Morgunblaðið - 03.05.1986, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.05.1986, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1986 Ef þú skiptir yfir í ESSO SUPER olíuna um leið og þú lætur smyrja bílinn, færðu einn lítra af ESSO SUPER með þér án endur- gjalds. Þetta kynningartilboð gildir út allan maímánuð á eftirtöldum smur- stöðvum ESSO: Smurstöð ESSO Hafnarstræti 23 Reykjavlk Vörublla- og tækjaverkst. Höfðabakka 9 Reykjavlk Daihatsu umboðiö þjónustuverkstæöið Ármúla 23 Reykjavlk Smurstöð ESSO Stórahjalla 2 Kópavogi Smurstöð ESSO Reykjavlkurvegi 54 Hafnarfirði Aðalstöðin hf. Smurstöð Keflavlk Smurstöðin Smiðjuvöllum 2 Akranesi Bifreiðaþj. Borgarness Borgamesi Smurstöð ESSO Fjarðarstræti 20A (safirði Bifreiðaverkst. Nonni Purlðarbraut 11 Bolungarvfk Vélsmiðja Húnvetninga Smurstöð Blönduósi Smurstöð K.S. Sauðárkróki Bifreiöa- og vélaverkst. Naust hf. Varmahllð Smurstöð ESSO Þórshamar hf. Akureyri Bflaverkstæði KEA Dalvfk Bifreiðaverkst. Foss hf. Húsavfk Bifreiðaverkstæði B.K. Húsavfk Bflaverkstæöi Kf. Langnesinga Þórshöfn Vélaverkst. Hraðfrystihúss Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfirði Bllaverkstæði Bjarna Björnssonar Fáskrúðsfirði Vélsmiðja Homafjarðar, smurstöð Höfn Bflaverkstæði Kf. V-Skaftfellinga Vlk Smurstöð Kf. Rangæinga Hvolsvelli Vélaverkstæði G.G. Flötum 21 Vestmannaeyjum Smurstöð Kf. Ámesinga Selfossi Björgvin Garðarsson Austurmörk 11 Hveragerði Skiptu yfir í rekstraröryggi og sparnað með nýju SUPER olíunni. Skiptu yfir í ESSO SUPER! Oiíufélagið hf Verk eftir Ragnheiði Jónsdóttur Afmæli í Garðabæ Myndlist Valtýr Pétursson Nú er hátíð í Garðabæ. Tíu ára afmæli bæjarins, flögg við hún og tvær sýningar á verkum myndlist- armanna, sem eru búandi þar í byggð. Þessar tvær sýningar eru á tveim stöðum og um allt mjög ólík- ar. I Gallerí Lækjarfit sýna tvær grafíkkonur og einn málari. Það eru Edda Jónsdóttir og Ragnheiður Jónsdóttir og Jón Óskar sonur þeirra síðamefndu með málverk. A hinum staðnum, sem er félags- heimilið Kirkjuhvoll, eru það Gísli Sigurðsson og Pétur Friðrik, sem báðir sýna málverk og vatnslita- myndir. Það em sem sagt fjórir myndlistarmenn búandi í þessum snotra bæ, sem enn er ekki kominn á fermingaraldur. Bytjum á því að líta inn í hið vistlega Gallerí Lækjarfít, en þar verður fyrir manni grafík í gæða- flokki, sem vart verður betri fundin hér á landi. Það er Ragnheiður Jónsdóttir sem framleitt hefur þessi óaðfinnanlegu verk, og stalla henn- ar Eddá Jónsdóttir fylgir fast á eftir eins og sagt er íþróttunum. Jón Óskar er sonur Ragnheiðar og hefur stundað myndlist að undan- fömu í hinni mannmörgu New York-borg, ef ég veit rétt. Hann hefur þegar vakið eftirtekt með verkum sínum á sýningu á Kjarvals- stöðum og virðist í orðsins fyllstu merkingu vera barn síns tíma. Hann á þama snaggaraleg verk, gerð að mestu í svörtu og hvítu, ásamt einu verki, er byggt er að mestu á bláma. Þessi sýning er skemmtileg í heild og nútímaleg í eðli sínu. Eg hafði skemmtun af að sjá þessi verk og vonast til, að fleiri eigi eftir að njóta þeirra. Listamennirnir, sem sýna í Kirkjuhvoli, em fyrir nokkmm dögum búnir að fá umfjöllun um verk sín hér í blaðinu. Þeir hafa nýverið haldið stórar sýningar, og er raunvemlega engu við fyrri ummæli að bæta. Þama em þekktir málarar á ferð, sem em að vísu nokkuð ólíkir í verkum sínum, en mér fannst sýning þeirra skemmti- lega ólík því, sem sýnt er í Lækjar- fíti. Báðir halda þeir fyllilega sínum einkennum og samkomulagið virð- ist gott á veggjum Kirkjuhvols. Það er menningarlegt og skemmtilegt hjá bæjaryfirvöldum í hinum unga Garðabæ að halda há- tíð á þann hátt, sem raun ber vitni. Flögg og myndlist em frambærilegt vísitkort fyrir upprennandi byggð. Valtýr Pétursson Ný frímerki næsta