinnar fór fram
úr björtustu vonum margra. Til-
gangi söfnunarinnar var náð, þ.e.
að safna nægu fé til að nauðsynlegt
starf Krabbameinsfélagsins gæti
haldið óheft áfram.
Fyrir hönd JC-hreyfíngarinnar
þakka ég öllum þeim sem lögðu
hönd á plóginn, með framlögum eða
vinnu, fyrir samstarfíð og óeigin-
gjamt framlag til góðs málefnis.
Gretar D. Pálsson
Kápan hvarf
Ágæti Velvakandi.
Mig langar að biðja þig að birta
eftirfarandi í dálkum þínum.
Föstudaginn 11. apríl síðastliðinn
fórum við fímm saman á Skálafell
til að hlusta á Austurríkismennina
frá Týról spila.
Það vildi þannig til, að enginn
var við vinnu í fatageymslunni þetta
kvöld vegna verkfalls. Eftir
skemmtunina, þegar við hugðumst
yfírgefa staðinn og ætluðum að ná
í yfírhafnir okkar, var ein kápan
horfín; dökkblár nýlegur kvenfrakki
með köflóttu fóðri, kápa af dýrustu
gerð, keypt í Markaðinum í Aðal-
stræti 9.
Við urðum sem von var miður
okkar þegar í ljós kom, að kápan
var ekki á staðnum og engin eftir
í hennar stað, svo ekki hafði verið
um misskilning að ræða. Kápunni
hafði hreinlega verið stolið og eig-
andi hennar varð að fara á kjólnum
heim.
Skora ég á þann, sem kápuna
tók, að skila henni hið fyrsta á
Skálafell.
Ein úr hópnum
Víkverji skrifar
Lánasjóður ísl. námsmanna hef-
ur verið mjög til umræðu á
liðnum vetri vegna margvíslegra
aðgerða Sverris Hermannssonar,
menntamálaráðherra, í málefnum
sjóðsins. Ein er sú breyting á málum
lánasjóðsins, sem ekki hefur verið
drepið á en er bersýnilega mjög
brýn. Hún er sú að lánasjóðurinn
fái nýja og fullkomna símstöð! Einn
viðmælenda Víkveija sagði sínar
farir ekki sléttar af tilraunum til
þess að ná símasambandi við Lána-
sjóðinn en sími hans er 25011, sem
viðskiptavinir hans kunna áreiðan-
lega utan bókar. Þessi aðili sat við
símann, með hvíldum að vísu, á
milli kl. 9.00 og 16.00 nú fyrir
nokkrum dögum. í hvert sinn, sem
hringt var á þessu tímabili var á
tali. Svo kom að þessi aðili taldi
óhugsandi að númerið væri alltaf á
tali og hringdi í 05 til þess að
spyijast fyrir um það, hvort sími
lánasjóðsins væri bilaður. Svarið
var afdráttarlaust. Sími lánasjóðs-
ins er ekki bilaður en hann er búinn
að vera á tali sl. þijár vikur!
Nú er það svo, að lánasjóðurinn
er ekki einn um það, að búa við
úrelt símakerfi. Það eru ótrúlega
mörg fyrirtæki og stofnanir, sem
eru með símstöðvar, sem anna ekki
lengur álaginu. Ástæðan fyrir þessu
er áreiðanlega sú, að þar til fyrir
nokkrum misserum var Póstur og
sími eini aðilinn, sem flutti inn sím-
stöovar. Verð þeirra var óheynlega
hátt og afgreiðslufrestur ótrúlega
langur. Innflutningsfrelsi og tækni-
framfarir við gerð símstöðva hafa
lækkað verðið mjög, þannig að nú
eru símstöðvar á viðráðanlegu
verði.
Þar með er ekki öll sagan sögð.
Símstöðvar Pósts og síma þurfa
einnig að vera svo fullkomnar að
þær anni álaginu. Það er sú stöð,
sem símakerfi miðbæjarins byggir
á, ekki en það stendur til bóta mjög
fljótlega. Áfleiðingin er sú, að þótt
Morgunblaðið t.d. sé með nýja sím-
stöð innanhúss hefur eftir sem áður
verið erfítt að ná sambandi við
10100 vegna þess hversu fáar línur
liggja inn í Aðalstræti 6 og það er
vegna gamallar miðstöðvar Pósts
og síma. En nú er þetta að breytast
eins og fyrr segir.
Þetta var útúrdúr. Hinn að-
sópsmikli menntamálaráðherra ætti
að beita sér fyrir því að Lánasjóður
ísl. námsmanna fái nýja símstöð,
svo að númerið sé ekki á tali um
margra vikna skeið.
XXX
að er að verða til eins konar
hringvegur um höfuðborgar-
svæðið. I París er hraðbraut, sem
liggur í hring utan um borgina.
Þeir, sem þurfa að fara á milli
borgarhluta aka gjarnan upp á
þennan hringveg og bruna eftir
’ hraðbrautinni og síðan út af henni,
þegar komið er að þeim borgar-
hluta, sem að er stefnt. Þetta er
til mikils hagræðis vegna þess, að
þá þurfa menn ekki að þræða
þröngar götur í mikilli umferð.
Þessi nýi hringvegur um höfuð-
borgarsvæðið er ekki hringvegur í
þeim skilningi, að hægt sé að aka
allt í kring um þetta svæði. En
hann þjónar sama tilgangi. Nú ligg-
ur við, að sá, sem ætlar að aka
frá Seltjarnarnesi til Hafnarfjarðar
geti ekið meðfram sjónum alla leið-
ina frá Seltjamamesi, um Skúla-
götu, Kleppsveg, Elliðavog og
Breiðholtsbraut og síðan áfram
austan við Kópavog og Garðabæ
ogtil Hafnarfjarðar. Þessi nýi vegur
er nú uppbyggður að mestu en eftir
er að leggja varanlegt slitlag á
veginn frá Vífílsstöðum að Breið-
holtsbraut. Þetta er skemmtileg
leið, sem á eftir að gjörbreyta allri
umferð á höfuðborgarsvæðinu. Sú
mikla umferðarteppa, sem nú er á
leiðinni milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur snemma á morgnana,
á eftir að lagast þegar umferðin
beinist að verulegu leyti á þennan
nýja veg, sem verður mun greið-
færari en sá vegur, sem nú liggur
í gegnum Garðabæ og Kópavog,
báðum þessum bæjarfélögum til
ama og óþæginda. Nú þegar er
hægt að komast eftir þessum vegi
þótt menn þurfí að leggja svolitla
lykkju á leið sína á tveimur stöðum,
en það er að vísu dálítið óþægilegur
akstur.