Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
t
Móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HANSÍNA ÞORVALDSDÓTTIR STRANGE,
lést að hjúkrunar og elliheimilinu Grund 1. maí.
Börnin.
Eiginmaöur minn t HJALTI BJÖRNSSON
stórkaupmaður, ræðismaður,
Hagamel 8,
er látinn. Margrét Björnsdóttir og börnin.
t
JÓHANNES JÚLÍUSSON
bókbindari,
Miðvangi 41, Hafnarfirði,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 26. apríl síðastlið-
inn. Útförin hefur fariö fram.
Júlíus Jónsson
og brœður hins látna.
t
Faðir minn,
AUÐUNN L. JÓHANNESSON,
írabakka 8,
andaðist í Borgarspítalanum 2. maí. Fyrir hönd aðstandenda,
Sigriður G. Auðunsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi,
KRISTINN HÁKONARSON,
fyrrverandi yfirlögregluþjónn,
Arnarhrauni 2,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi þriðjudaginn 6.
maí kl. 15.00.
Sólveig Baldvinsdóttir,
Erna S. Kristinsdóttir, Guðmundur L. Jóhannesson,
Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir,
Kristfn Þórunn Guðmundsdóttir,
Valdis Björk Guðmundsdóttir.
t
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HULDA GUÐNADÓTTIR,
Geitarstekk 1, Reykjavik,
verður jarösungin mánudaginn 5. maí kl. 15.00 frá Bústaöakirkju.
Pálmi Jónsson,
Heiða Pálmadóttir, Magnús Haraldsson,
Svanhildur Pálmadóttir, Haraldur Sigþórsson,
Magnús Pálmason,
Elísabet Pálmadóttir,
Guðrún Magnúsdóttir.
t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langmma, JÓHANNA ZOÉGA HENRIKSDÓTTIR, Hringbraut 43, Reykjavik, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 5. maí kl. 15.00. Blóm afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknar- stofnanir. Einar Sigurðsson, Nanna Haraldsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Magnina Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BÁRÐUR ÓLI PÁLSSON, frá Skógum, Háteigsvegi 32, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 6 maíkl. 13.30. Hallfrfður Bjarnadóttir, Tómas Grétar Ólason, Guðlaug Gisladóttir, Pálmar Ólason, Sigurveig Sveinsdóttir, Smári Ólason, Ingibjörg S. Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjónaminning:
ThorJ. Brand og
Elísabet Brand
Þann 11. apríl síðastliðinn andað-
ist afi minn Thor J. Brand á nítug-
asta og áttunda aldursári en amma
mín Elísabet Brand andaðist fyrir
nokkrum árum. Þar sem ég átti
þess kost að kynnast þeim all náið
vil ég minnast þeirra hér.
Lífshlaup þessara hjóna var bæði
langt og fjölbreytilegt og ekki ger-
legt að rekja að hér í smáatriðum
er fyrir þá sem hafa löngun til þess
skal bent á bókina „Heim til ís-
lands" eftir Vilhjálm S. Vilhjálms-
son.
Thor fæddist á Eskifirði 27.
maí 1888 og var sonur danska
beykis Jens Peter Jensen sem þar
starfaði. Skírður var hann Þórarinn
ísfeld en tók sér seinna nafnið Thor
Jensen Brand en Brand nafnið var
úr móðurætt hans. Móðir hans var
hálfdönsk Jóhanna María Péturs-
dóttir Brand.
Thor ólst upp á Eskifirði, fór 16
ára á síld, 17 ára í Eiðaskóla, 18
ára vestur á Reykjarfjörð í smíða-
nám og 19 ára til Reykjavíkur í
sömu erindum. Þar lauk hann námi
1909 og hélt aftur til Eskifjarðar.
Útþráin náði tökum á honum eins
og fleirum íslendingum um þær
mundir og tveimur árum seinna eða
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNA GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Þverbrekku 4,
Kópavogl,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 25. apríl, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 13.30.
Gerður P. Kristjánsdóttir, Guðlaugur R. Guðmundsson,
Margrét H. Kristjánsdóttir, Kristinn Hermannsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir,
HELGA ÞÓRÐARDÓTTIR,
húsfreyja frá Eystri-Hól
(Landeyjum,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriöjudaginn 6. mai kl. 13.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Stefán Guðmundsson,
Jóhanna Stefánsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR,
Grettisgötu 76,
verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi, mánudaginn 5.
maí kl. 13.30.
Páll Norðmann Björnsson, Úlfhildur Hafdis Jónsdóttir,
Þorgils Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og afi,
SIGURÐURG. PÉTURSSON,
netagerðarmeistari,
Hverfisgötu 34, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 5. maí kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarkort
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðrún
Halldór Sigurðsson,
Bergsveinn Sigurðsson,
Sveinn Sigurðsson,
Agnes Sigurðardóttir,
Sigurður Sígurðsson.
i. Sveinsdóttir,
Sigurður E. Sigurðsson,
Guðlaug Sigurðardóttir,
Pótur Sigurðsson,
Gunnar Sigurðsson,
1911 lagði hann land undir fót og
fluttist til Winnipeg í Kanada. þar
komst hann strax í byggingarvinnu
og ferðaðist víða við það starf. A
einu slíku ferðalagi hitti hann Elísa-
betu Helgadóttur sem seinna varð
konan hans. Þau giftust 3. nóv.
