Morgunblaðið - 03.05.1986, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1986
Elín Sigurbergs-
dóttir - Minning
Fædd 28. júní 1896
Dáin 25. apríl 1986
í dag verður til moldar borin frá
Hveragerðiskirkju Elín Sigurbergs-
dóttir, Dynskógum 18 í Hveragerði.
Elín fæddist í Fjósakoti í Meðal-
landi 28. júní 1896 og henni var
fagnað, eins og öllum sumarbömum
þessarar hugljúfu sveitar, með
margradda fuglasöng.
Foreldrar Elínar vom hjónin
Sigurbergur Einarsson, f. 21.3.
1862 í Bakkakoti í Meðallandi, d.
9.11. 1947 í Nýjabæ í Ölfusi, og
Ámý Eiríksdóttir, f. 22.7. 1862 í
Lágu-Kotey í Meðallandi, d. 14.9.
1956 í Kirlqufeijuhjáleigu, Ölfusi.
Foreldrar Sigurbergs vom hjónin
Hólmfríður Sigurðardóttir, f. 1828,
ættuð úr Óræfum, og Einar Magn-
ússon, f. 1817, en hann vsir kominn
í beinan karllegg frá Jóni Bjarna-
syni á Núpstað, f. 1696, og Þuríðar
Rafnkelsdóttur. Móðir Einars var
Ingibjörg Gísladóttir, en hún var
systir Ragnhildar móður Eiríks í
Hlíð, afa Gísla Sveinssonar sýslu-
manns og alþingismanns.
Sigurbergur var í hópi þeirra síð-
ustu alþýðumanna og um leið ís-
lendinga, sem kunnu hina fomu
íslensku frásagnarlist. Mér em það
ógleymanlegar stundir, þegar Sig-
urbergur gekk um baðstofugólfíð,
með tóbaksbaukinn í hendinni og
sagði frá, það var hið lifandi orð
snilldarinnar.
Eg minnist þess alltaf með þakk-
læti hve hann var hlýr dagana sem
hann var hjá okkur þegar faðir
minn dó og ég fann til öryggis-
kenndar í návist hans.
Foreldrar Ámýjar vom Eiríkur
Einarsson, fæddur 1798 og bústýra
hans, Halldóra Ámadóttir, fædd
1833 á Rofabæ.
Eiríkur var fæddur í Efri-Ey,
sonur Einars Eiríkssonar seinna
bónda í Rofabæ og konu hans,
Kristínar Ólafsdóttur.
Eiríkur var smiður góður eins og
hann átti kyn til, bókbindari og
ágætur skrifari og mér var sagt
að hann hafi einnig skorið út.
Ámi, faðir Halldóm, var sonur
Hjörleifs læknis, en hann var sonur
Jóns Eyjólfssonar á Gilsá í Breiðdal
og konu hans, Guðlaugar, dóttur
Ásmundar Sveinssonar í Svínafelli,
en hann bjó um 1728 á Fljótum í
Meðallandi. Guðlaug var systir
Steinunnar, langömmu Ólafar
Sveinsdóttur, ömmu Páls föður
Bjama sem Elín giftist.
Halldóra og Láms Helgason á
Kirkjubæjarklaustri voru íjórmenn-
ingar frá Þorsteini Ólafssyni, f.
1701 bónda í Lágu-Kotey í Meðal-
landi.
Halldóra var greind kona, snyrti-
leg og yfir henni var viss reisn, hún
hefur sómt sér betur á höfuðbólinu
en hjáleigunni.
Mér féll vel við Halldóm, enda
sýndi hún mér alltaf vinarþel.
Þegar Elfn fæddist var Meðalland
Qölmenn og þéttbýl sveit og margar
Qölskyldumar bammargar, t.d. áttu
þau Ámý og Sigurbergur 13 böm.
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans
á þessu ári hefur stjóm bankans ákveðið að gera
sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð:
100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur
sem gefur 7,25% ársvexti umfram vísitölu
og er aðeins bundinn í 15 mánuði.
