Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAl 1986
Minning — Jóhanna Z.
Henriksdóttir
Fædd 6. apríl 1906
Dáin 26. apríl 1986
I örfáum orðum langar mig að
minnast Jóhönnu Zoega, hennar
Hönnu frænku, en hún andaðist hér
í Reykjavík 26. apríl sl. eftir nokk-
urra mánaða sjúkralegu.
Hún var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur, fædd 6. apríl 1906
og því nýlega orðin áttræð er hún
lést. Foreldrar hennar voru Guðrún
Bjömsdóttir og Henrik Erlendsson,
sem lengi var læknir á Hornafirði.
Einn albróður átti hún, Henrik, en
hann lést á sviplegan hátt tveggja
ára. Um þann atburð orti Einar
H. Kvaran fallegt ljóð: „Ég veit um
systkin.“
Hanna ólst upp á Laugavegi 52
hjá móður sinni og sjúpföður,
Kristjáni Benediktssyni, trésmið,
ásamt tveimur hálfsystkinum sín-
um, þeim Sigurlaugu, sem lést
1934, og Axel Reinhold, sem lengi
vann hjá Reykjavíkurborg. Á heim-
ilinu var líka amma Hönnu og al-
nafna, Jóhanna Zoéga og var mjög
kært á með þeim. Tveimur húsum
frá bjó svo móðursystir Hönnu, Elín
Zoéga, og fjölskylda hennar og var
mikill samgangur þar á milli.
Jóhanna nam við Kvennaskólann
í Reykjavík, en stundaði síðan af-
greiðslustörf þar til hún giftist
Sigurði Einarssyni árið 1931. Sig-
urður var verslunarmaður um
margra áratuga skeið hjá VBK á
Vesturgötunni. Þau Hanna og Siggi
bjuggu fyrst á Ránargötunni en árið
1943 fluttu þau á Hringbraut 43
og bjuggu þar alla tíð síðan. Sigurð-
urandaðist 1976.
Þau hjónin eignuðust þrjá syni:
Björn verslunarmann, f. 1932, en
hann lést 1980, Einar kjötiðnaðar-
mann, f. 1938, kvæntan Nönnu
Haraldsdóttur og Sigurð verslunar-
mann, f. 1941, kvæntan Magnínu
Sveinsdóttur. Bamabömin eru 12
og bamabarnabömin eru orðin 9.
Meðan synirnir voru litlir dvaldi
Hanna í mörg sumur með þá í
sumarbústað móðursystur sinnar,
Elínar, og fjölskyldu hennar uppi í
Fitjakoti á Kjalamesi. Þar dvaldi
einnig móðir mín, sem var sonar-
dóttir Elínar. Það var ávallt kært
með þeim frænkum. Þegar synimir
voru uppkomnir fór Hanna aftur út
á vinnumarkaðinn í nokkur ár,
lengst af hjá Versluninni Rósu í
Uppsalakjallaranum.
Hanna var gestrisin heim að
sækja og minnist ég rausnarlegra
jólaboða á Hringbrautinni þegar ég
var lítil telpa. Hún veitti höfðing-
lega og hópurinn var stór sem
þangað kom. Hanna var ekki há í
lofti en hún hafði mikið og gott
hjarta. Hún mátti ekkert aumt sjá
og var ávallt boðin og búin að rétta
hjálparhönd, jafnvel þótt það gengi
þvert gegn hennar eigin hag. Hún
var líka trúrækin og tók virkan þátt
í safnaðarstarfí Neskirkju meðan
starfsorkan hélst. Henni þótti vænt
um það þegar sóknarpresturinn leit
inn hjá sér.
Hann hafði yndi af góðri tónlist.
Hún spilaði á píanó og fór oft á
tónleika, var m.a. fastagestur á
tónleikum Tónlistarfélagsins. Hún
var mikil sjálfstæðiskona, var meðal
stofnenda sjálfstæðiskvennafélags-
ins Hvatar og tók alla tíð virkan
þátt í starfi þess og var í stjóm
félagsins í nokkur ár. Hún var oft
fulltrúi á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins og fáar Varðarferðir fóru
fram hjá þeim Hönnu og Sigga á
ámm áður.
