Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 64
Davíð Oddsson
Safnast hefur hlutafé
Reynt við reiðhjólaþrautir
Morgunblaðið/ Ami Sæberg
Hin árlega keppni grunnskólanemenda 1 Reykjavik í reiðhjólaþrautum hófst vid Austurbæjarskólann
í gærmorgun. Einbeitingin skein úr svip keppenda, er þeir reyndu við hverja þrautina eftir aðra.
Davíð Oddsson
svarar lesendum
Morgunblaðsins
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík og efsti maður á fram-
boðslista sjálfstæðismanna í
borgarstjórnarkosningunum,
sem fram fara 31. maí næst-
komndi, svarar spurningum í
Morgunblaðinu um borgarmál í
tilefni kosninganna.
Lesendur Morgunblaðsins geta
hringt til ritstjómar blaðsins í síma
10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis,
frá mánudegi til föstudags, og lagt
spurningar fyrir borgarstjóra, sem
blaðið kemur á framfæri við hann.
Svörin birtast síðan í þættinum
Spurt og svarað um borgarmál.
Einnig má senda spumingar í
bréfi til blaðsins. Utan á bréf skal
rita: Spurt og svarað um borgarmál,
ritstjóm Morgunblaðsins, pósthólf
1555, 121 Reykjavík. Nauðsynlegt
er, að nafn og heimilisfang spyij-
anda komi frami.
Arnarflug:
Afleiðing
söngvakeppninnar:
Óperusýning
felld niður
HÆTT var við sýningu á óper-
unni II Trovatore hjá íslensku
óperunni í gærkvöld. Astæðan:
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, sem sýnd var í
beinni útsendingu í sjónvarpi í
gærkvöld.
Svo margir væntanlegir gestir á
ópemsýninguna höfðu skilað mið-
um sínum, til að missa ekki af úr-
slitum söngvakeppninnar, að
ákveðið var að fella sýninguna
niður.
fyrir áttatíu milljónir
LOFORÐ hafa fengist fyrir 80 milljón króna hlutafjáraukningu í
Arnarflugi frá um 40 aðilum og standa vonir til að fljótlega takist
að koma tölunni upp í 97 milljónir króna, að sögn Guðlaugs Berg-
mann eiganda Karnabæjar, en þeirri upphæð þarf að ná til að ríkis-
stjórnin gangi í ábyrgð fyrir 2,5 milljón dollara láni tU fyrirtækisins.
„Það er engin spuming að við
náum þessum 97 milljónum. Þegar
hafa um 40 aðilar ákveðið að leggja
fram hlutafé, en auk þess hafa
fjölmargir aðrir tekið málið til mjög
jákvæðrar athugunar og sumir eiga
nánast aðeins eftir að nefna upp-
hæð. Það hefur því tekist að mynda
sterka breiðfylkingu einkaaðila um
að styrkja fyrirtækið og tryggja
þannig eðlilega samkeppni í fluginu.
Þessi hlutafjársöfnun er í sjálfu sér
sögulegur viðburður; fram til þessa
hefur allt meiri háttar fram-
kvæmdafé komið frá ríkinu eða
stórum einkaðilum, en í þessu til-
felli sameinast margir einkaðilar
um að lyfta grettistaki með því að
leggja fram hver um sig tiltölulega
lága upphæð. Það er skilyrði í
þessari hlutafjáröflun, að enginn
einn aðili leggi fram verulega háa
upphæð. Þetta er gert til að tryggja
að einn eða fáir aðilar geti ekki náð
yfirburðastöðu í stjórn fyrirtækis-
ins, því það hefur aldrei verið
hugmyndin með hluta^áraukning-
unni,“ sagði Guðlaugur Bergmann.
Meðal þeirra aðila sem þegar
hafa gefíð hlutafjárloforð eru eftir-
taldir: Ferðaskrifstofumar Sam-
vinnuferðir/Landsýn, Atlantic og
Terra, Hótel Holt og Hótei Saga,
útgáfustjórar DV, Hörður Einars-
son og Sveinn R. Eyjólfsson, Magn-
ús Gunnarsson framkvæmdastjóri
SÍF, Kamabær, Vífílfell, Helgi Þór
Jónsson verktaki, Hollywcxid,
Broadway, Hótel Borg, Blómaval,
Henson, Faco, Hótel Óðinsvé, heild-
verslunin Forval, Hjólbarðaverk-
stæði vesturbæjar, KR-sumarhús,
Steinar hf., Verslunin 17, Ágúst
Ármann, heildverslun, Bílaleigan
Vík, Karl Steingrímsson, Jóhann
Bergþórsson og félagar hans hjá
Hagvirki, Hreyfill, G. Ólafsson,
Rækjuver og Gunnar Eggertsson
hf.
„Ættingjar okkar £engu frétt-
imar fyrst frá Islandi“
„ÞEGAR við hríngdum til Póllands á
mánudagskvöldið var þar ekkert vitað
um siysið. Við vorum fyrst til að segja
foreldrum mínum fréttimar. Það var
ekki fyrr en á þríðjudaginn að smá-
klausa kom í blöðunum og samkvæmt
henni var ekkert alvarlegt á ferðinni.