Petta er tilboð sem allir peningamenn
getamæltmeð. I
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
Menn gera sér nú ekki fulla grein
fyrir því afreki að koma mörgum
bömum vel til manns á þeim dögum.
Á þeim ámm var fjör og líf í
Meðallandinu, gæðingunum hleypt
eftir gömlu götunum, kýmar svöml-
uðu í blástararflóðunum, fuglarnir
sungu, dansinn var stiginn og á
mánabjörtum vetrarkvöldum lék
æskan sér á skautum á ísilögðum
blám og tjömum, en inni í baðstof-
unni þutu rokkamir meðan sagan
var lesin eða ríman kveðin.
Nú em götumar horfnar, saga
þjóðarinnar skráð af hestahófum,
en nú skrá vélamar þá sögu og
leggja framtíðarbrautina — en
hvert liggur hún?
Elín var í Fjósakoti hjá foreldmm
sínum til ársins 1899, en þá fór hún
til móðurbróður síns, Ingimundar
hrej>pstjóra Eiríkssonar í Rofabæ.
I Rofabæ var hún til ársins 1913
er hún réðst vinnukona að Söndum
í Meðallandi til þeirra mætu þjóna
Jóhannesar Guðmundssonar og
Þuríðar Pálsdóttur.
Á Söndum kynntist Elín Bjama
búfræðingi Pálssyni, bróður Þuríð-
ar, og gengu þau í hjónaband 15.3.
1919.
Bjarai var fæddur í Prestbakka-
koti á Síðu 21.7. 1884 og vom
foreldrar hans Páll Jónsson, f. 1854,
og Þómnn, f. 1853, Bjamadóttir
Gissurarsonar frá Syðri-Steinsmýri
( MeðaHandi.
Vorið 1919 reistu þau bú að
Háu-Kotey, en þar höfðu foreldrar
EKnar búið síðan 1909.
Næsta ár, 1920, hafði Bjami
jarðarskipti við Erasmus Árnason á
Leiðvelli og bjó á Leiðvelli til 1933
er þau fluttu út í Ámessýslu.
Það var óvfða fallegra en á Leið-
velli áður en sandurinn lagði bæinn
í eyði um 1944, en sandurinn hefur
verið Meðallandsins „fomi fjandi“
frá ómunatíð.
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Húnvetn-
ingafélagsins
Tvær umferðir em búnar í 26
para barometer-tvímenningi og er
staða efstu para þessi:
Garðar Sigurðsson
— Kári Siguijónsson 168
Gunnlaugur Sigurgeirsson
— JónOddsson 100
Steinn Sveinsson
— Sigurþór Þorgrímsson 92
Halldóra Kolka
— Sigríður Ólafsdóttir 79
Guðlaugur Sveinsson
— Magnús Sverrisson 70
Agnar Einarsson
— Viðar Óskarsson 50
Daníel Jónsson
— Karl Adolphsson 33
Meðalárangur 0
Þriðja umferðin verður spiluð nk.
miðvikudag í Ford-húsinu og hefst
keppnin kl. 19.30.
Bridgefélag kvenna
Fyrsta kvöldið í hraðsveitakeppni
félagsins var sl. mánudag. Úrslit
urðu þessi:
Guðrún Jörgensen 660
Sybil Kristinsdóttir 617
Elín Jóhannsdóttir 612
Véný Viðarsdóttir 597
Dóra Friðleifsdóttir 596
Ingibjörg Halldórsdóttir 585
Björg Pétursdóttir 579
Meðalskor 572.
Keppninni verður haldið áfram
næsta mánudag á sama stað og
tíma.
Tafl- og brids-
klúbburinn
Um þessa helgi er harðsnúið lið
frá Akureyri f heimsókn hjá klúbbn-
um. Heimsóknin hófst í gærkvöldi
ogyar spiluð sveitakeppni.
í dag verður svo spilaður tví-
menningur með þátttöku Akur-
eyringanna og annara bridsspilara
sem áhuga hafa á að vera með.
Hefst keppnin kl. 13.30. Spilað er
í félagsheimilinu Drangey í Sfðu-
múla 35