Hjónaband þeirra var mjög gott
og var það henni mikið áfall þegar
hann lést og ekki síður þegar hún
missti elsta son sinn nokkmm ámm
síðar. Upp frá því bjó hún ein í íbúð
sinni og hafði lítið að gera. Synimir
vom fluttir að heiman, bamabömin
flest komin á fullorðinsár og skörð
farin að myndast í vinahópinn. Þá
tóku minningarnar við, sumrin í
Fitjakoti, ferðalög um landið á
hestum, myndaalbúm með öilum
t
Útför móður okkar,
UNNAR SVEINSDÓTTUR
frá Seyðisfirði,
er lést í Hrafnistu, Hafnarfirði, 28. april sl., verður gerð frá Garða-
kirkju þriðjudaginn 6. maí nk. kl. 13.30 síðdegis.
Við minnum á heilsugæslusjóð Hrafnistu.
Edda Snorradóttir,
Sveinn Snorrason.
t
Móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEFANÍA G. HANSEN,
Bergþórugötu 16,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 6. maí kl. 15.00.
Ásta G. H. Scobie, Griffith Scobie,
Guðbjörg S. H. Petersen, Emil Petersen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
GUÐJÓN MAGNÚSSON,
Hliðargötu 28,
Neskaupstað,
verður jarðsunginn frá Norðfjaröarkirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 2.
Erla Gunnarsdóttir
börn og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA M. NIELSDÓTTIR
Ijósmóðir,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 4. mai kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Samtök Alzheimersjúklinga Reykjavíkurdeild Rauða
krossins veitir framlögum móttöku, eða Samtök um Kvennaat-
hvarf á Vesturgötu 3, Hlaðvarpanum.
Edda Niels, Bergsteinn Stefánsson,
Sigrún Rósa Bergsteinsdóttir, Helga Marin Bergsteinsdóttir,
Hulda Kristinsdóttir, Þórdis Guðmundsdóttir,
Auöur Eir Guðmundsdóttir, Helgi Gestsson,
Guðmundur Kr. Guðmundsson, Vigdís Sigtryggsdóttir,
Helga Kristin Guðmundsdóttir, Stefán Sigurðsson
og barnabarnabörn.
t
Pökkum af alhug auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför,
HELGU ERNU ANDERSEN,
Nökkvavogi 30.
Jakob Bjarnason, Hulda Jakobsdóttir,
Hallfri'ður Bjarnadóttir,
Agnar Bjarnason, Kristrún Guðmundsdóttir,
Ellen Bjarnadóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Alma Leifsson,
börn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýju við andlát og útför sambýlis-
manns míns, fööurokkar, tengdaföðurog afa,
SIGURBJÖRNS G. ÁRNASONAR
frá Landakoti, Sandgerði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans.
Kornilía Jóhannsdóttir,
Arndís Sigurbjörnsdóttir, Hallgrímur Marinósson,
Sigrún Sigurbjörnsdóttir, Vilhjálmur Þorgeirsson,
Valdimar Sigurbjörnsson, Gitte Christensen
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýjg við fráfall
MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Mýrarkoti, Grímsnesi,
Ártúni 13, Selfossi.
Kistjana Sigmundsdóttir, Þoriákur H. Helgason,
Margrét Guðmundsdóttir, Sigmundur Bergur Magnússon
Helgi E. B. Þórðarson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður minnar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Krókahrauni 4, Hafnarfirði.
Siguröur Alexandersson,
Hilmar Harðarson, Kristín Pétursdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýju við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
EINARS ÁGÚSTSSONAR.
Þórunn Sigurðardóttir,
Helga Einarsdóttir, Daníel Sigurðsson,
Erna Einarsdóttir, Jens R. Ingólfsson,
Sigurður Einarsson,
barnabörn og aðrir vandamenn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föðurogafa,
SIGURÐAR JÓNSSONAR,
Melabraut 57.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og laekna deild 1A Landakotsspít-
ala fyrir góða umönnun.
