Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 1
104 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
97. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Morgunblaðið/Bjami
BLAÐBERAR MORGUNBLAÐSINS
Á SUNNUDAGINN var öllum blaðberum Morgunblaðsins á höfuðborgarsvæðinu boðið
á skemmtun á Hótel Sögu. Vegna mikils §ölda þurfti að skipta hópnum í tvennt og á
myndinni sést hluti hins Qölmenna hóps, sem sér um að koma blaðinu til lesenda á
hvetjum morgni. Með á myndinni eru nokkrir starfsmenn Morgunblaðsins.
Til þessarar skemmtunar var m.a. boðið til að kynna blaðberum þá nýjung, sem
Morgunblaðið hefur tekið upp frá og með sfðustu mánaðamótum. Áskrifendum er nú
boðið upp á þá þjónustu að greiða blaðið með greiðslukortum frá Visa og Eurocard. Á
bls. 4 og 5 í blaðinu í dag er nánar skýrt frá þessari nýjung og birt viðtöl við blaðbera.
„Kjarnorkuslysið varð
fyrir mannleg mistök“
— segir forystumaður Moskvudeildar sovéska Kommúnistaflokksins
Austurríkis-
menn kjósa
sér forseta
Vín. AP.
RÚMLEGA 5,4 miljónir Austur-
ríkismanna ganga í dag til for-
setakosninga. Kosningabarátt-
una hefur einkennt mikill styrr
um annan frambjóðandann eins
og alkunna er. Kurt Waldheim
er sakaður um að hafa ekki
komið til dyranna eins og hann
var klæddur í frásögnum af ferli
sínum í heijum nasista í seinni
heimsstyijöldinni.
Bæði Waldheim og Kurt Steyrer,
mótframbjóðandi hans, slógu á
strengi sáttfýsi í viðtölum rétt fyrir
kosningamar. Sfmon Wiesenthal,
gamli nasistaveiðimaðurinn, sagði
að erfitt gæti orðið að lækna þau
sár, sem ýfð voru i kosningabarátt-
unni.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Waldheim þremur til fimm
prósentum meira fylgi en Steyrer.
Tveir aðrir aðiljar bjóða sig fram
til forseta, Freda Meisner-Blau,
fulltrúi Græningja, og Otto Scrinzi,
öfgamaður til hægri. Útilokað er
talið að þau vinni sigur.
Kurt Waldheim
Moskvu. AP.
MANNLEG mistök ollu slysinu í
Chemobyl-kjarnorkuverinu, að
því er Boris Yeltsin, forystumað-
ur Moskvudeildar sovéska
Kommúnistaflokksins, sagði í
viðtali við vestur-þýsku sjón-
varpsstöðina ARD á föstudag.
Hann sagði að vistir væm eitrað-
ar og orðið hefði að flytja fólk
brott vegna hættulegrar geislun-
ar.
Þetta er fyrsta nákvæma lýsing-
in, sem sovéskur aðilji hefur veitt
á kjamorkuslysinu og eftirmála
þess. Yeltsin sagði að svæðið um-
hverfis kjamorkuverið hefði verið
girt af. Kvað hann yfírvöld hafa
látið varpa sandi, blýi og bóri úr
þyrlum til að halda geislavirku út-
streymi frá verinu í lágmarki.
„Það er enn geislavirkni á svæð-
inu og fólk getur ekki farið þangað
að svo stöddu," sagði Yeltsin.
Yeltsin kvað ótiltekinn fjölda
fólks hafa verið fluttan brott úr fjór-
um byggðarlögum, en enginn hefði
þó orðið fyrir geislun. Hann sagði
að vatnsból hefðu mengast.
Vestur-þýsk stjórnvöld fyrirskip-
uðu á föstudag að fylgst yrði með
hvort mjólk væri geislavirk og kom
í ljós við fyrstu mælingar í Bæjara-
landi að geislavirkni væri vel yfir
hættumörkum.
Sjá enn fremur „Ættingjar
okkar fengu fréttimar fyrst
frá íslandi" á baksíðu.
Sprenging í
farþegaþotu
Colombo. AP.
SPRENGJA sprakk í farþega-
þotu flugfélagsins Airlanka um
það leyti, sem farþegar vom að
fara um borð á flugvellinum í
Colombo á Sri Lanka í gær.
Að minnsta kosti tuttugu manns
létust í sprengingunni og íjörutíu
og einn særðist. Ekki er vitað hveij-
ir standa að baki en grunur hefur
fallið á herskáa tamíla.
Sjálfsvirðingn þjóðar
má ekki misbjóða
„Þið teljið það sem sagt gott og Hassan Mansour, utanríkisráð-
gilt að Reagan sprengi konur og herra Líbýu, að orði í einkasam-
böm í tætlur af því hann hlustar tali, sem Jóhanna Kristjónsdóttir,
á róg og sögusagnir, sem engar blaðamaður Morgunblaðsins, átti
sannanir eru fyrir eða hvað? Þið viðhann.
verðið að athuga að sjálfsvirðingu
þjóðar má ekki misbjóða á þennan ®Ja v,ðtalið á
hrottalega hátt.“ Þannig komst bls. 26B og 27B.