Morgunblaðið - 03.05.1986, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 03.05.1986, Qupperneq 39
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986 Þó 11 ár væru á milli okkar systkinanna, var sambandið mjög náið og aldrei þreyttist hann á að heyra vandamál mín og var ég oftast búin að létta á hjarta mínu þegar ég kom heim frá honum eftir einhverja af þessum stundum sem við áttum saman. Og nú er óhugs- andi að þær verði fleiri. Með þessum fátæklegu orðum og með söknuð í huga kveð ég minn ástkæra bróður og vin. Minningin lifír í huga mínum. Guðný, Elvar og Lovísa, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Bogga Sveinn ívarsson andaðist að heimili sínu, Víkurbraut 13, Grinda- vík, hinn 19. apríl 1986. Sveinn var fæddur í Hafnarfirði 5. maí 1961, sonur hjónanna Lovísu Sveinsdóttur og ívars Þórhallssonar byggingameistara. Sveinn var þriðja bama þeirra hjóna. Hann fluttist með foreldrum sínum í Kópavog og lauk þar baraaskóla, siðan flutti fjölskyldan suður í Hafnir á Reykjanesi og lauk Sveinn prófi frá grunnskólanum í Njarðvík. Sveinn tók próf í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og hóf síðan nám í húsasmíði og var um það bil að ijúka því er hann lést. Sveinn var dulur maður og flikaði ekki tiifinningum sínum, hann var vinfastur og glaður í sínum hópi, var góður námsmaður og um hann mátti segja að hann væri vandvirk- ur, reglusamur og afburðasmiður hvort heldur var á tré eða jám. Við sem þekktum Svein og unn- um með honum geymum minningu um góðan dreng, sem gott var að kynnast. Fari hann vel og Guð veri með honum. Guðnýju, bömum, foreldrum og systkinum, vottum við okkar dýpstu samúð. Guð blessi ykkur 611. Fyrrverandi vinnufélagar var í Hafnarfírði til 9 ára aldurs en þá fluttist hann með foreldrum og systkinum í Kópavog og síðan suður í Hafnir á Reykjanesi. Hann lauk níunda bekk í grunnskólanum í Njarðvík, en síðan einum bekk í Fjölbrautaskóla Suðumesja. Þaðan lá leiðin í Iðnskólann í Reylqavfk þaðan og lauk hann prófí í bif- vélavirkjun. Um það leyti sem Sveinn var í Iðnskólanum fluttist hann með foreldrum og systkinum til Grindavíkur. Hann var handlag- inn mjög, hvort sem það var á jám eða timbur. í bifvélavirkjun var hann aldrei nema lítilsháttar þá aðallega fyrir sjálfan sig, ættingja og vini. Sjómennsku kynntist Sveinn lítillega er hann fór eina síldarvertíð á Geirfugl frá Grinda- vík. Sveinn vann lengst af við húsa- smíðar og var um það bil að ljúka námi í þeirri grein er hann lést. í Grindavík unni hann hag sínum vel og þar kynntist hann eiginkonu sinni, Guðnýju Elvarsdóttur. Þau giftust þann 18. desember 1982. Þau eignuðust stúlku 7. desember 1983. Þá fékk Sveinn ósk sína uppfyllta að gefa móður sinni, Lovísu Sveinsdóttur, alnöfnu. Guðný átti son áður og gekk Sveinn honum í föðurstað. Þeim varð vel til vina og áttu margar góðir stundir saman. Þau hjónin keyptu gamalt ' hús í Grindavík og gerðu það upp. Þar fengu hæfileikar Sveins best notið sín, en honum entist ekki aldur til að kiára það. Það er erfítt að sætta sig við svona snöggt áfall, þegar menn eru teknir burt í bióma lífsins. Þá efast fólk oft í trúnni á lífið. En við verðum að trúa og biðja. Guðný, við vonum innilega að Guð gefi þér og bömunum styrk í þessari erfiðu raun. Við geymum minningu um góðan dreng og fallega brosið hans. Guð geymi Svein. Foreldarar og systkini Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að sitja hér með penna í hönd og skrifa minningagrein um minn ástækra bróður. Maður huggar sig við að þeir deyja ungir sem guðimir elska. Þær voru ófáar stundimar sem ég átti með Sveini, við leiki, spil og margt annað. Sveinn átti tveggja ára gamla dóttur, Lovísu, sem hann hafði mikið dálæti á, cinnig gekk hann syni konu sinnar í föðurstað og var samband þeirra mjög náið. Maður fer að hugsa um hvað lífið sé óréttlátt, um þennan unga dreng * Sveinn Ivarsson Grindavík Fæddur 5. maí 1961 Dáinn 19. apríl 1986 Sá hörmulegi atburður átti sér stað eitt laugardagskvöld, að bróðir okkar og sonur varð bráðkvaddur að heimili sínu þann 19. apríl síðast- liðinn. Það er erfítt að trúa þessu, maður les bara um svona í blöðum og hugsar, aumingja fólkið, mikið á það bágt. Manni dettur síst í hug að þetta gæti einmitt hent mann sjálfan. Sveinn var fæddur í Hafn- arfírði 5. maí 1961. Hann var þriðji í röðinni af fímm systkinum. Sveinn - Minning sem átti eftir að gera svo margt og átti lífíð framundan, en svo eru aðrir sem þrá að deyja en verða að lifa við vítiskvalir. Hver er tilgang- urinn? Sveinn var mjög dulur og flíkaði ekki tilfínningum sínum, Maður veit því ekki hvað hann var búinn að kveljast oft, það hefur sjálfsagt verið mjög oft. ^ W 1440 I. ^00 i Langar þig til útlanda en hefur ekki efni á því þetta áriö? 'is Við bjóðum 1440 utanlandsferðir á 40.000 kr. hverja, eða 120 utanlands- 1 ^ r ^ ferðir á mánuði. pse ^ _ HAPFDRÆTTI_____ __ HAPFDRÆTTI________ Dvalarhetmilis aldradra sjómanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.