Ásta Gunnsteinsdóttir,
Sólveig Sigurðardóttir, Ómar Bjarnason,
Gunnsteinn Sigurðsson, Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir
og barnabörn.
gömlu myndunum, gamli tíminn í
Reykjavík þar sem hún þekkti hvert
hús og oftast íbúa þess líka.
Og núna er hún líka horfin, einn
af þessum ósviknu Reykvíkingum,
sem sáu bæinn breytast úr þyrping-
um umhverfís Lækinn í stórborg,
sem teygir anga sína langt út fyrir
þau svæði, sem þóttu boðleg til
heilsdags beijaferðar þegar hún var
ung.
Um leið og við móðir mín kveðj-
um Hönnu frænku viljum við þakka
henni fyrir allar ánægjulegar stund-
imar. Við sem eftir erum minnumst
hennar með söknuði en vitum jafn-
framt að hún er nú meðal þeirra
sem hún hefur saknað mest.
Guð blessi minninguna um góða
konu.
Erla Elín
Jóhanna Zoéga Henriksdóttir
lést á Elliheimilinu Grund laugar-
daginn 26. apríl sl., eftir erfíða sjúk-
dómslegu. Hún verður jarðsungin
frá Neskirkju nk. mánudag kl.
15.00.
Jóhanna fæddist í Reykjavík 6.
apríl 1906 og var því ný orðin 80
ára er hún lést.
Foreldrar hennar voru Guðrún
Þórunn Björnsdóttir og Henrik
Erlendsson, læknir. Jóhanna ólst
upp í Reykjavík hjá móður sinni og
ömmu.
Eftir að skólagöngu lauk með
prófí frá Kvennaskólanum lá lífs-
starf hennar fyrir, það að verða
húsmóðir hér í Reykjavík. Hún
giftist 1931 Sigurði Einarssyni,
versl.m., sem lengst af vann við
ritfangaverslun Bjöms Kristjáns-
sonar á Vesturgötu, eða meðan
heilsa hans leyfði, en hann lést
1976 eftir nokkra vanheilsu. Þau
hjónin eignuðust 3 syni, em tveir
þeira á lífí, Einar, kjötiðnaðarmeist-
ari og kennari í Iðnskólanum, og
Sigurður, verslunarmaður. Élsti
sonur þeirra, Bjöm, lést fyrir all
mörgum ámm í blóma lífsins, var
þáð þungbær raun fyrir hana.
Þau Jóhanna og Sigurður áttu
fagurt og gott heimili á Hringbraut
43, þar sem þau bjuggu lengst af.
Jóhanna var líka fyrirmyndar hús-
móðir og móðir, eins og allt bar
vott um sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún tók nokkurn þátt í
félagsstörfum, einkum var henni
hugleikin starfsemi safnaðarfélags
Neskirkju.
Jóhanna var einstaklega Ijúf og
hæglát kona, gott var að koma til
þeirra, þau vom bæði gestrisin og
skemmtileg heim að sækja. Eftir
að heilsu Sigurðar fór að hraka,
naut hann einstakrar umhyggju
Jóhönnu konu sinnar og styrks til
hins síðasta.
Eftir fráfall Sigurðar fór heiisu
hennar að hraka smá saman, en
hún bjó lengi ein í íbúð sinni á
Hringbraut 43, eða þar til á síðasta
ári að hún vistaðist á Dvalarheimilið
Ás í Hveragerði og nú síðast að
Ellih. Gmnd, en á báðum þessum
stöðum naut hún ágætrar umönn-
unar.
Ég minnist Jóhönnu, þessarar
góðu konu, með söknuði og færi
sonum hennar, barnabörnum og
tengdafólki samúðarkveðjur og bið
þess að hin mæta kona megi eiga
góða heimkomu.
Guðrún Haraldsdóttir
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróðrarstöð viö Hagkaup,
simi 82895.