En um miðja nótt, aðfaranótt miðviku-
dagsins er baríð upp i flestum húsum í
borginni og er þá búið að gefa fyrirskip-
un um að öllum bömum og ófrískum
konum skyldi gefið joð, til að fyrír-
byggja skaða vegna geislunar," segir
Jolanta P. Guðjónsson, pólsk kona, sem
búsett er hér á landi og gift Steinarí
Guðjónssyni. Þau eiga tvö börn.
Jolanta er ákaflega áhyggjufull út af
foreldrum sínum og öðrum ættingjum, sem
búsettir eru í borginni Bialystok í austur-
hluta Póllands. Borgin er um 500 km frá
Kiev í Sovétríkjunum. Skammt fyrir norðan
Kiev er Chemobyl-kjamorkuverið, en þar
varð alvarleg bilun í kjamakljúf síðasta
laugardag með þeim afleiðingum að óhemj-
umikið af geislavirkum efnum streymdi út
í andrúmsloftið. Geislunin hefur síðan
dreifst út yfir Evrópu, sérstaklega hafa ríki
— segja Pólverjar búsettir hér, aðspurðir um
geislavirkni í heimalandi þeirra
í Austur-Evrópu og Skandinavíu orðið fyrir
mikilli geislun.
Morgunblaðið hafði sainband við tvo
Pólveija sem búsettir em hér á landi, Jo-
löntu P. Guðjónsson og Witek Bogdanski,
sem starfar hjá Eimskip, en hann er frá
Gdansk. Þau hafa bæði verið í stöðugu
símasambandi við ættingja sína í Póllandi
frá því að fréttir bámst fyrst af slysinu í
Sovétríkjunum.
Ástandið er sérstaklega slæmt í Bialy-
stok, en þar búa um 250.000 manns og
em iðnaður og vinnsla landbúnaðarafurða
helstu atvinnuvegimir. Að sögn Jolöntu er
grænmeti undirstaða í fæðu fólks á þessum
slóðum, eins og raunar víða í Póllandi.
„Ástandið var ekki gott fyrir þetta slys,
t.d. var skömmtun á kjötmeti, þannig að
hver maður fékk að kaupa gegn skömmtun-
armiðum tvö og hálft kfló á mánuði. Nú
hefur fólki verið ráðlagt að borða ekki
grænmeti, smjör, egg, ost og mjólk," segir
Jolanta. „Yfirvöld hafa sagt að vatn væri
ekki geislavirkt og óhætt til drykkjar, en
fólk trúir því mátulega, vegna þess að
vatnið á þessum slóðum er að hluta yfir-
borðsvatn.
Í sjónvarpi var sagt að ástandið væri
ekki alvarlegt og reynt að gera eins lítið úr
því og unnt var. Ég held þó að undir niðri
sé mikil hræðsla, sérstaklega vegna bama.
Eitthvað hlýtur þó að vera að, þegar yfír-
völd skipa svo fyrir, að borgarbúar séu
vaktir upp um miðja nótt til að gefa þeim
joðtöflur."
„Þegar fréttin barst um geislavirknina
þusti fólk í verslanir og verslaði eins og
það mögulega gat, rétt eins og matvæla-
skortur væri yfírvofandi," sagði Witek
Bogdanski, starfsmaður hjá Eimskip. Hann
er frá Gdansk og á þar ættingja sína.
„Það sem fólk er óánægt með er fyrst
og fremst það, að engin aðvömn var gefm
út vegna yfirvofandi geislavirkni. Böm
fengu að halda áfram að leika sér utan
dyra og tína upp í sig jarðarber, sem nú
eru óðum að þroskast í Póllandi. Þetta er
mjög alvarlegt, því geislunin er mest niðri
við jörðina, og nú má ekki borða græn-
meti, ávexti og jafnvel mjólk, en hún fæst
ekki frekar en smjör þessa dagana.
Í öðm lagi hefur fólk ekki fengið neinar
tæknilegar upplýsingar um eðli geislunar-
innar, jafnvel hvað geislun er. Móðir mín
vill nú lítið gera úr þessu, ég veit þó að
það er vegna þess, að hún vill ekki valda
okkur ótta.
Mér var sagt að einhver sérfræðingurinn
hafi komið fram í sjónvarpinu og reynt að
róa landsmenn, sagt að þetta væri nú
ekkert mál, varla meira en svo að reykja
eina sígarettu á dag.
Ég hef miklar áhyggjur af þessu. Geislun
er hætta sem við þekkjum svo lítið, þetta
er ósýnileg ógn. Ég er hræddur um að enn
sé ekki öll sagan sögð.“
Bogdanski var spurður að því, hvaða
afleiðingar geislunin geti haft á matvæla-
framleiðslu í Póllandi.
„Ég gæti spurt þig að þessu sama. Ég
veit alls ekki hvað verður. Hins vegar er
Ijóst, að sé grænmeti geislavirkt, mjólk og
mjólkurafurðir hlýtur kjötið að verða geisla-
virkt og þar af leiðandi óhæft til manneld-
is. Ég vil hins vegar ekki hugsa þessa
hugsun til enda.“