1917. Árið eftir var hann kallaður
í herinn en stuttu seinna lauk stríð-
inu hinu fyrra. Þau fluttu til Wyny-
ard og nokkrum árum seinna til
Winnipeg. Thor vann við smíðar og
var byggingameistari all margra
húsa auk þess að starfa við hafnar-
gerð í Churchill, en upp úr 1930
var skollinn á heimskreppa og fátt
um fína drætti. Afréð því fjölskyld-
an að flytjast til íslands. Þá voru
komin til sögunnar tvö böm Svava
Andrea og Helgi Carl. Árið 1937
var fjölskyldan alkomin til landsins,
afí minn eftir 26 ára útivist. Hóf
hann störf hjá Raftækjaverslun Is-
lands þar til hún var lögð niður
1939. 1940 var hann ráðinn þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum og
gegndi því starfí til 1953. Þá flutt-
ist hann til Reykjavíkur, vann hjá
Áburarverksmiðju ríkisins í Gufu-
nesi þar til hann settist í helgan
stein.
Elísabet Helgadóttir fæddist 16.
maí 1894 í Winnipeg en ólst upp í
Sandy Bay þar sem hún og foreldrar
hennar Helgi Bjamason, sonur
Bjama Helgasonar frá Gröf í Víðid-
al og Helga Jóhannsdóttir, prests
Benediktssonar úr Suðursveit,
bjuggu í bjálkakofa við Manitoba-
vatn.
Skólaganga hennar hófst í Lake-
land, hélt áfram í Wynyard og
framhaldsskólanámi lauk hún í
Westiey College í Winnipeg. Eftir
námið tók hún að sér kennslustörf
viðbamaskóla.
í Winnipeg hóf hún ljósmóður-
nám sem hún lauk 1915 og starfaði
við berklahæli í Winnipeg til 1917
þegar hún giftist Thor.
Eftir vemna á Þingvöllum settust
Thor og Elísabet að í sama húsi
og foreldrar mínir og því varð það
að við systkinin urðum heimagang-
ar hjá þeim. Þau vom þá komin vel
yfir miðjan aldur. Það er eftirtekt-
arvert að þegar manni verður hugs-
að til fólks sem maður hefur þekkt
lengi og veltir fyrir sér hvað það
sé sem situr lengst í manni kemur
í ljós ýmislegt sem manni finnst lýsa
persónuleika þess fólks best.
Það var einkum þrennt sem
stendur mér fyrir hugskotssjónum
þegar ég minnist afa míns. Hið
fyrsta er, hann var gefínn fyrir að
hafa allt í röð og reglu. Hann átti
til dæmis skrifborð þar sem hann
geymdi ýmsa persónulega muni.
Þetta skrifborð umgengumst við
krakkamir með stakri lotningu því
þar var öllu fyrir komið með slíkri
nákvæmni að það voru nánast
helgispjöll að snerta þar við nokkru.
Hann var ennfremur svo stundvís
að slíku hef ég ekki kynnst fyrr
né síðar.
Annað var kímnigáfan. Af henni
hafði hann nóg og sá oft spaugilegu
hliðar málanna þó svo aðrir kæmu
ekki auga á þær.
Hið þriðja var bókelska hans.
Hann var oft og iðulega lesandi og
las nánast allt sem hönd á fetsi en
hrifnastur virtist hann vera af
skáldsögum. Hann kappkostaði að
lesa allt það nýjasta sem kom út á
því sviði og í hverri vikur í mörg ár
gekk hann frá Hlíðunum niður að
Borgarbókasafninu við Þingholts-
stræti til þessað ná sér í viku-
skammtinn af bókum.
Það var þessi sama bókahneigð
sem einkenndi Elísabetu ömmu
mína. Hún sat mjög oft við lestur.
Ekki sá ég hana lesa þær skáldsög-
ur sem afi minn var hvað hrifnastur
af heldur sökkti hún sér niður í
alls konar fræðirit um hin margvís-
legustu efni eða las heimsbók-
menntirnar spjaldanna á milli. Hún
var ákaflega formföst í fasi. Hún
hafði einnig góða kímnigáfu þó að
hennar kímnigáfu kynni ég ekki að
meta fyrr en kominn var til vits og
ára.
Eg minnist afa míns og ömmu
með þakklæti í huga því að margar
góðar stundir áttum við saman og
vona ég að minning þeirra lifí meðal
vor lengi.
Hilmar J. Hauksson.