mánudag Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson Hin árlegu Evrópufrímerki íslenzku póststjórnarinnar koma út á mánudaginn kemur, 5. þ.m. Að þesu sinni er sameig- inlegt þema Evrópumerkjanna, eins og það er kallað, „um- hverfisvernd til að vekja at- hygli manna og skilning á, að í samskiptum sinum við náttúru landsins sé henni ekki spillt að þarflausu," svo sem segir orð- rétt í tilkynningu Póst- og sima- málastofnunarinnar. Enn frem- ur segir svo: „Tilgangur frið- lýsingar er og að varðveita sér- stök landsvæði og lífríki þeirra, sem næst því horfi, sem telja má eðlilegt, svo að komandi kynslóðir hafi tækifæri til að njóta þeirra á sama hátt og við gerum.“ notuð og berast því víða um Iönd. Á 10 kr. verðgildinu, sem er frá Skaftafelli, sést bærinn sjálfur og síðan gnæfir Öræfajökull yfir í baksýn í allri sinni fegurð. Þeir, sem þekkja til íslenzkra frímerkja, munu hér kannast við næsta líkt myndefni á flugfrímerki frá 1952 (3,30 kr.), en það kom svo aftur á jöklafrímerki 1957 (10 kr.) með þeirri einu breytingu, að flugvéi hafði verið numin brott. Engu spillir þetta að mínum dómi, enda landslagið stórfenglegt í Skafta- felli. Á 12 kr. frímerkinu sér hluta af Jökulsárgljúfrum, en Dettifoss er í þeim, þótt hann sjáist ekki á þessu merki. Hann er hins vegar á frímerki, sem út kom 1956 (2 kr.) í svonefndri Fossaseríu. Þröstur Magnússon teiknaði þessi frímerki, og er handbragð hans jafn fallegt og áður. Frí- merkin eru prentuð hjá Courvoisi- er í Sviss, og það þekkja safnarar vel, að sú prentunaraðferð, sól- prentun, hefur gefízt vel á lands- lagsmerki, sem og blóm og dýr. Þá gefur póststjómin út sérstök kort með sama myndefni, enda virðist allmikill áhugi á söfnun slíkra korta með útgáfudags- stimplun. Tilkynning Póst- og símamála- stofnunarinnar um þessi nýju frí- merki var heldur seint á ferðinni, eins og því miður oft áður. Er alveg ótrúlegt, að ekki megi koma betri reglu á þessi útgáfumál póst- stjómarinnar. íslenzka myndefnið er sótt í þjóðgarðana í Skaftafelli í Öræf- um og í Jökulsárgljúfrum í N-Þingeyjarsýslu. Var hinn fyrri stofnaður 1968, en hinn síðari 1973. Verðgildi frímerkjanna eru 10 kr. og 12 kr., en það er einmitt almennt burðargjald undir bréf innanlands og til Norðurlanda og svo aftur til annarra Evrópulanda. Er sjálfsagt, að öll þau frímerki, sem út em gefín til að kynna land og þjóð, séu notuð undir venjulegt burðargjald, því að þá er hvort tveggja, að þau verða almennt Ný frímerki 27. maí nk. Stutt er svo í næstu frímerki ísl. póststjómarinnar því að Norð- urlandafrímerki koma út 27. maí í tveimur verðgildum, 10 kr. og 12 kr. Á þá að verða vel séð fyrir frímerki undir venjulegt burðar- gjald fram eftir árinu. Sú venja hefur skapazt, að póststjómir Norðurlanda gefa út þriðja hvert ár frímerki með sameiginlegu þema. Verður myndefni þessara frímerkja tengt vinabæjarhreyfíngunni, sem menn nefna svo. Verður myndefni íslenzku Norðurlandamerkjanna frá Seyðisfirði og Stykkishólmi. Vinabæir Stykkishólms em Kold- ing í Danmörku, Drammen í Noregi, Örebro í Svíþjóð og Lapp- enranta í Finnlandi. Vinabæir Seyðisfjarðar em aftur á móti Lyngby í Danmörku, Askim í Noregi, Huddinge í Svíþjóð og Vantaa í Finnlandi. Þessi frímerki em teiknuð af Þresti Magnússyni og prentuð í Sviss. Er hér sagt frá þessum frí- merkjum núna, því að ekki er víst, að tóm gefist til að skýra frá þeim í öðmm þætti fyrir útgáfu þeirra. Dagana 25.-27. apríl sl. var haldin hin ágætasta frímerkjasýn- ing á Húsavík, en áður hafði hennar verið gefið hér í frímerkja- þætti. Jafnframt var landsþing Landssambands ísl. frímerkja- safnara haldið þar á staðnum 26. apríl. Verður sagt nánar frá þessu í næsta þætti, væntanlega að viku liðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.